Morgunblaðið - 16.06.2022, Síða 49

Morgunblaðið - 16.06.2022, Síða 49
MINNINGAR 49 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2022 segja hversu stolt hún væri af okkur. Amma sagði alltaf sínar skoðanir og átti erfitt með að sykurhúða hlutina, því gátum við leitað til hennar þegar við vildum hreinskilni. Síðustu ár var amma dugleg að njóta lífsins. Við hittumst reglulega og gerðum eitthvað skemmtilegt saman, við kölluð- um okkur tríóið gjarnan skvís- urnar. Við fórum árlega á jóla- tónleika og vorum einnig duglegar að prufa veitingastaði bæjarins. Síðasta sumar gengum við um miðbæinn og var það amma sem vísaði veginn og sagði okkur sögur og dáðist að falleg- um byggingum. Það var svo ynd- islegt að fylgjast með hvernig hún sá alltaf það fallega í öllu. Miðbærinn var staðurinn hennar ömmu og naut hún sín vel á Lokastígnum, með allt mann- lífið fyrir utan gluggann hjá sér. Við systur minnumst þess að hafa setið í eldhúsinu hjá ömmu og horft með henni út um gluggann á fólkið sem gekk þar fram hjá og hlegið þegar fólk reyndi að gægjast inn um gluggann. Amma hafði alltaf mikinn áhuga á fólki, hún dæmdi aldrei neinn heldur dáðist að því þegar fólk var öðruvísi og fór út fyrir kassann. Hún var sjálf alveg eins, fór sínar eigin leiðir og pældi ekki í hvað öðrum fannst. Á Langholtsveginum áttum við marga notalega morgna sam- an, með nýbökuðu bakkelsi sem amma kom gjarnan með heim úr vinnunni. Á sunnudögum var horft á formúluna, þar héldu allir með sama liðinu nema amma, við nutum þess því að skjóta hvert á annað og gera grín að hinu liðinu. Elsku nágranninn á efri hæðinni er líka minnisstæður. Amma var með í fyrstu utan- landsferð okkar árið 1999. Eftir- minnilegast er þegar Sóley datt í sundlaugina og fékk lánaðar nærbuxur hjá vinkonu ömmu. Þetta fannst okkur mjög fyndið og var atvikið reglulega rifjað upp. Amma var dugleg að ferðast síðustu árin. Hún kunni reyndar ekki stakt orð í ensku og var þekkt fyrir að tala bara íslensku erlendis. Amma og Bylgja skelltu sér saman til Danmerkur eitt sumarið. Ákveðið var að skella sér í siglingu um Köben með leið- sögn, en fljótlega fóru að renna tvær grímur á Bylgju þegar í ljós kom að leiðsögnin væri á ensku og endaði hún á að þurfa að þýða allt. Elsku amma okkar, við sökn- um þín alveg óendanlega mikið en munum ylja okkur við allar þær fallegu minningar sem við eigum um þig. Við vitum að þú ert komin á góðan stað og ert vonandi að njóta með Rúnari þín- um, sem þú talaðir alltaf svo fal- lega um. Við munum halda áfram að gera þig stolta þar til við hitt- umst næst. Þín barnabörn, Bylgja og Sóley Arnarsdætur. Lífið er stundum svo sannar- lega ósanngjarnt. Elsku fallega amma mín, nú ert þú farin og ég sit hér ein eftir. Eftir stutt en mjög erfið veikindi, þar sem þú barðist eins og hetjan sem þú varst. Þú varst sú sem ég gat leit- að til ef lífið fór á hvolf. Ef mig langaði til að hlæja þangað til ég fengi krampa eða bara til að fá knús. Ef við hringdum þá töluð- um við klukkutímunum saman. Þú varst manneskjan sem mér fannst skilja mig best og ég gat treyst þér fyrir öllu. Þú varst fyndnust allra og ég veit að allir sem þekktu þig segja það sama. Ég mun halda áfram að vera Kæja eins og þú kallaðir mig og láta heyra í mér. Ég get ekki hugsað mér lífið án þín, það verð- ur ekki eins. Ég mun hugsa til þín á hverjum degi, alltaf. Þú varst allur alheimurinn og svo miklu meira en það, lífið verð- ur litlaust án þín elsku besta amma mín. Fljúgðu hátt fallegasti engill- inn minn. Þín Berta Sóley (Besó). Hlátur, gleði og sprell – það var Bylgja systir mín. Það sem ég er þakklát fyrir all- ar þær samverustundir þar sem gleðin var við völd og hvað þessi húmor hennar hjálpaði oft á erf- iðum stundum, t.d. í banalegu