Morgunblaðið - 16.06.2022, Page 24

Morgunblaðið - 16.06.2022, Page 24
24 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2022 VERKFÆRIALVÖRU vfs.is KAUPAUKA R ÁMEÐANBIRGÐIR ENDAST Sjáðu öll tilboðin á vfs.is HA RÆTTI VINNUR ÞÚ HEITAPOTT? ÁALVÖRU TILBOÐUM Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Á nýjum stað er ætlun okkar að skapa öflugt hverfisfélag með fjöl- breyttri starfsemi,“ segir Sigurður Ingi Tómasson, formaður knatt- spyrnufélagsins Fram. Næstkom- andi sunnudag, 19. júní, verður í Úlfarsárdal í Reykjavík hátíð í tilefni af flutn- ingum íþrótta- félagsins þangað. Dagskrá hefst kl. 12. Reykjavík- urborg hefur í dalnum byggt glæsilega íþrótta- aðstöðu, ætlaða Fram – og á laugardag er fyrstur leikur liða félagsins þar. Þá mætir lið Fram Knattspyrnufélaginu Hlíð- arenda (KH) í 2. deild í kvennabolt- anum í leik sem hefst kl. 14. Á sunnudag, 20. júní kl. 18, mætast lið Fram og ÍBV í leik í Bestu deild í karlabolta. Stórt íþróttahús og fjórir knattspyrnuvellir Byggingarnar nýju í Úlfarsárdal eru 7.700 fermetrar að flatarmáli. Þar er efst á blaði fjölnota íþrótta- hús með tveimur handknattleiks- völlum í fullri stærð auk áhorf- endaaðstöðu á útdregnum sætum. Í húsinu eru tólf búningsklefar og þrír litlir íþróttasalir, fyrir til dæmis taekwondo, almenningsíþróttir og styrktarþjálfun. Þarna eru einnig fé- lags- og þjónustuaðstaða, sam- komusalur, fundaherbergi, verslun, geymslur og fleira. Utandyra eru fjórir knattspyrnuvellir í fullri stærð; tveir grasvellir og aðrir tveir vellir með gervigrasi. Annar þeirra verður aðalkeppnisvöllur Fram og við hann er áhorfendastúka sam- byggð íþróttahúsinu. Í nýrri hverfismiðstöð í Úlfarsár- dal, sem Reykjavíkurborg lét reisa og opnuð var í desember á síðasta ári, eru grunnskóli, menningar- aðstaða, bókasafn og sundlaug. Nú bætist við íþróttaaðstaðan sem er bæði góð og glæsileg. „Góð aðstaða er jafnan stór þáttur í því að árangur náist í íþrótta- starfi,“ segir Sigurður Ingi Tóm- asson. Langt og strangt ferli Árið 2008, þegar Fram varð 100 ára, voru undirritaðir samningar við Reykjavíkurborg um að starfsemi félagsins flyttist úr Safamýri í Úlf- arsárdal; enda myndi það sinna íþróttastarfi fyrir íbúa þar og í Graf- arholti. Á spýtunni hékk þá að félag- inu yrði sköpuð aðstaðan sem nú er komin. Efnt var til samkeppni um hönnun mannvirkja. Þegar niður- staða þar lá fyrir var fólki í Fram boðið að koma með ábendingar um það sem betur mætti fara. Slíkt þótti bæta málið allt og útkomuna. „Þetta var langt og strangt ferli þar sem komast þurfti yfir ýmsar hindranir og sigrast á mótstöðu á ýmsum stöðum. En allt hafðist þetta að lokum og þegar teikningar að mannvirkjum voru komnar og fyrsta skóflustungan að húsum Fram hafði verið tekin, var allt komið á beina braut,“ segir Sigurður Ingi. Landnám Fram í Úlfarárdal hófst árið 2011 þegar gervigrasvöllur sem nýtist til æfinga var tekinn í notkun. Síðan þá hefur félagið jafnan verið með nokkra starfsemi í dalnum, enda þótt þunginn hafi verið í Safa- mýri. Á bilinu 1.200-1.400 manns stunda