Morgunblaðið - 16.06.2022, Page 62

Morgunblaðið - 16.06.2022, Page 62
62 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2022 Þín útivist - þín ánægja Vinir fá sérkjör Skráning á icewear.is LOGN hettupeysa Kr. 6.990.- SÆR einangrað vesti Kr. 8.990.- STRAUMNES Merínó ullarbuxur Kr. 4.990.- EIReinangraður jakki Kr. 11.990.- HIMINN jogging buxur Kr. 5.990.- ÖLD flíspeysa Kr. 6.990.- ÖLD eyrnaband Kr. 1.490.- VIÐEY vettlinga Kr. 2.790.- r BJARNEY húfa með dúsk Kr. 1.990.- 25% afsláttur aföllum barnafatnaði M örgum reynist hollt að fara út fyrir rammann og kíkja inn í hann. Horfa á umhverfið gagnrýnum augum, í stað þess að fylgja straumnum gagnrýnislaust. Nita Prose gerir þetta á skemmti- legan og áhrifa- ríkan þátt í spennusögunni Þernunni, þar sem yfirgangur, valdaójafnvægi, sannleikur og réttlæti eru hornsteinar. Við lestur Þernunnar kem- ur Forrest Gump fyrst upp í hug- ann en samnefnd saga kom út fyrir tæplega fjórum áratugum. Móðir hans lagði honum lífsreglurnar með góðum árangri en þernan Molly Gray hefur alla sína visku frá nýlátinni ömmu sinni. Betra verður veganestið ekki. Molly Gray virðist vera einfeldn- in uppmáluð en meira er í hana spunnið en margur heldur. Hún er samviskusöm í vinnunni, trú vinnu- veitendum og gestum, lítur á björtu hliðarnar, sér helst ekkert rangt í fari annarra, er kurteis við alla, líka þá sem koma illa fram við hana, og heldur sig við það sem hún telur vera rétt, með sannleik- ann og heiðarleikann að leiðarljósi. Eitt er að koma að látinni mann- eskju og annað að vera sakaður eða sökuð um morð. Molly Gray stendur óvænt í hvorum tveggja þessum sporum. Hringurinn þrengist stöðugt og allir virðast snúa við henni baki, stingi þeir hana hreinlega ekki í bakið, en hún gefur sig ekki. Bognar ekki einu sinni. Sannleikur hennar, sem þarf ekki að vera sá sami og sannleikur annarra, er hennar vopn, þótt flest sund virðist vera lokuð og lífstíðar- dómur blasi við. Hvert sem litið er má sjá einstaklinga sem telja sig vera til forystu fallna. Þegar grannt er skoðað reynast þó marg- ir þeirra ekkert annað en fúskarar og loddarar, keisarar án fata. Í lag- skiptu samfélagi mega þeir lægst settu sín lítils og á þeim er traðkað án þess að þeir geti borið hönd fyr- ir höfuð sér. Molly Gray vinnur hins vegar samkvæmt þeirri trú að allir gegni mikilvægu hlutverki og að starf hótelþernunnar sé jafn mikilvægt og önnur störf, nauðsyn- legt púsl í heildarmyndinni. Molly Gray lifir einföldu lífi, gegnir starfi sínu aðfinnslulaust og gott betur og nýtur lífsins á sinn hátt. Hún á í ýmsum erfiðleikum, eins og gengur og gerist í lífi venjulegs fólks, en lætur þá ekki buga sig heldur gengur örugg til verks. Engu að síður má hún sín lítils gagnvart tækifærissinnum og þarf að gjalda fyrir syndir ann- arra. Bókin er öðrum þræði skemmti- leg og bráðfyndin á köflum en und- irtónninn er grafalvarlegur. Skáld- sagan verður lifandi, hvert sem litið er, og þörf ábending um hvað megi víða betur fara. Ljósmynd/Dahlia Katz Hornsteinar Nita Prose er höfundur bókarinnar Þernan. Ǵagnrýnandi seg- ir yfirgang, valdaójafnvægi, sannleik og réttlæti hornsteina bókarinnar. Synt á móti straumnum Spennusaga Þernan bbbbn Eftir Nitu Prose. Magnea J. Matthíasdóttir þýddi. Kilja. 375 bls. JPV útgáfa 2022. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Bandaríski leikarinn Philip Baker Hall er látinn, níræður að aldri. Hall lék í fjölda kvikmynda og sjón- varpsþátta á ferli sínum sem hann hóf þó á leiksviði í New York. Á átt- unda áratugnum fór hann að reyna fyrir sér í Hollywood-myndum. Af þekktum kvikmyndum sem hann lék í má nefna Boogie Nights, Hard Eight og Magnolia, Ghostbusters II, Midnight Run, Air Force One, The Rock og The Truman Show. Af sjónvarpsþáttum sem hann lék í má nefna gamanþættina Seinfeld og Curb Your Enthusiasm. Af öðrum verkum sem Hall lék í á löngum ferli má nefna kvikmyndirnar Dog- ville, The Insider, Zodiac, Argo, Bruce