Morgunblaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 14
Seðill og borðapantanir á apotek.is LAUGARDAGA & SUNNUDAGA 11:30-14:30 LJÚFFENGIR BRUNCH RÉTTIR KOKTEILAR & KAMPAVÍN Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2022 Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Persónuvernd hefur fellt niður athug- un sína á framkvæmd íslenskra dóm- stóla við birtingu persónuupplýsinga í dómum á netinu. Þetta kemur fram í tilkynningu sem birt hefur verið á heimasíðu stofnunarinnar. Ástæðan er sú að athugunin er nú talin falla ut- an valdsviðs Persónuverndar. Það var í fyrrahaust sem Persónu- vernd tilkynnti að á meðal 19 frum- kvæðisathugana sem væru í vinnslu hjá stofnuninni væri birting persónu- upplýsinga í dómum á netinu. Að auki væri sérstök athugun í gangi á birt- ingu persónuupplýsinga í tveimur dómum Héraðsdóms Reykjavíkur. En í síðustu viku var greint frá því á heimasíðu Persónuverndar að hún hefði sent dómstólum landsins bréf og tilkynnt að stofnunin hefði fellt þessa athugun niður með vísan til dóms Evrópudómstólsins frá 24. mars síðastliðnum í máli nr. C-245/20. Dómurinn varðar undanþágu frá valdsviði eftirlitsyfirvalda samkvæmt evrópsku persónuverndarreglugerð- inni, sem vísar til þess þegar dóm- stólar fara með dómsvald sitt. Í nið- urstöðu dómsins segir að vinnsla persónuupplýsinga framkvæmd af dómstólum í sambandi við upplýs- ingastefnu þeirra varðandi mál sem þeir hafa til meðferðar falli utan vald- sviðs eftirlitsyfirvalda samkvæmt reglugerðinni. Þetta fer þvert á skoð- un sem Persónuvernd hér á landi hafði lýst yfir. Vilborg Steingrímsdóttir, sviðs- stjóri öryggis og úttekta hjá Persónu- vernd, segir að þrátt fyrir þessa nið- urstöðu megi ráða af fjölda ákvæða evrópsku persónuverndarreglugerð- arinnar að henni sé ætlað að gilda um þá vinnslu persónuupplýsinga sem fer fram þegar dómstólar fara með dómsvald sitt en Persónuvernd taki ekki afstöðu til þess hvernig æskileg- ast sé að haga eftirfylgni með því að dómstólar fari að löggjöfinni. Vilborg segir að sums staðar í Evr- ópu hafi verið komið á innra eftirliti með persónuvernd hjá dómstólunum, t.d. með persónuverndarfulltrúa dómstóla, umboðsmanni, sérstakri deild eða nefnd um persónuvernd eða stjórnsýslueiningum, sem eru sam- bærilegar Dómstólasýslunni, verið falið þetta eftirlit. Eftirlitið talið utan vald- sviðs Persónuverndar - Hætt við að athuga netbirtingu persónupplýsinga í dómum Morgunblaðið/Þór Dómstólar Þeir ráða sjálfir hvernig persónuupplýsingar eru birtar. Flutningabíl var ekið undir brú á Hnoðraholti í Garðabæ undir kvöld á þriðjudag með þeim afleiðingum að kassinn aftan á honum tættist í sund- ur. Engin slys urðu á fólki en bíllinn skemmdist mikið. Hæðartakmarkanir eru við brúna og skýrar merkingar fyrir framan hana. Þrátt fyrir það gerist það öðru hverju að of háir bílar aka undir hana, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. „Þetta gerist alltaf af og til að menn átta sig ekki á hæð bíls og hæð brúarinnar þarna undir,“ segir Sævar Guðmundsson, aðalvarðstjóri hjá lög- reglunni í Hafnarfirði, í samtali við mbl.is. Brúarhandriðið virðist hafa komið í veg fyrir að brak af kassa bílsins þeyttist upp á Reykjanesbrautina á háannatíma. Þá voru hlauparar að koma að brúnni og ætluðu undir hana þar sem brakið þeyttist í allar áttir. Sjónarvottur segir að fólki hafi verið ansi brugðið, enda hafi bíllinn komið á töluverðri ferð og lítið hægt á sér þrátt fyrir höggið. Bílstjórinn hafi ekið áfram undir brúna þrátt fyrir að kassinn tættist í sundur. Flutningabíll lenti á umferðarbrú - Brak úr kassa á bílnum þeyttist í allar áttir en engan sakaði Morgunblaðið/Árni Sæberg Skemmdir Kassinn á flutningabílnum var mikið skemmdur. Vegfarendur um Öskjuhlíð hafa tekið eftir ummerkjum eftir hoppukastalann Skrímslið sem starfræktur var hjá Perlunni í fyrra og hitteðfyrra. Þótt kastalinn sé farinn hefur ýmislegt verið skilið eftir, eins og gervi- grasdúkar, plastdúkar, undirstöður og pallar. Þegar ljósmyndari var á ferðinni í byrjun vikunnar lágu margar járngrindur niðri, sem höfðu verið í kringum svæðið, en daginn eftir voru þær komnar upp aftur. Morgunblaðið/Árni Sæberg Skrímslið skilur eftir sig slóð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.