Morgunblaðið - 16.06.2022, Side 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2022
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
.H
ei
m
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tti
ng
a
á
sl
ík
u.
At
h.
að
ve
rð
ge
tu
rb
re
ys
tá
n
fy
rir
va
ra
.
595 1000 www.heimsferdir.is
Albufeira
Portúgal
21. júní í 7 nætur
76.425
Flug & hótel frá
Frábært verð!
86.900
Flug & hótel frá
2 fullorðnir
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Karlotta Líf Sumarliðadóttir
karlottalif@mbl.is
Vegglistaverk eftir listamanninn
Juan var afhjúpað á dögunum og
prýðir nú gaflinn á Strandgötu 4 í
Hafnarfirði. Um er að ræða klippi-
mynd með ýmsum útilistaverkum
sem er að finna í bænum.
„Þetta kemur ofboðslega fallega út
og það er mjög mikil ánægja með
þetta,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir,
bæjarstjóri Hafnarfjarðar. „Juan
hafði samband við bæinn í lok síðasta
árs og spurði hvort það væri eitthvert
húsnæði sem gæti verið hentugt fyrir
vegglistaverk en hann hefur verið að
gera þetta víða um land,“ bætir hún
við.
Á listaverkinu er sérstakur QR-
kóði sem tengist vef menningar- og
listamiðstöðvarinnar Hafnarborgar
um útilistaverk í Hafnarfirði. Þar er
að finna upplýsingar um verkin og
hvar þau má finna.
„Þetta er ekki bara fallegt verk í
sjálfu sér heldur finnst okkur þetta
hafa jákvæð áhrif varðandi það að
vekja athygli á þessum listaverkum
sem eru í umhverfinu í Hafnarfirði og
auka áhuga fólks á að skoða verkin,“
segir Rósa, en um er að ræða ellefu
verk eftir ýmsa listamenn. „Þetta er
eitt af því sem við viljum gera í bæn-
um, fegra hann og búa til skemmti-
lega stemningu. Og þetta er viðleitni í
þá átt. Mér sýnist það hafa tekist vel
af því að fólk er strax farið að sýna
þessu mikinn áhuga og mynda.“
Nýtt vegglistaverk prýðir
Strandgötu í Hafnarfirði
- Verk Juans vekur áhuga á fleiri listaverkum í bænum
Morgunblaðið/Hákon
List Vegglistaverk Juans prýðir nú gaflinn á Strandgötu 4 í Hafnarfirði, en
bæjarstjóri segir verkið hafa vakið talsverða athygli að undanförnu.
Vetni verður nýtt sem varaafl í
gagnaveri Verne Global í Reykja-
nesbæ. Munu Verne og Lands-
virkjun vinna saman að því að auð-
velda orkuskipti gagnaversins yfir í
grænt vetni sem framleitt er með
íslenskri, endurnýjanlegri orku. Er
þetta gert til að efla Verne Global
enn frekar sem leiðandi fyrirtæki á
sínu sviði í sjálfbærum lausnum. Og
mun þetta vera fyrsta verkefnið af
þessu tagi hér á landi.
Greint er frá þessum áformum í
aðsendri grein sem birt er á blað-
síðu 35 hér í Morgunblaðinu.
Segir þar ennfremur að gagna-
ver og orkufyrirtæki landsins hafi
nýverið tekið höndum saman í
þessu tilraunaverkefni „sem von-
andi kemur báðum enn lengra
áfram á grænni braut endurnýjan-
legrar orku“.
Þá segir einnig að gagnaver á Ís-
landi hafi vaxið mjög undanfarið og
að þörfin fyrir þjónustu þeirra
muni aukast enn frekar á næstunni.
Gagnaver og orkufyrirtæki taka græn skref
Óli Björn Kárason, þingflokksformað-
ur Sjálfstæðisflokksins, taldi fátt geta
komið í veg fyrir þinglok í nótt. Fund-
arhöld stóðu enn yfir þegar blað þetta
fór í prent en gengu vel og Óli Björn
kvaðst finna fyrir eindregnum vilja
þingmanna til þess að afgreiða málin
áður en nýr dagur risi. „Það eru í raun
engin vandamál sem við þurfum að
leysa, þau eru nú þegar leyst.“
Rammaáætlun samþykkt
Áætlun um vernd og orkunýtingu,
oftast kölluð rammaáætlun, var sam-
þykkt í atkvæðagreiðslu á Alþingi í
gær.
Bjarni Jónsson, þingmaður Vinstri
grænna, greiddi atkvæði gegn af-
greiðslu rammans. Hann hefur áður
mótmælt því að jökulárnar í Skaga-
firði yrðu settar í biðflokk, sem áður
voru í verndarflokki. Aðrir þingmenn
flokksins samþykktu áætlunina.
