Morgunblaðið - 16.06.2022, Page 48

Morgunblaðið - 16.06.2022, Page 48
48 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2022 ✝ Bylgja Eybjörg Stefánsdóttir fæddist á Húsavík 2. október 1951. Hún lést eftir bar- áttu við krabba- mein 7. júní 2022. Foreldrar henn- ar voru Stefán Benedikt Bene- diktsson, f. 1922, d. 2007, og Sig- urbjörg Sigvalda- dóttir, f. 1926, d. 2006. Systkini Bylgju eru Hanna, Sigrún, Stefán Sigurður, Guðný og Rúnar sem lést 1994. Bylgja giftist Alberti Sig- tryggssyni, þau slitu sam- Aniku Sif. Atli á úr fyrri sam- búð Arnrúnu Bylgju og Amelíu Ósk. Einnig á Bylgja þrjú barna- barnabörn. Bylgja ólst upp á Húsavík og gekk þar í skóla. Á Húsavík fór hún ung að vinna í fiski, ala upp börn og halda heimili. Árið 1977 flutti fjölskyldan á höfuð- borgarsvæðið og þar var unnið í fiski á daginn og skúrað á kvöldin. Einnig vann Bylgja í Bakarameistaranum í mörg ár og síðustu árin var hún ómiss- andi aðstoð í pítsunum hjá Atla syni sínum og Önnu. Bylgja átti marga vini á öllum aldri og átti hún sínar bestu stundir í góðra vina hópi. Útför Bylgju fer fram í Háteigskirkju í dag, 16. júní 2022, klukkan 13. Streymt verður frá útförinni: https://streyma.is/streymi/ Hlekkur á streymi: www.mbl.is/andlat vistum. Synir þeirra eru: 1) Sig- tryggur, giftur Ragnheiði Sóleyju Stefánsdóttur. Börn þeirra eru Stefán Atli, Rúna Eybjörg, Berta Sól- ey og Albert Einar. 2) Arnar, giftur Ingu Björgu Stef- ánsdóttur, saman eiga þau Heklu Kristrúnu Mist. Arnar á úr fyrri sambúð Bylgju Eybjörgu og Sóleyju. Inga Björg á úr fyrri sambúð Flóka og Viggó. 3) Atli Þór, giftur Önnu Ósk Ólafsdóttur, saman eiga þau Mamma, elsku kletturinn minn. Ég sakna þín strax, missir minn og okkar er mikill. Nóg er af minningum hjá okkur. Þegar við bjuggum á Langholtsvegi og þú vannst frá morgni til kvölds í fisknum í Granda og kvartaðir aldrei. Ég kom oft og heimsótti þig með strætó og fékk að hitta þig með svuntuna og hárnetið þitt, alltaf fékk ég faðmlag og svo þurftir þú að halda áfram í slorinu og ekkert væl. Gleymi aldrei þeg- ar þú baðst mig um að sjóða kart- öflur áður en þú komst heim eftir langa vakt. Ég setti ekki vatn í pottinn og auðvitað varð bruna- rúst í pottinum. Við höfum oft tal- að um þetta og alltaf segir mamma: hvernig áttir þú að vita það, enda bara átta ára. Mamma var alltaf snyrtipinni og þótti rosalega vænt um að koma heim eftir langan vinnudag þegar ég var búin að þurrka af, ryksuga og skúra heima á Langholtsvegin- um. Minningarnar eru margar. Það sem stendur upp úr er hjálp- semi þín við mig í gegnum árin, þinn ótrúlegi kraftur og hversu dugleg þú varst. Sannkallaður klettur og mín mesta fyrirmynd. Þú áttir marga vini á öllum aldri og allir sammála um að Bylgjan mín væri einstök. Reyndu nú að slaka á og njóta þarna uppi, besta mín. Sé þig seinna. Þinn Atli. Þung eru sporin og með mikilli sorg og trega kveð ég þig með hjartað fullt af þakklæti, elsku mamma mín. Nú þegar þinn hinsti dagur er liðinn rifjast upp ótal góðar minningar, stórar og smáar, sem ylja okkur um hjarta- rætur á þessum erfiðu tímum. Þú varst svo gjafmild og elsk- aðir að gleðja okkur, strákana þína. Áður fyrr vannstu myrkr- anna á milli til að halda heimili fyrir okkur en einhvern veginn tókst þér alltaf að gefa okkur veg- lega. Margar yndislegar minning- ar á ég með þér mamma mín, eins og þegar þú bauðst mér á tónleika með Bruce Springsteen í Dublin. Við áttum sameiginlega aðdáun á Brúsa og oft voru lögin Jersey Girl og The River