Morgunblaðið - 16.06.2022, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 16.06.2022, Qupperneq 40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2022 FLAT 13.995 kr. / St. 36-41 LÉTTIR OG FALLEGIR SANDALAR ELEVATE 16.995 kr. / St. 36-42 ELEVATE 16.995 kr. / St. 36-42 FLAT 13.995 kr. / St. 36-41 KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Nýleg íslensk hljómsveit, tónlistardúóið Bear the Ant, hefur vakið athygli með nýstárlegri og grípandi tónlist síðan hún fæddist í heimsfaraldrinum en sveitin gaf út stuttskífuna Unconscious í maí síðastliðnum. Björn Óli Harðarson og Davíð Antonsson eru menn- irnir á bak við sveitina. Margir kannast eflaust við Davíð sem hefur trommað með stórhljómsveitinni Kaleo síðast- liðin 10 ár en hann er einmitt á tónleikaferðalagi um Evr- ópu með sveitinni eins og stendur. Þeir Björn hafa verið vinir frá því Kaleo var stofnuð en þeir kynntust í gegnum Rubin Pollock, gítarleikara Ka- leo, sem er frændi Björns en Björn útskrifaðist sjálfur úr tónlistarskóla FÍH í vor og segist hafa verið viðriðinn tón- list frá unglingsaldri. „Ég sýndi Davíð „demó“ af einu lagi og spurði hvort hann vildi tromma inn á það, en hann var hérna á Íslandi vegna covid og Kaleo gat ekki spilað. Stuttu seinna vorum við farnir að vinna og pródúsera þetta verkefni saman og úr varð ennþá meiri vinátta okkar á milli,“ lýsir Björn í samskiptum við Morgunblaðið og K100. Lokalag plötunnar Unconscious, lagið „Hey!“, hefur fengið sérstaka athygli en það er sumarlegt og grípandi með bæði brassi og gospelkór. Bjart, sumarlegt og sálardrifið Björn, sem er söngvari Bear the Ant, lýsir laginu sjálf- ur sem björtu, sumarlegu og sálardrifnu en hann samdi lagið fyrir um átta árum. „Ég samdi þetta lag fyrir mörgum árum, 2014, en var aldrei búinn að taka það upp, bara glamra það fyrir sjálf- an mig,“ segir Björn, sem kynnti lagið jafnframt hjá Heiðari Austmann á K100. „Þegar upptökuferlið hófst fór lagið að stækka mikið og við fengum brass, mikið af bakröddum og hammond. Róbert Aron Björnsson og Hannes Arason blésu í lúðr- ana, Daníel Ægir Kristinsson var á bassa, Stefanía Svav- arsdóttir og Elísabet Sesselja Harðardóttir í bakröddum og svo Tómas Jónsson á hammond,“ lýsir Björn, sem seg- ist þó aðspurður eiga erfitt með að lýsa tónlist Bear the Ant með orðum. Hljómsveitin sé þó undir miklum áhrif- um frá soul-tónlist, rokki, indie-tónlist og síðsýru (psychedelíu). Dúóið gaf á dögunum út tónlistarmyndband við lagið „Hey!“ en það var tekið upp í Kaupmannahöfn. Björn segir að mikið af myndbandinu hafi verið tekið upp á svokölluðu kristjaníu-reiðhjóli en hann sat sjálfur makindalega í körfu hjólsins á meðan félagi hans Hörður Freyr Brynjarson, sem leikstýrði tónlistarmyndbandinu, hjólaði og tók hann upp syngjandi. Úr varð afar skemmti- legt og myndrænt myndband á ferð um Kaupmannahöfn. Eins og að spila djass „Annars var það tekið upp mikið svona „gorilla style“ þar sem við vorum bara að ferðast um borgina og impróv- ísera. Ég sagði við strákana að það að taka upp þetta myndband væri eins og að spila djass,“ lýsir Björn. Hann segir að viðtökurnar við hljómsveitinni og nýju plötunni hafi verið góðar en lagið „Hey!