Rúnars bróður okkar. Þar tóku þau systkinin völdin og ákváðu að hafa þetta skemmtilegt sumar þrátt fyrir allt. Ég á eftir að sakna að hringja í Bylgju mína, hittast og hlæja saman. Mér þótti líka vænt um að hún tjáði sig um endalokin sem fram undan voru… og mikið rétt, við gátum líka séð gleði og þakklæti í því sem koma skyldi. Ég veit að nú ert þú komin HEIM, elsku systir mín, umvafin fjölskyldu og vinum. Elsku Siddi minn, Addi, Atli og ykkar fjölskyldur. Sorgin og gleðin haldast í hendur. Við erum með ykkur í huga og hjarta hér í Aarhus í DK. Guð blessi minn- ingu mömmu ykkar sem okkur öllum þótti svo vænt um. Kærleikskveðjur, Guðný systir og Agnar. Elsku Bylgja föðursystir mín er látin, einstök að svo mörgu leyti og í miklu uppáhaldi hjá mér og minni fjölskyldu. Man þegar þú skrifaðir í litabókina mína þar sem við vinkonurnar á Húsavík lituðum myndir og skrifuðum nafnið okkar og aldur, þú litaðir mynd og skrifaðir „Bylgja 37 ára“. Ég man enn eftir þessu og fannst þetta svo skondið. Lang- holtsvegurinn þegar þú bjóst þar og búðarleikurinn sem ég fór í við þig gegnum eldhúsgluggann ómetanlegar minningar. Þú varst heldur ekki að hugsa hlutina mik- ið. Eitthvert árið varstu hjá okk- ur í Sólbrekkunni á Húsavík í heimsókn, ég var á þessum tíma að bera út dagblaðið Dag og eins og svo oft varstu vöknuð fyrir all- ar aldir. Blöðin voru mætt, þú fannst til listann og ákvaðst að bera út blöðin með appelsínugul- ustu Dags-töskunni, sem ég not- aði aldrei því hún var svo hræði- lega appelsínugul! Við hlógum mikið að þessu uppátæki þínu, bæði að hafa farið með blöðin og notað töskuna, fyrir utan það að blaðið hafði aldrei komið jafn snemma til áskrifenda! Þú varst mikill húmoristi og gerðir öll boð og veislur skemmtilegri með nærveru þinni, hversu oft hef ég grenjað úr hlátri með þér að Heilsubælinu, Fóstbræðrum og öðru. Elskaðir mat og gaman að bjóða þér í mat, síðast komstu til okkar í Hálsaþingið í pistasíu- þorskhnakka með sætkartöflu- mús í september, við ætluðum alltaf að fá þig aftur, því miður náðist það ekki en ég mun alltaf hugsa til þín þegar ég elda þenn- an veislumat eins og þú kallaðir hann, eins þegar ég borða siginn fisk því hann var í uppáhaldi hjá þér. Það var gaman að umgang- ast þig og gott að tala við þig, þú hafðir þann eiginleika að ná öllum og geta talað við alla, frá krökk- um og alveg upp í eldra fólk. Þegar ég hugsa um þig Bylgja er svo margt sem kemur upp í hugann og fær mig til að brosa: Púrra, Dreki, setja undir hnífap- ara, borða upp í gjöfina, ég bakka alltaf inn, Gucci-grænn, manstu þegar þú settir íbúðina þína á sölu í haust og ég tók strax eftir upp- stillingunni á rétta veskinu? Æi þú varst svo mikill snillingur og gaman að fíflast með þér. Síðustu tvö ár fórum við á Apótekið á að- ventunni á „Afternoon tea“, með mömmu minni og síðast líka með Önnu tengdadóttur þinni, ég mun halda því áfram og hugsa um þig. Í janúar síðastliðnum hringd- irðu í mig og baðst mig að taka íbúðina þína í gegn, sagðir að ég myndi aldrei þora segja nei við veika manneskju og hlóst svo eins og þér einni var lagið. Ég vildi að þú hefðir talað við mig fyrr, eins og þú sagðir að þig hefði langað að gera lengi en ekki „þorað“. En mikið sem þetta var skemmtilegt, þó svo að þú hafir verið orðin veik og gætir ekki notið nýju hlutanna lengi. En ég hló með þér, hvað mér fannst gaman að fara í búðir og þurfa ekkert að kíkja undir hvað neitt kostaði. Þetta var okk- ar síðasti búðarleikur eins og á Langholtsveginum. Elsku Púrra mín, eins og við í Sólbrekkunni kölluðum þig alltaf, þú varst einstök og gafst lífinu lit, ég á eftir að sakna þín mikið. Hafðu það gott í blómabrekkunni þinni: „Lifðu í lukku en ekki krukku.