Morgunblaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 60
60 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2022 Þ að var með töluverðri eftir- væntingu sem ég hélt í Sambíóið í Egilshöll að sjá kvikmyndina um manninn að norðan, The Northman, og þá fyrst og fremst vegna þess að Sjón skrifaði handritið með leikstjór- anum Robert Eggers því Sjón kom einnig að handriti Dýrsins sem var einhver óvæntasta bíóánægja síð- asta árs og var því von á góðu. Stikla myndarinnar hafði auk þess kitlað forvitnina og vakið eftirvænt- ingu en í henni sést hinn vörpulegi Alexander Skarsgård dýrslegur af bræði, ataður auri og blóði og þreknari en nokkru sinni fyrr, að kljúfa menn í herðar niður. Holn- ingin öll minnti meira á bjarndýr en mann og svo birtist líka hún Björk okkar Guðmundsdóttir í nornarlíki með engin augu. Jahérna hér, ein- hver yrði nú bíóveislan!! Og já, sannarlega er The North- man bíóveisla og heillandi þær myndir sem Eggers dregur upp á hvíta tjaldinu með sínu hæfileika- fólki. Handritið er byggt á Amlóða- sögu sem Shakespeare mun hafa lit- ið til þegar hann skrifaði Hamlet. Segir sagan sú, eða goðsögnin öllu heldur, af konungssyni sem leikur fávita til að bjarga sjálfum sér þeg- ar föðurbróðir hans myrðir kónginn föður hans, til að hefna hans síðar. Þá goðsögu mun víðar hægt að finna í vestrænni menningu, eins og fram kemur í texta eftir leik- húsmanninn enska Peter Brook í leikskrá Borgarleikhússins fyrir uppfærslu þess á Hamlet leikárið 2013-14 og skrifar hann m.a. að víst sé að rætur verksins liggi djúpt í þjóðsögum og munnmælum. Með berserkjum En hvað sem þeim uppruna líður og innblæstri Shakespeare þá er sagan í The Northman á þá leið að kon- ungurinn Aurvandill (Hawke) snýr aftur í ríki sitt á írskri strönd eftir langan hernað, ásamt bróður sínum Fjölni (Bang) og föruneyti. Drottn- ing hans Guðrún ( Kidman) og tán- ingssonurinn Amlóði (Oscar Novak) taka vel á móti honum og virðist allt leika í lyndi þar til kóngur er óvænt veginn af bróðurnum og tekst Am- lóða naumlega að flýja. Hann leggur á hafið í árabáti og þylur upp í sí- fellu að hann ætli að hefna föður síns, bjarga móður sinni og drepa frænda sinn. Mörgum árum síðar er Amlóði, nú leikinn af Skarsgård, aftur við árarnar og orðinn fullorðinn og heldur óárennilegur. Hann rær með hópi karla og þegar komið er í land ganga þeir ógurlegan berserksgang áður en þeir ráðast hálfnaktir inn í slavneskt þorp og drepa þar mann og annan. Eftirlifandi þorpsbúa hlekkja þeir og hyggjast flytja út sem þræla. Amlóði hittir óvænt fyr- ir örlaganorn eina (Björk) sem segir honum að Fjölnir sé nú orðinn stór- bóndi á Íslandi eftir að hafa flúið undan mönnum Haralds hárfagra Noregskonungs. Amlóði sér þá leik á borði og þykist vera einn þræl- anna. Eru þeir fluttir til Íslands þar sem Amlóði verður þræll Fjölnis og leggur á ráðin. Hin fagra og fjöl- kunnuga Olga (Taylor-Joy), ein þrælanna, leggur honum lið og verða þau ástfangin. Sýnir sækja á Amlóða og þá m.a. af ættartré hans sem breytist eftir því sem á líður og hann áttar sig á því hver örlög hans eru og að þau geti hann ekki flúið. Engu ofaukið Meira skal ekki sagt um söguna sem er einföld í grunninn og þau stuttu samtöl sem finna má í mynd- inni minna oftar en ekki á Íslend- ingasögur þar sem engar eru mála- lengingarnar og mikil viska fólgin í fáum orðum. Eggers lætur mynd- irnar tala sínu máli og sýnir ýmsa fyrirboða og sýnir sem eru tilkomu- miklar og litir og birta eru oft þann- ig að maður vildi gjarnan staldra lengur við til að meðtaka betur sjónarspilið. Má þar nefna stjörnu- bjartan himin sem lýsir upp Amlóða á göngu hans eftir ísi lögðu lands- lagi í myrkri, valkyrju sem ríður í átt til himins og berserki sem dansa hálfnaktir við opinn eld. Bardaga- atriðin eru mögnuð og eitt það fyrsta mun vera ein taka þó það standi yfir í margar mínútur og maður gleymir nánast að anda, slík- ur er ofsinn og krafturinn í leikur- unum. Er það ekki síst Skarsgård að þakka sem er sniðinn í hlutverk Amlóða. Hann er algjört heljar- menni í þessari kvikmynd og aðeins kraftajötunninn Hafþór Júlíus Björnsson gnæfir yfir hann í eftir- minnilegu knattleiksatriði. Björk og Ingvar E. Sigurðsson eru einnig í litlum en mikilvægum hlutverkum og fara bæði á kostum, Björk sem örlaganorn og Ingvar sem einkenni- legur seiðkarl sem hefur milligöngu um samtal við framliðið hirðfífl. Fíflið leikur Willem Dafoe (það er að segja á meðan fíflið er á lífi) og kitlar þá hláturtaugar bíógesta. Henti einhver