Morgunblaðið - 16.06.2022, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 16.06.2022, Qupperneq 56
56 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2022 40 ÁRA Gísli er Akureyringur en flutti á Seltjarnarnes og býr þar í dag. Hann er með MA-gráðu í fjármálum fyrirtækja frá Há- skóla Íslands og starfar í dag sem forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Sýn hf. „Áhugamál mín eru utanvegahlaup, gönguskíði og svo hef ég einnig spilað á mandólín.“ FJÖLSKYLDA Maki Gísla er Xi- aochen Tian, f. 1986. Sonur Gísla úr fyrra sambandi er Askur Ey- land, f. 2010, og dóttir Gísla og Xi- aochen er Nína Eyland, f. 2022. Foreldrar Gísla eru Einar Eyland, f. 1961, svæðisstjóri hjá N1, og Svanhvít Halla Sighvatsdóttir, f. 1961, starfsmaður hjá Reykjavík- urborg. Gísli Eyland Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Hugsanlegt er að þú lendir í útistöðum í dag enda finnst þér sumir bæði hrokafullir og einstrengingslegir í viðmóti. Sinntu vinnunni í einrúmi, ef þú mögulega getur. 20. apríl - 20. maí + Naut Þú gantast með að það séu vissir hlutir sem þú vilt alls ekki vita. Gerðu hvaðeina sem gerir þér kleift að tjá sköpunargleði þína. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þetta er ekki rétti tíminn til að skapa ný tækifæri í vinnunni. Ástin sigrar allt. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Eitthvað skrýtið hendir í vinnunni. Þú ert rétta manneskjan til þess að sameina stríðandi fylkingar. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú hefur verið ein/n á báti of lengi og ættir að finna þér félagsskap við fyrsta tækifæri. Þú færð skilaboð sem breyta ýmsu. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þú hefur haft áhyggjur upp á síðkastið sem er alger óþarfi. Þér finnst þú bundin/n í báða skó þessar vik- urnar. 23. sept. - 22. okt. k Vog Hurð skellur nærri hælum í um- ferðinni í dag. Þú hittir naglann á höf- uðið í vissu máli. Einhver kemur við kvikuna í þér. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Taktu því sem að höndum ber með kímnina að vopni. Það er mikill gangur í framkvæmdum sem þú stend- ur í. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Ekki skuldbinda þig til eins eða neins næstu daga. Þú verður að fara að læra að segja nei. Gæfuhjólið snýst þér í hag. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þú vildir gjarnan geta snúið hjóli tímans til baka. Þú dettur í dag- drauma. Ekki veðja öllu á einn hest. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Einhver gamall kunningi læt- ur í sér heyra og skilaboðin koma róti á hug þinn. Þú gerir góðverk í dag án þess að vita það. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Hugmyndir þínar njóta meiri stuðnings en þú áleist í upphafi. Ferða- lög eiga hug þinn núna. Léttu á hjarta þínu við góðan vin. Eitt ánægjulegasta verkefni sem ég hef tekið þátt í var úrlausn sli- tabúanna árið 2015 og losun fjár- magnshafta í framhaldi af því. Þar var á ferðinni einstök samvinna framkvæmdahóps, ráðherra, ráðu- neyta og Seðlabanka. Þar var djarft teflt, setið undir hótunum og nið- urstaðan var aldrei gefin þó sumir hafi síðar reynt að halda öðru fram. Eftir úrlausn slitabúanna fékk ég fljótlega skeyti frá Yannis Varoufak- is, sem þá var fjármálaráðherra Grikklands, en hann bauð mér að setjast í stjórn grísku bankasýsl- unnar og þar sat ég til ársins 2019. og krefjandi tímar. Ég tel að það starf sem unnið var í bankanum bæði fyrir og eftir bankahrunið sé krafta- verki líkast. Þó að mikið hafi verið ritað um þetta tímabil hef ég enn ekki séð opinberlega raunsanna greiningu á því sem sannarlega gerð- ist. Hugsanlega fer að vera liðinn nægilega langur tími frá atburðunum til að einhver geti fjallað um þá hlut- laust. Í þessu sambandi má minna á fræga sögu af samtali Zhou Enlai og Kissingers fyrir 50 árum þar sem Zhou taldi enn of snemmt að leggja mat á frönsku byltinguna þótt nær 200 ár væru liðin frá henni. J ón Þorvarður Sigurgeirsson er fæddur 16. júní 1962 í Reykjavík og bjó fyrstu ár- in í Hlíðunum. „Fjöl- skyldan flutti til Banda- ríkjanna þegar ég var enn barn og þegar ég kom heim aftur 10 ára fór lítið fyrir íslenskunni hjá mér. Ég náði þó fljótlega tökum á