Morgunblaðið - 05.05.2022, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 05.05.2022, Blaðsíða 63
ÍÞRÓTTIR 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 2022 Fótboltavertíðin fer að mörgu leyti vel af stað. Nú er ekki lengur hægt að tala um ís- lenska fótboltasumarið því tíma- bilið byrjar um miðjan apríl og lýkur í lok október. Ekkert nema gott um það að segja. Það var tímabært að lengja mótið í báða enda og sem betur fer var apríl með nægilega hagstætt veðurfar til að grasvell- ir landsins væru nothæfir strax í byrjun. Vonandi verður október jafn hagstæður. Óvænt úrslit hafa litið dags- ins ljós, mörkin eru fleiri en oft áður og jafnvel boðið upp á hreinar sýningar eins og í níu marka leik Víkings og Stjörn- unnar. Það hefur líka verið ánægju- legt að sjá fólk koma fyrr á völl- inn en áður. Það hefur lengi verið landlægur ósiður á Íslandi að mæta í stúkuna eftir að flautað hefur verið til leiks. Ég var á leik á sunnudags- kvöldið þar sem fjölmargir voru mættir klukkutíma fyrir leik og stúkan var orðin hálffull 15 mín- útum áður en leikurinn hófst. Fé- lögin eru farin að standa sig bet- ur í því að gera leikinn að stærri viðburði en bara þeim 90 mín- útum sem boltanum er sparkað fram og til baka. Eitt er samt jafn óskiljanlegt og áður. Ekkert er gert í því að leikskýrslur KSÍ séu uppfærðar á meðan leikurinn stendur yfir, þótt allt sé fyrir hendi til þess. Aðrar íþróttagreinar bjóða upp á þetta í dag. Körfubolti, hand- bolti, blak, frjálsar, sund – allt er þetta uppfært „í beinni“ á síðum viðkomandi sambanda. Fótbolt- inn er einfaldasta íþróttin af þessu öllu, bara mörk, spjöld og skiptingar sem þarf að uppfæra. Halló! Árið er 2022. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is HANDKNATTLEIKUR Undanúrslit karla, annar leikur: Selfoss: Selfoss – Valur (0:1) ............... 19.30 Umspil karla, þriðji úrslitaleikur: Austurberg: ÍR – Fjölnir (1:1) ............ 19.30 KNATTSPYRNA 1. deild karla, Lengjudeildin: Árbær: Fylkir – KV.............................. 19.15 Kórinn: HK – Selfoss ........................... 19.15 1. deild kvenna, Lengjudeildin: Víkin: Víkingur R. – Augnablik........... 19.15 Ásvellir: Haukar – FH ......................... 19.15 Í KVÖLD! Olísdeild karla Undanúrslit, annar leikur: ÍBV – Haukar ....................................... 27:23 _ Staðan er 2:0 fyrir ÍBV. Þýskaland Sachsen Zwickau – Metzingen .......... 31:34 - Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði átta mörk fyrir Zwickau. B-deild: Dormagen – Gummersbach ............... 30:36 - Elliði Snær Viðarsson skoraði fimm mörk fyrir Gummersbach en Hákon Daði Styrmisson er frá vegna meiðsla. Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar liðið sem er með ellefu stiga forystu á toppnum og á sex leiki eftir. Aue – Grosswallstadt.......................... 19:27 - Arnar Birkir Hálfdánsson komst ekki á blað hjá Aue og Sveinbjörn Pétursson varði eitt skot í marki liðsins sem er í neðsta sæti. Danmörk Fallkeppnin: SönderjyskE – Kolding....................... 37:33 - Sveinn Jóhannsson lék ekki með Sönder- jyskE vegna meiðsla. Ágúst Elí Björgvins- son varði þrjú skot í marki Kolding sem er í næstneðsta sæti. E(;R&:=/D ÍBV hefur fengið til liðs við sig sænsku knattspyrnukonuna Jessiku Pedersen. Hún kemur frá Kalmar í heimalandi sínu og tók þátt í að koma liðinu upp í sænsku úrvals- deildina á síðasta tímabili en þá lék hún 22 af 26 deildarleikjum liðsins. Pedersen er 28 ára gömul og hefur áður m.a. leikið með Mallbacken. Hún fyllir óbeint skarð kant- mannsins bandaríska Sydney Carr, sem aðeins náði að spila í níu mín- útur með Eyjaliðinu á þessu Ís- landsmóti en hún reif krossband í hné í byrjun leiks gegn Stjörnunni. ÍBV fær sænsk- an leikmann Ljósmynd/Sigfús Gunnar Eyjar ÍBV er með eitt stig eftir fyrstu tvo leikina í deildinni. Hólmbert