“ hefur verið að klifra upp ýmsa vinsældalista hér á landi upp á síðkastið. Spurður út í hvernig Davíð tekst til við að samræma hljómsveitirnar tvær, Bear the Ant og Kaleo, segir Björn að hingað til hafi það verið auðvelt en bendir á að það hafi líklega verið heimsfaraldrinum að þakka. Nú er Kaleo hins vegar farin á fullt aftur á tónleikaferðalögum um heiminn. „Það kemur betur í ljós í framhaldinu hvernig verður að vinna svona úr fjarlægð en það gera það margir í dag svo það ætti alveg að virka,“ segir Björn sem segir að vin- irnir stefni hátt. „En það er bara að hægt að taka eitt skref í einu svo við höldum okkar striki og sjáum svo hvað gerist í framtíð- inni,“ bætir hann við en fram undan hjá þeim félögum er lifandi flutningur síðar í sumar þegar Davíð kemur úr tónleikaferðalaginu auk þess sem þeir ætla að halda áfram að semja og taka upp lög fyrir breiðskífu sem er væntanleg vonandi í byrjun næsta árs. Sat syngjandi í hjólakörfu á ferð um Kaupmannahöfn Bear the Ant er tónlistardúó á uppleið en þeir Björn Óli og Davíð mynda dúó- ið sem gaf nýverið út stuttskífuna „Unconscious“ og tónlistarmyndband við lokalag plötunnar „Hey!“ Bear the Ant Tónlistardúóið Bear the Ant saman- stendur af þeim Birni Óla og Davíð Antonssyni. Ljósmynd/Berglaug Petra Garðarsdóttir Unconscious Bear the Ant gaf út stuttskífuna Uncon- scious á dögunum og stefnir á breiðskífu á næsta ári. Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Hildur Kristín Stefánsdóttir segir heim pródúsenta á Íslandi ákaflega karllægan en sjálf er hún ein af ör- fáum kvenpródúsentum landsins. „Já, því miður. Ég held að svona 2-4% af lögum sem koma út séu pródúseruð af konum,“ sagði Hild- ur í viðtali í morgunþættinum Ís- land vaknar í gær. Hún sagðist halda að mörgum konum þætti starfið yfirþyrmandi. Í því felst að sitja fyrir framan tölvuforrit „með milljón tökkum“, taka upp og vinna tónlist. „Nýlega tók ég skrefið að fara að pródúsera og vinna tónlist fyrir aðra,“ sagði Hildur, sem sjálf er tónlistarkona. Húnsegir marga eiga erfitt með að skilja hvað starf- ið felur í sér. Hún sagðist meðal annars fá spurninguna „Hvað er að vera pródúsent?“ mjög oft. „Það vita margir ekki hvernig tónlist er búin til,“ sagði Hildur. „Oft byrjar fólk bara með kassa- gítar og rödd og ekkert meira en síðan býr maður til heilt lag úr því, bætir við alls konar hljóðfærum og útsetur það. Mér finnst þetta ótrú- lega skemmtilegt, af því að maður fær að prófa alls konar, maður get- ur tekið lag sem var hrátt fyrir og farið með það í hvaða átt sem mað- ur vill,“ lýsir Hildur sem segir að það hafa verið afar skemmtilegt og lærdómsríkt að vera „hinum megin við borðið“ en sem tónlistarkona hefur hún oft mætt í hljóðvertil að syngja. Hildur segist hafa heillast af starfi upptökustjórans vegna þess að hún er forvitin og nýtur þess að prófa sig áfram og fikta. „Ég held að það sé lykillinn að mörgu, að þora að prófa sig áfram. Ég er ekkert hætt að vera tónlist- arkona,“ sagði hún en bætti við að hún hafi uppgötvað að hún væri hæfileikum gædd sem upp- tökustjóri þegar hún vann með þeim sjálf sem tónlistarkona. „Eitt leiddi af öðru og svo fékk ég það verkefni nýlega að vinna með ungri tónlistarkonu sem ég þekkti ekki fyrir. Sameiginleg vin- kona hafði samband við mig og vissi að ég hefði unnið í tónlist og spurði hvort mig langaði að prófa að taka upp með henni lag,“ sagði Hildur. Umrædd tónlistarkona er Una Torfa en plata hennar, sem Hildur pródúseraði, Ein týnd og yf- irgefin, kom út í síðustu viku. Hild- ur starfar mikið með tónlistar- konum en nú er hún meðal annars að vinna að væntanlegum sum- arsmelli frá Þórunni Antoníu. Pródúsent Hildur er afar heilluð af pródúsentastarfinu sem er mjög skapandi. Hér er hún ásamt tíkinni sinni Uglu sem er sérlegur aðstoðarmaður Hildar. Heimur pródúsenta mjög karllægur Listakonan Hildur Kristín er ein af örfáum kven- pródúsentum á Íslandi og segir að lykillinn sé að fikta sig áfram. Hún hefur aðallega pródúserað fyr- ir konur og pródúseraði m.a. nýja plötu Unu Torfa sem kom út á dögunum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.