Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 07.06.2022, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.06.2022, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2022 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. 72,3 prósent einstaklinga bera mikið traust til heilsugæslunnar á höfuð- borgarsvæðinu, samkvæmt niður- stöðum könnunar Sjúkratrygginga Íslands. Þá eru 76,5 prósent notenda heilsugæslustöðva á höfuðborgar- svæðinu ánægðir með þjónustuna og 87,2 prósent töldu viðmót og fram- komu starfsfólks almennt góða. Eru niðurstöðurnar svipaðar og komu fram í sambærilegri könnun árið 2019. Einkareknar heilsugæslu- stöðvar koma best út Heilsugæslustöðvarnar Lágmúla, nú Kirkjusandur, Salahverfi, Höfða, Árbæ, Urðarhvarfi, Seltjarnarnesi og Mjódd raða sér í efstu sætin í flestum spurningum. Niðurstöður könnunarinnar benda til þess að einkareknar heilsugæslustöðvar njóti mesta traustsins hjá notendum heilsugæslustöðva á höfuðborgar- svæðinu. Aftur á móti getur ýmis- legt haft áhrif á þjónustu einstakra stöðva á því tímabili sem könnunin var gerð, eins og mannekla og veik- indi hjá starfsfólki. Brýnast að stytta bið eftir þjónustu Það sem er almennt talið brýnast að bæta í þjónustu heilsugæslu- stöðva, er að bið eftir þjónustu verði styttri. 75,1 prósent þátttakenda kalla eftir því. Tæplega helmingur sagðist hafa fengið þjónustu innan hæfilegs tíma. Þá telur rúmlega helmingur svarenda mikilvægt að auðvelda aðgengi að læknum í síma og 35,9 prósent vilja auka rafræna þjónustu. Sýna niðurstöður þó að al- mennt hefur heilsugæslan staðið sig mjög vel, þrátt fyrir gríðarlegt álag á tímum kórónuveirufaraldurs. Könnunina gerði Maskína fyrir Sjúkratryggingar Íslands á tíma- bilinu 2. mars til 26. apríl á þessu ári. Slembiúrtak var gert meðal þeirra sem sótt höfðu heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu árið 2021 en alls tóku 6.929 manns þátt í könnun- inni, um 300 frá hverri heilsugæslu- stöð. Verða niðurstöðurnar nýttar til þess að þróa og efla þjónustuna enn frekar. Einkareknar stöðvar efst - 72,3 prósent bera mikið traust til heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu - Ánægja með þjónustu og viðmót Á Laugardalsvelli var í fyrsta skipti seldur bjór í gærkvöldi er karlalandslið Íslands í knatt- spyrnu mætti Albaníu í Þjóða- deildinni. „Við erum að koma til móts við hóp stuðningsmanna sem hafa verið að kalla eftir þessu reglulega í mörg ár. Við tókum síðan ákvörðunina að sækja um viðeigandi leyfi á við- eigandi stöðum og það fékkst,“ segir Ómar Smárason, upplýs- ingafulltrúi KSÍ, um bjórsöluna. Hann segir að miðasala á leikinn hafi tekið kipp er fréttir bárust af sölunni en nefnir þó að blíð- viðrið hafi einnig getað haft já- kvæð áhrif. Ómar nefnir að Íslendingar séu tíðir gestir á knattspyrnu- leiki erlendis, jafnvel leiki Ís- lands erlendis, og geti keypt sér áfengi þar. „Af hverju ekki hér líka?“ Hann segist ekki eiga von á öðru en að bjórsalan sé komin til að vera á Laugardalsvelli miðað við viðbrögðin við framtakinu. urdur@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bjórsala hafin á landsleikjum Þóra Birna Ingvarsdóttir thorab@mbl.is Dagur B. Eggertsson, oddviti Sam- fylkingarinnar, heldur áfram sem borgarstjóri næstu átján mánuði, en að þeim tíma liðnum munu hann og Einar Þorsteinsson skiptast á emb- ættum og þá verður Dagur formaður borgarráðs. Einar verður þar með fyrsti framsóknarmaðurinn til þess að gegna embætti borgarstjóra. Einar segir að sér þyki ekki verra að fá þessa fyrstu mánuði til þess að setja sig vel inn í stjórnkerfið, kynn- ast ferlinu við ákvarðanatökur, eiga samskipti við starfsfólk og kynnast starfinu betur. „Við töldum þetta skynsamlegustu skiptingu á verk- efninu, hann byrjar fyrstu átján mánuðina og svo tek ég við og verð meirihluta kjörtímabilsins.