Morgunblaðið - 05.05.2022, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 05.05.2022, Blaðsíða 42
42 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 2022 Íþrótta- og æsku- lýðsmál hafa lengi átt hug minn allan. Þegar ég hætti í slökkviliðinu árið 2016 gafst enn frekari tími til þess að sinna þessari ástríðu minni. Það var því stór stund þegar nýr og glæsilegur knatt- spyrnuvöllur var vígður í Árbænum, mínu heimahverfi, sumarið 2018. Sömu sælutilfinningu upplifði ég sama ár þegar sérstök raf- íþróttadeild hóf starfsemi sína í Ár- bænum. Ég þekki hversu jákvæð áhrif íþrótta- og tómstundastarf hefur á börn og ungmenni. Hreyfing og íþróttir eru nefnilega stór þáttur í heilbrigðum uppvexti. Rétt eins og skólagangan sjálf. Íþróttamannvirki eru þess vegna mikilvægir innviðir, alveg eins og skólahúsnæði eða vega- kerfið. Innviðum hefur almennt ekki verið sinnt sem skyldi í stjórnartíð vinstri meirihlutans sem stjórnað hefur í Reykjavík – með örstuttum hléum – í tæp þrjátíu ár, og dugar í þeim efnum að nefna viðvarandi viðhaldsleysi á skólahúsnæði og öðrum fasteignum á vegum borgarinnar. Þótt aðstaða sumra íþróttafélaga sé til fyr- irmyndar er það þó svo að önnur hverfi hafa fallið langt á eftir. Sam- anburður við nágrannasveitarfélögin er okkur heldur ekki hagfelldur. Kópavogur er með fleiri yfirbyggða knattspyrnuvelli í fullri stærð en Reykjavík. Uppbygging íþróttainnviða er fjárfesting sem skilar sér Íþróttaaðstaða í mörgum borg- arhverfum er hreinlega óboðleg og hefur verið leyft að drabbast niður. Nægir þar að nefna Laugardalinn – þar sem löngu er orðið tímabært að byggja fullnægjandi íþróttahús fyrir íþróttafélögin og skólana. Sama gildir um Vesturbæinn, þar sem aðstaðan annar hvergi nærri þeim fjölda sem í hana sækir. Það gengur ekki að efnilegt íþróttafólk úr þessum hverfum og fleirum í Reykjavík þurfi að fara bæjarenda á milli, eða í nágrannasveitarfélög, til að stunda íþrótt sína. Ekki þarf að fjölyrða um sam- félagslega gagnsemi íþrótta og hreyf- ingar. Uppbygging íþróttainnviða er fjárfesting sem skilar sér í bættri andlegri og líkamlegri heilsu borg- arbúa, með tilheyrandi sparnaði fyrir heilbrigðiskerfið. Viðunandi íþrótta- aðstaða er einfaldlega þjóðhagslega hagkvæm framkvæmd. Það eru sjálfsögð mannréttindi barna að geta gengið að fyrsta flokks íþróttainnviðum innan sinna hverfa. Við eigum að tryggja börnum jafnt aðgengi að íþróttaaðstöðu, óháð bú- setu. Sjálfstæðisflokkurinn vill ráðast í stórfellt átak í uppbyggingu íþrótta- aðstöðu í Reykjavík og tryggja við- unandi aðstöðu í öllum hverfum. Þannig sinnum við þörfum allra – af- reksfólks og þeirra sem stunda hreyfingu á sínum forsendum. Eftir Björn Gíslason »Uppbygging íþrótta- innviða er fjárfesting sem skilar sér í bættri andlegri og líkamlegri heilsu borgarbúa. Björn Gíslason Höfundur er borgarfulltrúi og skipar 5. sæti á framboðslista Sjálfstæðis- flokksins fyrir borgarstjórnar- kosningarnar í Reykjavík. Íþróttaaðstaða í heimsklassa – sjálfsögð mannréttindi barna KRINGLAN - SKÓR.IS STEINAR WAAGE KRINGLUKAST 5.-9. MAÍ AFSLÁTTUR AF VÖLDUM SKÓM 20-30% Sjálfstæðisflokk- urinn í Garðabæ hefur átt góðu gengi að fagna. Við höfum byggt upp eitt best rekna sveitarfélag landsins þar sem ánægja íbúa með þjón- ustu bæjarins mælist hvað mest. Í gegnum tíðina hefur verið tekið á tímabundnum áskorunum af festu og við ávallt lagt okkur fram um að hlusta á íbúa bæjarins. Fyrir síðustu bæjarstjórnarkosn- ingar kynnti Sjálfstæðisflokkurinn 100 framsækin fyrirheit fyrir kjör- tímabilið sem nú er að ljúka. Ánægjulegt er að segja frá því að nær öll þau mál eru í höfn og hin, allt mikilvæg framfaramál, komin vel á veg. Fyrirheitin lýstu sam- heldnu og