Morgunblaðið - 05.05.2022, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 05.05.2022, Blaðsíða 50
50 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 2022 ✝ Erla Guð- mundsdóttir fæddist 19. febrúar 1929 í Kóngsgerði í Hafnarfirði. Hún lést 16. apríl 2022 á Hjúkrunarheim- ilinu Sólvangi í Hafnarfirði. Foreldrar Erlu voru Guðmundur Vigfússon, f. 10.2. 1906, d. 6.10. 1997, og Stefanía Guðrún Einars- dóttir, f. 19.1. 1904, d. 22.9. 1982. Bróðir Erlu var Vigfús Sverrir, f. 1932, d. 1988. Erla var alin upp hjá móðursystur sinni, Guðbjörgu Einarsdóttur, f. 25.12. 1898, d. 9.8. 1980, og manni hennar Helga Þórarins- syni, f. 20.2 1900, d. 30.1. 1992. Uppeldissystir hennar er Helga Bjarnadóttir, f. 1948. Eiginmaður Erlu var Stefán Vigfús Þorsteinsson, f. 26.6. 1928, d. 4.12. 2006. Foreldrar hans voru Ingigerður Jóhanns- dóttir, f. 1902, d. 1993, og Þor- steinn Þ. Víglundsson, f. 1899, d. 1984. Börn Stefáns og Erlu eru: 1) Guðný, f. 14.11. 1950, d. 4.3. 1997, gift Magnúsi Hjörleifssyni. Þeirra börn eru: a) Erla, f. 1969, gift Sigurði Sigurðssyni. Þau eiga Magnús Óla, Dag Óla og Guðrúnu Eddu. b) Ari, f. 1977, kvæntur Auði Ásgeirsdóttur, Draupni, Rafn og Erlu. c) Andri, f. 1986, í sambúð með Sigrúnu Bjarnadóttur, þau eiga Úlfar Bjarna, Elfu Örnu og Unu Lóu. d) Ylfa, f. 2002. 5) Víðir, f. 18.8. 1964, hann er kvæntur Elínu Rögnu Sigurðardóttur. Þeirra börn eru: a) Helga Sif, f. 1987. b) Stefán Már, f. 1988, kvæntur Tönju Jónsdóttur, þau eiga Tristan, Karolínu Sólveigu og Kormák Víði. c) Gígja, f. 1994, gift Arnari Guðmundssyni, þau eiga Andreu Elínu. Erla ólst upp í Hafnarfirði og lauk gagnfræðaprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1947. Rétt eftir útskrift lá leið hennar til starfa sem gjaldkeri hjá Laugavegsapóteki og fyrir- tækinu Stefáni Thorarensen hf. Þar starfaði hún þar til hún helgaði sig barneignum og heimilisstörfum. Þegar börnin voru komin á legg settist hún aftur á skólabekk, að þessu sinni í Tækniteiknun í Iðnskólanum í Reykjavík. Erla vann í nokkur ár á Verkfræðistofunni Önn, eft- ir það vann hún sem móttökurit- ari á Hrafnistu í Hafnarfirði og starfaði þar út starfsævina. Erla var virk í félagsstörfum og sat m.a. í stjórn kvenfélags karla- kórsins Þrasta og þar var hún formaður um tíma. Einnig sat hún í stjórn kvenfélagsins Hrundar og var þar m.a. for- maður. Hún var ritari eldriborg- arafélags Hafnarfjarðar. Erlu var margt til lista lagt og eftir hana liggja ótal listaverk. Útför Erlu fer fram frá Frí- kirkjunni í Hafnarfirði í dag, 5. maí 2022, og hefst athöfnin klukkan 13. þau eiga Sverri Anton, Guðnýju Gabríelu, Önnu Guðnýju og Elías Ásgeir. c) Silja, f. 1983, gift Sigurði Sveinbjörnssyni, þau eiga Stefaníu Estel og Stellu Frönku. 2) Inga Þóra, f. 16.5. 1955. Sonur hennar og Guðmundar G. Sveinssonar er Stefán Freyr Guðmundsson, f. 1977, kvæntur Eygló Guðjónsdóttur, þau eiga Hlyn Frey og Bríeti. 3) Helga Björg, f. 29.7. 1960, gift Rögn- valdi Guðmundssyni. Þeirra börn eru: a) Guðmundur Vignir, f. 1983. b) Hjálmar Helgi, f. 1985, kvæntur Ingibjörgu Jóns- dóttur, þau eiga Helgu Fann- eyju, Elmar Kára og Maron Inga. c) Margrét Lára, f. 1989, í sambúð með Benedikt Bollasyni, þau eiga Tind Atla og Rökkva Snæ. d) Erla Rut, f. 1993, í sam- búð með Davíð Gunnarssyni. e) Guðný Björg, f. 1998, í sambúð með Viktori Vilhjálmssyni. f) Áslaug Rún, f. 2002. 