Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 07.06.2022, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 07.06.2022, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2022 Besta deild kvenna Stjarnan – Þór/KA ................................... 5:0 Staðan: Valur 7 5 1 1 19:4 16 Stjarnan 8 5 1 2 18:9 16 Selfoss 7 4 2 1 11:6 14 Þróttur R. 7 4 1 2 13:9 13 Breiðablik 7 4 0 3 17:5 12 ÍBV 7 3 2 2 11:9 11 Þór/KA 8 3 0 5 13:23 9 Keflavík 7 2 1 4 9:10 7 Afturelding 7 1 0 6 8:21 3 KR 7 1 0 6 4:27 3 Lengjudeild kvenna Haukar – HK ............................................ 0:3 Fjarðab/Höttur/Leiknir – Fylkir............ 2:1 Staðan: HK 5 5 0 0 12:3 15 FH 5 4 1 0 14:3 13 Tindastóll 5 4 0 1 6:2 12 Fjarð/Hött/Leikn. 5 3 1 1 11:4 10 Víkingur R. 5 3 0 2 13:7 9 Grindavík 5 2 1 2 5:5 7 Augnablik 5 1 0 4 4:12 3 Haukar 5 1 0 4 3:11 3 Fjölnir 5 0 1 4 4:15 1 Fylkir 5 0 0 5 3:13 0 Lengjudeild karla Fylkir – Vestri .......................................... 5:0 Staðan: Selfoss 5 4 1 0 12:4 13 Grótta 5 3 1 1 15:5 10 Fylkir 5 3 1 1 14:5 10 Fjölnir 5 3 1 1 13:8 10 Grindavík 5 2 3 0 7:3 9 HK 4 2 0 2 7:6 6 Kórdrengir 5 1 3 1 5:4 6 Þór 5 1 2 2 6:10 5 Vestri 5 1 2 2 6:14 5 Afturelding 5 0 3 2 4:8 3 Þróttur V. 4 0 1 3 1:11 1 KV 5 0 0 5 4:16 0 2. deild karla Magni – Þróttur R.................................... 0:4 Reynir S. – Höttur/Huginn ..................... 3:4 KFA – Njarðvík........................................ 2:3 Staðan: Njarðvík 5 5 0 0 18:3 15 Völsungur 5 4 1 0 13:6 13 Ægir 5 4 1 0 7:0 13 Þróttur R. 5 3 1 1 9:6 10 ÍR 5 2 2 1 7:4 8 Haukar 5 2 1 2 5:6 7 KF 5 0 4 1 7:8 4 Höttur/Huginn 5 1 1 3 6:11 4 Magni 5 1 1 3 4:13 4 KFA 5 0 2 3 5:10 2 Víkingur Ó. 5 0 2 3 3:8 2 Reynir S. 5 0 0 5 4:13 0 3. deild karla Dalvík/Reynir – Sindri............................. 1:3 Kormákur/Hvöt – KFS............................ 1:2 Staðan: Dalvík/Reynir 5 4 0 1 13:6 12 KFG 5 4 0 1 12:6 12 Elliði 5 3 1 1 7:3 10 Sindri 5 3 1 1 10:7 10 Augnablik 5 3 1 1 8:6 10 Víðir 5 3 0 2 11:7 9 Kormákur/Hvöt 5 2 0 3 9:8 6 Vængir Júpiters 5 2 0 3 7:9 6 KFS 5 2 0 3 8:14 6 Kári 5 1 1 3 4:8 4 KH 5 1 0 4 3:11 3 ÍH 5 0 0 5 9:16 0 Þjóðadeild UEFA B-deild, 2. riðill: Ísland – Albanía........................................ 1:1 Staðan: Ísland 2 0 2 0 3:3 2 Ísrael 1 0 1 0 2:2 1 Albanía 1 0 1 0 1:1 1 Rússlandi var vísað úr keppni. A-deild: Ungverjaland – England ......................... 1:0 Ítalía – Þýskaland..................................... 1:1 Tékkland – Spánn..................................... 2:2 Portúgal – Sviss........................................ 4:0 Austurríki – Danmörk ............................. 1:2 Króatía – Frakkland ................................ 1:1 B-deild: Armenía – Írland...................................... 1:0 Finnland – Bosnía .................................... 1:1 Svartfjallaland – Rúmenía....................... 2:0 Serbía – Slóvenía ...................................... 4:1 Svíþjóð – Noregur .................................... 1:2 C-deild: Litháen – Lúxemborg.............................. 0:2 Tyrkland – Færeyjar ............................... 4:0 Kýpur – Norður-Írland............................ 0:0 Gíbraltar – Norður-Makedónía .............. 0:2 Búlgaría – Georgía ................................... 2:5 Kósóvó – Grikkland.................................. 0:1 Hvíta-Rússland – Aserbaídsjan.............. 0:0 Slóvakía – Kasakstan ............................... 0:1 D-deild: San Marínó – Malta.................................. 0:2 Lettland – Liechtenstein ......................... 1:0 Andorra – Moldóva .................................. 0:0 EM U21 árs karla Undankeppnin, D-riðill: Hvíta-Rússland – Portúgal...................... 