Aron Friðjónsson skoraði þrjú marka Lilleström þegar liðið vann afskaplega auðveldan 7:0- sigur á Eidsvold í 64-liða úrslitum norsku bikarkeppninnar í knatt- spyrnu karla í gærkvöldi. Öll mörk Hólmberts komu í síðari hálfleik, það fyrsta á 51. mínútu, annað markið á 66. mínútu og full- komnaði hann svo þrennuna á 68. mínútu. Hólmbert hefur farið frábærlega af stað á tímabilinu með Lilleström enda kominn með fimm mörk í fimm leikjum í deild og bikar. Hólmbert Aron skoraði þrennu Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson Þrenna Hólmbert lét vel að sér kveða í norska bikarnum í gær. KÖRFUBOLTI Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is „Ég held að það taki langan tíma að ná sér niður eftir þetta,“ segir körfu- knattleikskonan Kamilla Sól Vikt- orsdóttir í samtali við Morgunblaðið. Kamilla, sem er 22 ára, varð Íslands- meistari með Njarðvík á sunnudag eftir útisigur í oddaleik gegn Hauk- um. Njarðvík tapaði fyrir Grindavík í úrslitaleik um sæti í efstu deild á síð- ustu leiktíð en þar sem Snæfell sendi ekki lið til keppni í úrvalsdeild fékk Njarðvík sætið í deild þeirra bestu. Nýliðarnir gerðu sér svo lítið fyrir og urðu Íslandsmeistarar eftir sigur á Haukum í oddaleik í Ólafssal á Ás- völlum á sunnudag. Njarðvík var með yfirburði í oddaleiknum og var staðan eftir fyrsta leikhluta 16:5 og hálfleikstölur 41:19. Njarðvík vann að lokum 14 stiga sigur, 65:51. „Við byrjuðum þetta rosalega sterkt og vorum að fá framlag úr mörgum áttum. Vörnin okkar var svo frábær og alltaf þegar þær fóru í skot var varnarmaður í þeim. Við gáfum þeim aldrei auðveldar körfur. Ég held við höfum komið þeim á óvart með að vera svona rosalega ákveðnar. Við komum óhræddar inn í þennan leik,“ segir Kamilla um oddaleikinn. Hún viðurkennir að ár- angurinn hafi komið sér og liðinu á óvart. Ekki raunhæft markmið „Þetta kom okkur á óvart því við vorum nýliðar í deildinni og það var ekki beint raunhæft markmið að verða Íslandsmeistarar en svo gekk þetta svona vel,“ segir Kamilla og hélt áfram. „Markmiðið okkar var að enda í einu af fjórum efstu sætunum, sem okkur fannst samt frekar hátt mark- mið. Við vildum komast í úr- slitakeppnina og fara í undanúrslit í bikarnum og svo breyttust mark- miðin þegar okkur gekk svona vel í byrjun tímabils. Ég held samt að það hafi ekki margir aðrir en við haft trú á að við værum að fara alla leið,“ seg- ir hún. Gríðarleg stemning var í troð- fullum Ólafssal á sunnudag og höfðu fjölmargir grænklæddir Njarðvík- ingar lagt leið sína í Hafnarfjörðinn. „Þetta var ólýsanlegt. Við komum inn í hvern leik og ætluðum að gera okkar besta. Þótt við værum komnar í oddaleik ætluðum við bara að hafa gaman af þessu. Þetta var líka síð- asti leikurinn okkar þar sem við er- um allar saman því það eru tvær að fara út í skóla og svo veit maður ekki hvað mun gerast með erlendu leik- mennina. Við ætluðum að hafa gam- an og það gekk vel að vera alveg pressulausar. Þetta var ógeðslega gaman á sunnudag,“ segir Kamilla. Hún segir sigurinn í fyrsta leik gegn Haukum hafa gefið liðinu mikið en Njarðvík vann einvígið 3:2 og unnust allir leikirnir á útivelli. Þá vann Njarðvík einnig tvo útisigra á Haukum í deildinni í vetur. „Þegar við unnum fyrsta leikinn á móti Haukum fékk maður smá von en samt reyndi maður einhvern veginn að vera raunsær því Haukar eru með ótrúlega gott lið. Við vissum samt á sama tíma að við gætum unnið þær og við höfum sýnt það allt tímabilið því við unnum alla útileikina okkar á móti þeim í vetur. Maður hélt í von- ina en var á sama tíma að reyna að draga sig niður á jörðina aftur. Það var fínt að vera ekki að búast við neinu og það hjálpaði okkur.