4) Elfa, f. 1.3. 1962, gift Haraldi J. Bald- urssyni. Þeirra börn eru: a) Edda Karen, f. 1981, gift Þórði Bjarnasyni, þau eiga Darra, Harald Hrafn og Bjarna. b) Hjördís, f. 1984, gift Guðmundi Guðmundssyni, þau eiga Elskuleg móðir og tengda- móðir, okkur langar að minnast og um leið þakka þér fyrir sam- fylgdina gegnum árin. Margs er að minnast við frá- fall Erlu. Það sem kemur fyrst upp í hugann er hve fróðleiksfús hún var, fylgdist vel með mál- efnum líðandi stundar og ekki var æskilegt að hringja eða koma við meðan á fréttatíma stóð. Fram á síðustu daga ævi sinnar naut hún þess að lesa bækur og tímarit, mikill lestr- arhestur sem naut þeirrar gæfu að hugsunin var skýr fram á síð- ustu stundu. Hún var alla tíð stolt af fjölda barnabarna og hafði gaman af að segja frá hvað þau höfðu fyrir stafni og ætíð var eftirvæntingin mikil þegar hún frétti af fjölgun í fjölskyldunni og átti hún mjög gott með að muna alla afmælisdaga hjá öllum niðjum sínum. Alla sína tíð var hún listamaður í handverki, flók- ið prjón og útsaumur vafðist ekki fyrir henni. Einnig hafði hún un- un af garðrækt og unnu þau til hjónin til verðalauna með garð sinn á Arnarhrauninu sem hún var mjög hreykin af. Styrkur hennar fólst í smekkvísi, vinnu- semi og vilja til að gera hlutina vel. Á miðjum aldri tók hún sig til og tók bílpróf, keypti sér gula Volkswagen-bjöllu og hóf nám í tækniteiknun í Iðnskólanum í Reykjavík. Hún vann síðar við tækniteiknun á verkfræðistofu og með eiginmanni sínum, Stef- áni. Erla var mjög félagslynd, tók þátt í félagslífi og var mjög lið- tæk í stjórnum kvenfélaga. Hún var einnig í reglu Sam-frímúr- ara. Síðustu árin naut hún þess að fara í dagvistun á Hrafnistu í Hafnarfirði. Erla var ekki laus við áföll í lífinu. Hún lifði elstu dóttur sína, sem lést úr veikind- um, og eiginmann sinn sem lést skyndilega af slysförum. Áföll- unum tók hún af styrk og eflaust hefur staðföst trú hennar á æðri tilgang vorrar jarðvistar hjálpað henni í sorg sinni. Takk fyrir allt og allt, farðu vel og njóttu á nýjum stað. Víðir og Elín. Við erum aldrei tilbúin til að kveðja okkar nánustu. Maður veit hvert stefnir, en dauðinn kemur manni alltaf í opna skjöldu. Við söknum þín sárt, elsku mamma, en minningarnar munu fylgja okkur og ylja um ókomna tíð. Mamma í eldhúsinu að elda eitthvað gott, meistarakokkur og bakari. Alltaf tilbúin til að prófa sig áfram í matargerðinni. Saumavélin suðar, fullt af títu- prjónum og efnisafgöngum, það eru að koma jól. Hvert okkar fékk saumað nýtt dress fyrir jól- in, vorum flottust. Haustið er komið, amma Begga mætt. Nú skal taka slát- ur. Allir leggja hönd á plóg og veisla ársins er framundan. Enn ein óléttan, þrjú í beit. Sumir gleðjast meðan öðrum finnst nóg komið. Vestmannaeyjar: heilsa upp á afa og ömmu og hina ættingjana. Þjóðhátíð: lundi í matinn, bald- ursbrá í hárið, bekkjabílar, tjöld- in. Öll yndislegu ferðalögin. Hvíta tjaldið, hústjaldið, tjald- vagninn, húsbíllinn og sumarbú- staðurinn. Mamma stjanaði við ungana sína, smurða brauðið í ferðakommóðunni, djús í mjólk- urflösku og svanakex. Börnin sitja í stiganum full aðdáunar. „Þau eru að fara á ball.