Morgunblaðið - 16.06.2022, Page 4

Morgunblaðið - 16.06.2022, Page 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2022 ERT ÞÚ EIGANDI www.homer.is? Góðar fréttir! Við viljum versla við þig. Sendu okkur línu á homer.heima@gmail.com eða hafðu samband í síma 866-0994. Karlotta Líf Sumarliðadóttir karlottalif@mbl.is Nýir útipallar hafa verið lagðir við vesturkant Frakkastígs í miðbæ Reykjavíkur. Um er að ræða al- menningssvæði en veitingamenn geta einnig nýtt sér pallana, að sögn Eddu Ívarsdóttur, deildarstjóra borgarhönnunar hjá Reykjavíkur- borg. „Þetta er hluti af því að verið er að leggja af bílastæði vestan megin á Frakkastígnum og það vantaði eitthvað til að loka stæðin af.“ Skipulags- og samgönguráð Reykjavíkurborgar samþykkti í nóvember í fyrra að óheimilt væri að leggja ökutækjum við vesturkant Frakkastígs sökum þrengsla sem mynduðust þegar ökutækjum var lagt beggja vegna götunnar. Að sögn Eddu lentu lögregla, slökkvilið og almenningur ítrekað í því að ekki var hægt að keyra niður götuna vegna þess hve illa var lagt í stæðin. „Með þessu móti erum við í raun að fjarlægja stæðin og það þarf að taka alla leiðina upp. Þessir pallar nýtast náttúrulega fyrir rekstur og aðra sem eru við götuna en í rauninni er þetta almenningsrými.“ Enn ein aðförin Ólafur Guðmundsson, umferðar- sérfræðingur og fyrrverandi vara- borgarfulltrúi, er hins vegar óánægður með umrædda fram- kvæmd og segir það skjóta skökku við að smíða palla á götuna þegar markmiðið er að breikka hana. „Maður skilur ekki af hverju verið er að víkka götuna til þess að þrengja hana síðan aftur með þessu.“ Segir Ólafur að þessi þrenging sé enn ein aðförin að umferðinni. „Það er gert með ýmsum hindrunum og þetta er það nýjasta sem borgin hef- ur tekið upp á, það er að smíða svona trépalla úti á götum sem eiga alls ekkert heima þar út frá umferð- aröryggi og mengun, þarna eru menn sitjandi alveg ofan í umferð- argötum, það er mengun af út- blæstri og svifryki og öðru slíku. Þar fyrir utan er skortur á bílastæð- um í miðborg Reykjavíkur.“ Vandamál þegar lagt er skakkt „Þetta er í rauninni breiðara núna af því að vandamálið er þegar bíl- unum er lagt skakkt í stæðin en ekki ef þeim er lagt alveg rétt. Pall- arnir eru í rauninni innar heldur en bílastæðalínan er, þetta er 20 til 30 sentimetrum innar, þannig að þetta er ekki alveg úti í götunni,“ segir Edda, spurð hvort verið sé að þrengja götuna að nýju með þessum hætti. Segir Edda þetta vera tíma- bundna lausn þar til ráðist verði í endurhönnun á götunni. „Það voru tekin fjögur stæði en það er búið að samþykkja að stæðin upp að Lauga- vegi verði einnig tekin og við eigum eftir að finna lausn þar.“ Hefði Ólaf- ur þó heldur kosið að bílastæðin yrðu fjarlægð án þess að eitthvað kæmi í staðinn. „Ég skil það alveg vegna þess að gatan þarna er mjög þröng, þannig að það eru alveg rök fyrir því að taka stæðin öðrum meg- in.“ Umdeildir útipallar við Frakkastíg í Reykjavík - Skiptar skoðanir á nýjum pöllum í miðborg Reykjavíkur Morgunblaðið/Hákon Útisvæði Pallarnir á Frakkastíg eru ætlaðir almenningi en geta einnig nýst veitingamönnum í nágrenninu. Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Þetta er skref í rétta átt en þegar allt er tekið saman þá stöndum við sauðfjárbændur síst betur að vígi en síðasta haust,“ sagði Trausti Hjálm- arsson, formaður Búgreinadeildar sauðfjárbænda, um boðaða 23% hækkun SS á afurðaverði til fjár- bænda. Ástæðan er miklar kostnað- arhækkanir landbúnaðarins. Trausti nefndi miklar hækkanir á áburðar- verði, rúlluplasti, olíu og kjarnfóðri. Auk þess er fjármagnskostnaður bænda að aukast líkt og annarra. Hann bendir á að hækkunin sé reiknuð ofan á afurðaverð SS frá síð- asta hausti. „Miðað við þær forsendur sem við höfum núna, þessar góðu aðgerðir