blöstuð í botn á Langholtsveginum við litla hrifn- ingu Klemma á efri hæðinni. Það var alltaf hægt að leita til þín þegar lífið var erfitt. Nokkr- um sinnum atvikaðist það þannig að ég þurfti að snúa heim eftir að hafa flutt að heiman. Alltaf var ég velkominn og það var bara búið til pláss í litlu húsi, jafnvel með tvö börn meðferðis. Þú misstir ekki úr dag, með kvöldmatinn kláran handa okkur og standard skóla- nesti. Maltbrauð með hangikjöti eða osti klikkaði aldrei. Þú áttir ótrúlega gott og fallegt samband við barnabörnin, sem kölluðu þig alltaf ömmu Dreka. Þau eiga hafsjó af góðum minn- ingum frá tónleikum, leikhúsferð- um og öðru með þér. Þar var ávallt mikið spjallað og hlegið og alltaf lent í einhverjum ævintýr- um. Minningin, þegar þú komst til okkar þegar við bjuggum í Frakk- landi og þú lést ekkert stoppa þig. Gekkst um bæinn með barna- börnunum og pantaðir allt sem þú vildir á íslensku við mikla undrun afgreiðslufólksins og mikla kátínu krakkanna. Í nóvember í fyrra bauðst þú okkur bræðrum og mökum í ógleymanlega ferð til Köben í til- efni 70 ára afmælis þíns. Þar fór- um við á geggjaða veitingastaði, ískaldar skoðunarferðir og já þar var mikið hlegið, svo mikið að lá við brottvísun frá einum veitinga- staðnum. Hlátur þinn svo smit- andi að vonlaust var að taka ekki undir. Þó þú hafir ávallt verið spar- söm og farið vel með peninga, þá hafðir þú mikið dálæti á merkja- vörum og hönnunarvörum, þar var hvergi sparað. Lífskúnstner á því vel við þig á vissum sviðum og Gucci mun ég alltaf tengja við þig. Takk elsku mamma mín fyrir ferðalagið okkar saman, ég mun ætíð sakna þín. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Arnar (Addi). Það var dimmur janúardagur þegar við mamma gengum inn á heilsugæsluna og úrskurður rannsóknarinnar deginum áður lá fyrir. Svipbrigði og viðbrögð hennar voru engin. Hún vissi hvað þetta þýddi en hélt að hún fengi lengri tíma en raunin varð. Henni fannst betra að þetta kæmi fyrir hana en að þurfa að horfa á ein- hvern sér nákominn veikjast svona. Frá þessum degi vorum við bræðurnir, fjölskyldan og vinir hennar til staðar fyrir hana, allt þar til yfir lauk. Að alast upp hjá mömmu og pabba var gott. Ég fann fyrir ör- yggi, fannst ég heppinn. Þau áttu marga vini og var mikill samgang- ur á milli í þá daga. Útilegur og heimsóknir og alltaf fullt af fólki. Það var ekki mikið af peningum á heimili hennar eftir að þau skildu. Hún vissi og mundi vel alla tíð hvernig það var að geta ekki leyft sér neitt og þurfa að velta fyrir sér hverri krónu. Það gerði hún í ansi mörg ár en síðustu árin gat hún leyft sér hluti sem ekki voru áður í boði. Hún var orðin mikið fyrir ákveðin tískumerki og þá að- allega Gúggí eins og hún kallaði það. Heimili hennar var öllum op- ið, ættingjum og vinum sem vant- aði gistingu. Ekkert mál. Samband mitt við mömmu var oftast gott. Okkur leið best þegar við vorum tvö saman, þá var oft- ast talað um alvarleg mál og að sjálfsögðu gert grín að einhverju eða einhverjum og mikið hlegið. Líf okkar tikkaði oftast í takt og þótt stundum hafi hrikt í, þá fund- um við alltaf leiðina til baka. Þar leið okkur vel. Hún átti í ótrúlega fallegu sambandi við börnin mín. Þau áttu öll sitt sérstaka samband við ömmu sína. Oft ef eitthvað kom upp á hjá þeim var fyrst talað við ömmu. Hún hjálpaði þeim að leita ráða og þau treystu henni fyrir öllu. Mamma talaði oftast hreina og beina íslensku. Hún var alltaf ófeimin að segja sína skoðun, hvort sem fólki líkaði eða