Morgunblaðið - 05.05.2022, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 2022
Ferðalög á
Edith Gunnarsdóttir
edithgunnarsdottir@gmail.com
Þegar við tölum um heilsu þá ganga
mörg út frá því að við séum að tala
um líkamlega heilsu. Hún er vissu-
lega mikilvæg en andlega heilsan er
það ekki síður. Andleg vellíðan skipt-
ir nefnilega sköpum, að við séum fær
um að upplifa jákvæðar tilfinningar
og njóta hamingjuríkra stunda. Auð-
vitað getur lífið verið flókið en við
þurfum að geta aðlagað okkur öllum
þeim áskorunum sem við erum að
kljást við hverju sinni. Þótt sífellt
fleiri séu að átta sig á þessu eru kröf-
ur samfélagsins samt miklar og mörg
sem bogna undan þeim, uppfull af
streitu. Við þekkjum það öll að
gleyma okkur, að vera með athyglina
út á við í stað þess að staldra aðeins
við og huga að því hvernig okkur líð-
ur. Það myndi hins vegar gera okkur
svo gott að líta meira inn á við og
hætta að gera og leyfa okkur frekar
að vera.
Ómeðhöndluð streita getur
valdið heilsufarsvandamálum
Það er eðlilegt að finna fyrir
streitu endrum og eins. Ef hún hins
vegar varir lengi þá getur hún reynst
okkur hættuleg en hún er helsta
ástæða þess að fólk fer í veikindaleyfi
frá vinnu. Enda geta afleiðingar
ómeðhöndlaðrar streitu leitt til þess
að við þróum með okkur alls kyns
heilsufarsvandamál eins og þung-
lyndi, kvíða, áfallastreituröskun og
lélegt heilsufar. Það er því til mikils
að vinna að sjá til þess að streitan
verði ekki allsráðandi í lífi okkar.
Útivist, jóga og jóga nidra
Þeim fjölgar sem nota jóga og jóga
nidra til að líta inn á við og upplifa
þessa ró sem er okkur svo holl. Til
eru margar tegundir af jóga sem
leggja mismunandi áherslu á ýmsa
þætti eins og líkamsstöður, hug-
leiðslu, möntrur, slökun og öndun.
Jóga nidra er ævaforn hug-
leiðslutækni sem er notuð til að auka
jafnvægi og vellíðan en jóga nidra
þýðir jógískur svefn sem mætti líkja
við liggjandi leidda hugleiðslu. Í
djúpu hugleiðsluástandi hægir á
heilastarfseminni og við upplifun
ástand sem jafngildir djúpsvefni. En
náttúran er líka með okkur í liði.
Flest sem hafa prófað göngur geta
vottað um það hversu mikil andleg
vellíðan fylgir því að hreyfa sig úti
við. Það þarf samt ekki alltaf fjall eða
langar göngur til að upplifa þessa til-
finningu. Bara það að anda að sér
fersku lofti og hreinsa hugann í ís-
lenskri náttúru nærir okkur svo um
munar.
FÍ Heilsugöngur
Edith Gunnarsdóttir, eigandi
Hugarsetursins, jógakennari, ráð-
gjafi og fararstýra hjá Ferðafélagi
Íslands, hefur undanfarin ár haldið
úti fjallaverkefninu FÍ heilsugöngur
í samvinnu við Hugarsetrið. FÍ
Heilsugöngur hefur það að markmiði
að stuðla að bættri andlegri og lík-
amlegri heilsu með útivist og jóga.
Þar hittast þátttakendur tvisvar í
viku, í byrjun vikunnar er farið í
þægilega göngu nálægt höfuðborg-
arsvæðinu og í lok vikunnar er farið í
jóga nidra-djúpslökun. En Edith
gerði einmitt fyrstu íslensku rann-
sóknina um áhrif jóga og jóga nidra á
þunglyndi, kvíða og streitu. Nið-
urstöður rannsóknarinnar sýndu að
einkenni þunglyndis, kvíða og streitu
minnkuðu. Einnig bætti jóga og jóga
nidra líf þátttakenda á marga vegu,
þeir upplifðu m.a. minni streitu,
meiri slökun, sterkari sálfsmynd,
aukið sjálfsöryggi og sjálfs-
umhyggju, jákvæðari hugsun og
meiri hamingju. Hægt er að lesa nán-
ar um rannsóknina hér:
https://juniperpublishers.com/jyp/pdf/
JYP.MS.ID.555763.pdf
Stytt slóð: http://mbl.is/go/3njem
Náttúran er með okkur
í liði – hreyfum okkur úti
Þeim fjölgar sem nota
jóga og jóga nidra til að
líta inn á við og upplifa
þessa ró sem er okkur
svo holl.
Útivist Göngu- og jógaferðirnar stuðla að betri andlegri og líkamlegri heilsu.
Á Ströndum Flestir sem hafa prófað göngur segja að mikil andleg vellíðan fylgi því að hreyfa sig úti við.
Náttúran Morgunjóga í Norðurfirði. Hér er náttúran í liði með okkur.
Höfundur er jógakennari, ráðgjafi og
leiðsögukona.
VIKUR
Á LISTA
8
5
4
2
2
3
1
1
1
5
HUNDRAÐÓHÖPPHEMINGWAYS
Höf. Lilja Sigurðardóttir
Les. Lilja Sigurðardóttir, Örn Árnason
ásamt öðrum leikröddum
BRÉFIÐ
Höf. Kathryn Hughes
Les. Sara Dögg Ásgeirsdóttir
HÓLMSHEIÐI
Höf. Víkingur Smárason
Les. HjálmarHjálmarsson
DAGBÓKKIDDAKLAUFA
- SVAKALEGUR SUMARHITI
Höf. Jeff Kinney
Les. Oddur Júlíusson
ÆVINTÝRI FREYJU OG FRIKKA
- DROTTNINGINAFGALAPAGOS
Höf. Felix Bergsson
Les. Felix Bergsson, Þuríður BlærJóhannsd.
HVARFIÐ
Höf. Johan Theorin
Les. Jóhann Sigurðarson
KONAN Í BÚRINU
Höf. Jussi Adler-Olsen
Les. Davíð Guðbrandsson
ALLT EÐA EKKERT
Höf. Simona Ahrnstedt
Les. Álfrún Helga Örnólfsdóttir
HELKULDI
Höf. Viveca Stein
Les. Hanna María Karlsdóttir
MILLI STEINS OG SLEGGJU
Höf. Maria Adolfsson
Les. Birgitta Birgisdóttir
1.
2.
3.
4.
7.
8.
6.
10.
9.
5.
-
-
›
›
›
›
›
TOPP 10
VINSÆLUSTU HLJÓÐBÆKURÁ ÍSLANDI
VIKA 17