1:5 Kýpur – Grikkland ................................... 3:0 Staðan: Portúgal 8 7 1 0 30:2 22 Grikkland 9 5 2 2 15:8 17 Ísland 8 3 3 2 17:6 12 Hvíta-Rússland 9 4 0 5 15:12 12 Kýpur 9 3 2 4 16:11 11 Liechtenstein 9 0 0 9 0:54 0 50$99(/:+0$ FÓTBOLTINN Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Stjarnan er komin upp að hlið Vals á toppi Bestu deildar kvenna í fótbolta eftir afar sannfærandi 5:0- heimasigur á Þór/KA í eina leik deildarinnar í gær. Bæði lið eru með 16 stig en Valur á einn leik til góða. Stjarnan lagði grunninn að sigr- inum strax í upphafi leiks, því Gyða Kristín Gunnarsdóttir skoraði tvö fyrstu mörkin á fyrstu tíu mín- útunum. Bakvörðurinn Arna Dís Arnþórsdóttir bætti svo við tveimur mörkum í seinni hálfleik en þess á milli skoraði Jasmín Erla Ingadóttir fjórða mark Stjörnuliðsins. Gyða lagði upp markið á Jasmín og nýsjá- lenska landsliðskonan Betsy Hass- ett lagði upp annað og þriðja mark- ið. Góð sigling á Stjörnunni Stjörnukonur hafa verið á góðri siglingu síðustu vikur og unnið fjóra leiki í röð í öllum keppnum, með markatölunni 12:2. Ungir leikmenn hafa tekið skref fram á við í sumar eftir að hafa fengið tækifæri til að vaxa í Garðabænum undanfarin ár. Haldi Stjörnukonur áfram á sömu braut getur liðið hæglega haldið sér í toppbaráttunni þegar líður á mótið. Þór/KA er aftur á móti í basli. Liðið hefur tapað fjórum leikjum af síðustu fimm í deildinni og fengið fjögur mörk eða fleiri á sig í þremur þeirra. Akureyrarliðið saknar Örnu Sifjar Ásgrímsdóttur í vörninni en hún gekk í raðir Vals fyrir þessa leiktíð. Þór/KA hefur alls fengið á sig 23 mörk í sumar en aðeins botn- lið KR hefur fengið á sig fleiri, eða 27. _ Stjörnukonan Jasmín Erla Ingadóttir lék sinn 100. leik í efstu deild. Stjörnukonur í annað sætið - Skoruðu fimm gegn Þór/KA Morgunblaðið/Óttar Garðabær Framherjinn Katrín Ásbjörnsdóttir úr Stjörnunni sækir að bak- verðinum Unni Stefánsdóttur úr Þór/KA á Samsung-vellinum í gær. Elísabet Rut Rúnarsdóttir úr ÍR bætti eigið Íslandsmet í sleggjukasti á Sparkassen Hammerwurf Meet- ing-mótinu í Fränkisch-Crumbach í Þýskalandi á sunnudag. Mótið er fyrir 23 ára og yngri. Elísabet var í miklu stuði á mótinu því hún kastaði í tvígang lengra en gamla Íslands- metið, sem var 64,39 metrar. Hún kastaði lengst 65,35 metra og bætti metið því um tæpan metra. Elísabet er á 20. aldursári og er metið því einnig aldursflokkamet í 20-22 ára flokki. Hún kastaði 64,62 metra í fyrsta kasti og bætti Íslandsmetið. Eftir tvö köst undir 64 metrum og eitt ógilt kast bætti hún metið aftur í fimmta kastinu. Elísabet gerði síðan ógilt í sjötta og síðasta kastinu. Íslandsmethafinn var með nokkra yfirburði á mótinu, því Esther Im- ariagbee frá Þýskalandi var önnur, með kast upp á 62,76 metra. Landa hennar, Neele Koopmann, varð þriðja með 61,98 metra kast. Laura Siegel kastaði 53,97 metra og varð fjórða. Ljósmynd/Guðmundur Karl Íslandsmet Elísabet Rut Rúnarsdóttir sló eigið Íslandsmet í sleggjukasti í Þýskalandi á sunnudag þegar hún kastaði 65,35 metra. Bætti Íslandsmetið í Þýskalandi Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús var á leið í umspil á úrtökumóti fyrir Opna banda- ríska meistaramótið í golfi í Pur- chase í New York-ríki í Bandaríkj- unum, þegar blaðið fór í prentun seint í gærkvöldi. Fimm sæti á Opna bandaríska mótinu voru í boði á úrtökumótinu og Bandaríkjamennirnir Chris Gotterup og Caleb Manuel tryggðu sér tvö þeirra með því að ljúka leik á samanlagt þremur höggum undir pari. Haraldur var hins vegar á leið í umspil með Bandaríkjamönnunum Benjamin James, Brandon Matt- hews, Michael Thorbjornsen, Kelly Kraft, Michael Sweeney, Fran Quinn og Chandler Phillips um þrjú síðustu sætin. Léku þeir allir á tveimur höggum undir