Morgunblaðið - 16.06.2022, Síða 59
ÍÞRÓTTIR 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2022
Ljósmynd/Auður Sigbergsdóttir
Íslandsmeistari Thelma Aðalsteinsdóttir leikur listir sínar á Íslandsmótinu í áhaldafimleikum í Versölum þar sem hún varð Íslandsmeistari.
FIMLEIKAR
Jökull Þorkelsson
jokull@mbl.is
„Þetta var allt mjög óvænt,“ sagði
Thelma Aðalsteinsdóttir úr Gerplu,
Íslandsmeistari í fjölþraut í áhalda-
fimleikum, í samtali við Morgun-
blaðið. Mótið fór fram um síðustu
helgi í Versölum, heimavelli Gerplu,
og var keppt á fjórum áhöldum.
Thelma fékk silfur í þremur af fjór-
um áhöldunum sem landaði henni
Íslandsmeistaratitlinum með 47.650
stig. Þetta er fyrsti Íslandsmeist-
aratitill Thelmu en hún er 21 árs
gömul.
„Þetta var allt mjög óvænt, ég
mætti bara til að gera mitt besta
þar sem ég er að koma til baka úr
bakmeiðslum. Stefnan var í raun og
veru bara að standast fjögur áhöld.
Ég myndi ekki segja alveg, en mér
var nokkuð sama hvernig niður-
staðan kæmi út. Það sem ég ein-
blínti frekar á var að gera mitt og
standast áhöldin. Það var samt
mjög gaman að enda sem sigurveg-
ari.“
Aðspurð út í ferlið sagði Thelma:
„Vinnuferlið er búið að vera rosa-
lega langt, ég er búin að vera að
mæta tvisvar á dag þegar ég hef
tíma. Þá geri ég sjúkraþjálfara-
æfingar fyrir hádegi, svo að bakið
sé í lagi, og fer svo á fimleikaæfingu
seinni partinn. Æfingaálagið er að-
eins meira þegar stórmót nálgast.
Við erum alltaf frá klukkan fjögur
til átta og það er meira af heilum
æfingum á þessum tíma. Þær byrja
þremur vikum fyrir mót, þannig að
við púslum þessu svona saman.“
Klúðraði á uppáhaldsáhaldinu
Eins og áður kom fram endaði
Thelma í öðru sæti í þremur af fjór-
um áhöldum en það var á slá, tvíslá
og á gólfi. Blaðamaður Morgun-
blaðsins spurði Thelmu hvort hún
ætti uppáhaldsáhald:
„Tvísláin er helsta og uppáhalds-
áhaldið mitt, ég klúðraði reyndar
smávegis á henni á mótinu og klúðr-
aði einnig örlítið á slá, sem er svona
mitt næststerkasta áhald. Gólfið var
hins vegar mjög gott, sérstaklega
miðað við mína getu þar,“ sagði
Thelma.
Hver er draumurinn og hvert er
framhaldið?
„Það var alltaf draumurinn síðan
ég var krakki að komast á Ólympíu-
leikana. Ég ætlaði að fara á þá í
Tókýó árið 2020 en svo meiddist ég
í bakinu og það frestaðist aðeins.
Við sjáum hvernig bakið verður en
annars eru Ólympíuleikarnir í París
2024 alltaf draumurinn. En í náinni
framtíð stefni ég á Norðurlanda-
mótið og markmiðið er að komast í
úrslit í tvíslá og mögulega slá líka
þar. Svo er Evrópumótið í ágúst og
ég stefni einnig á það, þannig að það
er nóg fram undan.“
Fór eingöngu í göngutúra
Eins og áður hefur verið nefnt
meiddist Thelma í bakinu árið 2019
og hún útskýrði aðeins þau meiðsli
fyrir undirrituðum.
„Ég fékk útbungun í bakið vegna
álags árið 2019 og síðan varð það
verra og verra og var verst árið
2020. Þá fór ég i myndatöku og þar
sást að ég væri með útbungun neð-
arlega i bakinu. Ég byrjaði þá að
taka pásu frá fimleikum í átta vikur
og fór eingöngu í göngutúra á dag-
inn og gerði sjúkraþjálfaraæfingar.
