Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 21.06.2022, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.06.2022, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 2022 Þrjátíu og níu ný endur- hæfingarrými fyrir aldraða verða opnuð fyrsta september á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði. Skrifað var undir samning um starfsemina á milli Sjúkratrygg- inga Íslands og Sóltúns öldrunarþjónustu í gær þar sem Willum Þór Þórsson heilbrigðis- ráðherra og Rósa Guðbjarts- dóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar mættu til að vera viðstödd und- irritun. Að sögn Ingibjargar Eyþórs- dóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Sólvangi, er þetta ný starfsemi á Íslandi. Eldri en sextíu og sjö ára mun gefast færi á að sækja endurhæfingu á Sól- vangi þar sem þeim verður veitt einstaklingsmiðuð, heildræn og þverfagleg endurhæfing í stað þess að vera á Landspítalanum. Reiknað er með að hægt verði að veita að minnsta kosti fjögur hundruð einstaklingum þjónustu á ári. tomasarnar@mbl.is Samningur Sóltúns og Sjúkratrygginga Íslands um starfsemi endurhæfingarrýma undirritaður í gær Rýmin þau fyrstu sinn- ar tegundar Morgunblaðið/Eggert Anton Guðjónsson anton@mbl.is „Þetta snýst ekki um einhver fjár- svik, þetta snýst um að það var ekki samningur. Við erum ekki að draga okkur neitt fé, það er rangt. Þetta er túlkunaratriði á samningi,“ segir Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ, í samtali við Morgunblaðið. Í bréfi dag- settu 29. desem- ber 2021 frá Ara Matthíassyni, deildarstjóra eftirlits- deildar Sjúkratrygginga Íslands (SÍ), til Einars Hermannssonar, stjórnarformanns SÁÁ, krefja Sjúkratryggingar SÁÁ um tæplega 175 milljónir króna vegna tilhæfu- lausra reikninga og vanefnda á þjónustu og þjónustumagni. Sjúkratryggingar sendu málið til saksóknara og Ólafur Þór Hauks- son héraðssaksóknari staðfesti við Morgunblaðið í gær að mál SÁÁ væri enn til rannsóknar. Hann sagðist ekki geta farið út í nein smáatriði önnur en þau sem hafa þegar verið nefnd í fjölmiðlum. „Eftirlitið frá SÍ snýst um fjar- þjónustuna og fjarviðtölin sem voru veitt í Covid-19-faraldrinum sem enginn samningur er til um. Við brugðumst við eins og allir aðrir, það voru allir sendir heim að vinna og máttu hvergi mæta,“ segir Anna Hildur. Úreltir samningar „Við fáum opinbert fé frá heil- brigðisráðuneytinu sem er veitt til okkar í gegnum SÍ. Það eru búnir til samningar um þjónustuna og margir þeirra eru orðnir úreltir því þjónustan hefur breyst töluvert.“ Samtal er hafið við SÍ um að gera nýja heildarsamninga um þjónustu SÁÁ. Í raun um hvaða þjónustu ríkið ætlar að kaupa af okkur. Þar verður meðal annars samið um fjarþjónustu,“ segir Anna Hildur. Hún segist sjálf ekki hafa verið boðuð í skýrslutöku hjá saksóknara né nokkur annar yfirstjórnandi hjá SÁÁ, svo hún vissi til. „Við höfum ekki fengið neinar upplýsingar um það út á hvað kær- an gengur. Eina sem við vitum er að þetta fór frá SÍ til saksóknara,“ segir Anna Hildur. Um helgina birtist aðsend grein í DV frá Birgi Dýrfjörð þar sem hann segir Önnu og SÁÁ hafa gerst sek um að falsa sjúkraskrár og að SÁÁ þurfi nú að skila ranglega fengnu fé. „Ég er ekki búin að lesa greinina en mér skilst að það sé mikið af staðreyndarvillum þar,“ segir Anna og bendir á að taka eigi greininni með fyrirvara. Enginn annar boðið sig fram Anna Hildur tók við formennsku SÁÁ í vetur eftir að Einar Her- mannsson, þáverandi