Morgunblaðið - 16.06.2022, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 16.06.2022, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2022 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þ jóðmenningarbýlið Þetta Gimli er mongólskt hirð- ingjatjald sem stóð í Ár- neshreppi á Ströndum í tvö ár og er hugsað sem skjól fyrir það sem þarf skjól í samfélaginu. Skjól til að rækta tengsl, bæði tengsl á milli fólks og tengsl við náttúruna,“ segir Elín Agla Briem, önnur þeirra kvenna sem standa að baki Þessu Gimli, þjóðmenningarbýli sem þær hafa hug á að reisa á höfuðborgar- svæðinu. Þetta Gimli er samstarfs- verkefni Elínar sem er heimspek- ingur og Kristínar Lindu Hjartar- dóttur geðhjúkrunarfræðings. „Nauðsynlegt er að hlúa að því sem við sjáum ekki eða erfitt er að festa hendur á, svo sem samheldni, samhljómi og fleira sem er svo gott í lífinu en fellur oft milli skips og bryggju. Okkur Kristínu Lindu finnst að það þurfi að búa til ein- hvern vettvang sem er sérstaklega hugsaður til að rækta þessi tengsl, og þá erum við að hugsa um að vinna í slíkum hlutum saman frekar en að hver og einn sé einn í sjálfsvinnu. Þetta Gimli er viðbragð hjá okkur við samtímanum þar sem tengslaleysi, einmanaleiki og tilgangsleysi er mjög ríkjandi, og fyrir vikið þráum við oft að eiga samverustund með fólki og hafa sameiginlegt markmið og tilgang.“ Inngangur í töfraheim Elín Agla segir að ýmsar að- ferðir verði viðhafðar í hirðingja- tjaldinu til að rækta hvers konar tengsl, t.d. vinnustofur, viðburðir og námskeið, en líka hefðbundnar veisl- ur og annað til að styrkja sambönd og tengsl. „Þetta Gimli verður líka skjól fyrir hið smáa, hið fagra og hið hand- gerða. Tjaldið sjálft er einmitt hold- gervingur þessara hugmynda, því það er smátt og fagurt og það kveikir á fegurðarskyni og ímyndunarafli hjá fólki sem kemur í það. Ég varð oft vitni að því þegar tjaldið stóð í Árneshreppi að það lifnaði yfir aug- um fólks sem kom inn í tjaldið, af því að það er svo fallegt. Inngangurinn inn í Þetta Gimli er inngangur í töfraheim,“ segir Elín og bætir við að nú sé tjaldið í geymslu en þær Kristín Linda hafa hug á að reisa það á höfuðborgarsvæðinu. „Við getum alveg ræktað tengsl við náttúru og hvert annað yfir vetr- artímann í höfuðborginni, við þurf- um ekki alltaf að fara upp í sveit, þótt hún sé yndisleg. Fyrsta skrefið er að safna fjármunum til að byggja traustan pall, undirstöðu fyrir tjald- ið, og við erum einmitt að gera það núna með hópfjármögnun á Karo- linafund. Í framhaldi ætlum við að ræða við sveitarfélögin hér og óska eftir stöðuleyfi til að setja tjaldið upp. Framtíðarhugmyndin er að setja hvelfingu yfir tjaldið, eða „geo- dome“, til að verja það fyrir vetrar- veðrum og hafa aðgengi að því allan ársins hring. Þessi tjöld eru hönnuð fyrir hásléttur Mongólíu þar sem veður er mjög þurrt, en ekki fyrir ís- lenskan vetur. Hvelfingin yfir tjald- inu yrði þá nokkurs konar gróðurhús þar sem hægt verður að hafa útield- hús og setustofu.“ Eins og vöðvar í sálinni Söfnun á Karolinafund fyrir undirstöðu fyrir tjaldið lýkur annað kvöld, á þjóðhátíðardeginum. „Okkur vantar sextíu til hundr- að stuðningsaðila í viðbót til að ná markmiðinu, en hópfjármögnun virkar þannig að annaðhvort næst allt eða ekkert. Við viljum einmitt að margir komi að undirstöðunni, þann- ig verður hún í anda þorpsvitundar og þorpsiðkunar. Þorpsvitund, tengsl og samhljómur eru eins og vöðvar í sálinni sem hægt er að þjálfa – þjálfa eins og hópíþrótt – og það er tilgangurinn með starfseminni sem verður í hirðingjatjaldinu. Þar verð- ur menning og matur, notalegheit og samvera, veislur og samtöl. Þeim mun fleiri sem styðja og styrkja þeim mun öflugri verður undirstaðan og þannig styrkari stoð fyrir skjólið.