“ Þín Sigurbjörg. Fyrir mörgum eru ömmusyst- ur gjarnan gamlar konur sem maður tengist ekkert sérstaklega sterkum böndum. Í tilfelli okkar Bylgju, ömmusystur minnar, varð raunin önnur. Við tengd- umst traustum tryggða- og vin- áttuböndum fyrir rúmum áratug. Bylgja var í senn afskaplega kærleiksrík og góð og átti hún auðvelt með að sýna okkur mæðginum væntumþykju sína. Hún var dugleg og ósérhlífin og gædd mikilli víðsýni. Hún náði að setja sig í spor flestra, og sá á ein- faldan hátt hlutina út frá víðara samhengi. Bylgja var réttsýn og ófeimin við að láta skoðanir sínar í ljós, en á sama tíma óspör á að láta vita af því sem henni þótti vel gert eða hún sá ástæðu til að hrósa fyrir. Þannig minnist ég kærrar ömmusystur minnar. Hún var okkur mæðginum svo góð, enda var ekki farin ferð í höf- uðborgina sl. áratug án þess að hittast. Það var alltaf gaman, húmorinn og gleðin voru við völd og ýmislegt brallað. Minnisstæð- ur er njósnaleiðangur okkar um Þingholtin, samverustundir sum- arið ’16 þegar við pabbi vorum stödd í Reykjavík og hann í geislameðferð. Yndislegar stund- ir áttum við mæðgin svo í sum- arbústað í Húsafelli þegar Bylgja kom og dvaldi með okkur þar eina nótt, hún vöknuð fyrir allar aldir til að bruna af stað aftur heim, svo stressandi að keyra í gegnum Hvalfjarðargöngin, best að klára það af. Missir margra er mikill með fráfalli Bylgju. Þvílíkt lán að hafa fengið að njóta samveru hennar og kærleika. Það verður aldrei tekið frá okkur. Ég þykist vita að vel hafi verið tekið á móti henni í Sumarlandinu. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir). Elsku frændur mínir, Siddi, Addi og Atli, og fjölskyldur ykk- ar. Minning yndislegrar móður, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu mun lifa í hjarta allra sem fengu hennar nærveru notið. Guð styrki ykkur og umvefji í sorg- inni. Hanna Jóna Stefánsdóttir. Fimm ára hnáta horfir aðdá- unaraugum á fallega og glæsilega stúlku tæpra sautján ára, þá ófríska að sínu fyrsta barni. Svo- leiðis voru mín fyrstu kynni af Bylgju, en hún var þá trúlofuð frænda mínum sem síðar varð eiginmaður hennar. Á meðan þau bjuggu á Húsavík var ég tíður gestur á heimili þeirra, enda var ég með eindæmum „sjúk“ í lítil börn og gat setið tímunum saman og horft á eldri bræðurna Sig- trygg og Arnar, litla hvítvoðunga í vöggunni sinni og síðar leikið við þá á gólfinu. Ég undrast þolin- mæði Bylgju að nenna að hafa mig alltaf hangandi yfir sér á þessum árum. En svo eltist ég og strákarnir stækkuðu og þá kom ég að góðum notum sem barnapía, en ég vissi fátt skemmtilegra á þeim tíma en að fá að passa þá bræður. Svo flutti fjölskyldan til Reykjavíkur og þegar ég kom þangað sem ung- lingur í framhaldsskóla naut ég góðmennsku Bylgju minnar og var áfram tíður gestur hjá henni. Yngsti sonurinn Atli Þór var þá fæddur og hafði ég einstaklega gaman af að fá að kynnast honum líka. Eftir Reykjavíkurdvölina mína breyttust fjölskylduhagir Bylgju og ég stofnaði fjölskyldu fyrir norðan, þá liðu nokkur ár þar sem lítil samskipti voru okkar á milli. Eftir að ég flutti suður heimsótti ég Bylgju og þá var allt eins og áður, sama vináttan og áttum við einstaklega skemmtilegar sam- verustundir þar sem við gátum talað um allt milli himins og jarð- ar. Sýndum hvor annarri skilning á þeim verkefnum sem lífið hafði fært okkur og fann ég alltaf fyrir miklum kærleika frá henni. Bylgju var líka mikið í mun að við frændsystkinin ræktuðum sam- band okkar þó svo hún og frændi minn hafi skilið að skiptum. Fyrir sjö árum fór Elín dóttir mín að vinna hjá Atla syni Bylgju en þá vann hún þar líka, og er skemmtilegt að segja frá því að milli Elínar og Bylgju myndaðist fljótt kær vinskapur og skipti þá engu aldursmunurinn frekar en þegar ég kynntist henni fyrst. Sumarið 2019 fórum við