ekki. Áföll úr æsku fylgdu henni alla tíð og skildu eftir djúp sár á sál henn- ar. Hún reyndi síðustu 15 ár að vinna úr þeim málum. Henni var alltaf illa við alla hunda (nema Rebba) og hafði hún sinn svarta hund að draga, alla sína ævi. Ég sem er að kveðja hana í hinsta sinn í dag er henni þakk- látur fyrir lífið sem hún gaf mér. Frelsið í æskunni, endalaust traust og ást. Við áttum okkar bestu stundir í veikindunum þeg- ar við fórum saman í eftirlitsferðir í Sandgerði. Henni fannst kraftur náttúrunnar í öldunum og vind- inum ógnvænlegur. Hún upplifði sig sem lítið sandkorn inni í þessu öllu. Ég verð eilíflega þakklátur fyr- ir að hafa átt hana að í gegnum líf- ið. Það er stórt skarð höggvið í líf okkar. Hvíl í friði elsku mamma. Þinn Sigtryggur (Siddi). Í dag kveðjum við eina af mín- um allra uppáhalds. Elsku Bylgja, þau voru þung skrefin út af líkn- ardeildinni 7 júní. Þarna hafði ég komið og farið ótal sinnum en núna varst þú farin, dáin. Hvernig kveður maður í hinsta sinn mann- eskju sem hefur verið svo stór hluti af lífinu? Við höfðum oft tal- að um dauðann en þegar að hon- um kemur eru orðin fá. Þó að það séu bara 10 ár frá því að ég hitti þig fyrst þá finnst mér ég hafa þekkt þig alla ævi. Þú varst tengdamamma mín en þú varst líka svo miklu meira, þú varst trúnaðarvinkona mín og mér þótti svo vænt um þig og okk- ar samband. Við gátum rætt allt á milli himins og jarðar og ekkert var óviðeigandi. Við höfum hlegið mikið að skrautlegu lífi okkar þar sem við áttum ýmislegt sameig- inlegt en einnig gátum við rætt erfiðu hlutina og hjálpaðir þú mér mikið og fyrir það verð ég þér æv- inlega þakklát. Þú varst sú allra duglegasta, ósérhlífin, gjafmild og svo sterk. Ég græt það að Anika Sif fær ekki að hafa ömmu sína lengur hjá sér. En þið áttuð einstakt samband enda skildir þú kvíða- púkann betur en flestir og það veitti Aniku öruggi, amma skildi hana. Anika vildi helst að þú myndir gista hjá okkur í hverri viku en hún hafði einstaklega gaman af samræðum ykkar þar sem amman virtist hafa svör við öllum sjö þúsund spurningunum sem Anika bar upp. Arnrún og Amelía áttu svo margar góðar stundir með þér og munu sakna þess að fara í smá ömmudekur. Ég held að fáar ömmur eigi jafn dásamlegt samband við ömmu- börnin sín eins og þú áttir. Það var sama á hvaða aldri, þú náðir svo einstaklega vel til þeirra og þau treystu þér svo vel. Það var aðdáunarvert að sjá hvað þú áttir auðvelt með samskipti við unga fólkið hvort sem það voru þín ömmubörn, systkinabörn/ömmu- börn. Allir nutu þess að vera í ná- vist þinni. Sú minning sem situr ofarlega í huga mér er Köben-ferðin okkar í nóvember. Ég er svo þakklát fyrir þann tíma sem við áttum saman þar. Mikið hlegið og samveran svo góð. Fengum loksins að fara sam- an í merkjabúðirnar og vera með smá skvísulæti. Við deildum áhuga á hönnun og fallegum hlut- um og gátum alveg gleymt okkur í því. En auðvitað urðum við að fífl- ast aðeins líka og vá hvað við hlóg- um í hjólataxanum, bara alla leið upp á hótel, hefðum sennilega verið fljótari að labba. Elsku Bylgja mín, erfið er kveðjustundin. Minning þín mun lifa í hjarta mér um ókomna tíð. Ég sakna þín og elska þig, takk fyrir allt. Elsku Atli okkar hefur misst mikið og eins og við rædd- um þá mun ég passa upp á hann. Þangað til næst. Þín tengdadóttir, Anna. Nú er elsku amma mín dáin. Þegar ég fór til ömmu á Lokastíg- inn fékk ég alltaf pönnukökur og myndabingóið var alltaf á sama stað á borðinu. Við spiluðum svo og hún elskaði