Morgunblaðið - 05.05.2022, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 05.05.2022, Blaðsíða 72
www.husgagnahollin.is Sími: 558 1100 20% AFSLÁTTUR Sófadagar * Afsláttur gildir af öllum sófum nema Construct og sérpöntunum. AF ÖLLUM SÓFUM* Hönnunarhátíðin Hönn- unarMars hófst í gær, 4. maí, og stendur hún yfir til og með 8. maí. Á dagskrá eru yfir 100 sýningar og eru þátt- takendur um 400 tals- ins. Þá verða um 250 viðburðir í boði sem sagðir eru á vef hátíð- arinnar veita innsýn í það helsta sem er að gerast hjá íslenskum hönnuðum og arkitekt- um nú um stundir og af hönnunargreinum má nefna fatahönnun, grafíska hönnun, arkitektúr og vöruhönnun. Ein sýninganna er Snúningur í Gerðar- safni en þar sýnir vöruhönnuðurinn Hanna Dís White- head. »62 Yfir 100 sýningar og 400 þátttak- endur á HönnunarMars 2022 FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 125. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. ÍBV er komið í 2:0 í einvígi sínu við Hauka í undan- úrslitum Íslandsmótsins í handknattleik karla eftir að hafa haft betur, 27:23, í öðrum leik liðanna í Vest- mannaeyjum í gærkvöldi. Þrjá sigra þarf til þess að tryggja sér sæti í úrslita- viðureigninni og getur ÍBV gert það með sigri í þriðja leiknum á Ásvöllum næstkomandi laugardag. »62 ÍBV vann Hauka öðru sinni og þarf einn sigur til viðbótar ÍÞRÓTTIR MENNING Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Ágæt þátttaka hefur verið í morgun- göngum Ferðafélags Íslands sem hafa verið á dagskrá nú í vikunni. Arkað er á fjöll í nágrenni höfuð- borgarinnar og lagt af stað klukkan sex á morgnana samkvæmt því við- miði að komið sé til baka áður en almennur vinnudagur hefst. „Morgungöngur hafa verið á dag- skrá FÍ í um 15 ár og sumir þátttak- endur nú hafa verið með nánast frá upphafi. Þeir segja að göngurnar marki jafnan upphaf sumars með mörgum fjallaferðum,“ segir Páll Ásgeir Ásgeirsson en þau Rósa Sig- rún Jónsdótir, eiginkona hans, eru umsjónarfólk verkefnisins. Ætla upp að Steini í dag Í morgungöngu sl. mánudag var farið á Helgafell við Hafnarfjörð, Mosfell, sem heilt bæjarfélag er kennt við, var verkefni þriðjudags. Gengið var á Úlfarsfell á miðviku- dag, Helgafell í Mosfellsbæ í dag og Esjan er á dagskrá morgundagsins. Fólk sem ætlar með þá mætir á bíla- stæðin við Mógilsá í Kollafjarðar- botni og þaðan er arkað upp að Steini, sem er í 597 m hæð. „Því að fara í fjallgöngu eld- snemma á vormorgni fylgir skemmtileg tilfinning. Hópurinn gengur út í kyrrðina, þó að vísu heyrist kvak í einstaka fuglum,“ seg- ir Páll. „Annars er einkennandi fyrir vormorgnana hvað birtan í loftinu er tær og skær og ofan af Úlfarsfelli sjást litbrigði borgarinnar í alveg nýju ljósi.“ Fjallaskáldið les ljóðin á toppnum Menning hefur jafnan verið hluti af morgungöngunum og mælst vel fyrir. Fjallaskáld er með í för í öllum ferðum vorsins. Les þá ljóðin sín þegar komið er á toppinn – sem ljær ferðunum oft nýja vídd því stundum fer andinn á flug. Þetta árið er Kristín Svava Tómasdóttir fjalla- skáld Ferðafélags Íslands og mun bera þann sæmdartitil næsta árið. „Eiginlega er alveg nauðsynlegt að blanda bókmenntunum saman við útivistina að einhverju leyti,“ segir Páll. Má kannski segja að þau orð hans kjarnist ágætlega í Fjallgöngu, hinu fræga ljóði Tómasar Guð- mundssonar, þar sem segir að lands- lag væri lítils virði ef héti ekki neitt! „Útivistaráhugi landans er mikill, eins og sést hvert sem farið er,“ seg- ir Páll Ásgeir Ásgeirsson. Þar bend- ir hann á að á veirutímanum hafi lík- amsræktarstöðvar verið lokaðar svo vikum skipti. Til að fá hreyfingu hafi því margir farið í gönguferðir inn á heiðar og upp á fjöll. Sömuleiðis hafi þúsundir landsmanna lagt leið sína að eldgosinu í Geldingadölum á síð- asta ári og sumir hafi þá og þannig ánetjast, því að útivera er skemmti- leg og gerir gott í öllu tilliti. Ljósmynd/Rósa Sigrún Göngufólk Í Hamrahlíð í hlíðum Úlfarsfells í gærmorgun. Blíðuveður og falleg sýn var til eyja og Akrafjallsins. Morgunbirtan er tær - Fjallganga fyrir allar aldir - FÍ á Esju og Úlfarsfell Ljósmynd/Rósa Sigrún Ferðafélagar Páll Ásgeir Ásgeirsson fararstjóri, Kristín Svava Tómas- dóttir fjallaskáld og lengst t.h. Kristín Svavarsdóttir vistfræðingur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.