Morgunblaðið - 16.06.2022, Síða 30

Morgunblaðið - 16.06.2022, Síða 30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2022 Skiltagerð og merkingar Inni og úti merkingar, spjöld og skilti. Kíktu á heimasíðuna okkar og skoðaðu þjónustuna sem er í boði. Xprentehf. | Sundaborg3 |104Reykjavík |7772700|xprent@xprent.is SANDBLÁSTURSFILMUR BÍLAMERKINGAR SKILTAGERÐ KYNNINGARSVÆÐI www.xprent.is ELTAK sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Hafrannsóknastofnun leggur til að aflamark í þorski verði skert um 13.527 tonn fyrir næsta fiskveiðiár sem hefst 1. september næstkomandi. Þetta er meðal þess sem fram kom á kynningarfundi stofnunarinnar vegna nýrrar ráðgjafar, sem fram fór í húsa- kynnum Hafrannsóknastofnunar í Fornubúðum 5 í Hafnarfirði í gær. Hugsanlega er um að ræða þorsk- afla að verðmæti 5,2 milljarðar króna miðað við meðalverð á óslægðum þorski á innlendum fiskmörkuðum síðustu 30 viðskiptadaga. „Fyrirtæki í sjávarútvegi munu þurfa að bregðast við samdrætti í veiðum og ákvarðanir sem taka þarf verða ekki léttvægar,“ sagði í tilkynn- ingu frá Samtökum fyrirtækja í sjáv- arútvegi (SFS) í kjölfar fundarins. Vöktu samtökin athygli á því að frá fiskveiðiárinu 2019/2020, þegar ráð- gjöfin nam 272 þúsund tonnum, er samdrátturinn í ráðgjöf Haffrann- sóknastofnunar í þorski ríflega 23%. „Slíkur samdráttur á ekki lengri tíma er áskorun og hefur mikil áhrif á af- komu greinarinnar. Samtök fyrir- tækja í sjávarútvegi mælast hins veg- ar til þess að ráðgjöf Hafrannsókna- stofnunar verði fylgt.“ Við þessu búist Búast mátti við því að ráðgjöf Haf- rannsóknastofnunar fyrir þorsk myndi lækka í ljósi upplýsinga sem lagðar voru fram á kynningarfundi stofnunarinnar á síðasta ári vegna ráðgjafar fyrir fiskveiðiárið 2021/ 2022. Bentu þær til þess að skerðing yrði næstu tvö til þrjú ár. Þá var sagt frá því að stærð þorsk- stofnsins hefði verið ofmetin og veiði- hlutfall því vanmetið á undanförnum árum auk þess sem nýliðun hefði ver- ið ofmetin á síðustu árum. Kom þetta fram í máli Guðmundar Þórðarsonar, þáverandi sviðsstjóra botnsjávar- sviðs. Við endurskoðun á stofnmati í kjölfar endurmats á aflareglu var uppsetningu stofnmats breytt. Þá kom í ljós að viðmiðunarstofninn sem talinn var árið 2020 vera 1.208 þúsund tonn hefði raunar verið 19% minni eða 982 þúsund tonn. Stofninn 2021 var síðan talinn vera 941 þúsund tonn. Ef tekið hefði verið tillit til endur- matsins að fullu hefði á síðasta ári átt að ráðleggja 27% skerðingu í afla- marki og hámarksveiði á núverandi fiskveiðiári numið 188 þúsund tonn- um. Höggið varð þó mildara vegna sveiflujöfnunar í aflareglu stjórnvalda og nam skerðingin því 13%. Ufsinn vekur athygli Það vakti hins vegar athygli margra að mat Hafrannsóknastofn- unar á stærð ufsastofnsins lækkar um 17% milli ára og telur stofnunin að stofninn hafi verið ofmetinn frá árinu 2018. Leita þarf aftur til fiskveiðiárs- ins 2012/2013 að fiskiskipaflotinn hafi náð að veiða jafn mikið og ráðlagt hef- ur verið. Til að mynda var á fiskveiði- árinu 2020/2021 landað 29% minni afla en Hafrannsóknastofnun ráð- lagði, 34% minni 2019/2020 og 11% minni fiskveiðiárið 2018/2019. Þrátt fyrir að sóknin sé eins lítil og raun ber vitni virðist ufsastofninn eiga erfitt uppdráttar. Lækkar ráð- gjöf stofnunarinnar fyrir næsta fisk- veiðiár þó ekki um 17% heldur 8% vegna sveiflujöfnunar í aflareglu og nemur ráðgjöfin 71.300 tonnum. Má því gera ráð fyrir að ráðgjöf haldi áfram að lækka næstu ár en fátt bendir þó til að útgerðarmenn hafi áhyggjur af þessu þar sem síðastliðin áratug hefur ekki verið veitt meira en rúm 50 þúsund tonn. Óútskýrður nýliðunarbrestur Ýsustofninn virðist hafa tekið við sér og leggur Hafrannsóknastofnun til að hámarksveiði á fiskveiðiárinu 2022/2023 verði 62.219 tonn. Aukning- in frá yfirstandandi ári er 23% eða 11.790 tonn. Aukningin gæti hjá mörgum útgerðum vegið eitthvað á móti skerðingunni í þorski. Víða er fagnaðarefni að heimilt verði að auka sókn í ýsu sem er óhjá- kvæmilegur meðafli þorskveiða. Hið sama á í raun við um löngu og