Skessuhorn - 29.06.2022, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 202228
Vörur og þjónusta
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Dreifi bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
- Meirapróf - Fjarnám - Aukin ökuréttindi
Verkleg kennsla/próf; Akranes - Reykjavík,- valkvætt.
Upplýsingar á aktu.is og í síma 892-1390.
Ökuskóli allra landsmanna
Klifur - tónlist - námskeið - afmæli - hópafjör
Fjölskyldutímar á sunnudögum 11-14
Afþreyingarsetur á Akranesi
smidjuloftid.is
GJ málun ehf
málningarþjónusta
Akravellir 12 - Hvalfj arðarsveit sími 896 2356
301 Akranes gardjons@visir.is
Garðar Jónsson
málarameistari
1990-2020 30 ár
Tímaritið Breiðfirðingur 70.
árgangur 2022 kom út um miðjan
maímánuð. Í því er að finna á ann-
an tug greina eftir ýmsa höfunda,
en allt efni á það sammerkt að eiga
rætur við eða á Breiðafirði.
Fyrsta hefti ritsins kom út vor-
ið 1942 svo þetta rit er jafnframt
80 ára afmælisútgáfa. Ritstjóri og
ábyrgðarmaður er Pétur Ástvalds-
son, en um útlit, umbrot og ljós-
myndun sá Haukur Már Haralds-
son. Ritið er 152 blaðsíður með
fjölbreyttu efni að vanda. Félagar
Breiðfirðingafélagsins sem og aðrir
áskrifendur eiga allir að vera komn-
ir með ritið í hendur. Eldri árganga
ritsins má finna á vefnum timarit.is
Eftirtaldir hafa ritið í lausasölu:
Stjórn Breiðfirðingafélagsins bf@
bf.is og bf.is
Hraðbúðin við Útnesveg Hell-
issandi.
Verslunin Hrund Ólafsbraut 55
Ólafsvík.
Græna Kompaníið Hrannarstíg 5
Grundarfirði.
Sæferðir verslun Smiðjustíg 3
Stykkishólmi.
Handverkshópurinn Bolli Vestur-
braut 12 Búðardal.
Handverksfélagið ASSA Króks-
fjarðarnesi.
Reykhólabúðin Reykhólum.
-fréttatilkynning
Sögufélag Borgarfjarð-
ar hefur gefið út 23.
árgang Borgfirðinga-
bókar. Bókin er 290
síðna kilja, ríkulega
myndskreytt og hef-
ur að þessu sinni að
geyma 19 greinar eft-
ir ýmsa höfunda. Í for-
mála, sem Ingibjörg
Daníelsdóttir og Guð-
mundur Þór Brynj-
úlfsson skrifa, segja
þau að stefna rit-
nefndar sé að hafa efni
fjölbreytt og horfa til
margra þátta, en eðli
málsins samkvæmt
sé þó söguleg varð-
veisla nokkuð stór
þáttur með útgáf-
unni. Geta þau þess
að aðkallandi sé að
blása lífi í Sögufé-
lag Borgarfjarðar og
kalla fleiri til verka.
Bókarkápu prýðir
að þessu sinni teikn-
ing eftir Jón Þór
Sigmundsson lista-
mann bókarinnar og
er hún af glansandi
rauðum Ford Bronco. Bílar koma
víðar við sögu og segir Hreinn
Ómar Arason m.a. frá bílum í eigu
Sæmundar Sigmundssonar og
Bjarni Kr. Þorsteinsson ritar um
þann drenglyndismann. Þá tekur
Óli H. Þórðarson frá Kleppjárns-
reykjum saman yfirlit yfir banaslys í
umferðinni í héraðinu, allt frá upp-
hafi bílaaldar fram á þennan dag.
Bragi Ásgeirsson skrifar um
Borgarnes um 1940, kauptún í
mótun. Eftir Jón Böðvarsson og
Þorstein Böðvarsson birtist síðari
hluti greinar um Grafardal. Þær
Guðrún Jónsdóttir, Þóra Guð-
rún Grönfeldt og Þóra Gylfa-
dóttir minnast ömmu sinnar og
langömmu; Guðrúnar Jónsdóttur
frá Valbjarnarvöllum. Böðvar Guð-
mundsson skrifar um Ingibjörgu
Ólafsdóttur saumakonu. Hjördís
H. Hjartardótt-
ir fjallar um ríka
kött ekkjunnar á
Hraunsnefi í grein
sem nefnist Aldrei
láta góða sögu
gjalda sannleikans.
Sóley Baldursdótt-
ir skrifar um verk-
efnið Barnvænt
samfélag og Sig-
ríður Valdís Finn-
bogadóttir birt-
ir nokkur ljóð. Jón
A. Guðmundsson
rifjar upp síldveið-
ar 1954. Inga Dóra
H a l l d ó r s d ó t t i r
fjallar um endur-
menntun í grein
sem hún nefnir Svo
lengi lærir sem lifir.
Sveitaböllin í Mýra-
og Borgarfjarðar-
sýslu rifjar Guð-
mundur Þór Brynj-
úlfsson upp og Jón G
Guðbjörnsson skráir
sögu Dvalarheim-
ilis aldraðra í Borg-
arnesi, síðar Brák-
arhlíðar. Loks er
grein Ásdísar Har-
aldsdóttur um upplifun fólks frá
strandi Pourquoi Pas? sem fórst út
af Mýrum haustið 1936.
Borgfirðingabók 2022 er nú í
þann veginn að berast áskrifend-
um. Ef þeir sem ekki eru áskrifend-
ur hafa áhuga á að nálgast bókina er
m.a. hægt að senda skilaboð á FB
síðu Sögufélags Borgarfjarðar.
mm
Afmælisrit
Breiðfirðings komið út
Nýjustu tvö bindi Breiðfirðings.
Ný Borgfirðingabók komin í dreifingu