Morgunblaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 46
46 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2022 ✝ Hreinn Bern- harðsson fædd- ist í Ólafsfirði 10. júlí 1942. Hann lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu Boða- þingi, Kópavogi 17. apríl 2022. Foreldrar hans voru Sigríður Guð- mundsdóttir, f. 23. apríl 1908, d. 6. júní 1964, og Bernharð Ólafsson, f. 14. nóvember 1906, d. 13. janúar 1990. Hreinn ólst upp hjá for- eldrum sínum í stórum systk- inahópi, en á heimilinu voru einnig amma hans og afi. Systk- inin voru fimm. Elstur var Þórð- ur, hann drukknaði árið 1950 við Skarfasker í Vestmanna- eyjum, Freydís sem lést árið 2014, Óli Sveinn sem lést árið 2018, Hreinn og svo Aðalsteinn sem lést árið 1998. Einnig átti hann tvær hálfsystur, þær Að- alheiði Maggý Pétursdóttur sem lést árið 2007 og Erlu Bern- fyrra hjónabandi, Evu Rún, f. 1994, og Helenu, f. 1995. Þau eiga eitt barnabarn. Hreinn gekk í barnaskóla Ólafsfjarðar, eftir grunnskóla fór hann að vinna á sjó, við beitningar og síldarvinnslu. Ár- ið 1963 fóru Hreinn og Rakel saman til Vestmannaeyja þar sem hann stundaði sjómennsku á Bergi VE. Þau Hreinn og Rakel byggðu húsið á Aðalgötu 37 Ólafsfirði og fluttu þar inn árið 1969. Hreinn útskrifaðist sem meistari í vélvirkjun árið 1971 Árið 1988 fluttu þau suður, þar sem þau fóru út í eigin at- vinnurekstur (Eyjakleinur) og störfuðu við það í níu ár eða til 1997. Eftir það vann Hreinn við skiltagerð í Reykjavík með syni sínum Sigurði Frey. Við 67 ára aldur fluttu Hreinn og Rakel til Dalvíkur þar sem þau bjuggu í átta ár. Árið 2015 fóru þau aftur suð- ur og settust að í Kópavogi. Vegna veikinda dvaldi Hreinn á hjúkrunarheimili Hrafnistu í Kópavogi og þar lést hann 17. apríl 2022. Útför Hreins fer fram frá Akraneskirkju í dag, 28. apríl 2022, klukkan 11. harðsdóttur sem lést 2018. Hinn 11. júní 1964 giftist Hreinn eftirlifandi eig- inkonu sinni, Rakel Kristbjörnsdóttur, f. 23. maí 1945. Þau eignuðust þrjú börn: 1) Sigmundur Hannes, f. 1965, giftur Sigurlaugu Harðardóttir, f. 1964. Börn þeirra eru: Rakel Óla, f. 1985, Sandra Dögg, f. 1986, og Jón Heiðar, f. 1989. Barnabörn þeirra eru sjö. 2) Sigurður Freyr, f. 1968, giftur Þuríði Andrésdóttur, f. 1967. Þau eiga tvö börn, Söru Dís, f. 1998, og Hrein Óla, f. 2004. 3) Birna Jenný, f. 1970, gift Hannesi Stefánssyni, f. 1969. Þau eiga tvö börn, Gunnfríði Rakel, f. 2006, og Jenný Lind, f. 2008. Einnig á Birna tvö börn úr Ég man fyrst eftir Hreini á ár- unum 1965-6. Þá var hann vertíð- armaður í Vestmannaeyjum, leigði á Brekku og var með þessa fallegu konu með sér, bæði frá Ólafsfirði. Það heyrðist glögglega á tali þeirra, hörð og ákveðin á hljóð- unum p, t, k. Ekki köstuðum við kveðju hvor á annan en ég tók eftir honum. Seinna kynntist ég honum mun betur og varð húsgangur hjá þessum hjónum Rakel og Hreini. Svo opnaðist á mun meiri tengingar milli Eyjanna og Ólafsfjarðar. Hann missti eldri bróður sinn