Morgunblaðið - 05.05.2022, Side 46

Morgunblaðið - 05.05.2022, Side 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 2022 Ferðalög á Edith Gunnarsdóttir edithgunnarsdottir@gmail.com Þegar við tölum um heilsu þá ganga mörg út frá því að við séum að tala um líkamlega heilsu. Hún er vissu- lega mikilvæg en andlega heilsan er það ekki síður. Andleg vellíðan skipt- ir nefnilega sköpum, að við séum fær um að upplifa jákvæðar tilfinningar og njóta hamingjuríkra stunda. Auð- vitað getur lífið verið flókið en við þurfum að geta aðlagað okkur öllum þeim áskorunum sem við erum að kljást við hverju sinni. Þótt sífellt fleiri séu að átta sig á þessu eru kröf- ur samfélagsins samt miklar og mörg sem bogna undan þeim, uppfull af streitu. Við þekkjum það öll að gleyma okkur, að vera með athyglina út á við í stað þess að staldra aðeins við og huga að því hvernig okkur líð- ur. Það myndi hins vegar gera okkur svo gott að líta meira inn á við og hætta að gera og leyfa okkur frekar að vera. Ómeðhöndluð streita getur valdið heilsufarsvandamálum Það er eðlilegt að finna fyrir streitu endrum og eins. Ef hún hins vegar varir lengi þá getur hún reynst okkur hættuleg en hún er helsta ástæða þess að fólk fer í veikindaleyfi frá vinnu. Enda geta afleiðingar ómeðhöndlaðrar streitu leitt til þess að við þróum með okkur alls kyns heilsufarsvandamál eins og þung- lyndi, kvíða, áfallastreituröskun og lélegt heilsufar. Það er því til mikils að vinna að sjá til þess að streitan verði ekki allsráðandi í lífi okkar. Útivist, jóga og jóga nidra Þeim fjölgar sem nota jóga og jóga nidra til að líta inn á við og upplifa þessa ró sem er okkur svo holl. Til eru margar tegundir af jóga sem leggja mismunandi áherslu á ýmsa þætti eins og líkamsstöður, hug- leiðslu, möntrur, slökun og öndun. Jóga nidra er ævaforn hug- leiðslutækni sem er notuð til að auka jafnvægi og vellíðan en jóga nidra þýðir jógískur svefn sem mætti líkja við liggjandi leidda hugleiðslu. Í djúpu hugleiðsluástandi hægir á heilastarfseminni og við upplifun ástand sem jafngildir djúpsvefni. En náttúran er líka með okkur í liði. Flest sem hafa prófað göngur geta vottað um það hversu mikil andleg vellíðan fylgir því að hreyfa sig úti við. Það þarf samt ekki alltaf fjall eða langar göngur til að upplifa þessa til- finningu. Bara það að anda að sér fersku lofti og hreinsa hugann í ís- lenskri náttúru nærir okkur svo um munar. FÍ Heilsugöngur Edith Gunnarsdóttir, eigandi Hugarsetursins, jógakennari, ráð- gjafi og fararstýra hjá Ferðafélagi Íslands, hefur undanfarin ár haldið úti fjallaverkefninu FÍ heilsugöngur í samvinnu við Hugarsetrið. FÍ Heilsugöngur hefur það að markmiði að stuðla að bættri andlegri og lík- amlegri heilsu með útivist og jóga. Þar hittast þátttakendur tvisvar í viku, í byrjun vikunnar er farið í þægilega göngu nálægt höfuðborg- arsvæðinu og í lok vikunnar er farið í jóga nidra-djúpslökun. En Edith gerði einmitt fyrstu íslensku rann- sóknina um áhrif jóga og jóga nidra á þunglyndi, kvíða og streitu. Nið- urstöður rannsóknarinnar sýndu að einkenni þunglyndis, kvíða og streitu minnkuðu. Einnig bætti jóga og jóga nidra líf þátttakenda á marga vegu, þeir upplifðu m.a. minni streitu, meiri slökun, sterkari sálfsmynd, aukið sjálfsöryggi og sjálfs- umhyggju, jákvæðari hugsun og meiri hamingju. Hægt er að lesa nán- ar um rannsóknina hér: https://juniperpublishers.com/jyp/pdf/ JYP.MS.ID.555763.pdf Stytt slóð: http://mbl.is/go/3njem Náttúran er með okkur í liði – hreyfum okkur úti Þeim fjölgar sem nota jóga og jóga nidra til að líta inn á við og upplifa þessa ró sem er okkur svo holl. Útivist Göngu- og jógaferðirnar stuðla að betri andlegri og líkamlegri heilsu. Á Ströndum Flestir sem hafa prófað göngur segja að mikil andleg vellíðan fylgi því að hreyfa sig úti við. Náttúran Morgunjóga í Norðurfirði. Hér er náttúran í liði með okkur. Höfundur er jógakennari, ráðgjafi og leiðsögukona. VIKUR Á LISTA 8 5 4 2 2 3 1 1 1 5 HUNDRAÐÓHÖPPHEMINGWAYS Höf. Lilja Sigurðardóttir Les. Lilja Sigurðardóttir, Örn Árnason ásamt öðrum leikröddum BRÉFIÐ Höf. Kathryn Hughes Les. Sara Dögg Ásgeirsdóttir HÓLMSHEIÐI Höf. Víkingur Smárason Les. HjálmarHjálmarsson DAGBÓKKIDDAKLAUFA - SVAKALEGUR SUMARHITI Höf. Jeff Kinney Les. Oddur Júlíusson ÆVINTÝRI FREYJU OG FRIKKA - DROTTNINGINAFGALAPAGOS Höf. Felix Bergsson Les. Felix Bergsson, Þuríður BlærJóhannsd. HVARFIÐ Höf. Johan Theorin Les. Jóhann Sigurðarson KONAN Í BÚRINU Höf. Jussi Adler-Olsen Les. Davíð Guðbrandsson ALLT EÐA EKKERT Höf. Simona Ahrnstedt Les. Álfrún Helga Örnólfsdóttir HELKULDI Höf. Viveca Stein Les. Hanna María Karlsdóttir MILLI STEINS OG SLEGGJU Höf. Maria Adolfsson Les. Birgitta Birgisdóttir 1. 2. 3. 4. 7. 8. 6. 10. 9. 5. - - › › › › › TOPP 10 VINSÆLUSTU HLJÓÐBÆKURÁ ÍSLANDI VIKA 17

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.