æfingar hjá Fram og þar eru börn og unglingar fjölmennasti hóp- urinn. Mörg koma þau úr efri byggðunum og hafa þá farið á milli borgarhluta – það er úr Grafarholti og Úlfarsárdal í Safamýri – með rút- um sem gengið hafa á ákveðnum tímum. Þetta segir Sigurður Ingi að hafi verið óhentugt og reynt á börn, foreldra og í raun alla starfsemi Fram. Nú sé þetta að baki og spenn- andi tímar framundan. Festa rætur á nýjum stað „Við höfum þegar fest rætur á nýjum stað. Nú þegar er fólk héðan úr hverfinu farið að láta að sér kveða í starfi Fram. Þegar samningar um flutninga félagsins hingað voru und- irritaðir fyrir 14 árum var reyndar stefnt að því að þetta yrði 20.000 manna hverfi samkvæmt áformum sem síðan var breytt. Nú búa hér um 10.000 manns, hvað sem verður í framtíðinni. Í öllu falli erum við þó betur sett hér í Dalnum en í Safa- mýri, en þar hefur fólki fækkað á undanförnum árum og baklandið allt öðruvísi en var. Hér tel ég að okkur bjóðist miklir möguleikar, enda eru eldri félagsmenn í Fram spenntir fyrir flutningum hingað og hlakka til að verða þátttakendur í starfinu hér.“ Öflugt íþróttafélag á nýjum stað - Fram flytur í Úlfarsárdal - Fyrstu leikirnir fram undan og opnunarhátíð á sunnudaginn - Góð að- staða þáttur í árangri - Miklir möguleikar - Allt að 1.400 manns æfa með félaginu - Fjölbreytt starf Morgunblaðið/Sigurður Bogi Framtíðin Ungir fótboltastrákar á æfingu í Úlfarsárdal nú í vikunni. Í baksýn eru íþróttahús og stúka knatt- spyrnuvallar, en öll þessi mannvirki setja í raun og veru ný miðmið um hið besta í aðstöðu fyrir íþróttir á Íslandi. Aðstaða Horft yfir stúkuna og nýja keppnisvöllinn, sem lagður er gervi- grasi. Í fjarlægð hér sést íbúðarhúsabyggðin nýja í Reynisvatnsási. Sigurður Ingi Tómasson Eins og í flestum öðrum íþróttafélögum er barna- og unglingastarf hryggurinn í starfi Fram. Aðrir þættir í starfseminni eru þó einnig sterkir, svo sem flokkar í efstu deildum í handknattleik og knatt- spyrnu bæði karla og kvenna. Almenningsíþrótta- deild félagsins er líka öflug og talsverð eftirvænting er fyrir starfi með eldri borgurum, þar sem á dagskrá verða styrktaræfingar, gönguferðir og fleira sem gerir lífi og líðan til góða. Þann þátt stendur til að efla í náinni framtíð. Fram er gamalgróið og alla jafna sigursælt félag, stofnað árið 1908, eða fyrir 114 árum. Var á fyrstu áratugunum miðbæjarfélag í Reykja- vík, en fluttist árið 1946 í Skipholt og átti sinn heimavöll lengi neðan við Sjómannaskólann á Rauðarárholti. Frá 1972 til dagsins í dag – eða í hálfa öld – hefur starfsemi Fram svo verið í Safamýri – þar sem eru knattspyrnuvellir og íþróttahús. Nú taka Víkingar þá aðstöðu yfir en Fram fer í Úlfarsárdal þar sem allt hið besta er í boði, sem ætti að efla starfsemi félagsins. Allt það besta býðst í dalnum SIGURSÆL SAGA SEM SPANNAR 114 ÁR Morgunblaðið/Eggert Úlfarsárdalur Hverfismiðstöðin sem tekin var í notkun sl. haust. Hér eru skóli, bókasafn, sundlaug og síðast en ekki síst – innst í þyrpingunni – ný aðstaða Fram.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.