Morgunblaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2022 Kynningarfundur um miðborgar- leikskóla og miðstöð barna Fimmtudaginn 28. apríl kl. 17 á 7. hæð í Borgartúni 14. Staðbundinn kynningarfundur um miðborgarleikskóla og fjölskyldumiðstöð verður haldinn í dag. Um er að ræða leikskóla við Njálsgötu fyrir börn á aldrinum eins til sex ára en núverandi starfsemi skólans er við Njálsgötu, Lindargötu og Barónsstíg. Miðstöð barna verður einnig í byggingunni. Svæðið verður endurnýjað og nýtt leiksvæði verður opið almenningi þegar leikskólastarfið er ekki í gangi. Hægt er að kynna sér verkefnið á slóðinni reykjavik.is/midborgarleikskoli-og-fjolskyldumidstod. Á fundinum verður starfsemin kynnt, byggingin og lóð ásamt lýsingu, vottun, væntanlegum framkvæmdum og jarðvegsvinnu. Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipulagssvið Mynd: Basalt arkitektar Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Alls hafa borist um 1.100 tillögur í hugmyndasamkeppni á vegum Reykavíkurborgar um endurgerð Laugardalslaugar, en miklar endur- bætur á mannvirkinu og umhverfi þess standa nú fyrir dyrum. Þess er vænst að að lokinni hönnun, meðal annars út frá þeim hugmyndum sem komnar eru, megi hefja fram- kvæmdir í Laugardal á næsta ári, segir Árni Jónsson forstöðumaður. Sundlaugarnar eru sérkenni Íslands Dýfingalaug og heimsins hæsta stökkbretti, fjölgun heitra og kaldra potta með misjöfnu hitastigi, busl- laug með öldum og yfirbyggð kennslulaug. Stólar og sólbekkir með vatnsnudd, fossa og bunur. Barnalaugar og rennibrautir í ýms- um útgáfum. Þetta er meðal hug- mynda sem borist hafa í samkeppn- ina, sem lauk formlega í síðasta mánuði enda þó enn sé svigrúm til að leggja orð í belg. Leitað var eftir sjónarmiðum gesta í Laugardals- laug og annarra sem nýta sér þjón- ustuna, svo sem fulltrúa skóla, íþróttafélaga og annarra slíkra. „Sundlaugar eru sérkenni Íslands og einstakir staðir. Heilsulindir en líka alveg magnað fyrirbæri viðvíkj- andi félagsauði og því að mynda tengsl milli fólks,“ segir Árni Jóns- son. Hann kom til starfa við sund- laugina fyrir um ári og hefur síðan tekið þátt í forsagnarvinnu vegna endurgerðar laugarinnar sem hefur verið á dagskrá í nokkur ár. Reykja- víkurborg hefur þegar tekið frá 2,5 milljarða króna í verkefnið, en lík- lega þarf að kosta meiru til. Áhorfendastúkan aldrei nýst sem skyldi Laugardalslaug var tekin í notkun árið 1968, en miklu hefur verið bætt við síðan. Á svæðinu eru í dag þrjár laugar, einnig heitir pottar, eimbað og 86 metra löng rennibraut. Ker stóru útilaugarinnar er í dag orðið úr sér gengið sem og lagnavirki þess. Einnig áhorfendastúkan sem setur sterkan svip á sundlaugar- svæðið, en undir henni voru bún- ingsklefar og afgreiðsla laugarinnar forðum daga. Segja má stúkan, sem Einar Sveinsson arkitekt hannaði, hafi aldrei nýst sem skyldi. Ekki hefur verið sinnt um viðhald hennar í ára- raðir og nú nýtist hún aðeins sem skjólveggur gegn norðanáttinni. Steypan í stúkunni er farin að láta mjög á sjá og trjágróður er jafnvel farinn að skjótast upp úr mosagró í fosssprungnum múrnum „Ýmsar hugmyndir hafa verið uppi um endurbætur eða breytingar á stúkunni, svo þar megi koma fyrir til dæmis veitingaaðstöðu, setustofu eða öðru slíku. Þá hefur verið í um- ræðu að endurbyggja þannig að færa starfsemi menningarhúss Borgarbóksafns hingað úr Sól- heimum,“ segir Árni. Verði paradís Fram undan er hugmynda- samkeppni meðal hönnuða. Þar ber að halda því til haga að nærri lætur að byggja eigi nýja sundlaug í Laug- ardalnum, svo miklu stendur til að breyta eða endubyggja. „Verkefnið allt og fyrirhugaðar framkvæmdir hér verða að skoðast í stóru samhengi, til dæmis við um- hverfið í Laugardal, sem er einstakt gróið svæði inni í miðri borg,“ segir Árni. „Hér eru Fjölskyldu- og hús- dýragarðurinn, útivistarsvæði, þjóð- arleikvangur og stærsta sundlaug á Íslandi, þar sem er mikilvægt að sé góð aðstaða fyrir fjöskyldur og börn- in sem vilja busla. Hér þarf allt að virka saman því Laugardalslaugin er paradís.“ Fleiri pottar og hátt stökkbretti - Laugardalslaugin verður endurgerð - Hugmynda er leitað - Framkvæmdin kostar milljarða - Heilsulind og magnað fyrirbæri - Stúkan fái hlutverk og verði jafnvel gerð að menningarhúsi Stúkan Ýmsar hugmyndir hafa verið uppi um endurbætur eða breytingar á áhofendapöllunum við Laugardalslaug, svo þar megi koma fyrir til dæmis veitingaaðstöðu eða slíku. Einnig er rætt um menningarhús og bókasafn. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Forstöðumaður Verkefnið verður að skoðast í stóru samhengi við umhverfið í Laugardal; einstakt gróið svæði í miðri borg, segir Árni Jónsson í viðtalinu. Sproti Asparskot í mosagró í sprung- inni steypu í áhorfendastúkunni. Eimreiðin Minør er komin á sinn stað á Miðbakka Gömlu hafnarinnar. Því má segja að sumarið sé komið við höfnina. Eimreiðin mun standa þarna til sumarloka, börnum og full- orðnum til gleði og ánægju. Nú eru 105 ár liðin síðan eimreið- arnar Minør og Pioner luku verki sínu við gerð Gömlu hafnarinnar, sem var geysimikil framkvæmd á sínum tíma. Eimreiðarnar voru keyptar hingað til lands vegna hafn- argerðarinnar. Járnbraut var lögð frá Öskjuhlíð að Reykjavíkurhöfn og síðar einnig frá Skólavörðuholtinu. Þar var tekið grjót sem sett var á vagna sem eimreiðarnar drógu niður að höfn. Eimreiðin Minør hefur ávallt verið í vörslu Faxaflóahafna, en eimreiðin Pioner hefur verið varðveitt árið um kring á Árbæjar- safni . sisi@mbl.is Morgunblaðið/sisi Miðbakki Eimreiðin nýmáluð og flott í sólskininu, almenningi til ánægju. Eimreiðin Minør á sinn stað á Miðbakka
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.