í Helgaslysinu 7. janúar 1950 þegar engin mann- björg varð við Faxasker. Hálf- bróðir tengdapabba fórst í sama slysi og þessi sára reynsla tengdi okkur sterkari böndum. Hann átti bróður og hálfsyst- ur búandi í Vestmannaeyjum. En aukin tengsl urðu þegar þau hjón, Rakel og Hreinn, gengu til liðs við hvítasunnusöfn- uðinn. Árum saman voru þau for- ystufólk safnaðarins í Ólafsfirði, sama hvort litið væri á söfnuðinn sem sértrúarsöfnuð eða frjálsa kristna kirkju, þau unnu að safn- aðarstarfinu af heilum hug. Eitt haustið buðu þau mér að koma og halda biblíulestra og samkomur um viku tíma. Ég flaug á Akureyri og fékk ökuferð norður í Ólafsfjörð. Þegar við komum á heimili þeirra hjóna tók ég töskuna úr bílnum og öku- maðurinn hafði á orði að gaman væri að líta inn og fá kaffibolla áður en haldið væri til baka. Rakel ráðlagði honum að eiga kaffið inni en drífa sig í Múlann því farið væri að snjóa og hann mundi lokast inni eftir skamman tíma. Minn maður, Vestfirðingur og vanur snjóum, taldi ekki allt ömmu sína í þessum efnum. En Hreinn og Rakel fengu ráðið núna svo haldið var í Múlann. Þegar hann kom inn á Akureyri hringdi hann til baka og þakkaði þeim hjónum fyrir að hafa haft vit fyrir sér því við sjálft lá að hann hefði það ekki af fyrir Múl- ann. Svo mikið fennti í fjallið. Vikan þessi var mikil snjóa- vika og snjóþykktin lagðist yfir Ólafsfjörðinn í 50 cm hjúp. Hreinn sagði: „Nú læt ég leka í pottinn úti í garði og þá getum við setið á kvöldin eftir samkom- urnar í heitu vatninu, logni og snjódrífu.“ Það var notaleg bibl- íuvika í Ólafsfirði. Meðan setið var í pottinum greindi Hreinn frá mörgum spaugilegum atvikum úr æsku. Eitt sinn var mikil örtröð á skíðasvæðinu og unglingarnir í bænum að nota snjóinn. Þennan daginn var harðfenni í brekkunni og illt var að stjórna sér á skíð- um. En strákarnir létu sér það lynda og reyndu bara að renna sem lengst. Einn var óheppnari en hinir og stefndi beint á hús. Ekki tókst betur til en svo að hann var að renna á útidyrnar þegar þær skyndilega opnuðust og minn maður rann inn og inn á mitt eld- húsgólf. Kauði baðst bara afsök- unar. Þessar og fleiri sögur rifjast upp enda gleymist ekki fram- saga Hreins um æskuna í Ólafs- firði og hláturinn sem fylgdi þessum spaugilegu atvikum ylj- ar enn. Eftir þennan ágæta tíma flaug ég til baka með Norðurflugi frá Ólafsfirði og til Reykjavíkur sem eini farþeginn. Þannig lauk dásamlegri samveru í Ólafsfirði. Ég og eiginkona mín vottum Rakel og börnunum sem og barnabörnum okkar innilegustu samúð við fráfall þessa góða trú- bróður og vinar. Snorri Óskarsson og Hrefna Brynja Gísladóttir. Hreinn Bernharðsson Ingibjörg Faaberg Steenland ✝ Ingibjörg Faaberg Steenland lést á Bærum- sjúkrahúsinu í Noregi 17. mars 2022, 74 ára að aldri. Ingibjörg fæddist 21. febrúar 1948 í Solna í Svíþjóð, dóttir hjónanna Sig- ríðar Petursdóttur Faaberg og Lars Faaberg flugmanns. Foreldrar Sigríðar voru Ingi- björg Guðmundsdóttir og