Skessuhorn


Skessuhorn - 29.06.2022, Page 13

Skessuhorn - 29.06.2022, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2022 13 MEIRAPRÓF FjarkennslaNæstu námskeið: • 14. júlí • 25. ágúst • 29. september Verkleg kennsla í Reykjavík, Akureyri, Akranesi og á Sauðárkróki Upplýsingar, verð og skráning á aktu.is Menntaskóli Borgarfjarðar hlaut á dögunum veglegan styrk til þróun- ar námsgagna fyrir verkefnið sem í daglegu tali er kallað STEAM. Stóru málin í heiminum, eins og fjórða iðnbyltingin, umhverfismál- in og heimsmarkmið SÞ um sjálf- bæra þróun ásamt lýðfræðilegum áskorunum, kalla á aukna nýsköpun á öllum sviðum mannlífs og samfé- lags og ætlar skólinn að mæta þeim í þessu verkefni. Stefna íslenskra stjórnvalda í menntamálum og nýsköpun til ársins 2030 endur- spegla mikilvægi þess að ungt fólk búi yfir hæfni og eiginleikum til að geta tekið þátt í að móta nýjar lausnir í góðri samvinnu við aðra og þvert á greinar til þess að mæta þessum áskorunum. Skólaþróunarverkefni Mennta- skóla Borgarfjarðar hefur þessi atriði að leiðarljósi og að verk- efninu koma fjölmargir hagaðil- ar og sérfræðingar. Nemendur og starfsfólk MB eiga stóran hluta þeirra hugmynda sem ákveðið var að hrinda í framkvæmd og geng- ur samvinnan innan skólans vel. Skólaárið 2022–2023 raunger- ast mestu breytingarnar og hefur skólinn sett saman samstarfsvett- vang með háskólastiginu sem hugs- aður er sem farvegur fyrir sameig- inlegan lærdóm í gegnum rann- sóknir og faglegt samtal sem fleiri skólar og skólastig geta notið góðs af í náinni framtíð. Allir háskólarn- ir á landinu hafa staðfest þátttöku sína í samstarfsvettvangnum sem mun verða virkur frá og með hausti 2022. Meðal nýjunga í skólastarfi MB er þróun og innleiðing STEAM náms og kennslu en skammstöfun- in er á ensku og stendur fyrir Sci- ence, Technology, Engineering, Art og Mathematics. Þróunarsjóð- ur námsgagna styrkti skólann um tvær miljónir til þróunar námsefn- is fyrir STEAM nám og kennslu. Styrkurinn verður nýttur til að þróa námsefni og námsmat fyrir nám og kennslu í STEAM á framhalds- skólastigi. Nú þegar hefur verið settur saman hópur sérfræðinga og kennara MB sem þróa námsefnið. Í STEAM námi er lögð er áhersla á grunnþekkingu greinanna og aðferðafræði þeirra. Um er að ræða samþættingu tækni, vísinda, stærð- fræði, verkfræði og lista. Nem- endur munu kynnast vísindalegri- skapandi- og gagnrýnni hugsun ásamt því að þjálfast í tæknilæsi og tæknifærni í gegnum verkefni. Vís- indalegar aðferðir verða kynntar og nemendur fá tækifæri til að fram- kvæma tilraunir og skilja samhengi skapandi hugsunar og vísindastarfs. Nemendur kynnast aðferðum list- sköpunar og notkun á ólíkum efni- við í listsköpun. Fjallað verður um tengingu lista, vísinda og tækni og hvernig stærðfræðin getur birst í listsköpun og hvernig afurðir verk- fræðinnar geta endurspeglað list- ræna hugsun. Nemendur eiga að fá þjálfun í hugmyndavinnu og hvern- ig þeir geta sett fram hugmyndir og kynnt þær. Nemendur fá innsýn inn í heim fagfólks í tækni, vísind- um, stærðfæði, verkfræði og listum með tengingu við atvinnulíf, sam- félag og umhverfi. Kennsluhættir verða í anda nýsköpunar- og frumkvöðlamennt- ar en einnig er litið til annarra kennslufræðilegra módela og aðferða. Hér er um spennandi nýsköpun í skólastarfi að ræða sem vert er að fylgjast með á næstu misserum. -fréttatilkynning MB styrkt til þróunar námsefnis fyrir STEAM

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.