Morgunblaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 32
AFP/Ander Gillenea
Vörur Enn eru hnökrar í aðfangakeðju heimsins vegna faraldursins og stríðið í Úkraínu hefur áhrif á hrávöruverð.
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Bergþóra Baldursdóttir, sérfræð-
ingur hjá greiningardeild Íslands-
banka, segist í samtali við Morg-
unblaðið gera ráð fyrir aukinni
innfluttri verðbólgu á næstu mán-
uðum vegna hækkana á hrávöru-
verði erlendis og truflana í að-
fangakeðju vegna Covid og
stríðsins í Úkraínu.
Eins og sagt var frá í Morgun-
blaðinu í gær hækkar hrávöruverð
hratt þessa dagana og möguleiki
er á skorti á ákveðnum hráefnum
til lengri tíma. Fjallað var um
þetta í minnisblaði sem Svandís
Svavarsdóttir matvælaráðherra
lagði fyrir ríkisstjórnina á þriðju-
daginn.
Enn ýmsir hnökrar
„Það ríkir mikil óvissa með hve-
nær dregur úr þessum verðhækk-
unum erlendis,“ segir Bergþóra.
Hún segir að þó svo að farald-
urinn virðist að mestu vera búinn
hér á landi séu enn ýmsir hnökrar
í aðfangakeðju heimsins. „Svo hef-
ur stríðið mikil áhrif. Við sáum
olíuverð hækka um átta prósent
milli mánaða í mars sl. sem færist
yfir í flutningskostnað, flugfar-
gjöld og annað. Þess vegna hefur
þessi innflutta verðbólga verið að
láta á sér kræla síðustu mánuði og
hefur áhrif á innlendu liðina í
verðbólgunni. Við notum erlend
aðföng í okkar framleiðslu og
þetta smitast út í allt,“ segir Berg-
þóra.
Íbúðaverð hefur mikil áhrif
Hún bendir á að íbúðaverð hafi
mikil áhrif á verðbólguþróun hér á
landi. Ársverðbólga mældist 6,7% í
mars sl. en þar af er húsnæðislið-
urinn ábyrgur fyrir þremur pró-
sentustigum.
„Það sem við vonum að gerist er
að þegar aukið framboð íbúða
kemur inn á markaðinn, sem er
reyndar að gerast aðeins hægar en
við vonuðumst eftir, muni hægja á
verðbólgunni. Sú þróun mun vega
upp á móti innfluttu verðbólgunni.
Það er það sem skiptir mestu máli
að okkar mati. Við höfum litla
stjórn á verðhækkunum erlendis.“
Bergþóra bendir á að vissulega
gæti Seðlabankinn gripið til að-
gerða til að styrkja krónuna, en
slíkt væri ekki gott til lengri tíma.
„Það mikilvægasta í verðbólgu-
þróuninni er að róa fasteigna-
markaðinn.“
Teikn á lofti
Aðspurð segir Bergþóra fast-
eignamarkaðinn í eðli sínu lengi að
bregðast við eftirspurn enda taki
tíma að byggja hús. „Það eru samt
teikn á lofti um að það sé að koma
aukið framboð á íbúðum inn á
markaðinn síðar á þessu ári.
Seðlabankinn býr líka yfir tólum
til að herða á reglum varðandi lán-
tökur auk þess sem hann getur
hækkað vexti. Það getur spilað inn
í húsnæðisliðinn og áhrif hans á
vísitöluna.“ Spurð um launaliðinn
í vísitölu neysluverðs segist Berg-
þóra hafa töluverðar áhyggjur af
kjarasamningum undir lok þessa
árs.
„Við vonum að þeir verði frem-
ur hóflegir, en það verður örugg-
lega tekist hart á. Vonandi ná
menn þó að finna einhvern milli-
veg.“
Spáði 6,6% í apríl
Í dag birtir Hagstofan nýja
verðbólguspá en Íslandsbanki
spáði 6,8% verðbólgu í apríl.
