Morgunblaðið - 16.06.2022, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2022
Kóngarækjurnar eru því algjörlega málið og
við getum mælt heilshugar með þeim.
Hér er búið að þræða þær upp á spjót
ásamt grænmeti, sem kom vel út. Fyrst voru
rækjurnar kryddaðar, síðan penslaðar með
heimagerðri dressingu. Hægt er að velja alls
konar grænmeti og athugið að ekki þarf að
grilla rækjurnar lengi. Við mælum með að
hafa grillið æpandi heitt áður en byrjað er að
grilla.
kóngarækjur
paprika
rauðlaukur
piccolo-tómatar
kúrbítur
SPG-krydd
Aðferð:
Kryddið rækjurnar með SPG-kryddinu.
Skerið grænmetið í fremur smáa bita.
Penslið rækjurnar með kryddleginum.
Þræðið upp á spjót eða pinna. Ef þið notið
trépinna þá er nauðsynlegt að leggja þá í
bleyti áður til að þeir brenni síður.
Grillið á háum hita í nokkrar mínútur.
Aðferð:
Rífið niður límónubörk, hvítlauksrif og
engifer. Mælieiningarnar hér eru svona
sirka og akkúrat. Hér er lykilatriðið að
smakka til og finna gott jafnvægi. Saxið
kóríander smátt og setjið saman við.
Bætið púðursykrinum við og kreistið saf-
ann úr límónunni saman við.
Að síðustu skal hella ólífuolíunni yfir og
hræra vel. Penslið á rækjurnar og brauð-
sneiðarnar.
Snúið reglulega og passið vel upp á pinnann.
Nauðynlegt er að hreinsa grillið vel áður og
olíubera grindina svo að maturinn festist ekki
við grillið.
Kryddlögur
hvítlauksrif
engifer
kóríander
límóna
púðursykur
ólífuolía
Risarækjurnar sem bragðast eins og humar
Hér kynnum við til sögunnar eina þá mestu snilld sem við höfum rekist á. Um er að ræða rauðar risakóngarækjur sem bragðast frábærlega.
Rækjur eiga það til að verða seigar við eldun en þessar voru einstaklega bragðgóðar og grilluðust afar vel. Hér er því kominn spennandi kostur
fyrir þá sem vilja gera vel við sig með ljúffengum sjávarréttum en verðið á humri hefur gert það að verkum að hann er orðinn argasti sparimatur.
Frábærar rækjur Rauðu kónga-
rækjurnar eru fullkomnar á grillið
og bragðast einstaklega vel.
Þau gleðitíðindi berast að nú sé hægt að fá dýrindis tomahawk-
steikur frá John Stone í öllum verslunum Hagkaups. Nautakjötið
frá John Stone er margverðlaunað og fékk meðal annars gull-
verðlaun í World Steak Challenge árin 2017, 2018 og 2019. Fjöldi
stjörnuprýddra veitingahúsa og hótela víða um heim býður að stað-
aldri upp á nautakjöt frá John Stone þar sem aldrei þarf að draga
gæði eða rekjanleika vörunnar í efa. Nautakjötið frá John Stone er
þurrmeyrnað (dry aged) í um það bil 30 daga. Allir vöðvar eru sér-
valdir úr fitusprengdum írskum nautgripum sem eingöngu hafa
verið fóðraðir á grasi og úr lausagöngu. Tomahawk-steikurnar eru
almennt 900 g til 1,3 kg að þyngd og þykja algjört sælgæti.
Verðlauna-
tomahawk-
steikur
StórsteikurTomahawk-
steikurnar þykja einn
besti bitinn á nautinu. Að
auki eru þær svo flottar.