Bylgja saman í ógleymanalegt ferðaleg til Tallinn og Pétursborgar og var alltaf meiningin að ferðast meira síðar, en sú ferð verður farin á öðru tilverustigi. Bylgja reyndist okkur mæðg- um einstaklega vel og eftir að við fluttum norður stóð okkur alltaf til boða að gista hjá henni á Loka- stígnum ef við áttum erindi í höf- uðborgina. Síðasta haust fékk El- ín að dvelja hjá henni í mánuð á meðan hún beið eftir leiguíbúð. Var þetta einstaklega góður tími og brölluðu þær vinkonurnar margt saman, mikið hlegið og mikið skrafað. Elsku Bylgja okkar, hafðu þökk fyrir vináttuna og kærleik- ann sem við mæðgur nutum frá þér. Kæru bræður Siddi, Addi, Atli og fjölskyldur, innilegar sam- úðarkveðjur til ykkar allra frá okkur. Missir ykkar er mikill. Anna Sigríður Jóns- dóttir (Anna Sigga), Elín Björg Eyjólfs- dóttir. Elsku vinkona. Nú ertu farin í draumalandið eftir erfið veikindi. Leiðir okkar lágu saman fyrir margt löngu síðan en það var mín gæfa að kynnast þér því þá eign- aðist ég mína bestu vinkonu. Þú varst einstök og var aldrei lognmolla í kring um þig. Hlátur þinn og gleði smitaði út frá sér ásamt hlýju og góðvild. Ég kveð þig með söknuði elsku vinkona, sakna samtala okkar og samveru. Minning þín mun lifa í hjarta mínu. Sonum þínum og fjölskyldum, ættingjum og vinum sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Ólöf Friðfinnsdóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts okkar ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, LILJU GUÐRÚNAR EIRÍKSDÓTTUR, Grænlandsleið 53, sem lést þriðjudaginn 24. maí. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Maríuhúss og hjúkrunarheimilisins Eirar fyrir yndislega alúð og umönnun. Viðar Þorsteinsson Baldvin Viðarsson Kjartan Viðarsson Kristín V. Samúelsdóttir Lilja Viðarsdóttir Skúli Magnússon Anna Viðarsdóttir Jón Aðalsteinn Hinriksson Helgi Viðarsson Magdalena M. Stefaniak barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, LILJA GUÐMUNDSDÓTTIR, Prestastíg 8, lést á líknardeild Landspítalans föstu- daginn 10. júní. Útför hennar fer fram í Guðríðarkirkju þriðjudaginn 21. júní klukkan 15. Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar fyrir góða umönnun. Jóhannes Björnsson Gyða Björnsdóttir Sigurður Gunnarsson Bragi Björnsson Bryndís Harðardóttir Björn Þór Björnsson barnabörn, makar og barnabarnabörn Ástkær sambýliskona, móðir, amma og langamma, JÓNA KARITAS JAKOBSDÓTTIR, lést á Landspítalanum aðfaranótt fimmtudags 9. júní. Útförin fer fram í Kópavogskirkju fimmtudaginn 23. júní klukkan 13. Jón Norðfjörð Gíslason Þóra B. Árnadóttir Jónas Þ. Guðmundsson Sverrir Árnason Linda Björk Þormóðsdóttir Birgir R. Árnason Sigurdís Jónsdóttir Haukur Árnason Hafdís E. Jónudóttir barnabörn og barnabarnabörn Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, PÁLMA GUÐMUNDSSONAR bifreiðastjóra, Hringbraut 52, Keflavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks D-deildar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja fyrir hlýju og góða umönnun. Ingibjörg Pálmadóttir Axel Gísli Sigurbjörnsson Jón Ágúst Pálmason Guðmundur Pálmason Kristinn Már Pálmason Ólöf Thoroddsen Sigurður Óli Pálmason Laura Rasmussen barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, RÓSA BACHMANN JÓNSDÓTTIR frá Mjóanesi, lést á Sjúkrahúsinu á Selfossi þriðjudaginn 14. júní. Útförin fer fram frá Selfosskirkju mánudaginn 27. júní klukkan 14. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Jóhann Jónsson Lýður Valgeir Lárusson Þorvarður Lárusson Hólmfríður A. Aðalsteinsdóttir Oddur Jóhannsson Guðrún Valdimarsdóttir Trausti Jóhannsson Kristín Birna Bragadóttir Júlíana K. Jóhannsdóttir Dagur Bjarki Sigurðsson Elías Bergmann Jóhannsson og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.