Pétur Magnússon, bankastjóri og ráð- herra. Ingibjörg stundaði nám við Háskóla Íslands og Universitetet í Oslo. Hún hefur unnið við frétta- myndir hjá Norsk Telegrambyrå (NTB) og Scanpix. Hún hefur einnig starfað sem trúnaðar- maður í NTB. Ingibjörg giftist Hans Fredrik Steenland ritstjóra og eignuðust þau dótturina Katrine, fædda 11. mars 1985. Ingibjörg hafði alltaf gaman af að heimsækja Ísland og fjöl- skyldu sína í Reykjavík, Hvítár- bakka og Guðnabakka. Minningar á mbl.is ✝ Klara Guð- mundsdóttir fæddist 12. ágúst 1925 í Ytri- Drápuhlíð í Helga- fellssveit. Hún lést á Hrafnistu í Hafn- arfirði 10. apríl 2022. Foreldrar henn- ar voru Guð- mundur Jóhanns- son, f. 1896, d. 1984, og Kristín Sigurðardóttir, f. 1902, d. 1991. Systkini Klöru eru: Hinrik, f. 1923, d. 1999, Unnur, f. 1926, d. 2014, og Reynir, f. 1937. Klara giftist 1947 Haraldi Sigurjónssyni, f. 24. júní 1917, d. 14. maí 1995. Börn þeirra eru: 1) Sturla, f. 1947, maki Anna Ólafsdóttir, f. 1952. Börn: a) Borghildur Sölvey, maki Anders M. Nielsen, börn Kári Sölvi, Anna Salka, Per Lukas og Una Beate. b) Haraldur Örn, maki Ír- is Jónsdóttir, synir Sturla, Flóki, Torfi og Brynjar. c) Orri, í sam- búð með Dagnýju Rún Ágústs- dóttur, börn Benedikt Ágúst og Klara Rún. 2) Guðmundur, f. 1950, maki Rannveig Jónsdóttir, f. 1951. Börn: a) Guðrún Elín, maki Birgir Hauksson, dóttir Íris. Börn Guðrúnar og fyrri maka eru tvíburarnir Elísa og Arnór Guðjónsbörn. Sambýlismaður hennar starf í kaffihúsinu Strýt- unni. Til Hafnarfjarðar var Klara komin til að afla sér tekna fyrir skólagjöldum á húsmæðra- skólanum á Staðarfelli. Dag- legur gestur í Strýtunni var ungur, myndarlegur piltur, Haraldur Sigurjónsson, og fé- lagar hans héldu því stað- fastlega fram að Halli fengi allt- af besta kaffisopann. Þarna kynntust Klara og Halli, en Klara lét það ekki stoppa sín áform og fór í húsmæðranám á Staðarfelli veturinn 1943-1944. Klara réð sig til starfa á heimili séra Bjarna Jónssonar vígslubiskups. Þar sinnti hún heimilisstörfum, barnagæslu og aðstoðaði við brúðkaup og skírnir sem gjarnan voru á heimili prestsins. Þar bjó Klara og starfaði þar til hún fluttist til Hafnarfjarðar. Klara og Har- aldur hófu búskap á Hverfisgötu 45 en foreldrar Haraldar, Sig- urjón og Jónfríður, byggðu hús- ið 1926 og bjuggu þau á mið- hæðinni. Þarna ólu Klara og Haraldur upp börnin sín fjögur í risinu. Það var einstakt fyrir börnin að hafa vinnustað for- eldranna á jarðhæðinni og ömmu og afa á miðhæðinni. Árið 1954 hófu þau rekstur mat- vöruverslunar á jarðhæðinni, Hallabúðar, sem þau ráku til ársins 1977. Kjörorð Hallabúðar var „eitthvað gott á hverjum degi“. Síðustu starfsárin vann hún á Hörðuvöllum. Eftir að Klara missti eiginmann sinn 1995 var hún virk í félagsstarfi eldri borgara í Hafnarfirði. Útför Klöru fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 28. apríl 2022, klukkan 13. Elísu er Margeir Ingi, sonur Atlas Freyr. b) Klara, maki Sigurjón Gíslason, dætur Birta Sól og Telma Líf. 3) Hildur, f. 1952, maki Ingvar Ásgeirsson, f. 1955. Börn Hildar og fyrri maka, Ólafs Skúlasonar: a) Tinna Rut, sonur Bjarki Már Svansson. b) Snorri Páll, í sam- búð með Höllu Björt Ármanns- dóttur, börn Sóley og Kári Hrafn. Börn Ingvars með fyrri maka, Guðbjörgu, eru Ásgeir Þórarinn og Ísold, dóttir hennar er Dimmalimm. 