Morgunblaðið - 05.05.2022, Blaðsíða 66
66
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 2022
Verið velkomin
í sjónmælingu
Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200
Opið: Virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Snúningur nefnist sýning á verkum
Hönnu Dísar Whitehead sem opnuð
verður á neðri hæð Gerðarsafns í
Kópavogi í dag, fimmtudag, kl. 16
og er hún hluti af hönnunar-
hátíðinni HönnunarMars sem hófst
í gær. Hanna tekur á sýningunni
„annan snúning“ á verkum síðustu
tíu ára, að því er fram kemur í til-
kynningu, frá því að hún útskrif-
aðist úr Hönnunarakademíunni í
Eindhoven í Hollandi árið 2011. Í
verkum sínum blandar hún saman
óvæntum efnivið, litum, formum og
sögu á nýjan hátt.
Samtal listar og hönnunar
Hanna segist brjóta upp rýmið á
neðri hæðinni þar sem sýning á
verkum Gerðar Helgadóttur var
áður. Hanna hefur ekki sýnt í Gerð-
arsafni áður og segir það bæði
skemmtilegt og fallegt safn og alltaf
áhugaverðar sýningar í því, til
dæmis sú sem nú stendur yfir á efri
hæðinni, Stöðufundur. Á henni
mætast rithöfundar og mynd-
listarmenn. „Mín sýning er kannski
samtal milli myndlistar og hönn-
unar og sýningin uppi samtal rit-
listar og myndlistar,“ bendir Hanna
Dís á.
Hún er beðin að lýsa sýningu
sinni fyrir lesendum Morgunblaðs-
ins. „Þú sérð einhverja hreyfingu í
henni, eitthvert ferli og sögu. Hún
er mjög litrík og svolítið tilrauna-
kennd. Ég er að gera tilraunir með
að blanda saman ólíkum efnivið, lit-
um og af því að þetta er ekki bara
ein sería heldur framhald af fimm
seríum er þetta líka svolítill hitt-
ingur milli ólíkra verkefna sem ég
hef í raun ekki gert áður. Ég hef
vanalega verið að sýna eina seríu en
núna eru ólík verk að hittast þannig
að úr verður ákveðinn heimur,“
svarar Hanna.
Ílátalína í tíu ár
– Í tilkynningu segir að gerðar
verði tilraunir til að búa til húsgögn
úr því sem áður var ílát …
„Já, einmitt, ég er í raun búin að
vera með íláta-línu núna í tíu ár og
það voru alltaf bara ílát en núna er
ég búin að stafla þessu upp – þetta
er úr keramiki – og blanda þessu
saman við við og þannig búin að búa
til húsgagn. Ég er í rauninni búin
að skala það upp,“ svarar Hanna.
Hanna er spurð út í BA-nám
hennar í Eindhoven, á hvað lagði
hún áherslu þar? „Það var hægt að
velja sér leið innan skólans og ég
valdi leið sem var tengd handverki
og myndlist og svo „conceptual“
hönnun. Það útskýrir líka svolítið
hvernig ég vinn, ég vinn svo mikið
með efni og við vorum látin vinna
með gifs, steypa í brons og vinna
með alls konar efnivið, vorum mikið
að mála og vinna beint frá huga yfir
í hönd. Námið snerist um það,“ út-
skýrir hún.
Skemmtilegt og lærdómsríkt
Hanna mun leiða listasmiðjur í
safninu samhliða sýningunni, smiðju
fyrir börn á laugardaginn kemur,
kl. 13 til 15 og fyrir fullorðna á
sunnudag, 8. maí, kl. 14. „Það verða
svo fleiri listasmiðjur í sumar,“ seg-
ir hún en sýningin mun standa yfir í
allt sumar. Hanna segir að börn
sem hafi heimsótt safnið und-
anfarna daga hafi verið afar forvitin
um það sem er að gerast á neðstu
hæðinni. Einn lítill gutti hafi haft á
orði við mömmu sína að þarna væri
komið nýtt leiksvæði fyrir börn.
„Þetta er mjög litríkt og það er
ábyggilega gaman og líka stress-
andi að koma með börn á sýninguna
því það er svo margt brothætt en
samt mjög skemmtilegt,“ segir
Hanna glettin.
Hún segist áður hafa stýrt lista-
smiðjum og þá bæði fyrir börn og
fullorðna. „Ég held að fullorðnir
sem mæta í svona smiðju séu til í að
prófa það sem verið er að vinna
með og það er auðvitað alltaf gaman
að vinna með börnum. Stundum
halda þau sig innan einhvers verk-
efnis og stundum fara þau að fabú-
lera eitthvað alveg nýtt sjálf. Það er
bæði ótrúlega skemmtilegt og lær-
dómsríkt.“
Gætu verið úr Fóstbræðrum
Hanna segist vinna á mörkum
myndlistar og hönnunar og því rugli
verkin hennar fólk stundum í rím-
inu. „Fólk veit ekki alveg á hvað
það er að horfa,“ segir hún kímin,
„og ég leyfi því oft að vera opið í
hvað er hægt að nota hlutina. Ég
hanna ekki beinlínis út frá „fúnk-
sjón“ og segi stundum að ég sé
frekar ópraktískur vöruhönnuður.