að draga spilið með bláu töskunni. Það var alltaf gam- an að koma til ömmu. Það síðasta sem ég sagði við ömmu var „góða nótt amma“ í gegnum FaceTime því hún var á líknardeildinni. Elsku amma mín, ég mun alltaf sakna þín. Þinn Albert Einar. Elsku amma okkar, við sökn- um þín strax og vildum að við fengjum að hafa þig aðeins lengur hjá okkur. En minning þín lifir hjá okkur. Allar sögurnar sem við bjuggum til áður en við fórum að sofa, allar verslunarferðirnar þar sem þú gjörsamlega dekraðir okkur í botn. Þegar við héldum tombólu á Lokastígnum, allir göngutúrarnir niður í bæ, allir rúntarnir, jólaboðin, áramótin sem við eyddum hjá ömmu kirkju, kvöldmatur á Búllunni og það má alls ekki gleyma lotteríkvöldun- um okkar. Amelíu fannst best í vinnunni hjá pabba, þar skamm- aðir þú hana alltaf þegar hún setti pítsusósuna vitlaust á pítsuna. Þú varst stór karakter og verður allt- af stór hluti af lífi okkar. Þú varst fyrirmynd margra og ekki vantaði upp á skvísulætin. Brosið þitt og hlátur gátu lýst upp allt og alla í kringum þig. Þú varst sterkasta manneskja sem við þekkjum og við erum endalaust stoltar af þér og því sem þú tókst þér fyrir hendur. Við eigum eftir að sakna morgnanna á Lokastíg þar sem við borðuðum morgunmat og hlógum að túristunum sem kíktu inn um gluggann og fórum í sunnudagaskólann. Við elskum þig og vonum að það fari vel um þig þarna uppi og við sjáumst seinna elsku amma. Fyrir þig amma Dreki. Þínar Arnrún Bylgja og Amelía Ósk. Elsku amma Bylgja eða amma dreki, eins og við barnabörnin kölluðum hana gjarnan, var algjör húmoristi og aldrei var leiðinlegt að vera í kringum hana. Hún gerði óspart grín að okkur systr- um þegar við vorum yngri, við gátum stundum orðið pirraðar á því en í seinni tíð höfum við hlegið mikið að þessu saman. Þrátt fyrir húmorinn gátum við alltaf rætt við hana um alvarlegri mál. Hún vildi alltaf vita hvað við höfðum fyrir stafni, vildi hjálpa til og gaf okkur góð ráð um framtíðina. Hún var dugleg að hrósa okkur og Bylgja Eybjörg Stefánsdóttir Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR ODDSSON tæknifræðingur, frá Ísafirði og Akureyri, lést laugardaginn 4. júní. Útförin fer fram í Digraneskirkju þriðjudaginn 21. júní klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Hrefna H. Hagalín Oddur Sigurðsson Guðbjörg Brá Gísladóttir Kristín Sig. Hagalín Einar Garðar Hjaltason Arna Sig. Hagalín Fjalar Sigurðarson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, ÞÓRA GRÉTARSDÓTTIR, Fossvegi 2, Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands föstudaginn 10. júní. Útför fer fram frá Selfosskirkju mánudaginn 20. júní klukkan 15. Sigurður Fannar Guðmundsson Þórunn Elfa Bjarkadóttir Guðmundur Bjarki Sigurðsson Þóra Björk Sigurðardóttir Elsku faðir okkar, tengdafaðir og afi, ELÍAS SKAFTASON múrari og garðyrkjumaður, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hinn 8. júní. Útför fer fram í Edinborgarhúsinu á Ísafirði hinn 22. júní klukkan 14. Skafti Elíasson Bára A. Elíasdóttir Arnbjörn E. Elíasson Ingi Þór Stefánsson Úlfur Júlíusson tengdabörn og barnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, LÁRA HALLA JÓHANNESDÓTTIR, Látraströnd 24, lést í faðmi fjölskyldunnar á hjúkrunar- heimilinu Seltjörn 9. júní. Útförin fer fram frá Seltjarnarneskirkju fimmtudaginn 23. júní klukkan 11. Páll Sigurðarson Sigurður Pálsson Alda Pálsdóttir Jóhannes Pálsson Hyeyoung Kim barnabörn og barnabarnabörn Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.