Morgunblaðið - 16.06.2022, Side 12
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2022
* %)'%#)&" !($+Alexandra
Jóhannsdóttir
Fimmti þáttur
ámbl.is
DÆTUR ÍSLANDS
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Í fimmta þætti af Dætrum Íslands
heimsækjum við knattspyrnu- og
landsliðskonuna Alexöndru Jóhanns-
dóttur, leikmann Eintracht Frankfurt
í Þýskalandi.
Alexandra, sem er 22 ára gömul,
gekk til liðs við þýska félagið frá
Breiðabliki í janúar 2021.
Hún er uppalin hjá Haukum í
Hafnarfirði og lék sinn fyrsta meist-
araflokksleik fyrir félagið í 1. deildinni
sumarið 2015, þá 15 ára gömul.
Alexandra var í lykilhlutverki hjá
Haukum sumarið 2016 þegar liðið
vann 5:1-sigur gegn Grindavík á
Grindavíkurvelli í úrslitum umspils 1.
deildarinnar og tryggði sér um leið
sigur í fyrstu deildinni og sæti í úr-
valsdeildinni að ári.
Hún lék með Haukum í efstu deild
sumarið 2017 en Haukar enduðu í
neðsta sæti deildarinnar sama ár og
féllu um deild.
Alexandra gekk til liðs við Breiða-
blik í október 2017 en hún varð Ís-
lands- og bikarmeistari með Blikum á
sínu fyrsta tímabili í Kópavoginum
sumarið 2018.
Hún lék með Breiðabliki í þrjú
tímabil og varð Íslandsmeistari í ann-
að sinn með liðinu tímabilið 2020 eftir
að keppni var hætt í október vegna
kórónuveirufaraldursins þegar þrem-
ur umferðum var ólokið.
Bekkjarsetan tekið mikið á
Alexandra skrifaði undir tveggja
ára samning við Eintracht Frankfurt
sem rennur út næsta sumar. Hún átti
ekki fast sæti í liði Frankfurt á ný-
liðnu keppnistímabili og gekk til liðs
við Breiðablik á láni frá þýska félag-
inu í síðasta mánuði til þess að fá fleiri
mínútur fyrir lokakeppni Evrópu-
mótsins.
Miðjumaðurinn á að baki 23 A-
landsleiki fyrir Ísland þar sem hún
hefur skorað þrjú mörk en hún lék
sinn fyrsta landsleik gegn Skotlandi í
janúar 2019, þá 18 ára gömul.
„Þetta er búið að vera ógeðslega
erfitt,“ sagði Alexandra í þættinum
þegar hún var spurð út í veru sína hjá
Eintracht Frankfurt.
„Á sama tíma hefur þetta verið
mjög gaman líka og þroskandi en
svörin væru eflaust öðruvísi hjá mér
ef ég væri búin að vera að spila meira.
Þetta er í fyrsta skipti á mínum ferli
sem ég hef þurft að gera mér það að
góðu að sitja á bekknum og það hefur
verið virkilega erfitt. Í fyrstu var ég
ekki að stressa mig mikið á litlum spil-
tíma, ég var meira bara að hugsa um
að koma mér inn í hlutina. Eftir því
sem leið á fór þetta að hafa meiri áhrif
á hausinn á mér. Ég leitaði mikið til
foreldra minna til að byrja með og í
ársbyrjun leitaði ég til íþróttasálfræð-
ings sem hefur hjálpað mér mikið
líka,“ sagði Alexandra meðal annars.
„Búið að vera ógeðslega erfitt“
Morgunblaðið/Hallur Már
Eintracht Frankfurt Alexandra gekk til liðs við þýska félagið í janúar 2021 frá Breiðabliki en hún skrifaði undir tveggja ára samning í Þýskalandi.
- Miðjumaðurinn Alexandra Jóhannsdóttir er samningsbundin Eintracht Frankfurt í Þýskalandi
- Alexandra er uppalin hjá Haukum í Hafnarfirði en hún lék sinn fyrsta A-landsleik 18 ára gömul
Æfing Alexandra gat ekki tekið þátt í æfingu liðsins þar
sem hún hafði greinst með kórónuveiruna nokkru áður.
Frankfurt Alexandra býr í rólegu úthverfi í Frankfurt
en borgin hefur oft verið nefnd fjármálaborg Evrópu.