Morgunblaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 64
www.husgagnahollin.is Sími: 558 1100 Skannaðu QR-kóðann til að skoða bæklinginn. Sumar GLEÐILEGT STOCKHOLM SÓLBEKKUR Léttur og fallegur sólbekkur með góðri svampdýnu í Olefin áklæði. Stillanlegur. Litir: Natur eða svartur. 193 x 60 x 33 cm 89.990 kr. RIVERDALE KENTON LUKT Ø35 cm. 26.990 kr. Ø39 cm. 39.990 kr. BERMUDA Garðsett sem samanstendur af 4 einingum sem hægt er að raða saman á marga vegu. Vinstri og hægri sófaeining með armi og ferköntuð seteining ásamt borðeiningu með hertu gleri. 210 x 210 x 80 cm. 179.990 kr. VANNES Hliðarborð. Rautt, drapplitað eða grátt. Ø45 x 50 cm. 18.990 kr. Ø60 x 45 cm. 24.990 kr. Nemendaópera Söngskólans í Reykjavík heldur sýningu í dag kl. 20 í safnaðarheimili Vídalínskirkju. Nefnist hún Teboðið og inniheldur atriði úr ýmsum óperum og söngleikjum og eru flytjendur nemendur Söngskólans í Reykjavík á framhalds- og háskólastigi. Leikstjóri sýn- ingarinnar er Sigríður Ásta Olgeirsdóttir og tónlistar- stjóri og píanóleikari Hrönn Þráinsdóttir. Sögusvið sýn- ingarinnar er barnaherbergi hjá Yum-Yum, Peep-Bo og Pitti-Sing sem drekka te með nokkrum brúðum sínum. Meðal gesta sem mæta í boðið eru Sophie og Octavian úr Rósariddaranum og Porgy og Bess úr samnefndri óperu Gershwins. Teboð með þekktum persónum FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 118. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Brasilíska knattspyrnukonan Ana Paula Santos Silva sló í gegn í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna í fót- bolta í gærkvöld og skoraði þrennu fyrir Keflvíkinga í stórsigri þeirra gegn KR í Vesturbænum. Breiðablik var ekki í vandræðum með Þór/KA á Kópavogsvell- inum. »55 Brasilísk þrenna í Vesturbænum ÍÞRÓTTIR MENNING Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Barþjónninn Gregory Buda kennir íslenskum barþjónum framúrskar- andi tækni á sérstöku námskeiði í dag og í kvöld hristir hann heims- klassakokteila úr íslensku brennivíni ofan í áhugasama á Jungle Cocktail Bar í Austurstræti. Gregory Buda er einn kunnasti barþjónninn í kokteilbransanum í heiminum. Hann er kokteilsérfræð- ingur á hinum þekkta bar The Dead Rabbit í New York og hefur síðustu ár ferðast um heiminn til að koma fram á viðburðum og halda námskeið á sviði kokteilgerðar. „Í veitingabransanum erum við oft að reyna að finna upp hjólið aftur og aftur. Við gerum mikið af mistökum, og lærum vonandi af þeim, en það er enn betra að geta lært af mistökum annarra,“ segir Buda sem kveðst á námskeiði sínu fara yfir margt það sem hefur skapað hið góða orðspor Dead Rabbit, svo sem leiðir til að tryggja gæði og áreiðanleika. Gregory Buda kveðst trúa á smá- atriðin og dýptina í kokteilum og þrífst á sköpunargáfunni sem fer í að búa til fágaðan kokteil. Þessi nálgun hans er eflaust komin frá bakgrunni hans á sviði vísinda en hann er með doktorsgráðu í grasafræði og hikar ekki við að nýta vísindin til að vinna með nýjungar í kokteilgerð. Athygli vekur að Greg notast mik- ið við brennivín í kokteilum sínum en The Dead Rabbit, heimavöllur hans, er meðal söluhæstu staða á því vest- anhafs. „Ég kynntist brennivíni fyrst þegar ég var barþjónn á litlum kok- teilbar í West Village í New York sem kallast Up & Up. Ég var mjög hrifinn af brennivíni og heimsótti verksmiðjuna þar sem það er fram- leitt þegar ég kom síðast til Íslands. Nú er ég spenntur að fá að blanda nokkra frábæra ákavítiskokteila hér,“ segir hann. Hann segir að fyrri heimsókn sín hingað til lands, í október síðast- liðnum, hafi verið ævintýri líkust. Greg kveðst vera áhugasamur um klettaklifur, náttúruljósmyndum og ýmiss konar útivist. Hann kom hing- að til að sækja námskeið í skyndi- hjálp fyrir útivistarfólk en eyddi svo viku í að ferðast um landið. „Alveg ótrúleg upplifun,“ segir hann. Úlfar Árdal, framleiðslustjóri brennivíns hjá Ölgerðinni, segir að það sé hvalreki fyrir veitingageirann á Íslandi að Greg muni kenna lands- liði íslenskra barþjóna nokkur vel valin trix. „Þeir gerast ekki mikið áhrifameiri en hann. Ég held að það væri galið að láta þennan viðburð í kvöld fram hjá sér fara,“ segir hann en leikar hefjast klukkan 20 á Jungle. Morgunblaðið/Eggert Spenntur Gregory Buda, barþjónn frá The Dead Rabbit í New York, mixar brennivínskokteila á Jungle í kvöld. Heimsklassakokteilar úr íslensku brennivíni - Kemur til Íslands frá einum frægasta barnum í New York
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.