Morgunblaðið - 16.06.2022, Síða 32

Morgunblaðið - 16.06.2022, Síða 32
32 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2022 Sími 555 3100 www.donna.isVefverslun: www.donna.is Honeywell gæða viftur Margar gerðir – Láttu gusta umþig! Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu í apríl sem hlutfall af launum er það lægsta sem mælst hefur. Gögn Hús- næðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) ná aftur til ársins 2013. Hlut- fallið var hæst í lok árs 2018 en er nú um 15,6% lægra en þá. Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hefur farið lækkandi á föstu verðlagi frá því í byrjun árs og er nú lægra en fyrir ári síðan. Það hefur ekki mælst lægra að raunvirði síðan árið 2017. Þetta kemur fram í skýrslu HMS. Þar segir einnig að fasteigna- markaðurinn hafi aðeins róast ef horft er til fjölda kaupsamninga í apríl en þeir hafa ekki verið jafn fáir í einum mánuði síðan í maí 2020. Eftirspurnarþrýstingur virðist þó enn vera til staðar ef litið er til þess að 54% íbúða á landinu seldust yfir ásettu verði. Eftirspurnin er mest á höfuðborgarsvæðinu ef horft er til sama hlutfalls en 65% íbúða seldust yfir ásettu verði og 53% sérbýla. Um er að ræða met, að því er segir í skýrslunni. Þá kemur einnig fram að meðalsölutími á íbúðum, sem seldar voru á höfuðborgarsvæðinu í apríl, var 34,7 dagar og hefur ekki mælst jafn stuttur frá upphafi mælinga. logis@mbl.is - Leiguverð sem hlutfall af launum aldrei lægra - Leiga hefur lækkað á föstu verðlagi Rólegri fasteigna- markaður í apríl VIÐTAL Gísli Freyr Valdórsson gislifreyr@mbl.is Íslendingar munu í lok mánaðarins fá að kynnast nýrri pizzutegund hér á landi, svonefndum Pizza in pala- bökum sem eru frábrugðnar hinum klassísku pizzum sem við höfum hingað til þekkt. Það eru hjónin Ása María Regins- dóttir athafnarkona og Emil Hall- freðsson knattspyrnumaður sem færa þessa nýju tegund pizzu til landsins. Þau stofnuðu á sínum tíma vörumerkið Olifia sem nú inniheldur fjölbreytta ítalska vörulínu. Salan hefur gengið vel og Olifia-ólífuolían hefur verið söluhæsta ólífuolía landsins. Auk þess hafa þau flutt inn ítölsk vín og selt hér á landi. Þau munu nú opna nýjan veitingastað, Olifa La Madre Pizza, við Suður- landsbraut (þar sem Eldsmiðjan var áður til húsa) en auk þess verður útibú frá staðnum opnað í nýrri verslun Krónunnar í Skeifunni sem verður opnuð síðar í sumar. Staðirn- ir eru opnaðir í samstarfi við Gleði- pinna. „Það er komin góð reynsla á þessa tegund af pizzu á Ítalíu,“ segir Ása María í samtali við Morgunblaðið, spurð um tilefni þess að kynna Ís- lendingum nýja pizzutegund. Emil bætir því við að þau fjölskyldan hafi haft það fyrir reglu að fá sér iðulega pizzur eftir leiki með Hellas Verona, hvar hann lék um árabil. Þau eru enn búsett á Ítalíu þar sem Emil spilar knattspyrnu með Virtus Verona. Bjartsýn á nýjan stað Sem fyrr segir hafa þau staðið í ýmsum rekstri með ítalskar vörur, en það verður þó ekki komist hjá því að spyrja hvað drífi þau áfram í að opna veitingastað í íslensku um- hverfi þar sem kostnaðarstrúktúrinn er allt annar en á Ítalíu. „Við erum mjög bjartsýn á þetta verkefni og það sem drífur okkur áfram er áhugi okkar á gæðum og heilbrigði,“ segir Ása María. „Við munum eingöngu nota besta mögulega hráefnið í pizzurnar, þær eru léttari í maga en hefðbundnar pizzur og bjóða um leið upp á skemmtilega matarupplifun. Pizzur eru vinsælar á Íslandi og framboðið mikið, en með opnun Olifa La Madre Pizza erum við að auka við úrvalið og bjóða upp á nýja valkosti. Í ljósi þess hversu vinsæl þessi tegund af pizz- um er erlendis væntum við þess að hún verði vinsæl hér líka.