Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 07.06.2022, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 07.06.2022, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2022 Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar vinnuföt fást einnig í Mikið úrval af öryggisvörum HAGI ehf • Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414 3700 • hagi@hagi.is • hagi.is • Hagi ehf HILTI Opið: 8-18 virka daga – 10-12 laugardaga Áhugamál Helga eru meðal ann- ars brids. 7 ára gömlum var hon- um kennt að spila brids og áhug- inn hefur ekki dvínað síðan. Enn þann dag í dag keppir hann á Ís- landsmóti í brids. Í því hefur hann unnuð marga titla og þykir brids- sveitin hans hér fyrirnorðan afar sterk. Frá unga aldri var hann virkur í íþróttum og æfði fótbolta með ungmennafélaginu í sveitinni. Enn í dag spilar hann innan- húsfótbolta, (bumbubolta) á Þela- mörk með félögum sínum. Fjölskylda Eiginkona Helga er Ragnheiður Margrét Þorsteinsdóttir, f. 22.11. 1967, bóndi á Syðri- Bægisá. Þau hafa verið gift í 24 ár. Foreldrar Ragnheiðar eru hjónin Þorsteinn Rútsson, f. 14.7. 1950 og Jóna Kristín Antonsdóttir, f. 7.12. 1950. Þau hafa verið gift í 52 ár og eru bændur á Þverá í Öxnadal. Börn Helga og Ragnheiðar eru 1) Gunnella Helgadóttir, f. 12.8. 1993, bóndi og nuddari, búsett á Syðri- Bægisá. Eiginmaður hennar er Arnar Rafn Gíslason, f. 26.12. 1991, sölumaður hjá Vélfangi. Son- ur þeirra er Hafþór Dalmar, f. 16.2. 2020 og eiga þau von á öðru barni á næstu dögum; 2) Jónína Þórdís Helgadóttir, f. 14.10. 1995, bóndi, búsett á Syðri- Bægisá. Unnusti hennar er Arnþór Gylfi Finnsson, f. 19.5. 1995, sölumaður hjá Höldi bílasölu. Börn þeirra eru Helena Vordís, f. 3.2. 2020, og Steinar Helgi, f. 18.3. 2022; 3) Hulda Kristín Helgadóttir, f. 10.2. 1998, meistaranemi í efnaverk- fræði í Danmörku. Kærasti hennar er Arnór Breki Ásþórsson, f. 8.2. 1998, meistaranemi í vélaverk- fræði. Systir Helga er Katrín Steins- dóttir, f. 30.9. 1953, bókari í Hafnarfirði. Foreldrar Helga voru hjónin Steinn Dalmar Snorrason, f. 4.3. 1925, d. 17.8. 1999, bóndi á Syðri- Bægisá, en hann tók við af föður sínum Snorra, og Hulda Vordís Aðalsteinsdóttir, f. 23.4. 1928, d. 11.8. 2020, húsfreyja á Syðri- Bæg- isá, en hún ólst upp á Öxnhóli í Hörgárdal, sem er í sama sveitar- félagi, nú kallað Hörgársveit. Helgi Bjarni Steinsson Haraldur Pálsson bóndi og organisti á Dagverðareyri í Kræklingahlíð Katrín Jóhannsdóttir húsfreyja á Dagverðareyri Elísabet Pálína Haraldsdóttir húsfreyja á Öxnhóli Aðalsteinn Sigurðsson bóndi á Öxnhóli í Hörgárdal Hulda Vordís Aðalsteinsdóttir húsfreyja á Syðri-Bægisá Helga Jóhanna Ólafsdóttir húsfreyja á Öxnhóli Sigurður Jóhann Sigurðsson bóndi á Öxnhóli Þorfinnur Guðmundsson bóndi á Syðri-Bægisá Snjólaug Guðrún Jónsdóttir húsfreyja á Syðri-Bægisá Þórlaug Þorfinnsdóttir húsfreyja á Syðri-Bægisá Snorri Þórðarson bóndi á Syðri-Bægisá Halldóra Jónsdóttir húsfreyja á Hnjúki Þórður Jónsson bóndi á Hnjúki í Skíðadal Ætt Helga Bjarna Steinssonar Steinn Dalmar Snorrason bóndi á Syðri-Bægisá í Öxnadal „ANNAÐHVORT ERUM VIÐ OF NÁLÆGT EÐA OF LANGT FRÁ ÞVÍ. ÉG GET EKKI ÁKVEÐIÐ MIG.“ „ER ÞETTA NÚMER ELLEFU?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera bara hálf manneskja án hans. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann GRRRRR… HVAÐ ER AÐ ÞÉR, ODDI? ALDREI VANMETA KOSTI GÓÐS FAÐMLAGS ÉG BRENNDI MATINN! STOPP! ÞÚ SLEKKUR EKKI ELD SVONA! ÉG ER AÐ PANTA PÍTSU! HALTU ÁFRAM! Einar K. Guðfinnsson sendi mér póst: „Þeir Agnar H. Gunnars- son, fyrrverandi oddviti á Miklabæ í Skagafirði, og sr. Gísli Gunnarsson í Glaumbæ voru að undirbúa að bera á tún sín þegar Gunnar Rögn- valdsson á Löngumýri bar að garði. Gunnar orti: Af gæsku vinna góðverk öll þeim gróður jarðar fagnar. Er blessuð sólin signir völl, séra Gísli og Agnar.“ Ingólfur Ómar gaukaði að mér þessari vísu, sem kom upp í huga hans þegar hann var að dást að sól- arlaginu sem alltaf er svo fallegt yf- ir borginni seint á kvöldin í góðum veðrum: Gullnum roða skarta ský í skini næturinnar. Dulræn fegurð dvelur í djúpi sálar minnar. Það var „Vorhugur“ í Ólafi Stef- ánssyni á miðvikudag: Er vorar legg ég landið undir il, þá lifnar allt og kemur óðum til. Sauðburði lýkur sinan burt fýkur og sumarið það kemur, – hér um bil. Á fimmtudag misritaðist limra eftir Ólaf og biðst ég velvirðingar á því. Rétt er hún svona með skýr- ingum: „Þegar allir eu búnir að gleyma Covid, þá geta menn notað pestina til blóra, ef þeir finna ein- hverja skerðingu á ilman, smekk eða tilfinningu, eins og það hét í gömlu Heilsufræðinni: Nú kenna menn Covid um allt: að kvennalánið sé valt. að heyri þeir illa og stöð þurfi að stilla og kalla svo kaffið sitt malt.“ „Afdrifarík athyglissýki“ eftir Hjálmar Freysteinsson: Þegar Friðþjófur féll í skuggann var fátt sem náði að hugg’ann, frá kerlingarrolunni úr kjallaraholunni kastaði’ann sér út um gluggann. Jón frá Garðsvík mælti við jafn- öldru: Ellin nálgast öllum þung, ævin fer að styttast. Meðan við vorum ennþá ung áttum við að hittast. Hjálmar Freysteinsson orti: Á lausnum fínum ég luma, loforð mín oft hafa ræst. Ég geri sumt fyrir suma ef sumir kjósa mig næst. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Gróður jarðar og sólarlagið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.