“ Held enginn viti það Kamilla segir varnarleik liðsins eiga mestan heiðurinn af óvæntum Íslandsmeistaratitli. „Við gengum stundum í gegnum tímabil þar sem ekkert gekk í sókninni en á meðan við fengum stopp hinum megin skipti það engu máli því hitt liðið var heldur ekki að skora. Vörnin okkar vann þetta,“ segir hún. Eins og áður hefur komið fram unnust allir leikir úrslitaeinvígisins gegn Haukum á útivelli og Kamilla átti erfitt með að skýra hvers vegna. „Ég eiginlega veit það ekki og ég held enginn viti það. Ætli það sé ekki aðeins meiri pressa að vera á heima- velli þegar liggur við að allir í bæjar- félaginu séu mættir. Mér leið samt ekkert öðruvísi að spila á heimavelli eða útivelli, svo það er erfitt að segja. Kannski var þetta eitthvað í undirmeðvitundinni, því við vissum að okkur var búið að ganga mjög vel á þessum velli. Við vorum ekkert að stressa okkur á þessu og það hjálp- aði okkur að ná þessum árangri,“ segir hún. Kamilla er uppalin hjá Keflavík og varð Íslandsmeistari með liðinu árið 2017. Þá var hún 17 ára gömul og í minna hlutverki en með Njarðvík í ár. „Það er mjög mikill munur, þótt það hafi verið geðveikt þá líka. Það var líka mjög ungt lið og enginn sem bjóst við að við yrðum meistarar þá. Það er hins vegar öðruvísi þegar þú ert búin að vinna þig upp úr neðri deild og upp í efstu deild, ert í stærra hlutverki og verður síðan meistari með því liði á fyrsta tímabili. Það er í rauninni með ólíkindum. Það bjóst enginn við þessu en það hjálpar manni stundum í þessu þegar enginn býst við neinu frá þér.“ Flakkaði á milli erkifjendanna Bakvörðurinn fór á venslasamn- ingi til Njarðvíkur frá Keflavík árið 2018 og lék með meistaraflokki fé- lagsins á sama tíma og hún lék með unglingaliði Keflavíkur. Að lokum skipti hún alfarið yfir til Njarðvíkur og sér sannarlega ekki eftir því. „Ég fór fyrst til Njarðvíkur á venslasamningi árið 2018 og var í Njarðvík í eitt ár en skipti svo aftur yfir í Keflavík. Ég er uppalin hjá Keflavík og ég fór aftur til Keflavík- ur þar sem vinkonur mínar eru þar en svo skipti ég aftur yfir í Njarðvík til að fá að spila meira og vera í stærra hlutverki. Ég hef lært mikið af því að vera í stærra hlutverki og þetta er ein besta ákvörðun sem ég hef tekið. Við Rúnar [Ingi Erlings- son þjálfari Njarðvíkur] ákváðum að ég myndi koma vel inn í og hjálpa þeim að komast upp. Fyrsta mark- mið var að fara upp í efstu deild. Mér leist vel á að geta verið í svona ungu liði og með Rúnar sem þjálf- ara. Það gekk svona vel.“ Njarðvíkurtreyjan flottari núna Keflavík mistókst að fara í úr- slitakeppnina á leiktíðinni en Ka- milla hefur litlar áhyggjur af upp- eldisfélaginu. Hún bendir á að það hafi reynst liðinu erfitt að missa lyk- illeikmenn út í háskóla í Bandaríkj- unum. „Þær voru nálægt því að komast í úrslitakeppnina og hefðu komist í hana ef þær hefðu ekki gengið í gegnum erfitt tímabil þar sem þær töpuðu nokkrum leikjum í röð. Þær eru með geggjaða leik- menn en það hefur verið aðeins erf- itt hjá þeim að missa lykilleikmenn út í skóla,“ útskýrði Kamilla, sem ber enn þá tilfinningar til Keflavík- ur. „Mér finnst ótrúlega gaman í Njarðvík þótt mér þyki vænt um Keflavík. Jonni [Jón Halldór Eð- valdsson] þjálfari og Hössi [Hörður Axel Vilhjálmsson aðstoðarþjálfari] eru mjög góðir vinir mínir og allar stelpurnar í Keflavík góðar vinkon- ur. Það er ekkert illt á milli okkar,“ sagði Kamilla. Hún viðurkenndi í samtali við mbl.is stuttu eftir félagaskipti sín til Njarðvíkur að Keflavíkurtreyjan væri flottari. Hún bjargar sér vel þegar hún er spurð út í þau ummæli. „Njarðvík skipti um treyju og hún er orðin flottari núna,“ segir Íslands- meistarinn hlæjandi. Enginn bjóst við þessu - Skipti úr Keflavík í Njarðvík og varð óvænt Íslandsmeistari með nýliðunum - Lék fyrir bæði félög á sama tíma - Stressuðu sig lítið á oddaleik við Hauka Morgunblaðið/Óttar Geirsson Bestar Kamilla Sól Viktorsdóttir fremst í flokki í fögnuði Njarðvíkurkvenna þegar þær tóku við bikarnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.