“ Dagur tekur í sama streng en bæt- ir við að með þessu sé verið að nýta reynslu ásamt því að gefa Fram- sóknarflokknum tækifæri. „Við er- um þannig bæði að endurspegla það sem við sáum í könnunum fyrir kosn- ingar, að stærsti hluti kjósenda vildi mig áfram sem borgarstjóra, en það var líka krafa um breytingar og við teljum þetta góða blöndu.“ Hefði verið til í stólinn Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti og borgarfulltrúi Pírata, verður for- maður sameinaðs umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar í nýrri borgarstjórn. Píratar voru eini flokkurinn úr meirihlutasamstarfi síðustu borgarstjórnar, sem bætti við sig manni. Því komu fram vanga- veltur um það hvort Píratar hygðust gera tilkall til embættis borgar- stjóra. „Ég hefði alveg tekið það á mig, ef sú sviðsmynd hefði verið eitt- hvað sem við hefðum endað með í fanginu,“ segir Dóra Björt, aðspurð hvort hún hefði viljað gegna embætti borgarstjóra. Hún telur málefnum Pírata vel fyrir komið með þeirri verkaskiptingu sem flokkarnir hafa komið sér saman um. „Við förum fyr- ir þessum málaflokkum sem skipta okkur máli. Þar erum við á gólfinu og getum því haft áhrif. Við höldum þannig trúnaði við okkar kjósendur.“ Vinna að sama markmiði Þórdís Lóa Þórhallsdóttir verður formaður atvinnu-, nýsköpunar- og ferðaþjónusturáðs, auk þess sem hún mun sinna hlutverki forseta borgarstjórnar. Viðreisn fékk aðeins inn einn borgarfulltrúa, Þórdísi Lóu, en Pawel Bartoszek er varafulltrúi. Þrátt fyrir það gekk vel að koma sjónarmiðum Viðreisnar að borðinu, að sögn Þórdísar. „Við vissum frá byrjun að við komum inn til að styrkja fjölbreytileikann og breidd- ina í hópnum. Mér líður ekki eins og ég sé ein, þegar ég er að vinna með þessu frábæra fólki. Þetta er mikill mannauður og við erum öll að vinna að sama markmiði.“ Átján fyrstu breytingar Framsóknarflokkurinn boðaði breytingar í kosningabaráttu sinni. Nú hefur verið myndaður nýr meiri- hluti þar sem Framsóknarflokkur- inn bætist í hóp þeirra þriggja flokka sem skipuðu meirihluta á síðasta kjörtímabili. Í upphafi málefnasamningsins má sjá átján breytingar sem nýr meiri- hluti boðar. Þar er lögð áhersla á húsnæðisátak, næturstrætó, hækk- un frístundastyrks og bættan starfs- anda. Fyrsti borgarstjóri Framsóknar - Dagur heldur áfram sem borgarstjóri næstu átján mánuði - Einar tekur við af Degi í janúar 2024 - Píratar fara fyrir umhverfis- og skipulagsmálum - Þórdís Lóa verður forseti borgarstjórnar Morgunblaðið/ Óttar Borgarstjórn Nýr meirihluti í Reykjavík samanstendur af borgarfulltrúum Framsóknarflokksins, Samfylkingarinnar, Pírata og Viðreisnar. Karlmaður á þrítugsaldri var hand- tekinn á laugardagskvöld, grunaður um að hafa orðið nágranna sínum, karlmanni á fimmtugsaldri, að bana með barsmíðum í austurborginni. Ekki er talið að mennirnir tengist að öðru leyti. Lögreglu barst tilkynning um mál- ið rétt fyrir klukkan 19:30 í Barðavogi í Reykjavík. Er viðbragðsaðilar komu á vett- vang, var maðurinn meðvitundarlaus og andaði ekki. Strax voru hafnar endurlífgunartil- raunir á manninum en þær báru ekki árangur. Sakborningurinn var á staðnum og var hann þegar handtekinn og fluttur á lögreglustöð. Lögðu ekki fram kæru Fyrr um kvöldið hafði lögregla ver- ið kölluð tvisvar á staðinn vegna lík- amsárása. „Það er ekkert sem hægt er að sjá að lögreglan hefði átt að gera eitthvað öðruvísi,“ segir Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglu, en hvorugur maðurinn lagði fram kæru og lögregla því lítið getað aðhafst. Margeir vildi ekki tjá sig um hvers konar barefli hefði verið notað í árás- inni. Hann segir að rannsókn málsins gangi vel. Sakborningurinn var leidd- ur fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur á sunnudag og úrskurðaður í þriggja og hálfrar viku gæsluvarðhald, til 1. júlí. urdur@mbl.is Varð nágranna að bana í austurborginni - Áður verið óskað eftir aðstoð lögreglu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.