Skessuhorn - 29.06.2022, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2022 25
Aukaaðalfundar Samtaka sveitar-
félaga á Vesturlandi og Heilbrigð-
isnefndar Vesturlands var haldinn
á Hótel Hamri í Borgarnesi í síð-
ustu viku. Þar var kosið í stjórn
SSV, en slíkt er nauðsynlegt nú í
ljósi þess að sveitarstjórnarkosn-
ingar eru afstaðnar og nýir fulltrú-
ar hafa tekið sæti í sveitarstjórnum.
Þá fór einnig fram kynning á starf-
semi SSV.
Formaður stjórnar SSV var kosin
Guðveig Lind Eyglóardóttir odd-
viti Framsóknarflokks í Borgar-
byggð. Tekur hún við formennsku
af Lilju Björg Ágústsdóttir, einnig
í Borgarbyggð. Átta nýir fulltrúar
komu inn í stjórnina sem telur ell-
efu fulltrúa. Nýir fulltrúar eru Líf
Lárusdóttir og Ragnar Sæmunds-
son fyrir Akraneskaupstað, Guðveig
Lind Eyglóardóttir og Sigurður
Guðmundsson fyrir Borgarbyggð,
Guðný Elíasdóttir fyrir Skorradals-
hrepp, Elín Ósk Gunnarsdóttir
fyrir Hvalfjarðarsveit, Sigurbjörg
Ottesen fyrir Eyja- og Miklaholts-
hrepp og Júníana Björg Óttarsdótt-
ir fyrir Snæfellsbæ. Þeir Eyjólfur
Ingvi Bjarnason Dalabyggð, Jakob
Björgvin Jakobsson Stykkishólmi
og Jósef Kjartansson Grundarfirði
sitja áfram í stjórn.
mm
Ný stjórn SSV kjörin á aukaaðalfundi
Svipmynd af fundi SSV á Hótel Hamri. Ljósm. ssv.
Guðveig Lind Eyglóar-
dóttir er nýr formaður
stjórnar SSV.
aði.“ Verslunin Fok í Borgarnesi
gaf Steina einnig búnað að gjöf.
,,Fok gaf mér bæði sokka, hanska
og þessi gleraugu. Hjólreiðafélag-
ið gaf mér svo tvö dekk. Ég fékk
líka velvild á leiðinni. Við kom-
um t.d. við í Litlabæ í Ísafjarðar-
djúpi og fengum okkur eftirrétt eft-
ir morgunmatinn. Þegar Staðar-
haldarinn frétti hver ég var máttum
við ekki borga. Svo lagði hún auka-
lega inn á söfnunarreikninginn. Við
leggjum svo sjálf inn á reikninginn
upphæðina sem okkur er gefið í
öðruvísi formi á ferðinni eins og
andvirði morgunmatarins.“
Styrkir mikilvægt
málefni
Þegar blaðamaður kíkti í kaffi
daginn eftir að Steini og Anna komu
heim úr reisunni taldi upphæðin
á söfnunarreikningum 1.650.000
krónur. Upphæðin mun koma til
með að renna óskipt til Píeta sam-
takanna. Píeta samtökin sinna mik-
ilvægu forvarnarstarfi gegn sjálfs-
vígum og sjálfsskaða auk þess að
styðja við aðstandendur. Steini og
Anna misstu tengdason síðastliðinn
vetur sem féll fyrir eigin hendi og
segja þau ekki annað hafa komið
til greina en að styrkja þessi sam-
tök með ferðinni. ,,Við höfum ekki
notfært okkur þjónustu Píeta sjálf
en við höfum hvatt dóttur okkar til
að hafa samband við þá. En þessi
stofnun sinnir mikilvægu starfi sem
stendur okkur nærri svo við þurft-
um ekki að hugsa okkur tvisvar um
hvert ágóðinn myndi renna.“ Söfn-
unin mun standa opin fram yfir
mánaðarmót.
Fékk félagsskap
á köflum
Nokkrir kunningjar Steina hjóluðu
með honum stutta speli víðsvegar
á hringnum. ,,Ragnar Hjörleifs-
son hjólaði með mér stóran hluta
af fyrsta degi. Einar Jón Geirsson,
íþróttakennari í Búðardal, hjólaði
svo með mér nokkurn spöl þannig
ég fékk góða fylgd þar. Ragnar
Kristinsson vinur minn úr ruslinu
var nýkomin með rafmagnshjól og
hjólaði með mér síðasta spölinn
inná Ísafjörð eða um 40 km. Þegar
ég var á leiðinni upp Stikuhálsinn
fer þessi Ragnar fram úr mér keyr-
andi með eldriborgara sem höfðu
verið í Reykholti. Það barst í tal
hvað ég væri að gera og þá fór söfn-
unarbaukur um rútuna. Þegar ég
kom svo til Ísafjarðar þurfti ég að
byrja á að fara til félags eldriborgara
og taka þar við 50.000 krónum. Svo
var að tínast svona inn, ein stopp-
aði t.d. á Bröttubrekku og rétti mér
5000 kall.“
Fékk hjólið
á ruslahaugunum
Steini hefur í mörg ár unnið við
urðunastöðina í Fíflholtum á Mýr-
um. Hjólið fékk hann í gegn-
um starf sitt þar. ,,Hrefna Bryndís
Jónsdóttir hjá Sorpurðun Vestur-
lands keypti í rauninni þetta hjól
fyrir mig til að nota í vinnunni.
Ég nota hjólin þar til að fara á
milli með tæki, hjóla svo til baka
og sæki næsta tæki og þess háttar.