Skóli, fimleikar og snemma að
sofa
Meiðslin fóru að skána sumarið
2021 og þá byrjaði ég að geta hopp-
að aðeins og síðan prófaði ég mig
áfram, sem gekk. Ég er enn þann
dag í dag að fá bakverki, sumir dag-
ar eru betri en aðrir en ég geri
sjúkraþjálfaraæfingar að minnsta
kosti tvisvar-þrisvar í viku til að
halda bakinu góðu.
Á milli desember 2021 og janúar
2022 gat ég farið að æfa almennilega
og hef gert síðan.“
Thelma stundar ekki einungis fim-
leika heldur er hún nýbúin að ljúka
sínu fyrsta ári af þremur í BS-námi
í lyfjafræði við Háskóla Íslands.
Fyrir það lauk Thelma námi við
Fjölbrautaskólann í Garðabæ. Að-
spurð hvernig hún blandar þessu
tvennu saman sagði Thelma:
„Það var afskaplega mikið álag
fyrsta árið mitt í háskólanum, og þá
sérstaklega fyrstu önnina. Þannig
að í fimleikum tók ég mínar æfingar
og þrekið og fór síðan heim að
læra.“
Þannig að það var lítill tími fyrir
aðra hluti?
„Já, mjög lítill, það var bara skóli,
fimleikar og fara snemma að sofa.“
Framtíðin ræðst á bakinu
Var einfaldara að höndla álagið á
meðan þú varst í menntaskóla?
„Já, mun auðveldara. Ég raðaði
þessu þannig að ég tók mennta-
skólann á fjórum árum og fjórum
mánuðum. Þannig náði ég að fara út
að keppa og svoleiðis.“
Ljóst er að það er mikið um að
velja fyrir Thelmu í framtíðinni og
ekki alveg ljóst hvar framtíðin ligg-
ur.
„Framtíðin miðast öll við hvernig
bakið verður. Ef það er í lagi þá
held ég áfram í fimleikum en annars
ekki. Ég verð hins vegar með lyfja-
fræðina úr HÍ, ég tek hana með
mér inn í framtíðina,“ sagði Thelma
að lokum.
Var allt mjög óvænt
- Thelma Íslandsmeistari í fyrsta skipti - Fékk silfur í þremur af fjórum áhöld-
um - Nóg að gera á nokkrum vígstöðvum - Dreymir um Ólympíuleikana
Knattspyrnumaðurinn Alfreð Finn-
bogason mun yfirgefa þýska félagið
Augsburg þegar samningur hans
við félagið rennur út um mánaða-
mótin. Alfreð hefur mikið glímt við
meiðsli að undanförnu og lék að-
eins tíu leiki með Augsburg á síð-
ustu leiktíð og skoraði tvö mörk.
Hann skoraði alls 37 mörk í 112
deildarleikjum með Augsburg í
þýsku 1. deildinni. Alfreð hefur
leikið 61 A-landsleik og skorað í
þeim 15 mörk. Framherjinn skoraði
fyrsta mark Íslands á HM í Rúss-
landi 2018, gegn Argentínu.
Alfreð yfirgefur
Augsburg
Ljósmynd/Szilvia Micheller
Farinn Alfreð Finnbogason er far-
inn frá þýska félaginu Augsburg.
Ólafur Andrés Guðmundsson,
landsliðsmaður Íslands í handbolta,
hefur samið við svissneska félagið
Zürich. Hann kemur til félagsins
frá Montpellier í Frakklandi. Ólaf-
ur, sem er 32 ára, glímdi við þrálát
meiðsli hjá Montpellier og gat því
lítið beitt sér. Skyttan hefur áður
leikið með Kristianstad, Hannover-
Burgdorf, Nordsjælland, AG Kaup-
mannahöfn og uppeldisfélaginu
FH.