leikari fullkomlega í hlutverk hirðfífls þá er það hann. Höfuðið á fíflinu kemur svo síðar við sögu, líkt og höfuðkúpa Jóriks í Hamlet. Valinn maður í hverju rúmi Leikaravalið er prýðilegt á heildina litið og greinilegt að með því átti líka að laða að breiðan hóp bíógesta og tryggja aukið fjármagn til fram- leiðslunnar. Bandaríkjamaðurinn Hawke og Ástralinn Kidman eru bæði kvikmyndastjörnur líkt og Sví- inn Skarsgård og er nauðsynlegt að leiða hjá sér þann litla aldursmun sem er þeim á Kidman og Skars- gård sem leika mæðgin. Skarsgård er níu árum yngri en Kidman og til gamans má geta að þau léku hjón í þáttunum Big Little Lies fyrir fá- einum árum. Þetta klúður gleymist þó fljótt og er auðveldlega fyrir- gefið. Hawke er traustur í hlutverki konungsins þó ekki sýni hann svo sem neinn stórleik en Daninn Claes Bang stelur hins vegar senunni í hlutverki illmennisins Fjölnis. Bang virðist alltaf leika áreynslulaust og augnaráðið eitt fær kalt vatn til að renna manni milli skinns og hör- unds. Ekki má gleyma ensku leikkon- unni Önyu Taylor-Joy, stjörnunni úr þáttunum Queen’s Gambit, sem vakið hefur mikla og verðskuldaða athygli hin síðustu ár. Hér sýnir hún á sér jafnt mjúkar sem harðar hliðar og persóna hennar sterk kona í karlaveldi og rödd skynseminnar þegar á reynir. Kidman kemur svo skemmtilega á óvart undir lok myndar og má segja að þar verði ákveðin umbreyting á Guðrúnu. Er hægt að biðja um meira? The Northman er vægðarlaus of- beldismynd, ráðgáta, ástarsaga og klassískur hefndarþriller með dul- rænu ívafi og minnum úr fornum norrænum sögum. Hefndarsögur enda jafnan illa, eins og þekkt er, og sá sem leggur í slíka för veit að þar með storkar hann örlögunum. Allt útlit myndarinnar er óað- finnanlegt, oftar en ekki tilkomu- mikið og greinilegt að ekkert hefur verið til sparað. Þetta er stórmynd, eins og þær hétu hér í gamla daga, en þó engan veginn dæmigerð sem slík. The Northman er kvikmynd sem hrífur mann með sér og heldur manni föngnum og þá sérstaklega þegar spennan er hvað mest, þegar þungur trumbusláttur tónlistar- innar dynur á manni í bland við ösk- ur berserkjarins Skarsgård. Þetta er kvikmynd sem verður að sjá í bíó, á stóru tjaldi og með öflugu hljóðkerfi. Svona á bíó að vera eða er hægt að biðja um meira? Ég held ekki. Enginn má sköpum renna Berserkur Alexander Skarsgård í hlutverki Amlóða, tilbúinn að höggva mann og annan, í The Northman. Sambíóin, Smárabíó og Borgarbíó The Northman bbbbb Leikstjóri: Robert Eggers. Handrit: Sjón og Robert Eggers. Aðalleikarar: Alex- ander Skarsgård, Anya Taylor-Joy, Nicole Kidman, Claes Bang og Ethan Hawke. Bandaríkin og Bretland, 2022. 136 mín. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR Tónlistarstyrkir Rótarý fyrir árið 2022 voru afhentir á tónleikum, sem haldnir voru í Tónlistar- miðstöð Austurlands á Eskifirði síð- astliðinn sunnudag. Styrkina hlutu Sólveig Vaka Eyþórsdóttir fiðlu- leikari, sem er við meistaranám í Leipzig í Þýskalandi, og Alexander Smári Edelstein píanóleikari, sem stundar meistaranám í Maastricht í Hollandi. Hvor styrkur nemur 800.000 krónum. Annan styrkinn veitir Rótarýumdæmið á Íslandi og Rótarýklúbbur Héraðsbúa hinn. Hlín Pétursdóttir Behrens, söng- kona, rótarýfélagi og kennari við tónlistarskólana á Fljótsdalshéraði, annaðist undirbúning dagskrár- innar og kynnti í upphafi Stefán Baldursson, formann stjórnar Tón- listarsjóðs Rótarý. Hann rakti sögu tónlistarstyrkja Rótarý, sem út- hlutað hefur verið árlega síðan 2005 og hafa 30 ungir listamenn hlotið þá. Þau Sólveig Vaka og Alexander Smári komu fram og léku einleik á sín hljóðfæri, fiðlu og píanó, verk eftir J.S. Bach og F. Schubert. Auk þess fluttu þau saman verk eftir Tchaikovsky. Ungu tónlistarmönn- unum var mjög lofsamlega tekið með langvarandi lófataki. Á seinni hluta tónleikanna komu fram fjórir söngvarar af Austur- landi og Norðurlandi, þau Hlín Pét- ursdóttir Behrens sópran, Erla Dóra Vogler messósópran, Árni Friðriksson tenór og Valdimar Hilmarsson barítón. Á píanóið léku Helena Guðlaug Bjarnadóttir og Daníel Þorsteinsson. Ljósmynd/MOA Styrkþegarnir Alexander Smári og Sólveig Vaka léku nokkur verk á píanó og fiðlu. Sólveig Vaka og Alexander Smári styrkt HÁREYÐING Sársaukalausmeðferð með nýjustu tækni Fjarlægir óæskilegan hárvöxt Háreyðing er varanleg lasermeðferð byggð á nýjustu tækni frá einum fremsta framleiðanda heims á sviði laser háreyðingar. Ve 13 Við to réttu Pe 21 re Við ta 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.