Skessuhorn


Skessuhorn - 29.06.2022, Page 17

Skessuhorn - 29.06.2022, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2022 17 • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Bílás, Smiðjuvöllum 17, 301 Akranes www.bilas.isbilas@bilas.is 431 2622 Við tökum vel á móti þér... Mikið úrval af nýjum og notuðum bílum Það kostar ekkert að skrá bílinn hjá okkur Bjóðum gott pláss á bílaplani Bíláss fyrir sölubíla Við erum umboðsmenn fyrir bílaumboðin Öskju og Heklu Mikil sala og gott kaffi Við erum með bílinn fyrir þig! þeim hópi er Elísabet H. Einarsdótt- ir, fráfarandi formaður Félags harm- onikuunnenda í Reykjavík (FHUR). Henni er minnisstæð ferð sem hún fór í Stykkishólm með skólasystr- um sínum. Gist var á Hótel Stykk- ishólmi og við hátíðarkvöldverðinn lék Hafsteinn dinnermúsik og spil- aði svo fyrir dansi. „En svo feng- um við partýherbergi niðri og Haf- steinn kom með okkur. Við sungum þar einhver ósköp. Um fjögurleytið fór hann heim og þá vildu dömurnar smella á hann kossi fyrir öll skemmti- legheitin en Hafsteinn sagði: „Þið megið taka í höndina á mér, en ég vil ekki að konan mín finni ilmvatnsilm af öðrum konum.“ Ég hitti hann oft eftir þetta og minnti hann og kon- una hans á þetta. Merkilegur mað- ur og frábær harmonikuleikari,“ seg- ir Elísabet. Friðjón Hallgrímsson er núverandi formaður FHUR. Í minningarorðum um Hafstein í Harmonikublaðinu á sínum tíma segir hann: „Mér var illa brugðið þegar ég sá lát Hafsteins Sig- urðssonar í Stykkishólmi auglýst. Að vera á sextugasta og sjöunda aldursári þykir í dag ekki tiltakanlega hár ald- ur, framundan ættu að vera skemmti- leg ár þar sem tími gæfist til að sinna áhugamálum en brauðstritið að baki. Haddi var ákaflega vandaður tón- listamaður og án efa einn besti harm- onikuleikari Íslendinga.“ Kennarinn Haddi Haddi lék á ýmis hljóðfæri en hélt langmest upp á harmonikkuna. Hann átti auðvelt með að miðla þekkingu sinni til nemenda og naut sín sem kennari og í spjalli um tónlistina. Fyrsti nemandi hans mun hafa verið Sigþór Hallfreðsson sem hóf nám hjá honum um 1974. Í dag hugsar Sig- þór hlýlega til síns gamla kennara þótt hann hafi ekki numið hjá honum í langan tíma. Síðan námi hans lauk segir hann aðra nemendur hafa náð lengra í spileríinu en hann, en það skrifist á nemandann en ekki kennar- ann. Jakob Björgvin Jakobsson bæj- arstjóri í Stykkishólmi var einn nemenda Hafsteins og segir hann hafa búið að náttúrulegum tónlist- arhæfileikum. Hann hafi verið algjört náttúrutalent og gæddur einstakri tónvisku. Svo skemmtilega vill til að faðir Jakobs, Jakob Ingi Jakobs- son, lærði einnig hjá Hadda. Hann var næsti nemandi á eftir Sigþóri og sá fyrsti sem lærði hjá honum í lengri tíma, Lærðu þeir feðgar báðir og spil- uðu á sama hljóðfærið sem hafði áður verið í eigu Björgvins K. Þorvarðar- sonar móðurafa Jakobs yngri. Þess má geta að Björgvin var einnig móð- urbróðir Sigþórs. Svo segja má að Björgvin og nikkann hans hafi lagt grunninn að ýmsu góðu í tónlistarlíf- inu í Hólminum. Það verður Jakob Ingi Jakobsson sem mun opna Landsmótið um næstu helgi og spila fyrsta lagið þar í minn- ingu lærimeistara síns, Hafsteins Sig- urðssonar tónlistarmanns. Fjölskylda Hadda hefur aðstoðað blaðamann við ofangreind skrif og vill koma þökk- um á framfæri fyrir þann heiður sem minningu hans verður sýnd á þessu fjórtánda Landsmóti harmonikuunn- enda. gj/ Ljósm. úr einkasafni. Athugasemd blaðamanns: Hér að ofan er heiti hljóðfærisins harmonik(k)u ritað með mismun- andi hætti. Þar sem það kemur fyrir í heitum eða í beinni tilvitnun er það ritað harmonika, en annars harmonikka þar sem það tíðkast einnig svo í rituðu formi. Haddi með yngsta barnabarninu sem hann naut að vera með á síðustu metrunum. Ferðalög og gönguferðir um náttúru íslands, var sameiginlegt áhugamál hjá Rúnu og Hadda. Hann var mikið náttúrubarn og hafði mjög gaman af ferðalögum, bæði innan og utanlands. Sjómennskan var Hafsteini í blóð borin, og aldrei var hann sælli en eftir fengsæla veiðiferð. Haddi elskaði fjölskyldu sína og var umhugað um þau öll. Ertu í söluhugleiðingum? Fasteignamiðlun S í ð u m ú l i 1 3 1 0 8 R e y k j a v í k i b u d a e i g n i r . i s Ólafur Ingi Guðmundsson olafur@ibudaeignir.is sími: 847 7700 • Frítt söluverðmat • Persónuleg ráðgjöf • Fagmennska í verki löggiltur fasteignasali stjórnsýslufræðingur

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.