þróttmiklu samfélagi þar sem mennskan og gæskan eru í fyr- irrúmi og virðing borin fyrir nátt- úrunni. Þau voru unnin með þátt- töku fjölmargra bæjarbúa sem láta sig hag bæjarins okkar varða. Garðabær hefur verið leiðandi í leikskólamálum, þar sem saman fer nýsköpun og fagmennska. Þetta er kerfið sem við skópum og við viljum viðhalda. Við bættum kjör barnafjöl- skyldna með lágar tekjur, tekju- tengdum afslætti af leikskólagjöld- um, gjöldum frístundaheimila og gjöldum til dagforeldra var komið á. Markvisst var unnið að leik- skólavistun barna um leið og fæð- ingarorlofi lýkur. Ungbarnaleikskól- inn Mánahvoll reis við Vífilsstaði, nýr leikskóli í Urriðaholti opnar haustið 2022 og annar nýr leikskóli við Lyngás, þar sem byggt er fyrir ungt fólk, er í farvatninu. Starfsemi í Urriðaholtsskóla er hafin og 2. áfangi skólans í útboðsfasa. Álfta- nesskóli hefur verið stækkaður og skólalóðir endurgerðar. Úthlutun lóðar fyrir nýtt húsnæði Alþjóða- skólans fór fram og bygging þar er hafin. Einnig má nefna byggingu Mið- garðs, nýs fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri. Glæsileg æfingaaðstaða sem mun leggja grunn að heilsuefl- ingu bæjarbúa um langa framtíð. Ný íbúðarhverfi hafa verið skipu- lögð á Álftanesi, við Lyngás, í Vetr- armýri og Hnoðraholti. Endurbætur hafa verið gerðar á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar, Vífils- staðavegar og Lyngáss. Byggð hafa verið undirgöng til móts við Lækjar- ás, hringtorg við Flataskóla og Lit- latún svo einhver dæmi séu tekin. Við tókum einnig stór græn skref á kjörtímabilinu. Mótuðum inn- kaupa- og úrgangsstefnu sem ber yfirskriftina „Garðabær gegn sóun“ og sömuleiðis loftlagsstefnu. Við friðlýstum meira og eigum nú Ís- landsmet sveitarfélaga í friðlýs- ingum en tæplega helmingur bæjar- landsins er nú friðlýst svæði. Þessi opnu grænu svæði eru og verða upp- spretta orku og lífsgæða fyrir bæj- arbúa um ókomin ár. Að auki var fé- lagslegum búsetuúrræðum fjölgað, má þar nefna búsetukjarna fatlaðs fólks við Unnargrund sem var tek- inn í notkun, framkvæmdir eru að hefjast við annan í Brekkuási og sá þriðji í bígerð í Hnoðraholti. Fleira getum við nefnt en látum þetta duga í bili. Næstu skref Stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ hefur verið kynnt þar sem við leggjum fram 20 tillögur til móts við nýja tíma og 80 áherslur að auki. Börn í leik- og grunnskólum bæj- arins eða bæjarbúar sem vilja njóta sín innan um ósnortna náttúru, í öfl- ugu félagsstarfi eða iðandi mannlífi munu njóta góðs af tillögum okkar. Við hugum einnig að áframhaldandi uppbyggingu aðstöðu, bættum sam- göngum, stuðningi við þá sem hann þurfa og heilsueflingu íbúa. Við leggjum nýju fyrirheitin okk- ar í dóm kjósenda og þau ætlum við að efna fáum við umboð til þess. Þetta er sá tónn sem við, kjörnir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ, munum ávallt slá. Traust snýst um að efna fyrirheit. Við mun- um ekki bara standa vörð um góðan árangur heldur viðhalda sterkri stöðu – fyrir Garðabæ. Við efnum fyrirheit í þágu íbúa Eftir Almar Guðmundsson og Björgu Fenger » Traust snýst um að efna fyrirheit. Við munum ekki bara standa vörð um góðan árangur heldur viðhalda sterkri stöðu – fyrir Garðabæ. Almar Guðmundsson Almar er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ. Björg er forseti bæjarstjórnar í Garðabæ Björg Fenger Eins og flestar sam- einingar sveitarfélaga átti sameiningin í Múla- þing árið 2020 sér tölu- verðan aðdraganda. Greinarhöfundur var bæjarstjóri á Seyðis- firði árin 2011-2018 og á þeim árum var málið nokkuð til umræðu eins og sjá má í tímaritinu Sveitarstjórnarmálum frá í maí 2014. Þar var fjallað um um- ræðu sem varð um mögulega