Harpa Rut Jónsdóttir og Sunna
Guðrún Pétursdóttir gengu á dög-
unum í kvennalið Zürich.
Ólafur í sviss-
nesku deildina
Ljósmynd/Szilvia Micheller
Sviss Ólafur Andrés Guðmundsson
er kominn til Sviss frá Frakklandi.
Vert er að velta því fyrir sér
hvort karlalandsliðið í knatt-
spyrnu, undir stjórn Arnars Þórs
Viðarssonar, sé að ganga í gegn-
um svipaðar breytingar og liðið
gerði fyrir rúmum áratug undir
stjórn Ólafs Jóhannessonar.
Ólafur gaf miklum fjölda
ungra og stórefnilegra leik-
manna sín fyrstu tækifæri með
liðinu á árunum 2007-2011.
Árangur liðsins undir stjórn
hans var ekki sem bestur en leik-
mennirnir bjuggu afskaplega vel
að reynslunni, enda kom hún
Lars Lagerbäck sannarlega til
góða þegar hann tók við liðinu
árið 2011 og stýrði karlaliðinu
síðar á sitt fyrsta stórmót, EM
2016.
Á því eina og hálfa ári sem Arn-
ar hefur verið við stjórn hefur ár-
angurinn hingað til heldur ekki
verið góður en fjöldi ungra og
bráðefnilegra leikmanna hefur,
líkt og hjá Ólafi, fengið sín fyrstu
tækifæri með liðinu.
Skagamennirnir Ísak B. Jó-
hannesson og Hákon A. Haralds-
son, sem eru báðir 19 ára gamlir,
eru á meðal þeirra mest spenn-
andi sem hafa þegar fengið tæki-
færi með A-landsliðinu.
Á meðal þeirra sem hafa ekki
enn hlotið eldskírn sína með A-
landsliðinu er hinn bráðefnilegi
Kristian Hlynsson, sem er 18 ára
gamall. Vart getur liðið á löngu
þar til hann bætist í hóp þess
fjölda leikmanna sem hafa fengið
tækifærið undir stjórn Arnars.
Tíminn einn mun leiða það í
ljós hversu líkar stjórnartíðir
Ólafs og Arnars munu reynast að
lokum en hver svo sem árangur
þess síðarnefnda verður, er það
morgunljóst að efniviðurinn er
mikill. Vonandi þróast þessir
leikmenn svo í sömu átt og leik-
menn gullkynslóðarinnar gerðu.
BAKVÖRÐUR
Gunnar Egill
Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Ef KR vinnur
einvígið gegn
pólska liðinu Po-
gon Szczecin í
fyrstu umferð
Sambandsdeildar
karla í knatt-
spyrnu mætir fé-
lagið Bröndby frá
Danmörku í 2.
umferð. Bröndby
er eitt stærsta fé-
lagið í Danmörku. Hjörtur Her-
mannsson og Hólmbert Aron Frið-
jónsson hafa leikið með liðinu á
undanförnum árum. Bröndby hefur
ellefu sinnum orðið danskur meist-
ari.
Breiðablik mætir Buducnost
Podgorica frá Svartfjallalandi eða
Llapi frá Kósóvó ef liðið vinnur UE
Santa Coloma frá Andorra í fyrstu
umferðinni. Buducnost Podgorica
hefur fimm sinnum orðið meistari í
heimalandinu.
Þá mæta ríkjandi Íslands- og
bikarmeistarar Víkings Ballkani frá
Kósóvó eða Zalgiris frá Litháen í
Meistaradeildinni, takist liðinu að
vinna forkeppnina og Malmö í fyrstu
umferðinni. Í forkeppninni þarf Vík-
ingur að vinna Levadia Tallinn í
undanúrslitum og síðan La Fiorita,
meistara San Marínó, eða Inter
Club d’Escaldes, meisturum An-
dorra, í úrslitum til að mæta Malmö.
KR gæti
mætt
Bröndby
Atli
Sigurjónsson