“ Fyrir þá sem vilja taka þátt í að gera Þetta Gimli að veruleika, þá er slóðin á karolinafund.com: Þetta Gimli – þjóðmenningarbýli. Þau sem leggja til í söfnun und- irstöðu fyrir tjaldið fá ýmislegt í staðinn, eftir því hve háa upphæð þau leggja fram, til dæmis boð í saumaklúbb sem haldinn verður í tjaldinu þegar það er risið, vegg- spjald, þráðalegg, körfu og bursta, boð í vinnustofu um náttúrualtari haldið af Elínu Öglu, eða að bjóða öðrum með sér í hálfan dag til að dvelja í tjaldinu. Einnig heilan dag með veislustjórn eða tjaldið sem sal fyrir veislu, með veislustjórn ef vill. Tjaldið er skjól til að rækta tengsl „Þetta Gimli er viðbragð hjá okkur við samtímanum þar sem tengslaleysi, einmanaleiki og tilgangsleysi er mjög ríkjandi,“ segir Elín Agla um mongólskt hirðingjatjald sem til stendur að reisa á höfuðborgarsvæðinu. Þetta Gimli Mongólska hirðingjatjaldið er mikið augnayndi en það þarf góða undirstöðu, sem nú er safnað fyrir. Fallegt Samsett mynd sem sýnir fegurðina inni í tjaldinu og einnig hversu vel það sómdi sér í náttúrunni þar sem það stóð í Árneshreppi á Ströndum. Þær tvær Elín Agla og Kristín Linda vinna saman að Þessu Gimli. VIKUR Á LISTA 3 1 4 2 5 1 1 3 1 1 LOK, LOKOG LÆS Höfundur: Yrsa Sigurðardóttir Lesarar: Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Sigurður Þór Óskarsson SUMAR Í STRANDHÚSINU Höfundur: Sarah Morgan Lesari: Sólveig Guðmundsdóttir ROBBI RÆNINGI OG FJÁRSJÓÐSKOMPAN Höfundur: Roope Lipasti Lesari: Guðamundur Felixson SAGANAFHERTU Höfundur: Anna Sundbeck Klav Lesari: Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir PÓLÍS, PÓLÍS Höfundar: Maj Sjöwall, PerWahlöö Lesari: Kristján Franklín Magnús ROBBI RÆNINGI OG LYMSKULEGT RÁÐABRUGG Höfundur: Roope Lipasti Lesari: Guðmundur Felixson ROBBI RÆNINGI OG SÍÐASTAVERKEFNIÐ Höfundur: Roope Lipasti Lesari: Guðmundur Felixson ÞEGAR FENNIR Í SPORIN Höfundur: Steindór Ívarsson Lesarar: Stefán Jónsson, Lára Sveinsdóttir AÐ LEIKSLOKUM Höfundar: Peter Nyström, Peter Mohlin Lesari: Kristján Franklín Magnús HÖGGIÐ Höfundur: Unnur Lilja Aradóttir Lesari: Þórdís Björk Þorfinnsdóttir 1. 2. 3. 4. 7. 8. 6. 10. 9. 5. › › › - - TOPP 10 VINSÆLUSTU HLJÓÐBÆKURÁ ÍSLANDI VIKA 23 Boðað er til fundar til að ræða hvernig auka megi öryggi þeirra sem vilja njóta náttúruperlunnar Reynisfjöru, eins fjölsóttasta ferðamannastaðar landsins. Fundurinn verður haldinn í félagsheimilinu Leikskálum í Vík í Mýrdal þriðju- daginn 21. júní nk. kl. 19.30. Allir landeigendur Reynisfjöru eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum. Á fundinum verður farið yfir gerð áhættumats fyrir Reynisfjöru, mögulega uppsetningu viðvörunarkerfis í fjörunni og fyrirkomulag á frekara samstarfi landeigenda og stjórnvalda. Á fundinnmæta fulltrúarMýrdalshrepps, ásamt fulltrúumþeirra stofnanna sem unnið hafa að skoðun öryggismála í Reynisfjöru auk ferðamálaráðherra. ferdamalastofa.is upplysingar@ferdamalastofa.is - samráð stjórnvalda með landeigendum ReynisÓara
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.