ríkisstjórnarinnar í framhaldi af starfi spretthópsins og boðaðar hækkanir á afurðaverði, er kostnað- ur sauðfjárbænda samt að aukast umfram hækkun tekna. Samkvæmt þessum forsendum mun framlegð sauðfjárbúa lækka á milli ára úr 52% í 43%,“ sagði Trausti. Hann kvaðst taka undir orð Svan- dísar Svavarsdóttur matvælaráð- herra um að nú þyrftu afurðastöðv- ar, smásalar og neytendur að standa með íslenskum bændum. „Við þurfum að sækja það stíft að fá meiri leiðréttingu á okkar afurða- verði,“ sagði Trausti. Hann kveðst vera bjartsýnn að eðlisfari og treysta því að til sé fólk sem vill taka slaginn með sauðfjárbændum. Ætla að hækka afurðaverð Kjarnafæði Norðlenska hf. (kn.is) ætlar ekki að vera eftirbátur ann- arra afurðastöðva hvað varðar verð til sauðfjárbænda í haust, að sögn Ágústs Torfa Haukssonar fram- kvæmdastjóra. Hann segir að verðskrá fyrir haustið sé í vinnslu og væntanleg bráðlega. Kjarnafæði Norðlenska á tvö dótt- urfélög, Norðlenska Matborðið ehf. og SAH afurðir ehf. á Blönduósi. Ágúst Andrésson, forstöðumaður Kjötafurðastöðvar Kaupfélags Skagfirðinga (KS), segir að afurða- verð þeirra til sauðfjárbænda muni hækka í haust líkt og hjá öðrum af- urðastöðvum. Hve mikil hækkunin verður hefur ekki verið endanlega ákveðið. Björn Víkingur Björnsson, fram- kvæmdastjóri Fjallalambs á Kópa- skeri, sagði spurður um hækkun af- urðaverðs hjá þeim að þeir hefðu ekki enn fjallað um hana. Skúli Þórðarson, framkvæmda- stjóri Sláturfélags Vopnfirðinga og sauðfjárbóndi, sagði að þeir myndu fljótlega ákveða nýja verðskrá af- urða fyrir haustið. Menn hefðu verið að bíða eftir útspili ríkisstjórnarinn- ar og eins því hvað stóru afurða- stöðvarnar ætluðu að gera. Hann á von á að verðskráin muni hækka á svipuðum nótum hjá Sláturfélagi Vopnfirðinga og hjá öðrum afurða- stöðvum. „Hækkunin hefði þurft að vera hátt í 50% til að staða sauðfjárbænda væri óbreytt, ef ríkisstjórnin hefði ekki komið með þetta útspil,“ sagði Skúli. „Sauðfjárbændur hafa ekki haft verkamannalaun fyrir vinnu sína í nokkur ár.“ Hækkun af- urða ekki næg - Afurðastöðvar reikna með hækkun Morgunblaðið/RAX Slátrun Verð til bænda mun hækka en allur kostnaður hefur rokið upp. Gunnhildur Sif Oddsdóttir gunnhildursif@mbl.is Seðlabankinn tilkynnti í gær að ákveðið hefði verið að lækka há- mark veðsetningarhlutfalls fast- eignalána fyrir fyrstu kaupendur úr 90% í 85%. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að með lækk- uninni sé fólki mögulega bjargað frá því að koma inn á markaðinn á röngum tíma. „Þetta eru ákveðin skilaboð og fela kannski í sér að foreldrar þurfi að vera með börnin lengur heima eða eitthvað álíka. Við álítum að með þessu séum við í rauninni að reyna að vernda ungt fólk. Þó það hljómi kannski ekki þannig fyrir því,“ segir Ásgeir. „Í ljósi mikilla hækkana“ „Þegar við hertum reglur um veð- setningu síðasta sumar, þar sem há- marksveðsetning var færð úr 85% í 80%, þá ákváðum við að undanskilja fyrstu kaupendur, því við vildum halda leiðinni opinni fyrir ungt fólk inn á markaðinn. Núna höfum við hins vegar áhyggjur af því, í ljósi mikilla hækkana á fasteignamarkaði að undanförnu, að það sé óheppilegt að fólk komi inn á markaðinn með allt of mikla skuldsetningu.“ Aðspurður segir Ásgeir að þetta gæti þýtt að færri fyrstu kaupendur komist inn á markaðinn og sömu- leiðis að leiguverðið hækki. Þá segir Ásgeir vandann á húsnæðismarkaði felast í skorti á framboði. „Það hef- ur bara ekki verið byggt fyrir þess- ar stóru kynslóðir sem nú eru að koma inn á markaðinn. Við í Seðla- bankanum getum ekki leyst það mál.“ Lækka til að reyna að vernda ungt fólk - Hámarksveðsetn- ing lækkar - Leigu- verð gæti hækkað Morgunblaðið/Eggert Seðlabanki Í gær voru kynntar breytingar á lánþegaskilyrðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.