Morgunblaðið - 16.06.2022, Blaðsíða 61
MENNING 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
96%
Empire
The Playlist BBC The sun
Total FilmRogerEbert.com
“Top Gun: Maverick is outstanding.”
Breathtaking
“It’s the BEST MOVIE OF THE YEAR!”
“Might be the best movie in 10 years.”
“Top Gun: Maverick is fantastic.” “Best Action Sequel Of All Time”
“What going to the movies is all about”
“You must see this one in the theater.”
“a must see!”
82%
Empire Rolling StoneLA Times
BENEDICT
CUMBERBATCH
ELIZABETH
OLSEN
chiwetel
ejiofor
BENEDICT
WONG
xochitl
gomez
MICHAEL
STÜHLBARG
RACHEL
MCadams
HJÖRTUR JÓHANN JÓNSSON ALDÍS AMAH HAMILTON AHD TAMIMI GUÐJÓN DAVÍÐ KARLSSON
LÍSA PÁLSDÓTTIR HARALD G. HARALDS KATRÍN HALLDÓRA SIGURÐARDÓTTIR
“THE BEST MOVIE OF THE YEAR” “AN EPIC ADVENTURE”
“A CROWD-PLEASEING BLAST” “THE MOVIE EVENT OF THE YEAR”
“A MOVIE LIGHT YEARS AHEAD OF IT´S TIME”
Sýningin Sea Lava Circle verður opn-
uð í i8 galleríi í dag, 16. júní, og stend-
ur til 20. júlí. Á henni má sjá úrval
verka úr safni hjónanna Péturs Ara-
sonar og Rögnu Róbertsdóttur en
söfnun þeirra á myndlist spannar
fimm áratugi. Að auki hefur Ragna
sýnt hjá i8 reglulega frá árinu 1996.
„Náið samband þeirra hjóna við lista-
menn varð kveikjan að safni, þar sem
finna má höggmyndir, málverk, ljós-
myndir og verk á pappír en leiðarstef
söfnunarinnar var mínímalísk fag-
urfræði og áhugi þeirra hjóna. Sýn-
ingarheitið Sea Lava Circle er fengið
úr höggmynd eftir Richard Long sem
er þungamiðja sýningarinnar,“ segir í
tilkynningu. Á sýningunni má sjá
verk eftir Roger Ackling, Guðmundu
Andrésdóttur, Birgi Andrésson,
Ingólf Arnarsson, Hörð Ágústsson,
Celeste Boursier-Mougenot, Jóhann
Eyfells, Kristján Guðmundsson,
Sigurð Guðmundsson, Roni Horn,
Carsten Höller, Dorothy Iannone,
Alan Johnston, Donald Judd, On
Kawara, Richard Long, Söruh Lucas,
Gerwald Rockenschaub, Roman
Signer, Alan Uglow, Jeffrey Vallance
og Lawrence Weiner.
Árátta lýsandi
Einar Falur Ingólfsson, blaðamað-
ur á Morgunblaðinu, ritar sýningar-
texta og rifjar upp viðtal sem hann
átti við Pétur Arason árið 2000 þegar
opnuð var viðamikil sýning á úrvali
verka úr safneign þeirra Rögnu
Róbertsdóttur, eiginkonu hans, í
Gerðarsafni – Listasafni Kópavogs. Í
því viðtali sagði Pétur: „Við getum
sagt að verkin í okkar safni séu eftir
góða fulltrúa myndlistar eins og hún
hefur verið í hinum vestræna heimi
síðan 1965.“ Heiti sýningarinnar var
lýsandi fyrir ástríðufulla söfnun
þeirra hjóna, Árátta, skrifar Einar
Falur og að Pétur hafi nefnt árið 1965
en þá eignaðist hann sitt fyrsta
myndlistarverk og önnur bættust
fljótlega við. Safneignin hafi síðan
tekið að byggjast markvisst upp á ní-
unda áratugnum og orðið á margan
hátt einstök hér á landi, því auk þess
að eignast verk eftir íslenska sam-
tímalistamenn, sem Pétur kunni að
meta, hafi hann keypt ekki síður verk
eftir erlenda listamenn.
„Þetta eru samræður. Við höfum
mjög sjaldan keypt verk án þess að
hafa kynnst listamanninum. Við höf-
um haft mikil tengsl við listamennina
og líklega er það grunnurinn í okkar
safni, “ sagði Pétur við Einar Fal um
verkin í eigu þeirra Rögnu.
Einar Falur nefnir einnig grein um
safneignina eftir Evu Heisler list-
fræðing, sem birtist í sýningar-
skránni sem kom út við opnun Áráttu
í Gerðarsafni, þar sem sagði að safn
Péturs endurspegli fjárfestingu, ekki
í hlutum heldur í umræðunni í kring-
um þá. Skrifaði Heislar að verkin á
sýningunni væru „ ... vitnisburður um
samræður einstaklings við list frá síð-
ustu áratugum tuttugustu aldar, sér í
lagi list sem kæmi í kjölfarið á mini-
malismanum.