“ Mamma eins og drottning í heimasaumuðum síðkjól og pabbi í smóking. Glæsilegasta dansparið í bænum. Mamma okkar í skóla, á eigin bíl. Tekur á sinn hátt þátt í kvennabyltingunni, fer út á vinnumarkaðinn og verður virk- ari í félagsstörfum. Mamma sækir sauma-, prjóna-, spelt-, matreiðslu-, skrautskriftar-, þjóðbúninga-, kortagerðar-, brauðtertu- og glermálunarnámskeið. Einnig Dale Carnegie-námskeið og enskuskóla. Heimatilbúnu veislurnar: af- mælis-, jóla-, fermingar-, brúð- kaups- og skírnar-, þar sem hæfileikar hennar njóta sín. Mamma alltaf boðin og búin að hjálpa okkur. Barnabörnin koma smátt og smátt. Mamma til taks og þau pabbi njóta sín vel í barnaskar- anum. Ekki er slegið slöku við í prjóna- og saumaskap. Gaman að hafa þau öll í stíl. Hún hugsar ekki bara um ungana sína, heldur nýtur gamla fólkið okkar ávallt gæsku hennar og umhyggju. Verðlaunagarðurinn og sól- stofan með heimaræktuðum blómum og vínberjum eru stolt mömmu og pabba. Hún situr við dánarbeð Guð- nýjar systur, er brugðið og lífs- sýnin breytist. Það á enginn að þurfa að horfa á barnið sitt deyja. Sumarbústaðaferðirnar ógleymanlegar. Þar eigum við yndislegan tíma saman. Draum- ur þeirra hefur ræst. Þau hefur bæði lengi dreymt um athvarf í sveitinni. Loksins finna mamma og pabbi fallega íbúð sem hentar þeim. Þar hyggjast þau verja ævikvöldinu saman, með útsýni yfir fallega fjörðinn sinn. Því miður deyr pabbi allt of snemma. Þetta kollvarpar lífi hennar, hún hefur aldrei verið ein. Eftir þetta hrakar heilsu mömmu sem hefur alltaf verið hraust og lífið verður erfiðara. Hún lifir fyrir afkomendurna og það sem gleð- ur mest er samveran með fólkinu sínu. Reynir að bera sig vel. Les ógrynni bóka, fylgist vel með fréttum, saumar út, heklar og prjónar meðan heilsan leyfir. Sólvangur er síðasta heimilið. Þar er vel um hana hugsað af yndislegu starfsfólki. Hún var södd lífdaga. Við hittumst þegar okkar tími kemur. Dæturnar Inga Þóra, Helga Björg og Elfa. Elskulega tengdamanna! Nú eru 45 ár síðan ég gekk með grasið í skónum á eftir Helgu Björgu og kynntist þér og Stef- áni. Þau kynni urðu gæfa mín. Þú dóttir aflakóngs og húsfreyju í Vestmannaeyjum og uppeldis- dóttir verkafólks í Hafnarfirði. Kvennaskólagengin og síðar tækniteiknari. Auk þess sóttir þú fjölda námskeiða, einkum á svið handverks og hannyrða, enda lék allt í höndum þér. Þið Stefán bjugguð fyrst á Norðurbrautinni hjá foreldrum þínum. Síðan byggt á Arnarhrauninu. Þú handlangari í múrverki, kasólétt að Helgu okkar árið 1960, enda varstu ávallt hörð af þér og metnaðarfull. Bæði voruð þið virk í félagslífinu, verðlaunaðir dansfélagar og glæslegt par. Þú lagðir áherslu á að vera vel til- höfð og með áhuga á tísku alla tíð. Á miðjum aldri: verðlauna- garður á Arnarhrauni og upphaf margra ferðalaga ykkar erlend- is. Mikið var áfall ykkar hjóna og fjölskyldunnar að missa elstu dótturina, Guðnýju, árið 1997, aðeins 48 gamla. Undir sjötugt: húsbílatímabil og ferðalög um landið fagra. Árið 2005: sumar- húsið okkar í Úthlíð og nýtt og fallegt heimili ykkar á Herjólfs- götu í Hafnarfirði. Skyndilegt andlát Stefáns árið 2006 var þungt högg en þú lést ekki bug- ast og bjóst á Herjólfsgötunni til 2021. Þú fylgdist alla tíð vel með fréttum, jafnt innanlands sem