formaður, sagði upp störfum í kjölfar hneyksl- ismáls er varðaði vændiskaup hans. Aðalfundur SÁÁ verður í dag og ætlar Anna Hildur að bjóða sig áfram fram sem formann. Hún seg- ir að enginn annar hafi opinberlega sagst ætla að bjóða sig fram á móti sér en það þarf ekki að tilkynna það fyrr en á fundinum. SÁÁ enn til rannsóknar hjá saksóknara Morgunblaðið/Eggert SÁÁ Á Vogi er boðið upp á sérhæfðar meðferðir við fíknisjúkdómum. - Formaður segir engan yfirstjórnanda hafa verið boðaðan í skýrslutöku vegna kæru SÍ - Snýst ekki um fjársvik heldur samninga sem ná ekki yfir fjarvinnu - Formannskjör á aðalfundi SÁÁ í dag Anna Hildur Guðmundsdóttir Þrír þingmenn úr röðum Pírata töl- uðu lengst á nýafstöðu vorþingi, en sem kunnugt er var 152. löggjafar- þingi Alþingis frestað í liðinni viku. Björn Leví Gunnarsson talaði mest allra, eða í 1.014 mínútur, sem jafn- gildir um 17 klukkustundum. Í öðru sæti er félagi hans, Gísli Rafn Ólafs- son, með 912 mínútur (15 klst), og Píratinn Andrés Ingi Jónsson skipar þriðja sætið með 793 mínútur (13 klst). Er hér miðað við ræðutíma, ekki athugasemdir þingmanna. Listi yfir málglöðustu þingmenn er birtur hér til hliðar og m.a. má sjá að báðir þingmenn Miðflokksins, Bergþór Ólason og Sigmundur Dav- íð Gunnlaugsson, komast á topp-10. Á þinginu sl. vetur voru alls flutt- ar 5.173 ræður, sem voru 19.620 mínútur að lengd, eða um 327 klukkustundir. Það jafngildir því að þingmenn hafi talað linnulaust í nærri hálfan mánuð! Alls voru gerð- ar 4.929 athugasemdir í pontu, sem tók þingmenn um 130 klukkustundir að flytja. Meðallengd hverrar þing- ræðu var 3,8 mínútur. 94 þingfundir Þingið var að störfum frá 23. nóv- ember til 28. desember 2021 og frá 17. janúar til 16. júní 2022. Alls voru þingfundirnir 94 og stóðu í rúmar 550 klukkustundir. Meðallengd funda var 5 klst. og 47 mín. Lengsti þingfundurinn stóð í 13 klst. og 40 mín. Lengsta umræðan var um fjár- lög 2022 en hún stóð samtals í 35 klst. og 36 mínútur. Þingfundadagar voru alls 80, segir í yfirliti Alþingis. Af 205 frumvörpum varð alls 81 að lögum, 121 var óútrætt, tvö voru kölluð aftur og eitt ekki samþykkt. Af 147 þingsályktunartillögum voru 29 samþykktar, 116 tillögur voru óútræddar og tveimur var vísað til ríkisstjórnarinnar. 22 skriflegar skýrslur voru lagðar fram. Níu beiðnir um skýrslur komu fram, þar af sex til ráðherra og þrjár til ríkisendurskoðanda. Þrjár munn- legar skýrslur ráðherra voru fluttar. Fyrirspurnir á þingskjölum voru samtals 377. Fyrirspurnir til munn- legs svars voru 35 og var 30 svarað en ein kölluð aftur. 342 skriflegar fyrirspurnir voru lagðar fram og var 249 þeirra svarað, 93 biðu svars er þingi var frestað. Píratar helstu ræðukóngar Alþingis - Þrír þingmenn Pírata raða sér í þrjú efstu sætin yfir þá sem töluðu mest á vorþinginu - Björn Leví talaði lengst, eða í 17 klukkustundir - Ræðuflutningur þingsins tók nærri hálfan mánuð Þingmenn sem töluðu lengst á Alþingi Björn Leví Gunnarsson (P) 1.014 mín. 17 klst. Gísli Rafn Ólafsson (P) 912 mín. 15 klst. Andrés Ingi Jónsson (P) 793 mín. 13 klst. Guðmundur Ingi Kristinsson (F) 790 mín. 13 klst. Jóhann Páll Jóhannsson (S) 681 mín. 11 klst. Bergþór Ólason (M) 671 mín. 11 klst. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) 617 mín. 10 klst. Sigmar Guðmundsson (C) 583 mín. 10 klst. Eyjólfur Ármannsson (F) 563 mín. 9 klst. Bjarni Benediktsson (D) 553 mín. 9 klst. =

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.