Hrefna keypti hjól handa mér en ég
tímdi ekki að nota það því ég var
að henda þessu í skóflur og drösl-
ast með það eitthvað. En ég þurfti
að kaupa mér hjól svo við skipt-
um, hún fékk gamla hjólið mitt og
ég fékk nýja. En þetta var upphaf-
ið af því þegar ég fór að hjóla. Ég
fékk mér svo góðan hnakk á hjól-
ið. Það er mikilvægt, ég fékk mér
strax breiðari hnakk með geli í og
svo fékk ég mér púða ofaná. Margir
eru að drepast í rófubeininu ef þeir
eru ekki með góðan hnakk. Svo
hef ég verið spurður af hverju ég
fæ mér ekki rafmagnshjól en mér
finnst það vera svolítið svindl, ég
vildi bara gera þetta sjálfur,“ segir
Steini nægjusamur með hjólið sem
hann fékk á urðunarstöðinni.
Hjólið með heimþrá
síðasta daginn
Steini segist hafa verið á góðum
tíma síðasta daginn en hjólið var
viljugt á leiðinni heim. ,,Ég byrjaði
síðasta daginn á Erpsstöðum í Mið-
dölum. Ég fór alltaf svolítið eftir
veðrinu. Ég ætlaði upp á Bröttu-
brekku deginum áður svo það
væri styttra heim síðasta daginn en
veðrið var bara orðið svo vont að
ég stoppaði í staðinn á Erpsstöðum
og fékk mér ís. Það var ekki stætt
þar. Ég átta mig svo ekki á því enn
í dag. Það var varla að ég þyrfti að
stíga á hjólið síðasta daginn. Það
var ekki mikið rok þó vindáttin hafi
gefið mér meðbyr. Ætli það hafi
ekki verið komin heimþrá í hjól-
ið. Ég fékk síðan góða fylgd síð-
asta daginn. Jói á Hraunsnefi ætl-
aði að hjóla með mér frá Hreða-
vatni en ég var bara einum of fljót-
ur, hann var að koma frá Reykjavík
og ég mætti honum við Bauluna.
Hann skaust heim, sótti hjólið og
náði með mér frá Daníelslundi,“
segir Steini en meðlimir úr Hjól-
reiðafélagi Vesturlands hjóluðu
með Steina og Jóa í gegnum Borg-
arnes og að Skallagrímsgarði þar
sem veglegar móttökur biðu.
Dásamlegar móttökur
Eins og fyrr segir fékk Steini hlýj-
ar móttökur og að auki brunastút
að gjöf frá Slökkviliðinu. ,,Mót-
tökurnar voru svo alveg dásam-
legar, að sjá hvað margir eru að
fylgjast með manni. Ég hef ekki
hugmynd um hvað voru margir
þarna en það var töluverður fjöldi
sem beið eftir mér,“ segir Steini
en hann segist ekki ennþá vera
búin að finna stað fyrir brunastút-
inn sem honum var gefinn. Anna
bætir þá við: ,,Bjarni slökkviliðs-
stjóri sagði mér að setja þetta fyrir
ofan hjónarúmið en mér líst ekk-
ert á það að fá þetta í hausinn í
næsta jarðskjálfta svo ætli við þurf-
um ekki finna hentugri stað,“ seg-
ir Anna hlæjandi. Auk þess að gefa
Steina brunastútinn lagði Neisti
félag slökkviliðsmanna 118.000
krónur inn á safnaðarreikninginn
en 118 er samanlagður líf- og
starfsaldur Steina í Slökkviliðinu.
,,Ég er búin að vera í slökkviliðinu
í 50 ár og Bjarni bannar mér að
hætta fyrr en slökkviliðið verður
100 ára á næsta ára,“ segir Steini.
Sérstaklega
gaman eftirá
Steini er nú búinn að klára að hjóla
hringinn í kringum allt Ísland en
ekki stefnir hann á frekari reisur á
hjólinu í bráð. Hann segist þó hafa
lært ýmislegt varðandi hugarfar-
ið við þessa reynslu. ,,Það var síðan
algjör tilviljun en ég fékk minningu
á Facebook og sá að ég var að koma
heim sömu dagsetningu úr hringn-
um og núna frá Vestfjörðunum. Ég
var 15 daga að fara hringinn en ég
ætlaði þá á 16 dögum. Svo núna
kom ég heim tveimur dögum á und-
an áætlun,“ segir Steini sem telur
Önnu vera búna að fá næga athygli
fyrir næsta ár en sjálfum þykir hon-
um athyglin í lagi þar sem mál-
efnið er gott. ,,Nú er hann búinn
með alla hringvegi á landinu svo ég
hlýt að vera sloppin,“ segir Anna og
hlær. Steini bætir svo við að lokum:
„Þetta var bara gaman, sérstaklega
eftirá. Að láta sér detta í hug þessa
vitleysu, það er svo annað mál. En
ég hugsa alltaf; ég hef allan daginn
fyrir mér og í rauninn allan tímann
fyrir mér þannig lagað. Þegar ég
fór hringinn var ég við það að gef-
ast upp á tímabili í slæmu veðri og
átti erfitt með áframhaldið, en Anna
hvatti mig áfram. En ég fann aldrei
fyrir svoleiðis tilfinningu núna. Ég
hef kannski verið búinn að læra að
þetta er fyrst og fremst hugurinn
sem kemur manni áfram. Best að
hugsa ekki of langt áfram, bara taka
einn dag í einu.“ sþ
Í upphafi ferðar við Bauluna. Með honum þann daginn hjólaði Ragnar Hjörleifs-
son frá Heggsstöðum.
Steini með brunastútinn frá Coventry sem Slökkviliðið færði honum að gjöf til minningar um afrek sitt.