Úr Króki í Safn
Pétur og Ragna fóru snemma að
sýna verk úr safni sínu, skrifar Einar
Falur, fyrst í Krók á níunda áratug
síðustu aldar í rými verslunarinnar
sem Pétur rak þá að Laugavegi 37.
„Krók starfræktu þau í um fimm ár
en síðan af miklum metnaði, ásamt
Ingólfi Arnarssyni myndlistarmanni,
sýningarrýmið sem þau kölluðu Aðra
hæð, 1992-1997, á heimili þeirra hjóna
á efri hæðum sömu byggingar. Um
fimm ára skeið á fyrstu árum þess-
arar aldar starfræktu þau loks Safn,
sem var á götuhæð hússins og um
tíma rekið í samstarfi við Reykjavík-
urborg. Árið 2014 opnuðu þau svo
sýningarsal í Berlín og starfræktu
um nokkurra ára skeið.
Á Annarri hæð sýndi á fjórða tug
erlendra samtímalistamanna, auk
íslenskra verk sín. Pétur og Ingólfur
buðu þar iðulega til ævintýralegra
stefnumóta við áhugaverða lista-
menn, í mörgum tilfellum heims-
þekktra á sviði konseptlistar og míni-
malisma. Listamennirnir fylgdu
flestir verkum sínum til landsins og
urðu mörg verkanna eftir í safneign
Péturs og Rögnu, eftir hinar gjöfulu
samræður sem hann talar um.
Íslandstengingar margra þessara
erlendu listamanna, sem fyrst komu
hingað til lands og sýndu verk sín hjá
Pétri og Rögnu, hafa haldist og
styrkst og ekki síst í margbreytilegu
samstarfi við i8. Galleríið var stofnað í
Ingólfsstræti 8 af Eddu Jónsdóttur
árið 1995. Hún tók strax að vinna með
mörgum þeirra listamanna sem hjón-
in höfðu sýnt og safnað verkum eftir.
Þar má til að mynda nefna SÚM-
forkólfana Kristján og Sigurð Guð-
mundssyni og Hrein Friðfinnsson,
Ingólf Arnarsson, Birgi Andrésson
og Rögnu sjálfa, og Roni Horn,
Lawrence Weiner og Karin Sander.
Samstarf þessara listamanna við gall-
eríið hefur verið gjöfult og þá hafa
verið settar upp sýningar þar á verk-
um eftir mun fleiri, sem einnig sýndu
hjá Pétri og Rögnu svo skörunin hef-
ur verið margvísleg,“ skrifar Einar
Falur og að eftir fimm áratuga söfn-
un á myndlist hafi Pétur tekið annan
kúrs. Ragna sinni myndlist sinni af
kappi og sýni víða um lönd en Pétur
leggi nú megináherslu á söfnun og
varðveislu á bókverkum.
Ástríðufull söfnun
- Verk úr safni Péturs Arasonar og Rögnu Róbertsdóttur sýnd í i8 - Sýningar-
heitið fengið úr höggmynd Richards Long sem er þungamiðja sýningarinnar
Ljósmynd/Ari Magg
Safn Pétur Arason og Ragna Róbertsdóttir eiga mikið og merkilegt safn myndlistarverka.
Hljómsveitin Of Monsters and Men
sendi frá sér EP-plötu á föstudaginn
var, sem ber titilinn TÍU og einnig
nýtt lag, „Lonely Weather“. Heim-
ildarmynd með sama nafni og plat-
an, þ.e. TÍU, var frumsýnd á
Tribeca-kvikmyndahátíðinni degi
fyrir útgáfu plötunnar og því nóg um
að vera hjá hljómsveitinni.
Flutti sveitin þrjú lög á hátíðinni
sem haldin er í New York.
Á TÍU má finna nokkur af uppá-
haldslögum aðdáenda hljómsveit-
arinnar, þ.á.m. „This Happiness“,
„Destroyer“ og „Visitor“ sem hefur
samanlagt verið streymt yfir 20
milljón sinnum á streymisveitum, að
því er fram kemur í tilkynningu.
Fyrrnefnda heimildarmynd gerði
svo góðvinur sveitarinnar, Dean
Deblois, sem á m.a. að baki tónlistar-
mynd Sigur Rósar, Heima, og
teiknimyndirnar Lilo & Stitch og
How To Train Your Dragon. Í
myndinni er sveitinni fylgt á ferðum
sínum um Ísland eftir að hætta
þurfti við tónleika hennar erlendis
vegna Covid-19.
Þar með er ekki allt upp talið, því
nú má finna upptöku á YouTube af
tónleikunum Of Monsters and Men –
The Cabin Session. Á þeim flutti
sveitin fyrstu breiðskífu sína My
Head Is an Animal í heild sinni í
sumarbústað á Íslandi. Í fyrra var
gefin út 10 ára afmælisútgáfa af
þeirri plötu, sem í fyrstu kom út
stafrænt en nú er fáanleg á vínyl.
EP og heim-
ildarmynd
hjá OMAM
OMAM Hljómsveitin góða.