samein- ingu Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar í aðdrag- anda sveitarstjórnarkosninga það ár. Í greininni kemur fram að bæjar- ráð Seyðisfjarðarkaupstaðar og bæj- arstjórn Fljótsdalshéraðs samþykktu bæði bókun um kosti þess að sameina sveitarfélögin. Í bókun bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs kom m.a. fram að miklir möguleikar gætu falist í frekari sameiningu sveitarfélaga á Austur- landi og að með tryggum vetrarsam- göngum milli sveitarfélaganna mætti telja líklegt að allar forsendur væru til slíkrar sameiningar. Í bókun bæj- arráðs Seyðisfjarðarkaupstaðar kom m.a. fram að með tryggðum vetrar- samgöngum milli Seyðisfjarðar og Fljótsdalshéraðs yrðu til mikil tæki- færi á Austurlandi til enn frekari samvinnu og mögulegrar samein- ingar, stæði hugur íbúa á Austurlandi til þess. Seyðfirðingar hafa, ásamt fleirum, lengi barist fyrir jarðgöngum undir Fjarðarheiði til Héraðs. Í fyrrnefndri grein er haft eftir þáverandi bæj- arstjóra á Seyðisfirði að ef styttist í göngin verði forsendur fyrir því að kanna viðhorf íbúanna. Þá gætu sveitarfélögin aukið samstarf sín á milli og þá yrði sameining greiðari síðar ef menn kysu hana. Síðla árs 2017 þróuð- ust mál á þann veg að í sveitarfélögunum sem sameinuðust í Múlaþing, auk Vopnafjarðarhrepps og Fljótsdalshrepps, var ákveðið að láta fara fram könnun um hug íbúa til sameiningar, en þessi sveitarfélög höfðu lengi haft með sér samstarf, m.a. um félagsþjónustu og brunavarnir. Niðurstaða þessarar könnunar var nokkuð afgerandi já- kvæð hjá þeim sveitarfélögum sem síðan sameinuðust en einnig skýr af- staða á annan veg í hinum. Haustið efir sveitarstjórnarkosn- ingar 2018 hófst síðan sú vegferð sem leiddi á endanum til sameiningar í Múlaþing. Þeirri vinnu verða ekki gerð sérstaklega skil hér enda er það efni í aðra grein. Óhætt er þó að segja að vandað var til verka, sem fullyrða má að létti mjög sameininguna og starfið við stofnun hins nýja sveitarfé- lags. Markmiðið með sameiningunni var skýrt: að bæta þjónustu, efla stjórnsýslu og styrkja innviði. Sér- stök áhersla var lögð á samgöngur milli byggðarlaganna og að varðveita sérstöðu byggðakjarnanna og tryggja áhrif íbúa nærsamfélagsins innan þeirra. Við upphaf Múlaþings voru inn- leiddar nýjungar hvað varðar stjórn- sýslu sveitarfélaga, s.s. með tilkomu heimastjórna sem er mál manna að hafi gefist vel og haft jákvæð áhrif á virkni íbúa og áhuga á málefnum nærsamfélagsins. Einnig hefur vel tekist til með rafrænar lausnir, s.s. hvað fjarfundi varðar, sem jafnar að- stöðu íbúa í afar víðfeðmu sveitar- félagi til að taka þátt í störfum á vett- vangi þess. Áhersla var lögð á að áfram yrðu skrifstofur í hverju byggðarlagi eins og verið hafði. Þann- ig verða störf í stjórnsýslu sveitarfé- lagsins a.m.k. að hluta ekki háð stað- setningu og íbúar hafa aðgang að stjórnsýslu sveitarfélagsins í sínum byggðakjörnum. Það hefur verið góð samvinna og samstarf í sveitarstjórn, ráðum og heimastjórnum sem hefur gert starf- ið árangursríkara, sem ætíð skiptir miklu máli, en sérstaklega á tímum umfangsmikilla breytinga. Þannig viljum við Framsóknarfólk í Múla- þingi starfa áfram í þágu íbúa sveitar- félagsins og óskum eftir stuðningi kjósenda hinn 14. maí nk. til þess. Múlaþing – gæfuspor Eftir Vilhjálm Jónsson Vilhjálmur Jónsson » Við upphaf Múla- þings voru inn- leiddar nýjungar hvað varðar stjórnsýslu sveit- arfélaga, s.s. með til- komu heimastjórna sem er mál manna að hafi gefist vel. Höfundur er sveitarstjórnarfulltrúi og skipar 2. sæti á lista Framsókn- arfélags Múlaþings fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. jonsson.vilhjalmur@gmail.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.