4) Ingimar, f. 1956, í sambúð með Bjarnfríði Ósk Sigurð- ardóttur, f. 1965. Dóttir Ingi- mars og Hlínar Hermannsdóttur er Ylfa Björk, maki Andreas W. Willadsen, börn Kara, Hermann og Alfred. Sonur Ingimars og fyrri maka, Halldóru Mathiesen, er Matthías Árni, maki Alma Jónsdóttir, börn Jón Ingi, Íris Ylfa og Eyþór Árni. Dóttir Ingi- mars og fyrri maka, Halldóru B. Jónsdóttur, er Kristín Björk. Á uppvaxtarárum sínum í Ytri-Drápuhlíð sinnti Klara m.a. bústörfum heima við og sótti barnaskóla á Skildi í Helgafells- sveit. 17 ára fór hún að heiman til Hafnarfjarðar, en þar beið Nú hefur elsku Klara tengda- mamma mín kvatt þessa jarðvist á 97. aldursári, eftir farsæla ævi lengst af, þótt síðustu árin hafi verið henni erfið. Hún lést á Hrafnistu, þar sem hún hafði dvalið sl. rúm þrjú ár þegar heilsu hennar fór að hraka. Ég naut vináttu hennar í yfir 50 ár og aldrei bar skugga á okk- ar samband. Hún var mér eins og önnur móðir, því ég var ung þeg- ar við Gummi sonur hennar fór- um að búa saman. Klara hafði mikinn áhuga á Klara Guðmundsdóttir ✝ Anna Kristín Haraldsdótti fæddist 21. júlí 1957. Hún lést á líknardeild Land- spítalans 15. apríl 2022. Foreldrar Önnu voru hjónin Har- aldur Bjarnason, f. 29. október 1918, d. 16. júní 1974, skrif- stofumaður og Bryndís Jónsdóttiir, f. 27. desem- ber 1924, verkakona. Uppeld- isfaðir Önnu er Eiríkur Sæ- mundsson, f. 3. október 1925, sjómaður. Bróðir Önnu er Bjarni Ragn- ar, f. 23. nóvember 1946, mynd- listarmaður. Börn Bjarna eru Kristinn Karl, f. 9. mars 1966, Bryndís, f. 21. júní 1983, Anita da Silva, f. 4. janúar 1994, og Alena da Silva, f. 27. mars 1996. Eiginmaður Önnu er Halldór Árni Sveinsson, f. 22. febrúar 1955, kvikmyndagerð- armaður, en börn þeirra eru Haraldur Gunnarsson, f. 25. febrúar 1988, lag- ermaður, Hilmar Árni Halldórsson, f. 14. febrúar 1992, heimspekinemi, og Hörður Brynjar Halldórsson, f. 12. júlí 1995, heimspekinemi. Anna starfaði lengst af í Ís- landsbanka, eða í 37 ár, en lærði til sjúkraliða og var við störf á Sóltúni þegar hún lést. Anna var mikil útivistarmann- eskja og stundaði skokk og hlaup með ÍR. Útför Önnu fer fram frá Há- teigskirkju í dag, 28. apríl 2022, klukkan 13. Þú kvaddir um páskana, á föstudaginn langa, þegar vorið hafði rutt burtu snjónum og hægt var að hlaupa um Elliðaár- dalinn og Heiðmörkina. Þetta var þinn uppáhaldstími, þú varst alltaf á þönum, frá morgni til kvölds. Þú sleist barnsskónum í Hlíð- unum, vannst í sjoppu á kvöldin og hélst uppi fjörinu í Tónabæ. Þarna kynntistu bestu vinkon- unum sem haldið hafa vinskap alla ævina. Við kynntumst sumarið 