tungumál- inu og þakka ég það meðal annars frábærum kennurum og samnem- endum í Hlíðaskóla. Eftir grunnskóla var ferðinni heit- ið í Menntaskólann við Hamrahlíð sem á þeim tíma var mjög róttækur, en líflegur skóli. Þar var beðið milli vonar og ótta hvort kæmi fyrr, atóm- sprengja á Miðnesheiði með tilheyr- andi tortímingu eða hin sanna bylt- ing öreiganna. Ég bíð reyndar enn eftir svari við þeirri spurningu. Í uppreisn gegn marxískri innrætingu menntaskólaáranna ákvað ég að fara í viðskiptafræði við Háskóla Íslands að loknu stúdentspróf árið 1982. Þar naut ég frábærra kennara, t.d. Gylfa Þ. Gíslasonar sem var á þeim tíma að hætta störfum sem prófessor. Ég bý mjög vel að því að eiga góðan og fjöl- breyttan vinahóp úr skólagöngu minni.“ Jón var viðloðandi Seðlabankann um langt skeið, en hann hóf þar störf á sviði fjármála strax að loknu námi. Árið 1997 fluttu þau hjónin tíma- bundið til Hong Kong. „Þetta var merkilegt ár í sögunni þar sem Kín- verjar tóku Hong Kong yfir og Asíukreppan reið yfir.“ Fljótlega eftir dvölina í Hong Kong bauðst Jóni að fara sem aðstoðarmaður finnsks fram- kvæmdastjóra hjá Alþjóðagjald- eyrissjóðnum (AGS) í Washington og hófst þá rúmlega 20 ára þráður við (AGS), en hann kom aftur heim til starfa sem framkvæmdastjóri alþjóðasviðs og erlendra viðskipta hjá Seðlabanka Íslands árið 2002. Árið 2006 fór Jón aftur til Wash- ington og þá í starf aðstoðarfram- kvæmdastjóra á skrifstofu Norður- landa og Eystrasaltslandanna hjá AGS. „Þegar fjármálakreppunnar fór að verða vart á árinu 2008 hélt ég aftur í bankann sem framkvæmda- stjóri skrifstofu bankastjóra og ritari bankaráðs. Í hönd fóru lærdómsríkir Stjórnin í Grikklandi var mjög rót- tæk á þessum tíma og komu byltingarfrasar menntaskólaáranna þá að góðum notum. Efnahagsleg staða Grikklands er enn flókin, en vandanum þar var slegið á frest með skuldsetningu, sem er einmitt það sem Ísland náði að forðast. Án þess að gert sé lítið úr áhrifum banka- kreppunnar á hinn almenna borgara á Íslandi, er mikilvægt að árétta það að AGS mat það svo á árinu 2016 að hið opinbera hefði komið réttum megin við strikið út úr bankakrepp- unni sem nemur um 9% af landsfram- leiðslu.“ Á árinu 2019 hóf Jón aftur störf í stjórn AGS en kom heim í febrúar á þessu ári og hefur frá þeim tíma verið efnahagsráðgjafi hjá menningar- og viðskiptaráðherra. Á síðari árum hef- ur hann jafnframt einbeitt sér að fjöl- breyttum stjórnarstörfum. „Ég kynntist Lín Wei, konunni minni, árið 1988. Hún kom hingað til starfa sem fiðluleikari með Sinfóníu- hljómsveitinni og þegar við bjuggum í Washington DC spilaði hún með sin- fóníuhljómsveitinni í Baltimore. For- eldrar hennar voru báðir prófessorar við tónlistarakademíuna í Beijing og þvi ekki furða að tvíburadætur okkar hafa báðar lagt stund á tónlist. Lauf- ey fór í nám til Berklee í Boston og starfar í LA sem tónlistarmaður. Júnía hélt til náms í alþjóða- samskiptum til St Andrews í Skot- landi og virðist ætla að feta í mín fót- spor og er að hefja störf í fjármála- geiranum í London.“ Jón hélt upp á afmælið sitt í St Andrews, við útskrift Jón Þ. Sigurgeirsson, efnahagsráðgjafi og fyrrverandi framkvæmdastjóri – 60 ára Fjölskyldan Við útskrift Júníu frá St Andrews-háskólanum 14. júní sl. Lætur langþráðan draum rætast Ánægjulegt verkefni Framkvæmdahópurinn um afnám hafta að lokinni kynningu fjármálaráðherrra og seðlabankastjóra. Í Washington Tekið á móti Kristal- inu Georgievu á fyrsta degi hennar í framkvæmdastjórn AGS. Til hamingju með daginn Neskaupstaður Hjördís Óla Moritz Þorgrímsdóttir fæddist 28. septem- ber 2021. Hún vó 4.135 g og var 55 cm löng. Foreldrar hennar eru Bríet Ósk Moritz og Þorgrímur Jóhann Halldórsson. Nýr borgari Fagfólk STOÐAR veitir nánari upplýsingar og ráðgjöf Trönuhrauni 8 | s. 565 2885 | stod.is K design Léttu þér lífið með hágæða ítalskri hönnun Sturtustóll með baki og örmum Stöðugur og vandaður sturtustóll með góða burðargetu. Hæðarstillanlegir fætur. Verð: 22.890,- Í samningi við Sjúkratryggingar Íslands Nettur sturtukollur Hentar vel í litla sturtuklefa. Hæðarstillanlegir fætur. Verð: 9.890.- Í samningi við Sjúkratryggingar Íslands
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.