Morgunblaðið - 16.06.2022, Síða 35

Morgunblaðið - 16.06.2022, Síða 35
35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2022 Endurbætur Framkvæmdir standa yfir á fullu við Skálholtskirkju. Þakið á kirkjuturninum gengur í endurnýjun lífdaga, kirkjuklukkurnar hafa fengið yfirhalningu og fleiri endurbætur gerðar. Kristinn Magnússon Vetni verður nýtt sem varaafl í gagna- veri Verne Global í Reykjanesbæ. Verne og Landsvirkjun ætla að vinna saman að því að auðvelda orku- skipti gagnaversins yfir í grænt vetni sem framleitt er með ís- lenskri, endurnýj- anlegri orku, til þess að efla Verne Global enn frekar sem leiðandi fyrirtæki á sínu sviði í sjálfbærum lausnum. Þetta er fyrsta verkefnið af þessu tagi á Ís- landi. Gagnaverið og orkufyrirtæki þjóðarinnar tóku nýverið höndum saman í þessu tilraunaverkefni sem vonandi kemur báðum enn lengra áfram á grænni braut end- urnýjanlegrar orku. Gagnaver Verne Global tók til starfa árið 2012 og er athafna- svæði þess rúmlega 16 hektarar. Það var hannað til að veita há- tæknigagnaversþjónustu þeim fyr- irtækjum sem nota háhraðatölvu- vinnslu í sínum rekstri. Þar er með talin gervigreind, vélnám, háhraðatölvuklasar, ofurtölvur, fjármálaþjónusta, jarðvísindi, líf- vísindi, verkfræði og vísindarann- sóknir af ýmsu tagi. Á Íslandi er stöðugt flutnings- kerfi raforku með fullkomlega endurnýjanlega orku. Það tryggir að Verne Global getur boðið við- skiptavinum sínum gagnsæi í verði til langs tíma. Við það bæt- ist að hagstætt veðurfar á landinu býður upp á kælingu að kostn- aðarlausu, allan ársins hring. Vilji svo ólíklega til að truflun verði á orkuafhendingu meðan á til- raunaverkefni þessu stendur, mun Verne Global knýja gagnaver sitt með raforku sem framleidd er úr endurnýjanlegri orku í formi vetn- is. Þörfin fer vaxandi Gagnaver á Íslandi eiga það sameiginlegt að vera frábært dæmi um nýsköpun og sjálfbæra verðmætasköpun, byggða á þekk- ingu. Þau hafa vaxið og dafnað undanfarinn áratug og þörfin fyrir þjónustu þeirra mun aukast enn frekar á komandi árum og áratug- um. Verne Global er öflugt þekk- ingarfyrirtæki og hefur mótað sér metnaðarfulla umhverfisstefnu. Íslenska græna og endurnýj- anlega orkan er grundvöllur starf- seminnar og mikilvægt er að tryggja að varaafl fyrirtækisins sé líka hreint. Landsvirkjun fagnar þessu tækifæri til að sjá í verki hvernig hægt er að hagnýta grænt vetni. Vonandi verður samstarfið um varaafl gagnavers Verne Global aðeins eitt af fyrstu skrefunum á langri og spennandi vegferð. Eftir Harald Hall- grímsson og Tate Cantrell » Gagnaverið og orku- fyrirtæki þjóð- arinnar taka höndum saman í verkefni sem vonandi kemur báðum enn lengra áfram á grænni braut endurnýj- anlegrar orku. Haraldur Hallgrímsson Haraldur er forstöðumaður viðskipta- þróunar hjá Landsvirkjun og Tate er framkvæmdastjóri tæknimála hjá Verne Global. Varaaflið verður líka grænt Tate Cantrell Eftir níu ára kyrr- stöðu hefur ramma- áætlun nú verið sam- þykkt á Alþingi en vinna við þriðja áfanga hófst árið 2013. Sam- kvæmt lögum um verndar- og orkunýt- ingaráætlun, eða rammaáætlun, skal eigi sjaldnar en á fjög- urra ára fresti leggja fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða. Markmið laganna er að leggja mat á verndar- og orkunýtingargildi land- svæða og efnahagsleg, umhverfisleg og samfélagsleg áhrif nýtingar, þar með talið verndunar. Rammaáætlun er mikilvægt stjórntæki sem nýtist stjórnvöldum við að taka ákvarðanir um mikla hagsmuni og málefni sem hafa vald- ið miklum átökum í okkar sam- félagi. Henni er ætlað að leggja stóru línurnar fyrir áform stjórn- valda um vernd og nýtingu virkj- unarkosta. Það er svo ávallt þings- ins að meta og taka afstöðu til þeirra tillagna sem verkefnastjórn leggur fram í hverjum áfanga fyrir sig. Alþingi hefur fengið sömu tillöguna til um- fjöllunar fjórum sinn- um en ekki náð sam- stöðu um afgreiðslu hennar. Rammaáætlun hefur því ekki