Auk Bjarna greiddu þingmenn Pí-
rata allir atkvæði gegn afgreiðslu
áætlunarinnar. Allir viðstaddir þing-
menn Framsóknar, Sjálfstæðisflokks
og Miðflokks greiddu atkvæði með af-
greiðslunni en þingmenn Viðreisnar
og Flokks fólksins og Samfylkingar
sátu hjá.
Í rammaáætluninni, sem er sú
þriðja sem samþykkt er hér á landi, er
gert ráð fyrir að fjórir kostir verði
færðir úr verndarflokki í biðflokk auk
þess sem lagt er til að beðið verði með
friðlýsingu verndarsvæða í Skjálf-
andafljóti.
Er þetta í fjórða skipti sem ramma-
áætlun þrjú er lögð fram fyrir Alþingi.
Þrír virkjunarkostir voru færðir úr
nýtingarflokki í biðflokk; Skrokköldu-
virkjun og Holta- og Urriðafossvirkj-
un í neðri hluta Þjórsár.
Helga Vala Helgadóttir, þing-
flokksformaður Samfylkingarinnar,
segir þinglok hafa gengið ágætlega.
„Það hafa verið nokkrir þröskuldar á
leiðinni en við erum komin með góða
lendingu.“
Tilfinningaþrungin stund
Helga Vala lýsir afgreiðslu ramma-
áætluninnar sem flókinni og tilfinn-
ingaþrunginni stund. „Rammaáætl-
unin er með stærri málum sem við
höfum verið að fást við og um hana
eru mjög skiptar skoðanir pólitískt
séð.“
Þá segir hún einnig að deila megi
um það hvort ákveðnir stjórnar-
flokkar hafi staðist það próf sem
rammaáætlunin var. Síðustu mál á
dagskrá voru þó mál sem um ríkti
mikil sátt milli stjórnar og stjórnar-
andstöðu að sögn Helgu Völu.
Síðasta málið á dagskrá þingsins
var skýrsla Ríkisendurskoðunar um
geðheilbrigðismál.
Þægileg þinglok eftir af-
greiðslu rammaáætlunar
- Vilji til að ljúka þingi í gær - Rammaáætlun samþykkt
Morgunblaðið/Eggert
Alþingi Fundað var fram eftir kvöldi en sátt ríkti um síðustu málefni dagskrárinnar að sögn þingflokksformanna.
Áfengissalan Sante.is var að fá send-
an til sín 40 feta gám fullan af bjór.
Útsöluverð á öllum 35.000 dósunum
er samtals 9,7 milljónir en sama
magn myndi kosta 13 milljónir í Vín-
búðinni, samkvæmt útreikningum
Santé. Eigendur fyrirtækisins segja
að áfengisverð sé að minnsta kosti
20% of hátt á Íslandi.
„Við sendum út fréttabréf í dag til
að tilkynna að bjórinn væri kominn
en 500 manns höfðu lesið póstinn eftir
fjórar mínútur. Pantanaprentarinn
er sjóðandi heitur. Það er greinilega
mikil ánægja með þetta,“ segir Elías
Blöndal Guðjónsson, meðeigandi
Sante.is, í samtali við Morgunblaðið.
Elías segir hátt verð í ríkisreknu
vínbúðunum líklega stafa af álagn-
ingu hjá heildsölum því álagning Vín-
búðarinnar sé lögbundin. Hann gagn-
rýnir fyrirkomulag áfengissölu á
Íslandi og segir það úrelt.
„Tími umboða og heildsala er liðinn
því það getur í raun hver sem er
keypt þessar vörur og selt í smásölu,“
segir Elías og bætir við að þar að auki
séu verðmæti fólgin í því að fá vöruna
heimsenda.
Opið 17. júní
„Við erum með opið á þjóðhátíð-
ardaginn, á afmælisdegi frelsishetj-
unnar Jóns Sigurðssonar, sem barð-
ist fyrir verslunarfrelsi. Ég er ekki
viss um að hann væri hrifinn af þess-
ari einokunarverslun eins og er í
landinu. Ég reikna með því að það
verði mjög mikið að gera. Það er bæði
föstudagur og svo verður lokað í ein-
okunarversluninni.“
anton@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bjór Elías Blöndal Guðjónsson, meðeigandi Santé, sést hér með eina pal-
lettu af bjórnum sem kom í hús í gær, en fyrirtækið fékk 35.000 dósir.
Segja áfengisverð
fimmtungi of hátt
- Telja háttinn á áfengissölu úreltan