„Nýjar tölur um íbúðaverð á höf-
uðborgarsvæðinu sýna að fast-
eignaverð hækkaði reyndar tals-
vert meira en vonir okkar stóðu
til og hafa því enn meiri áhrif en
við væntum. Við gerum svo ráð
fyrir að verðbólgan nái hámarki í
7,7% í sumar.“
Eftir það segir Bergþóra að
verðbólgan taki að hjaðna hægt
og rólega. Hún verði mögulega
komin í ásættanleg gildi árið
2023.
Ekki nógu góð þróun
Andrés Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Samtaka verslunar
og þjónustu, segir að verðlags-
þróunin sé ekki nógu góð um
þessar mundir. „Allar hrávöru-
verðsvísitölur, hvaða nafni sem
þær nefnast, stefna aðeins í eina
átt því miður. Þetta eru fordæma-
lausar hækkanir, bæði á hrávör-
um til matvöruframleiðslu og iðn-
aðarframleiðslu.“
Andrés bendir á að eins og
glöggt megi sjá í tölum Hagstof-
unnar sé það ekki matvælaverð
sem knýr verðbólguna áfram
heldur íbúðaverð. Andrés segist
að lokum óttast að ástandið muni
vara í einhvern tíma enn.
Aukin innflutt verðbólga
- Vonast til að aukið framboð íbúða muni vega upp á móti innfluttri verðbólgu - Spá því að verðbólg-
an nái hámarki í sumar og verði 7,7% - Launahækkanir verði hóflegar - Seðlabankinn býr yfir tólum
Bergþóra
Baldursdóttir
Andrés
Magnússon
32 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2022
28. apríl 2022
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 129.66
Sterlingspund 164.5
Kanadadalur 101.67
Dönsk króna 18.604
Norsk króna 14.131
Sænsk króna 13.316
Svissn. franki 135.3
Japanskt jen 1.0165
SDR 175.45
Evra 138.4
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 173.8472
Ísland hefur allt sem til þarf til að
standa undir þeim kröfum sem betur
borgandi ferðamenn gera. Með til-
komu lúxushótela í Reykjavík og
annars staðar á landinu verður Ís-
land enn eftirsóttari áfangastaður.
Þetta segja þau Helga Árnadóttir,
framkvæmdastjóri hjá Bláa lóninu,
og Haukur B. Sigmarsson, fram-
kvæmdastjóri Eleven Experience á
Íslandi, í nýjum þætti Dagmála þar
sem rætt er um mikilvægi fágæt-
isferðaþjónustu hér á landi. Þá er
rætt um hvaða efnahagslegu þýð-
ingu það hefur að fá til landsins fleiri
betur borgandi ferðamenn.
Þessi uppbyggingin kallar á mikl- ar fjárfestingar, bæði í innviðum og
eins í starfsmannamálum þar sem
áhersla er lögð á þekkingu og
reynslu. Hár launakostnaður á Ís-
landi hefur áhrif á uppbygginguna
en ef kröfum ferðamann er mætt eru
þeir tilbúnir til að greiða hærra verð
fyrir þá þjónustu sem veitt er enda
verðteygni þeirra meiri en annarra.
Dagmál Helga Árnadóttir og Hauk-
ur B. Sigmarsson ræða um fágæt-
isferðaþjónustu.
Ræða um betur
borgandi ferðamenn
- Íslensk upplifun er besta söluvaran
Vinir
fá sérkjör
Skráning á icewear.is
GRÍMSEY hanska
Kr. 2.990.-
RUMUR flannel skyrta
Kr. 9.990.-
SÓLA zip-off göngubuxur
Kr. 17.990.-
ARCTIC EXPLORER
göngustafir
Kr. 5.990.-
Þín útivist - þín ánægja
HVÍTANES Merínó hálsklútur
Kr. 4.990.-
MÁR tveggja laga regnjakki
Kr. 22.990.-
LYNG
Kr. 1
ullarsokkar
.590.-
ASOLO Falcon
Kr. 29.990.-
DRANGSNES merino buxur
Kr. 11.990.-
DRANGSNES hálfrennd peysa
11.990 Kr.
r