Morgunblaðið - 16.06.2022, Qupperneq 38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2022
ÞÆGILEGIR GÖTUSKÓR
GO WALK ARCH FIT
14.995 kr./ St. 41- 47
withArchFit
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
SKECHERS
SMÁRALIND - KRINGL
Gelísprautun
• Gefur náttúrulega fyllingu
• Grynnkar línur og hrukkur
• Sléttir húðina
Gelísprautun
er náttúruleg
andlitslyfting án
skurðaðgerðar
sem framkvæmd
er með náttúrulegu
fjölsykrunum frá
Neauvia Organic.
Ve
13
Við to rét
Pe
21 reynsla
Við fe
pa 13
Marta María Winkel Jónasdóttir
mm@mbl.is
Þegar Páll Heiðar er spurður út í
hvað sé að gerast á fasteignamark-
aðnum akkúrat núna segir hann að
það sé ennþá skortmarkaður.
„Það er að segja fleiri kaupendur
en seljendur. Það er áhugavert að
það er um 42% minni sala það sem
af er þessu ári en á sama tíma í
fyrra. Markaðurinn hefur þó hækk-
að um 11%,“ segir Páll Heiðar.
Hann segir að 200-250 eignir á
viku komi á markað sem sé ekki
nærri því nóg.
„Það eru auglýstar um 600 eignir
í dag og helmingurinn er auglýstur
sem seldur. Meðalsölutíminn hefur
aldrei verið eins stuttur eða um 35
dagar og meðalkaupverð á fasteign
í dag er um 77 milljónir. Það er að
segja 67,4 milljónir í fjölbýli og
104,9 milljónir í sérbýli. Til að stað-
festa alvarlega stöðu þá seljast um
65% íbúða í fjölbýli yfir auglýstu
verði,“ segir hann.
Er ekki sérstakt að hverfi séu að
lækka í verði eins og er að gerast í
Laugardal og Grafarholti?
„Jú, og kemur í raun á óvart.
Eina skýringin sem ég hef er sú að
úttakið frá Þjóðskrá gæti verið lítið
og einhverjar eignir hafi selst á
mjög lágu fermetraverði sem
skekkir myndina. Ég myndi halda
að bæði þessi svæði eigi inni hækk-
un þar sem meðalfermetraverð í
Laugardalnum er um 586.000 m²
og um 554.000 m² í Grafarholtinu
en meðalfermetraverðið á höfuð-
borgarsvæðinu það sem af er ári er
um 660.000 m²,“ segir hann.
Hefur þetta gerst áður síðustu
ár?
„Það geta komið mánuðir inn á
milli í öllum hverfum þar sem get-
ur orðið lækkun en til lengri tíma
hefur fasteignaverð aldrei lækkað í
verði eins og matvara og laun. Það
var nokkuð áberandi 2018 og 2019
þar sem var töluvert af hverfum
sem í raun lækkuðu í verði og al-
menn hækkun á markaði var mjög
lítil,“ segir hann.
Eiga þessi hverfi eitthvað inni?
„Ég tel að þessi hverfi, ásamt
Norðurbæ Hafnarfjarðar og Háa-
leitinu, eigi töluvert inni. Eins hef
ég ráðlagt fólki að skoða Reykja-
nesbæ sem spennandi tækifæri á
fasteignamarkaði,“ segir Pál Heið-
ar.
Hvað heldur þú að gerist núna
þegar lánshlutfall til fyrstu kaup-
enda lækkar?
„Ég hef litla trú á að eftir-
spurnin minnki við þetta en það er
mín raunverulega von að íbúðir í
lægri verðflokkum muni kannski
ekki alveg hætta að hækka en að
hækkunin verði ekki svona mikil á
svo skömmum tíma. Stór hluti af
fólki hefur verið að komast inn á
markaðinn með 90% lán en þarf
meira eigið fé núna. Margir fyrstu
kaupendur fá aðstoð hjá ættingjum
þannig að ég á ekki von á að eftir-
spurnin minnki heldur hætti verðið
vonandi að hækka svona úr öllu
valdi.“
Páll Heiðar segir að það sé að
hægjast á markaðnum.
„Það er nærri 42% minni sala en
var á sama tíma í fyrra en skýr-
ingin er helst sú að það er mikill
skortur. Salan væri töluvert meiri
ef það væru fleiri eignir á mark-
aðnum. Eftirspurnin er mikil og
framboðið lítið. Ég upplifi að kaup-
endur á eignum yfir 120 milljónum
eru í ríkari mæli að hugsa um af-
borganir og spá töluvert fram í
tímann og gera ráð fyrir að afborg-
anir hækki. Þá er fólk ekki tilbúið
að spenna bogann eins og áður en
það er mikið byggt á tilfinningu
frekar en staðreyndum,“ segir
hann.
Fasteignaverð
lækkar í Laugar-
dalnum og í
Grafarholti
Páll Heiðar Pálsson fasteignasali segir að
það sé 42% minni sala á fasteignum nú en á
sama tíma í fyrra. Tölur frá Þjóðskrá Íslands
sýna að verð á fasteignum hefur lækkað í
Grafarholti og í Laugardalnum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Morgunblaðið/Sigurður Bogi