verið samþykkt í níu ár, með þeim afleiðingum að kyrrstaða hefur ríkt, bæði hvað varðar verndun þeirra virkj- unarkosta sem áætl- unin tekur til og einnig um nýtingu þeirra. Aukinn kraftur í loftslagsmálin Ísland hefur sett sér metn- aðarfull og háleit markmið í lofts- lagsmálunum sem við ætlum okkur að uppfylla. Í mars kom út grænbók um stöðuna í orkumálum með lofts- lagsmarkmiðin til hliðsjónar. Nið- urstaða grænbókarinnar kom eng- um á óvart. Græn orkuskipti eru lykillinn að því að við náum þeim markmiðum sem við höfum sett okkur. Orkuskiptin kalla á stór- aukna framleiðslu grænnar orku og betri nýtingu þeirra innviða sem við eigum nú þegar. Samþykkt rammaáætlunar er mjög mikilvæg varða á þeirri veg- ferð sem við höfum lagt af stað í. Ramminn veitir okkur leiðsögn um forgangsröðun og á hvaða svæðum ætti alls ekki að vinna að orkuöflun. Öflun orku getur haft veruleg og óafturkræf áhrif á náttúru landsins. Okkur ber því að stíga varlega til jarðar og reyna eftir fremsta megni að ná jafnvægi milli verndar og nýt- ingar. Vel tókst til að ná jafnvægi á milli þessara sjónarmiða við afgreiðslu málsins í umhverfis- og samgöngu- nefnd þingsins. Niðurstaðan end- urspeglar þessa nálgun. Breyting- arnar sem meirihluti nefndarinnar lagði til eru skynsamlegar, þrátt fyrir hróp og köll stjórnarandstöð- unnar. Breytingarnar felast í því að Búrfellslundur var færður úr bið- flokki í nýtingu og er það fyrsti vindorkukosturinn sem samþykktur er í nýtingarflokk í rammaáætlun. Mikil sóknarfæri eru í vindorku en ljóst er að finna þarf jafnvægi þar líkt og annars staðar. Urriðafoss- og Holtavirkjun í Þjórsá voru færðar úr nýtingarflokki í biðflokk. Þá var Skrokkölduvirkjun einnig færð í biðflokk úr nýtingu en Skrokkalda er staðsett á miðhálendinu og í mik- illi nálægð við friðlýst svæði Vatna- jökulsþjóðgarðs. Héraðsvötn í Skagafirði og Kjalölduveita voru færð í biðflokk úr verndarflokki. Er þetta í samræmi við áherslu rík- isstjórnarinnar á að fjölga kostum í biðflokki. Þarna er sleginn jafnvæg- istónn í tilfærslu úr nýtingu og vernd í biðflokk. Þeir kostir sem við þetta færast yfir í biðflokk, verða skoðaðir betur og vinnu við það verður hraðað í meðförum verkefn- isstjórnar rammaáætlunar. Að því loknu koma kostirnir aftur til um- fjöllunar í þinginu. Þá lagði ég mikla áherslu á og óskaði eftir því við Orkustofnun að þeir kostir, sem stofnunin hafði lagt fram til mats að eigin frumkvæði, yrðu felldir út úr biðflokki. Það eru því alls 28 felldir út úr rammaáætl- un sem hafa verið fastir í biðflokki um árabil og hvorki hægt að nýta né vernda. Ég tel að þetta skref sé gíf- urlega mikilvægt til þess að ná betri sátt um rammann. Í hnotskurn Þrátt fyrir hávær hróp og köll stjórnarandstöðunnar um nið- urstöðuna er ljóst að umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis á hrós skilið fyrir vandaða og góða vinnu. Alþingi hefur tekist að ná samstöðu um afgreiðslu máls sem hefur setið fast í tæpan áratug. Niðurstaðan er skynsamleg; kostir eru færðir úr nýtingu og vernd í biðflokk til frek- ari skoðunar. Fyrsti vindorkukost- urinn fer í nýtingarflokk, gætt er að jafnvægi milli verndar og nýtingar og 28 kostir eru felldir út úr ramma- áætlun. Stjórnvöld hafa sett sér metn- aðarfull markmið í loftslagsmálum og við ætlum okkur að ná þeim. Til þess þarf græna orku til orkuskipta en á sama tíma erum við meðvituð um mikilvægi þess að vernda nátt- úruna og reynum okkar besta til þess að finna jafnvægi milli þessa þátta. Afgreiðsla rammaáætlunar er gífurlega mikilvæg varða á þess- ari vegferð. Okkur hefur tekist að rjúfa kyrrstöðuna og eykst sókn- arþunginn í loftslagsmálunum til muna. Níu ára kyrrstaða rofin Eftir Guðlaug Þór Þórðarson Guðlaugur Þór Þórðarson » Ísland hefur sett sér metnaðarfull og há- leit markmið í loftslags- málunum sem við ætlum okkur að uppfylla. Höfundur er umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.