utan. Gátum t.d. rætt undanfarn- ar forsetakosningar í Bandaríkj- unum sem við vöktum bæði fram á nótt til að fylgjast með þegar aðrir í fjölskyldunni voru löngu sofnaðir. Síðasta árið dvaldir þú við góðan aðbúnað á Sólvangi. Elsku tengdamamma! Þú áttir gott og langt líf og varst virt af þeim sem þig þekktu. Nú eru af- komendurnir orðnir fimmtíu: fimm börn, sautján barnabörn og tuttugu og átta barnabarna- börn. Alls eru um sjötíu í stór- Erla Guðmundsdóttir Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGÞÓR JÓN SIGURÐSSON kerfisfræðingur, lést föstudaginn langa, 15. apríl, á Vífilsstöðum. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Michael Sigþórsson Lilja Bragadóttir Björn Sigþórsson Birna G. Hermannsdóttir Þórunn Sigþórsdóttir Reynir A. Guðlaugsson barnabörn og barnabarnabörn ÞORGILS AXELSSON byggingatæknifræðingur lést 16. mars. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir til starfsfólks Landakots, einkum séra Sveinbjargar Katrínar Pálsdóttur, og Emilíu Jónsdóttur á Útfararstofu Kirkjugarðanna. Aðstandendur Elsku maðurinn minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR PÁLMAR GÍSLASON, Móaflöt 55, Garðabæ, sem lést á Hrafnistu Hafnarfirði miðviku- daginn 27. apríl, verður jarðsunginn frá Garðakirkju í Garðabæ þriðjudaginn 10. maí klukkan 15. Kristín Eiríksdóttir Helga Sigurðardóttir Björn Jónsson Gunnar Kr. Sigurðsson Anna R. Valdimarsdóttir barnabörn og barnabarnabarn Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GÍSLI ÁRDAL ANTONSSON, Fossvegi 25, Siglufirði, lést á Heilbrigðisstofnuninni á Siglufirði fimmtudaginn 28. apríl. Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 7. maí klukkan 13. Guðrún Hannesdóttir Olga Gísladóttir Þorvaldur Hreinsson Hrönn Gísladóttir Sigurður Óli Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær bróðir okkar, AXEL JÓHANN BJÖRNSSON, f. 28. júlí 1962, lést á heimili sínu í Vilcabamba, Ekvador, þriðjudaginn 15. febrúar. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Drífa, Dröfn og Helga Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RAFN JÚLÍUS JÓHANNSSON, Silfurgötu 47, Stykkishólmi, lést á St. Franskiskusspítalanum í Stykkishólmi laugardaginn 23. apríl. Útförin fer fram frá Stykkishólmskirkju föstudaginn 6. maí klukkan 14. Hlekk á streymi er hægt að nálgast á mbl.is/andlat Birna Guðríður Pétursdóttir Anna María Rafnsdóttir Davíð Sveinsson Jóhann Kr. Rafnsson Þórunn Sigurðard. Pétur Árni Rafnsson Júlía Lobanova Björn Arnar Rafnsson Margrét Bjarman Rafn Júlíus Rafnsson Erla Friðriksdóttir afabörn og langafabörn Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, HÖRÐUR HJALTASON trésmiður, Melgerði 27, Kópavogi, lést á hjartadeild Landspítala á skírdag. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Valdimar Harðarson Jóhanna Elín Stefánsdóttir Þorsteinn Valdimarsson Olgeir Guðbergur Valdimarsson Stefán Georgsson Guðrún Jóhanna Georgsdóttir Hrönn Hjaltadóttir Hrefna Hjaltadóttir og fjölskyldur Kær bróðir okkar, VILMUNDUR ÞÓR JÓNASSON frá Raufarhöfn, lést á sjúkrahúsinu á Húsavík mánudaginn 2. maí. Útförin fer fram frá Raufarhafnarkirkju laugardaginn 21. maí klukkan 14. Valgeir Jónasson Gunnar F. Jónasson og fjölskyldur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.