1989 á dansleik í Sjallanum, og skömmu seinna var ég fluttur inn til þín með plastpokana í litlu íbúðina og gekk Halla í föðurstað og fljótlega bættust við Hilmar og Hörður. Strákarnir uxu úr grasi á Leiknisvelli – lífið var fótbolti kvölds og morgna. Baslið tók stundum á, en bankinn var fé- lagsleg næring þín, uppspretta glaðværðar í hópi dyggra sam- starfsmanna sem bundust þér ævilöngum vináttuböndum. Þeg- ar einhver kvartaði yfir að upp- selt væri í dagsferðir til Bret- lands fyrir jól tókstu til þinna ráða og leigðir þotu af Flugleið- um og fylltir hana samdægurs. Árin liðu og baslið minnkaði. Þú barðist af afli við brjósta- krabbamein og hafðir betur, og dreifst þig aftur í vinnuna í bankanum. En fékkst uppsögn þar og skelltir þér í sjúkraliða- nám og eignaðist nýjar vinkonur sem voru á aldur við syni okkar. Næst lá leiðin í Sóltún. Og allt var sem fyrr – nýjar vinkonur sem dáðu þig og dýrkuðu. Og svo auðvitað íbúarnir sem elsk- uðu hlýja og hressilega nærveru þína. Þú hafðir kynnst nýjum öfl- ugum vinahópi þegar þú fórst að æfa hlaup með skokkhópi ÍR, traustir vinir sem efldu löngun þína til að hlaupa um allar trissur og synda á eftir. Þá dundi áfallið yfir. Þú greindist með ólæknanlegt æxli í heila. Eftir skurðaðgerð var ljóst að hreyfigeta þín var skert til framtíðar og þú myndir ekki hlaupa meira. Það féll þér verst. Svo tók við geisla- og lyfjameð- ferð. Styrkinn í veikindunum sóttir þú ekki síst til þessara framúrskarandi vinkvennahópa sem voru vakandi yfir velferð þinni; gömlu Hlíðavinkonurnar, samstarfskonurnar úr bankanum og hlaupavinkonurnar. Þú varst sem fyrr umvafin englum. Við reyndum að hafa þig heima eins lengi og stætt var, með ljúfri og faglegri aðstoð HERA-teym- isins og heimahjúkrunar. Loks kom að því að við þáðum innlögn á líknardeildina. Það voru þung spor en við vissum að hverju stefndi. Þú tókst hverjum degi af æðruleysi, og allt til enda með grallaralegum húmor. Ég þakka fyrir einstaka veg- ferð og samfylgd í meira en þrjá- tíu ár. Strákana okkar og ljúft viðmót til vina þeirra sem voru alltaf aufúsugestir á heimilinu. Það var oft glatt á hjalla í eldhús- inu og svo þurfti stundum að leggja sig í þessari litlu fé- lagsmiðstöð, sem einkenndist af félagsmótun hverfisins og fjöl- menningu. Það hefur reynst þeim gott veganesti út í lífið. Sjálfur hef ég rifjað upp síð- ustu daga öll ferðalögin okkar, samveru með fjölskyldu og góð- um vinum. Allt það góða sem við áttum saman, minningar sem ég mun geyma í hjarta mínu um lífs- glaða konu sem hreyfði við um- hverfi sínu hvar sem hún kom – og kvaddi okkur allt of fljótt. Guð geymi þig, ástin mín. Halldór Árni Sveinsson. Eftir snarpa baráttu við illvíg- an sjúkdóm er Anna Kristín okk- Anna Kristín Haraldsdóttir Harpa Heimisdóttir s. 842 0204 Brynja Gunnarsdóttir s. 821 2045 Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær s. 842 0204 | www.harpautfor.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.