“ Þau segja að pizzurnar henti vel sem „take away“-matur þar sem þær eru bakaðar ferskar á staðnum og bornar fram með fersku áleggi. Við- skiptavinir geta valið úr borði þær pizzur sem hugurinn girnist, fengið þær á bakka og hitað heima í ofni. Þá nefna þau bæði að pizzurnar séu hentugar fyrir fjölskyldur, veislur eða matarboð, þar sem hægt er að sækja þær á staðinn og það þurfi lít- ið annað að gera en að hita þær í örfáar mínútur þegar heim er komið. Verðmæti í ferskleika En þá nánar að pizzunum sjálfum. Pizza in pala er ólík hinni klassísku Pizza Napoletana á marga vegu, en hið augljósa er að hún er ekki hring- laga heldur sívalningur. Pizzan dregur einmitt nafn sitt af ílangri viðarskóflu, la pala, sem notuð er við að færa pizzudeigið til í heitum ofn- inum. Deigið, eða „la biga eins og það er kallað á frummálinu, er gert úr þremur tegundum af hveiti sem ræktað er í sætu hæðunum í Le Marche-héraði á Mið-Ítalíu. Með miklum tilþrifum lýsa þau Emil og Ása María hvernig blöndunin gefur sérstakt og afgerandi bragð og sér- staka áferð. Eftir blöndun er deigið látið hefast í 24 klukkustundir og verður þannig mun rakara en hefð- bundið pizzudeig. Útkoman er þann- ig stökkt ytra lag en mjúkur kjarni. Allar pizzurnar eru toppaðar með hrárri Olifa-ólífuolíu, eins og tíðkast í ítalskri eldamennsku. „Francesco Allegrini á Olifa með okkur en hann er sonur eins ástsæl- asta vínbónda Norður-Ítalíu og býr yfir mikilli þekkingu á framleiðsl- unni,“ segir Ása María. Þá mun áleggið á pizzurnar koma frá ítölskum framleiðendum sem þau Emil og Ása María hafa leitað að og fundið víðsvegar um Ítalíu. Sem dæmi má nefna að tómatsósan er gerð úr pelati-tómötum sem eru ræktaðir í Puglia og skinkan frá Val- policella. Þau Emil og Ása María segja bæði að það sé hluti af viðskiptamódelinu að bjóða upp á hráefni í hæstu gæð- um og með upprunavottunum. „Neytendur gera kröfur um að vita hvaðan matvæli koma og það er því mikill fengur í því að geta sýnt fram á upprunavottanir sem eru vel þekktar. Það verndar bæði neytend- ur og ekki síður þá sem eru að selja vöruna, eins og við erum að gera í þessu tilviki,“ segir Ása María. „Neytendur geta þá treyst því að um gæðavöru sé að ræða.“ Ítalskir bakarar Loks má geta þess að til að fylgja þessu verkefni úr hlaði munu þrír ítalskir pizzubakarar flytja til lands- ins, þeir Andrea Lorenzi, Matteo Loreni og Leonardo Rosso Coletti. Þeir eru allir góðir vinir Emils og Ásu Maríu og hafa langa reynslu af gerð þeirra pizza sem hér er rætt um. „Þeir eiga enn eftir að fá að kynn- ast íslenskum vetri,“ segir Emil í léttum tón. „En þeir tóku vel í þessa hugmynd að flytja til landsins til að ýta opnun veitingastaðarins úr vör. Það er líka til þess fallið að auka gæði að hafa reynda menn við baksturinn.“ Kynna nýja pizzutegund á Íslandi - Hjónin Emil Hallfreðsson og Ása María Reginsdóttir opna nýjan pizzustað á Suðurlandsbraut - Fengu þrjá ítalska pizzubakara til að flytja til Íslands - Segja verðmæti fólgin í miklum gæðum Morgunblaðið/Eggert Nýr staður Ása María og Emil ásamt ítölsku pizzubökurunum og vinum sínum Andrea Lorenzi og Matteo Loreni. Gleðipinni Jóhannes Ásbjörnsson, framkvæmdastjóri Gleðipinna, ræðir hér við Emil Hallfreðsson, en framkvæmdir á nýja staðnum standa nú yfir. Pizzur Ítalskir pizzubakarar und- irbúa opnun á Olifa La Madre Pizza. 16. júní 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 132.32 Sterlingspund 159.74 Kanadadalur 102.28 Dönsk króna 18.588 Norsk króna 13.305 Sænsk króna 13.02 Svissn. franki 133.06 Japanskt jen 0.9835 SDR 175.98 Evra 138.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.5401 Viðskipti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.