Þannig að ég er bara þarna á þess-
um mörkum og þá á mörkum hand-
verks líka. Handverks, listar og
hönnunar.“
– Mér dettur í hug „spliff, donk
og gengja“ úr einum sjónvarpsþátta
Fóstbræðra þegar erfitt er að átta
sig á hlutverki einhvers hannaðs
hlutar …
„Já, ég get alveg lofað þér því að
það eru nokkrir svoleiðis hlutir hér
sem gætu verið ættaðir úr Fóst-
bræðra-sketsi,“ segir Hanna og það
sé líka skemmtilegt. „Þetta er í
raun það sem ég er að sækjast eftir;
einhvers konar samtal. Að fólk
staldri við, horfi á hlutinn og spái í
hann. Mér finnst skemmtilegt hvað
fólk ímyndar sér að þetta sé eða
getur hugsað sér að nota hlutinn í.
Það er oft frábært notagildi sem
kemur þá upp.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Í Gerðarsafni Hanna Dís Whitehead á sýningu sinni í Gerðarsafni í Kópavogi en þar sýnir hún nú í fyrsta sinn.
Ópraktískur vöruhönnuður
- Hanna Dís Whitehead opnar sýningu í Gerðarsafni sem er á dagskrá HönnunarMars - Verk á
mörkum listar, hönnunar og handverks - „Fólk veit ekki alveg á hvað það er að horfa,“ segir Hanna
Heimasíða Gerðarsafns:
gerdarsafn.kopavogur.is
Vefsíða Hönnu Dísar:
hannawhitehead.com
HönnunarMars 2022
Á HönnunarMars verða sýningar
og viðburðir tengdir arkitektúr og
var í gær opnuð sýning í Norræna
húsinu helguð finnska arkitekt-
inum Erik Bryggman (1891-1955)
og virknihyggju (e. functionalism) á
Norðurlöndunum.
Segir á vef hátíðarinnar að
Bryggman hafi verið með áhrifa-
mestu arkitektum sinnar kynslóðar
og ásamt Alvar Aalto hafi hann
markað upphaf virknihyggju í
Finnlandi. Bryggman-stofnunin í
Eistlandi hefur sett saman sýningu
um feril Bryggman og áhrif á bygg-
ingarsögu Norðurlandanna.
Sýning um Bryggman í Norræna húsinu
Áhrifamikill Bryggman var einn áhrifa-
mestu arkitekta sinnar kynslóðar.
Fjöldi fatahönnunartengdra við-
burða verður á HönnunarMars og
boðið upp á tískusýningar, gjörn-
inga, opnanir og tískupartý. Farm-
ers Market frumsýnir nýjar flíkur
úr íslenskum ullarfeldi, sem er þó
ekki feldur, í opnunarhófi á föstu-
dag kl. 16 í verslun sinni að Hólma-
slóð 2 á Granda. Hinn svokallaði
feldur er þróaður af ullarvinnslu-
fyrirtækinu Ístex sem hefur verið
samstarfsaðli Farmers Market til
margra ára, segir á vef hátíð-
arinnar en ullin í gervifeldinum er
ólituð afgangsull sem ekki nýtist í
prjónaband.
Flíkur frumsýndar í Farmers Market
Tíska Kynningarmynd frá Farmers Market
sem frumsýnir á morgun nýjar flíkur.
Nokkrir við-
burðir verða á
HönnunarMars
sem beina sjón-
um að sjálfbærni
og endurnýtingu.
Einn slíkur er
sýning á „hinni
svölu úlpu“
hönnuðanna
Tobia Zambotti
og Aleksis
Saastamoinen sem er fyllt með ein-
nota grímum sem safnað var af göt-
um borgarinnar. Verður úlpan
sýnd í S/K/E/K/K á Óðinsgötu 1.
Úlpa fyllt grímum
Úlpan svala með
einum hönnuða.
Fjórar sýningar verða opnaðar í Ásmundarsal í
kvöld frá kl. 18 til 21 og eru þær hluti af Hönn-
unarMars.
Undirland – Uppstreymi nefnist sýning sem sögð
er gluggi að hátækniheimi á örkvarða og stórskala
sem hafi sagt skilið við gróðahámörkun og er því
frjálst að rannsaka nýskapandi og framsæknar
lausnir.
Laura Pehkonen listakona frá Finnlandi hefur
unnið lágmyndaskúlptúr sérstaklega fyrir Hönn-
unarmars en í verkum sínum blandar Laura saman
ólíkum aðferðum leirlistar og fjölbreytts handverks
og skapar þannig einstök abstraktverk.
Í garði Ásmundarsalar er sýningin Bíbí og blabla.
„Studio allsber býður fugla og fólk velkomin í garð-
inn þar sem fyrstu niðurstöður verkefnisins bíbí og
blabla verða til sýnis. Í garðinum verða verk í formi
fuglabaða og fleiri hluta sem hönnuðirnir hafa unn-
ið að síðustu misseri fyrir fuglana sem deila þessari
borg með okkur,“ segir í tilkynningu.
Fatalína Sólar Hansdóttur, „Áríðandi tilraunir á
raunveruleikanum“, sem var frumsýnd á tískuvik-
unni í London, verður sýnd í safninu en við vinnu á
henni voru m.a. rannsakaðar aðstæður til fram-
leiðslu hérlendis með áherslu á að hámarka nýtingu
auðlinda í nærumhverfi.
Nýtt vídeóverk verður einnig frumsýnt ásamt
ljósmyndaseríu sem gerð var í samstarfi við ljós-
myndarann Önnu Maggý en hún hefur nýtt sér ljós-
myndun við gerð verka sinna. Einnig má þar sjá
notkun ýmissa annarra miðla á borð við vídeóverk
og innsetningar, eins og segir í tilkynningu.
Skúlptúr Laura Pehkonen vann skúlptúr fyrir Hönnunarmars.
Fjórar sýningar á HönnunarMars opnaðar í Ásmundarsal