Almighty og The Amityville Horror og sjónvarpsþáttaraðirnar The Newsroom og Modern Family. Fyndinn Philip Baker Hall var spreng- hlægilegur í hlutverki bókasafnslöggunnar Joe Bookman í Seinfeld-þáttunum. Leikarinn Philip Baker Hall látinn Stutt kitla hefur verið sett á netið fyrir aðra þáttaröð hinna gríðar- vinsælu suður-kóresku þátta Squid Game sem slógu í gegn á Netflix í fyrra, með skilaboðum frá höfundi þeirra, handritshöfundi, leikstjóra og framleiðanda, Hwang Dong- Hyuk. Dúkkan banvæna, sem sást snemma í fyrstu þáttaröð, birtist í kitlunni. Segir þar að 12 ár hafi tekið að koma fyrri þáttaröð á netið sem hafi orðið vinsælasta þáttaröð allra tíma á Netflix á 12 dögum. Þakkar Hwang aðdáendum víða um lönd og gefur forsmekk að því sem koma skal. Aðalpersóna fyrri þátta- raðar, Seong Gi-hun, leikinn af Lee Jung-jae, og grímuklæddur and- stæðingur hans, kallaður Front Man, leikinn af Lee Byung-hun, snúa aftur. Löng bið er þó eftir ann- arri þáttaröð, því hún kemur á Net- flix á næsta ári eða þarnæsta. Ógnandi Sá grímuklæddi í Squid Game. Aðalpersónurnar snúa aftur Tónlistarmað- urinn H. Hawk- line hitar upp fyrir Aldous Harding á tón- leikum hennar í Hljómahöll í Reykjanesbæ 16. ágúst kl. 20. Hawkline er velskur tónlist- ar- og fjölmiðlamaður, hóf sólófer- il sinn árið 2010 og hefur gefið út fjórar plötur frá þeim tíma, að því er segir í tilkynningu. Hefur hann unnið með Cate Le Bon og Kevin Morby og hin síðustu ár með Har- ding en þau eru jafnframt par. Í fjölmiðlaheimum hefur Hawkline m.a. unnið með samlanda sínum, Huw Stephens. Harding er nýsjálensk og gaf út sína fyrstu plötu Aldous Harding árið 2014 og hefur hún vakið at- hygli fyrir lagasmíðar og ekki síð- ur tónlistarflutning. Plötur henn- ar, Party frá árinu 2017 og Disigner frá 2019, hlutu einróma lof gagnrýnenda og tónlistarunn- enda um allan heim. Dómar um nýjustu plötu hennar, Warm Chris, hafa einnig verið lofsamlegir. Músíkalskt par í Hljómahöll í ágúst H. Hawkline Sú ákvörðun blaðamanns á dag- blaðinu Sydney Morning Herald að gefa leikkonunni Rebel Wilson 27 klst. til að tilkynna að hún væri samkynhneigð hefur vakið reiði víða. Wilson greindi frá því að hún væri samkynhneigð á Instagram fyrir fáeinum dögum og kom síðar í ljós að hún var þvinguð til þess af blaðamanni sem sagðist ætla að birta frétt um kynhneigð hennar, hvort sem hún vildi eða ekki. Blaða- maður þessi er slúðurfréttaritari að nafni Andrew Hornery og segir hann Wilson hafa eyðilagt fréttina fyrir sér með því að vera á undan á Instagram. Samtök LGBTIQ+ fólks hafa eðlilega brugðist við þessum fréttum með því að fordæma blaða- manninn, enda kynhneigð fólks einkamál og erf- itt að koma út úr skápnum. Það ætti blaðamað- urinn Hornery að vita vel en hann er samkyn- hneigður. Sagð- ist hann í afsök- unarbeiðni á mánudag ekki hafa ætlað að valda neinum sársauka. Ritstjóri blaðsins og yfirmaður hans, Bevan Shields, sagði hins vegar á mánudag að blaðið hefði ekki þvingað Wilson út úr skápn- um. Degi síðar baðst hann afsök- unar. Mál Wilson vekur hneykslan og reiði Rebel Wilson Vorhefti Skírnis er komið út, tíma- rits Hins íslenska bókmenntafélags. Með ritstjórn fara bókmenntafræð- ingarnir Ásta Kristín Benedikts- dóttir og Haukur Ingvarsson. Með- al efnis er þýðing Áslaugar Agnarsdóttur á ljóði úkraínsku skáldkonunnar Irynu Tsilyk, Jón Karl Helgason skrifar ritdóm um bók Auðar Aðalsteinsdóttur, Því- líkar ófreskjur: Vald og virkni rit- dóma á íslensku bókmenntasviði; Kari Ósk Ege birtir ljóðabálkinn „Hundadaga“ og Hringur Sigurðs- son þýðingu sína á smásögu Fjodors Dostoj- evskís, „Draumi hlægilegs manns“. Íslenska skóla- kerfið er til um- fjöllunar í grein Auðar Magnd- ísar Auðardóttur og myndlistar- maður Skírnis er Elín Hansdóttir og skrifa Dorothée Kirch og Markús Þór Andrésson hugleiðingu um verk hennar og feril. Vorhefti Skírnis komið út Elín Hansdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.