Morgunblaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2022 Jón Magnússon skrifar á blog.is um stuld tveggja kvenna á listaverki Ásmundar Sveinssonar. Jón segir að þegar „þjófnaðurinn upp- götvaðist og hið þjófstolna fannst inni í klambri sem þær stöllur kölluðu listaverk voru þær kokhraustar og réttlættu þjófn- aðinn með því að listaverk Ás- mundar Sveinssonar af einum mesta kvenskörungi sögualdar hafi verið rasískt“. - - - Síðar sagði Jón: „Í frjálsu þjóð- félagi hefur fólk tjáning- arfrelsi og getur haldið fram sín- um skoðunum, en það réttlætir ekki, að einstaklingurinn fari sínu fram og taki sér sjálfdæmi um að framfylgja hverju svo sem honum dettur í hug jafnvel þó það gangi á réttindi annarra. Ef við sam- þykkjum það, þá er komið hið raunverulega frumskógarlögmál sem endar alltaf með því að sá sterkari fer sínu fram að geðþótta gagnvart hinum veikari.“ - - - Jón bendir einnig á að væri fall- ist á það sem lögmaður kvennanna hefði sagt um að kon- urnar hefðu sæmdarrétt á því „sem þær gerðu og kalla lista- verk“ þá gæti „hver sem er stolið hverju sem er og réttlætt það með einhverjum fáránleika eins og „listakonurnar“ gera og komið hinu þjófstolna inn í eitthvert klambur og slegið þar með sinni „sæmdar“eign á hið stolna“. - - - Sú fjarstæða að kalla verk Ás- mundar rasískt skiptir í raun ekki máli í þessu sambandi. Og það er hægt að taka undir með Jóni að það væri ekki „beinlínis hugnanlegt eða mundi stuðla að friði og allsherjarreglu í samfélag- inu“ fengi slíkt háttalag að við- gangast. Jón Magnússon Er þjófnaður list? STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Fyrsta skóflustungan fyrir stóla- lyftu var tekin í Bláfjöllum í gær- morgun en í nóvember voru kynnt áform um uppbyggingu á skíðasvæð- inu samkvæmt samkomulagi Sam- taka sveitarfélaganna á höfuðborg- arsvæðinu. Einar Bjarnason, rekstrarstjóri í Bláfjöllum og starfs- maður til margra ára, tók fyrstu skóflustunguna með skurðgröfu. „Þetta er mikill gleðidagur. Loks- ins, loksins,“ sagði Magnús Árnason, framkvæmdastjóri skíðasvæða höf- uðborgarsvæðisins, við mbl.is í gær. „Ég held að það megi segja að við höfum unnið markvisst að uppbygg- ingu frá árinu 2010 en á þeim tíma snerist það mest um snjóframleiðslu. Framkvæmdir sem þessar voru samþykktar árið 2018 en fyrst nú er- um við að sjá framkvæmt. En fyrir því eru svo sem margar ástæður. Loksins erum við farin af stað og ekki er hægt að stoppa okkur héðan af,“ sagði Magnús. Mikil vinna fram undan Fram undan er mikil vinna í sum- ar. „Tvær lyftur verða reistar í sum- ar og önnur þeirra verður örugglega tekin í gagnið fyrir næsta vetur og hin þá væntanlega ári síðar. Við tök- um þessu fagnandi,“ sagði Magnús enn fremur. Framkvæmdir við stólalyftu hafnar Uppbygging á skíðasvæðinu í Bláfjöll- um að hefjast - Mikill gleðidagur Ljósmynd/Skíðasvæðin Skóflustunga Einar Bjarnason tek- ur fyrstu skóflustunguna í gær. Nýlega blómstraði blæösp í garði á Egilsstöðum og er þetta í þriðja skipti sem ræktuð blæösp hefur náð að blómstra á Íslandi svo vitað sé. Blómgun villtrar blæaspar hefur aldrei verið skráð hér á landi. Frá þessu greinir Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri á heimasíðu Skógræktarinnar. Í pistli hans segir að mynd sem Sigrún Þöll Hauksdóttir Kjerúlf, kennari á Eg- ilsstöðum, birti á Facebook af blómstrandi blæösp hafi vakið at- hygli hans. „Þessi atburður var svo merkilegur að skógræktarstjóri fór á stúfana og skoðaði blæaspir í trjá- safninu á Hallormsstað og þær villtu í Egilsstaðaskógi til að kanna hvort þær blómstruðu. Svo reyndist ekki vera,“ skrifar Þröstur. Aðlöguð mun hlýrri sumrum Við skoðun á öspinni hafi komið í ljós að hún reyndist vera karlkyns, sem sást á því að frjóduft hristist úr mjúkum reklunum í blænum. Öspin var keypt á sínum tíma í gróðrar- stöð, annaðhvort í Kjarna eða á Vöglum, og gróðursett í garðinn sunnan við húsið árið 1982. Þar hef- ur hún dafnað vel síðan. „Blómgun trjáa stjórnast að mestu leyti af hitafari sumarsins áð- ur. Blæösp er aðlöguð mun hlýrri sumrum en Ísland hefur yfirleitt að bjóða og nær því (nánast) aldrei að blómstra. Í fyrra var óvenjuhlýtt og sólríkt á Austurlandi, líkt og var 1955 og (sennilega) 1980 á Norður- landi. Það dugði samt ekki fyrir blæaspir á Héraði yfirleitt. Í viðbót þurfti vaxtarstað sunnan við hús í skjólgóðu umhverfi og fullri sól,“ skrifar skógræktarstjóri. aij@mbl.is Blómstrandi blæösp aðeins í þriðja skipti - Frjóduft hristist úr mjúkum rekl- unum í blænum Ljósmynd/Þröstur Eysteinsson Í þriðja sinn Sjaldséð blómgun á blæösp á tré í garði á Egilsstöðum. Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is. 2 0 0 0 — 2 0 2 0 Eldhúsinnréttingar Tímabundin opnunartími vegna Covid–19 Mán. – Föst. 10–17 Laugardaga 11–15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.