pari. Þegar Haraldur átti þrjár holur eftir, var hann á fjórum höggum undir pari og á góðri leið með að ná sæti á sínu öðru risamóti, en ís- lenski kylfingurinn lék á Opna breska mótinu árið 2018 og varð í leiðinni fyrsti, og til þessa eini, karlkylfingurinn til að leika á risa- móti. Tveir skollar á síðustu þremur holunum skemmdu hins vegar fyrir Haraldi og endaði hann eins og áð- ur segir á tveimur höggum undir pari. Börðust því átta kylfingar í umspili um þrjú síðustu lausu sætin á Opna bandaríska. Haraldur lék tvo hringi í gær á samanlagt tveimur höggum undir pari. Lék hann báða hringina á 69 höggum, einu höggi undir pari. Hann fékk fjóra fugla og þrjá skolla á fyrsta hring og fimm fugla og fjóra skolla á öðrum hring. Opna bandaríska mótið fer fram í Brookline í Massachusetts dagana 16.-19. júní. Má reikna með flestum sterkustu kylfingum heims á mótinu. Tiger Woods hefur þó enn ekki staðfest þátttöku sína á mótinu. Örlög Haraldar réðust í umspili Morgunblaðið/Kristinn Magnúss Umspil Haraldur Franklín Magnús fór í umspil í New York í gær. _ Handknattleiksmaðurinn Arnar Birkir Hálfdánsson hefur yfirgefið þýska félagið Aue, eftir að það féll úr þýsku B-deildinni á dögunum. Svein- björn Pétursson lék einnig með Aue á tímabilinu en hann hefur ekkert gefið út um framtíð sína. _ Erlingur Richardsson er hættur sem þjálfari hollenska karlalandsliðs- ins í handbolta. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hollenska handknatt- leikssambandinu. Ástæðan fyrir því er að Erlingur og sambandið náðu ekki samkomulagi um nýjan samn- ing. Þess vegna hefur Erlingur lát- ið af störfum. Er- lingur heldur áfram að þjálfa ÍBV en aðstoðarmaður hans, Grímur Hergeirsson, hefur yfir- gefið félagið. _ Handknattleikskonan Ásta Björt Júlíusdóttir er gengin til liðs við upp- eldisfélagið ÍBV á nýjan leik, eftir árs dvöl hjá Haukum. Ásta gekk til liðs við Hauka fyrir nýafstaðið tímabil en með Hafnarfjarðarliðinu skoraði hún 103 mörk í 20 leikjum. Sigurður Bragason mun þjálfa liðið áfram. _ Spánverjinn Rafael Nadal vann Opna franska meistaramótið í tennis í 14. sinn á sunnudag eftir sigur á Norðmanninum Casper Ruud í úr- slitaleik. Nadal vann tvö fyrstu settin 6:3 og lokasettið 6:0. Nadal hefur nú unnið 22 risamót, tveimur fleiri en Ro- ger Federer og Novak Djokovic. _ Golden State Warriors jafnaði í ein- víginu gegn Boston Celtics í úrslitum NBA-körfuboltans í Bandaríkjunum með 108:87-heimasigri í öðrum leik liðanna síðustu nótt. Staðan eftir tvo leiki er því 1:1 en fjóra sigra þarf til að verða meistari. Stephen Curry var stigahæstur hjá Golden State með 29 stig. Jayson Tat- um var stigahæst- ur hjá Boston með 28 stig. _ Ólafur Stef- ánsson, einn besti handknattleiks- maður Íslandssög- unnar, hefur fram- lengt samning sinn við þýska 1. deildarfélagið Erlangen og verður hann aðalþjálfaranum Raul Alonso áfram til halds og trausts. Hann hefur sinnt starfinu frá því í febrúar, en Alonso tók við liðinu skömmu áður. Sveinn Jóhannsson gengur í raðir Er- langen í sumar. _ Gríski körfuknattleiksmaðurinn Fo- Eitt ogannað STJARNAN – ÞÓR/KA 5:0 1:0 Gyða Kristín Gunnarsdóttir 4. 2:0 Gyða Kristín Gunnarsdóttir 10. 3:0 Arna Dís Arnþórsdóttir 55. 4:0 Jasmín Erla Ingadóttir 69. 5:0 Arna Dís Arnþórsdóttir 76. MM Gyða K. Gunnarsdóttir (Stjörnunni) Betsy Hassett (Stjörnunni) Arna D. Arnþórsdóttir (Stjörnunni) M Ingibjörg L. Ragnarsdóttir (Stj.) Anna M. Baldursdóttir (Stjörnunni) Úlfa Dís Úlfarsdóttir (Stjörnunni) Katrín Ásbjörnsdóttir (Stjörnunni) Jasmín E. Ingadóttir (Stjörnunni) Dómari: Andri Vigfússon – 7. Áhorfendur: 113. _ Liðsuppstillingar, gul spjöld, við- töl og greinar um leikinn – sjá mbl.is/sport/fotbolti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.