Morgunblaðið - 16.06.2022, Qupperneq 44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2022
Meistarakokkurinn Eyþór Rúnarsson lumar á mörgum góðum ráðum
fyrir lesendur enda flinkari en flestir í eldhúsinu. Hann heldur úti
skemmtilegri uppskriftasíðu sem kallast einfaldlega Eyþór kokkur og
kennir þar ýmissa gómsætra grasa.
Að sögn Eyþórs er ekki flókið að grilla en gott er að hafa nokkur
trix uppi í erminni og hér deilir hann með lesendum sínum bestu grillr-
áðum:
- Gott er að dýfa rósmarínstöngli í olíu og pensla kjötið með því.
- Setið heilt hvítauksrif á gaffal og nuddið kjötið eða fiskinn með því á
grillinu. Þá kemur milt og gott hvítlauksbragð.
- Hafið grillið heitt og hreint.
- Það er alltaf betra að velja grillkjöt með fitu.
- Gott að setja marineringu á kjöt strax eftir grillun.
- Láta allt kjöt hvíla í u.þ.b. 10 mínútur áður en það er borðað.
Eyþór gefur grillráð
4 hamborgarar
4 hamborgarabrauð
salt og pipar
1 stk. Dala-hringur frá MS
12 laukhringir, ofnbakaðir eða djúp-
steiktir
8 beikonsneiðar, stökkar
tómatsneiðar
súrar gúrkur
rauðlaukur skorinn í sneiðar
ferskt salat
majónes og bbq-sósa
Meðlæti:
franskar, t.d. vöfflufranskar
sýrður rjómi með graslauk og lauk
frá Gott í matinn, sem ídýfa fyrir
franskarnar
Aðferð:
Byrjið á því að taka hamborg-
arana úr kæli og krydda með salti
og pipar.
Steikið beikonið og djúpsteikið
eða ofnbakið laukhringina.
Hitið grillið mjög vel, setjið
borgarana á það og passið að loka
alltaf grillinu til að hitinn haldist
sem mestur.
Skerið Dala-hringinn þversum
þannig að hringurinn haldi sér.
Snúið við borgurunum og steikið
áfram, rétt áður en þeir eru klárir
setjið þið ostinn á og lokið grillinu.
Leyfið ostinum að bráðna vel en
samt án þess að hann leki út um
allt.
Hitið brauðin á grillinu rétt áður
en borgararnir eru tilbúnir.
Þá er bara að setja veisluna sam-
an: Botnbrauð, bbq-sósa, súrar
gúrkur, rauðlaukssneiðar, ham-
borgari, salat, tómatsneiðar, beik-
on, laukhringir, majónes á topp-
brauðið og loka. Ef þið eigið til
prjón eða grillpinna er upplagt að
stinga einum slíkum í hvern borg-
ara.
Borgararnir eru bestir með góð-
um frönskum, sem dýft er í sýrðan
rjóma með graslauk og lauk, og ís-
köldum drykk.
Lúxusborgari með
laukhringjum, beik-
oni og Dala-hring
Þessi útgáfa af grilluðum hamborgara er með þeim allra
bestu. Stórir borgarar, grillaðir á blússandi hita, og á milli
eru settir laukhringir og stökkt beikon. Hamborgarinn er
svo fullkomnaður með Dala-hring sem fer ofan á borg-
arana. Osturinn er skorinn þvert í sneiðar svo hringurinn
haldi sér og grillaður með síðustu sekúndurnar.
Löðrandi lúxus
Bræddur ostur er
ómissandi á góðan
borgara.
Það er ótrúlegt hvað það er einfalt en gott að
grilla ávexti. Hér býður Berglind Hreiðars upp á
einföld ávaxtaspjót sem tekur bókstaflega fimm
mínútur að undirbúa. Síðan eru spjótin grilluð í
tvær mínútur á hvorri hlið og eru þá tilbúin.
Bragðast einstaklega vel með bræddu súkkulaði,
þeyttum rjóma eða góðum ís.
Grilluð ávaxtaspjót með súkkulaði
Uppskrift dugar fyrir 5-6 spjót
½ ferskur ananas
3 ferskjur
15-20 Driscolls-jarðarber
50 g brætt dökkt súkkulaði
2 msk söxuð mynta
Skerið ananas og ferskjur í hæfilega stóra bita.
Raðið ananas, ferskjum og jarðarberjum til
skiptis upp á grillspjót.
Grillið á meðalheitu grilli í um tvær mínútur á
hvorri hlið.
Raðið á bakka og setjið brætt súkkulaði yfir
allt og saxaða myntu.
Grilluð ávaxta-
spjót með
súkkulaði
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Bráðnar í munni Grillaðir eftirréttir eru í miklu uppáhaldi hjá mörgum og spjót sem þessi eru afar fljótleg og ljúffeng.