keilu, en ráðgjöf fyrir þessar tegundir eykst nokkuð, en í báðum tilfellum hækkar ráðgjöfin í kjölfar breyttrar aflareglu. Heil 106% í keilu og 29% í löngu. Þá leggur stofnunin til 6.310 tonna skerðingu á aflamarki gullkarfa, en verðmæti þessa afla gæti verið 1,5 milljarðar samkvæmt meðalverði á óslægðum gullkarfa á innlendum fisk- mörkuðum síðustu 30 viðskiptadaga. „Þessi lækkun bætist ofan á lækkun síðustu ára en núverandi tillaga er rúmlega helmingur þess afla sem ráð- lagður var á árunum 2016 og 2017. Helgast þessi lækkun af nýliðunar- bresti í stofninum sem litlar skýring- ar eru á. Sá mikli niðurskurður sem orðið hefur á vöktun nytjastofna á undan- förnum árum er jafnframt umhugs- unarefni. Slíkur sparnaður mun auka óvissu um afrakstursgetu stofna og leiða þar með til varkárari nýtingar en ella væri hægt að viðhafa. Sú nið- urstaða, sem kynnt var í dag, er stað- festing þess að áhyggjur SFS eru réttmætar og brýnt er að bæta úr,“ sagði í tilkynningu SFS. Miklar skerðingar í ráðgjöf Hafró - Búast mátti við skerðingum í þorski - Frekari lækkun möguleg - Um er að ræða afla fyrir fleiri milljarða króna - Smábátaeigendur segja ráðgjöfina vonbrigði - SFS telur þörf á að efla rannsóknir Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um hámarksafla Fiskveiðiárin 2021/22 og 2022/23, tonn Breyting á ráðgjöf helstu tegunda Heimild: Hafrannsóknastofnun tonn Ráðgjöf 2021/22 Ráðgjöf 2022/23 Breyting Þorskur 222.373 208.846 -6% Ýsa 50.429 62.219 23% Ufsi 77.561 71.300 -8% Gullkarfi 31.855 25.545 -20% Djúpkarfi 7.926 6.336 -20% Litlikarfi 609 585 -4% Grálúða 26.650 26.710 0% Skarkoli 7.805 7.663 -2% Þykkvalúra 1.288 1.137 -12% Langlúra 1.025 1.230 20% Sandkoli 313 301 -4% Stórkjafta 206 132 -36% Steinbítur 8.933 8.107 -9% tonn Ráðgjöf 2021/22 Ráðgjöf 2022/23 Breyting Hlýri 377 334 -11% Langa 4.735 6.098 29% Blálanga 334 259 -22% Keila 2.172 4.464 106% Lýsa 1.137 1.091 -4% Skötuselur 402 258 -36% Tindaskata 921 1.105 20% Sumargotssíld 72.239 66.195 -8% Gullax 9.244 11.520 25% Beitukóngur 264 254 -4% Sæbjúga 2.307 2.617 13% Ígulker 196 188 -4% Hörpudiskur 93 93 0% Þorskur Gullkarfi Ufsi Sumargotssíld Djúpkarfi Steinbítur Skarkoli Grálúða Langa Gullax Keila Ýsa tonn -13.527 -6.310 -6.261 -6.044 -1.590 -826 -142 60 1.363 2.276 2.292 11.790 „Þetta eru mikil vonbrigði varð- andi þorskinn og ekki í neinu samræmi við aflabrögð og upp- lifun sjómanna á miðunum,“ segir Örn Pálsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, um ráðgjöf- ina. Máli sínu til stuðnings bendir hann meðal annars á að strandveiðibátur á vertíðinni 2020 hafi að meðaltali fengið 493 kíló af þorski í róðri en nú sé meðaltalið 640 kíló. „Það er grátlegt að horfa upp á það að hafa farið eftir ráðgjöf stofnunarinnar í áratugi og ár- angurinn er þannig að okkur er tilkynnt að við megum ekki veiða meira en 200 þúsund tonn. Það þarf alla vega að at- huga hvort við séum á réttri leið. Það hvað við megum veiða af þorski er stærsti þátturinn í lífskjörum þjóðarinnar,“ segir hann. Vonbrigði ÞRÁTT FYRIR AÐ FYLGJA RÁÐGJÖF Í ÁRATUGI Afurðaverð á markaði 15. júní 2022,meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 456,51 Þorskur, slægður 541,25 Ýsa, óslægð 602,82 Ýsa, slægð 484,14 Ufsi, óslægður 223,67 Ufsi, slægður 265,19 Gullkarfi 458,87 Blálanga, óslægð 11,00 Blálanga, slægð 14,00 Langa, óslægð 367,02 Langa, slægð 313,99 Keila, óslægð 86,63 Keila, slægð 112,43 Steinbítur, óslægður 125,42 Steinbítur, slægður 237,12 Skötuselur, slægður 856,76 Grálúða, slægð 239,00 Skarkoli, óslægður 0,00 Skarkoli, slægður 481,78 Þykkvalúra, slægð 628,07 Langlúra, óslægð 0,00 Sandkoli, óslægður 140,59 Sandkoli, slægður 126,00 Blágóma, slægð 36,00 Gellur 1.398,29 Grásleppa, óslægð 10,40 Hlýri, óslægður 229,78 Hlýri, slægður 297,78 Kinnfiskur/þorskur 1.183,00 Lúða, óslægð 451,00 Lúða, slægð 1.069,00 Skata, óslægð 44,00 Skata, slægð 75,00 Stórkjafta, slægð 75,36 Undirmálsýsa, óslægð 49,39 Undirmálsþorskur, óslægður 216,71 Undirmálsþorskur, slægður 200,00

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.