Morgunblaðið - 16.06.2022, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 16.06.2022, Blaðsíða 68
www.husgagnahollin.is Sími: 558 1100 PÓSTLISTASKRÁNING Viltu skrá þig á póstlista? Skannaðu QR kóðann. KOS 3XL sófi. Drapplitað slitsterkt áklæði. 248 x 100 x 84 cm. 239.992 kr. 299.990 kr. ÚTSALA SUMAR SCOTT Hornsófi hægri eða vinstri. Kentucky koníak bonded leður. 293 x 217 x 85 cm. 195.993 kr. 279.990 kr. GAIN Borðstofustóll. Dökkgrátt sléttflauel. 17.394 kr. 28. CANNE Hægindas 139.993 199.990 30% 40% 990 kr. S tóll, ýmsir litir. kr. kr. DC 3600 3ja sæta sófi í svörtu Split leðri. 202 x 80 x 80 cm. 209.993 kr. 299.990 kr. 30% 20% Bjarni Jónsson hlaut Ísnálina í ár, verðlaun sem veitt eru fyrir best þýddu glæpasöguna, fyrir þýðingu sína á Kalmann eftir Joachim B. Schmidt. Mál og menning gefur bókina út. Í umsögn dóm- nefndar segir að það hafi verið einróma álit hennar að þýðing Bjarna skyldi hljóta Ís- nálina í ár. „Þýðing Bjarna Jónssonar er fumlaus og flæðir án hindrana, textinn verð- ur jafnvel ljóðrænn á köflum. Frágangur er allur til fyrir- myndar og það er gleðiefni að sjá nafn þýðanda strax á saurblaðinu,“ segir m.a. í umsögninni. Að verðlaun- unum standa Bandalag þýðenda og túlka, Hið íslenska glæpafélag og Þýðingasetur Háskóla Íslands. Bjarni Jónsson hlaut Ísnálina FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 167. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Gömlu stórveldin KR og ÍA skildu jöfn, 3:3, í stór- skemmtilegum fótboltaleik er þau mættust í Bestu deildinni á Meistaravöllum í Vesturbænum í gærkvöldi. Liðin skiptust á að ná forystunni og jafnaði KR að lok- um í uppbótartíma. Eyþór Wöhler skoraði tvö fyrir ÍA. Í Vestmannaeyjum unnu Íslands- og bikarmeistarar Víkings öruggan 3:0-útisigur á ÍBV. Oliver Ekroth, Er- lingur Agnarsson og Ari Sigurpálsson gerðu mörk Vík- inga. Fossvogsliðið fór upp í annað sætið með sigrinum en Eyjamenn eru á botninum sem fyrr. »58 Sex mörk og dramatík í Vesturbæ ÍÞRÓTTIR MENNING skyldna og fræddu mig um söguna. Ég heillaðist af landi og þjóð sem krakki og áhuginn hefur aukist með hverju árinu.“ Fjölskyldan hefur hug á að afla frekari upplýsinga í Vesturfarasetr- inu á Hofsósi og heimsækja svæði forfeðranna. „Mig langar til þess að sjá hvaðan fólkið kom og fræðast meira um land og þjóð,“ segir Dean og biðlar til skyldfólks eða annarra sem þekkja til að hafa samband (dean@isumassie.com og sími: 00 1 925-899-0702). Hann bætir við að sonur þeirra sé sama sinnis. „Honum finnst gaman á skíðum og í sundi, er nýbyrjaður í fim- leikum, en hefur meiri áhuga á rann- sóknum og fornleifafræði. Hann elskar að finna út úr hlutunum og leita lausna.“ Irina, eiginkona Deans, á ættir að rekja til Úkraínu. Börn þeirra eru Olga, 24 ára, og Alexander Johann, sjö ára. „Alex segir öllum að hann sé með víkingablóð í æðum, ættaður frá Íslandi og Úkraínu. Hann hlakkar mjög til Íslandsferðar okkar. Að þessu sinni kemur hann einn með okkur Irinu, en vegna stríðsins í Úkraínu tekur hann sennilega babúskuna sína með.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Margir eru stoltir af íslenskum upp- runa sínum og ekki síst erlendis. Dean Sigmundson er einn þeirra. Ólafur Jóhann Sigmundson, faðir hans, kvæntist kanadískri konu og þau eignuðust hann í Vancouver í Kanada 1960, en ári síðar fluttu þau til Bandaríkjanna. Dean og fjöl- skylda búa í San Ramon, skammt frá San Francisco í Kaliforníu, og hefur hann lengi átt sér þann draum að kynnast Íslandi og sérstaklega skyldfólki á Íslandi. „Ég þekki engan á Íslandi en fyrir margt löngu sagði amma mér bara að fara til Íslands, segja til nafns og sjá hverju það skilaði,“ segir Dean. „Ég sé eftir að hafa ekki tekið hana fyrr á orðinu en nú erum við loks á leiðinni, komum til Íslands 15. júlí og förum aftur 29. júlí, og vonandi hitt- um við ættingja.“ Sigurður Sigmundsson, föðurafi Deans, fæddist í Reykjavík 16. mars 1908. Foreldrar hans voru Jóhann Sigmundsson, fæddur 2. ágúst 1878 í Árnessýslu, og Þórdís Sigurðar- dóttir, fædd 16. nóvember 1877 á Þorvaldsstöðum í Mýrasýslu. Sig- urður flutti til Winnipeg í Kanada og kvæntist þar Önnu Rósu Petursson frá Foam Lake í Saskatchewan, fædd 11. desember 1911. Foreldrar hennar voru Ólafur Pétursson frá Ríp í Hegranesi í Skagafirði, fæddur 8. janúar 1879, og Anna Sesselja McNab frá Görðum í Norður- Dakóta, fædd 7. júní 1884. Móðir hennar var Björg Elísabet Hall- grímsdóttir frá Brattagerði í Jökul- dalshreppi, fædd 11. nóvember 1864. Óskar upplýsinga „Amma og faðir minn héldu upp- runa okkar á lofti, sögðu mér frá honum og hvöttu mig til þess að halda í hann,“ segir Dean. „Þau töl- uðu um Ísland með mikilli virðingu og voru hreykin af upprunanum. Þau sögðu mér frá sérstaka gamla tungumálinu og sterka samfélaginu, útskýrðu fyrir mér nafnakerfi fjöl- Með víkingablóð í æðum vestra - Bandarísk fjölskylda á leiðinni og leitar ættingja á Íslandi Fjölskyldan Dean Sigmundson, Alexander Johann, Irina og Olga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.