Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 2
H
vað ertu að fást við
þessa dagana?
„Þessa dagana er
ég á kafi í því að
kynna Alor í Nýsköp-
unarvikunni og taka þátt í
fjölmörgum spennandi við-
burðum. Þess á milli æfi ég
stíft fyrir 10 ára afmælis-
tónleika Kvennakórsins
Kötlu sem verða haldnir um
helgina. Í rauninni nokkuð sem
enginn ætti að láta fram hjá sér
fara. Þar fyrir utan kjarna ég mig
heima með fólkinu mínu.“
Hvað getur þú sagt mér um
uppáhaldsmatinn þinn?
„Það er fátt betra en grillað fol-
aldakjöt að hætti eiginmannsins.
Ég er svo einstaklega vel gift að
maðurinn minn sinnir almennt
matargerðinni á heimilinu og
slær aldrei feilnótu í þeim efnum.
Nema auðvitað þegar hann gerði
einu sinni hrikalega vont lárperu-
mauk, sem er minnst á reglulega,
því það kom svo svakalega á óvart
að hann skyldi klikka svona!“
Áttu þér uppáhaldsveitingahús?
„Ég hef mjög gaman af því að fara út að
borða. Í Reykjavík verður Rok oft fyrir valinu
en þar fæ ég alltaf góðan mat og upplifi
skemmtilega stemningu.“
Hvað borðarðu venjulega í morgunmat?
„Ef ég borða morgunmat er það yfirleitt
strangheiðarlegt Cheerios. Stund-
um fæ ég mér þó hafragraut
með jarðarberjum og mjólk
og þá finnst mér ég vera að
sigra lífið.“
Hvernig heldurðu þér í
formi?
„Ég legg áherslu á að
rækta andlega heilsu. Ég
áttaði mig á því fyrir
nokkrum árum að það geri
ég best með því að stunda úti-
vist sem gleður mig. Fyrir mér
er fátt betra en að fara í fjallgöngu
með fjölskyldunni minni eða skemmti-
legum vinum, þar sem farið er á trúnó,
hlegið og borðað gott nesti.“
Ertu að safna þér fyrir húsgagni?
„Ég er nokkuð viss um að dætur
mínar myndu vilja að ég nefndi að efst
á listanum er að kaupa nýja fataskápa
í barnaherbergin sem hefur setið á
hakanum sökum tímaskorts alltof
lengi.“
Hver er uppáhaldsfatahönnuður-
inn þinn?
„Ég er mjög hrifin af fötunum
frá Andreu og á einnig nokkrar
frábærar flíkur frá Lovísu Tómas.“
Hvaða snjallforrit notar þú mest?
„Ég nota LinkedIn mjög mikið til þess að
tengjast áhugaverðu fólki og fylgjast með
spennandi tækifærum.“
Er eitthvert lag sérstaklega mikið í spilun hjá
þér núna?
„Síðustu vikurnar hef ég eingöngu hlust-
að á lög sem ég mun syngja á tónleikum
með Kvennakórnum Kötlu um helgina. Á
þeim lista er sem dæmi Dreams með Cran-
berries og Hamingjan er hér með Jónasi
Sig. Einhverjir kunna að hafa séð mig í
bílnum syngjandi með af mikilli inn-
lifun!“
Hvernig lýsirðu sumardressinu þínu?
„Á sumrin finnst mér best að vera í
útivistargírnum og því myndi al-
klæðnaður frá 66°Norður lýsa sum-
ardressinu mínu best.“
Hvaða bók er á náttborðinu þínu?
„Bókin Samningatækni eftir Aðal-
stein Leifsson.“
Áttu þér uppáhaldssjónvarpsþátt?
„Ég er að horfa núna á Working
Moms sem koma mér alltaf í gott
skap. Það eru engin takmörk fyrir
því í hverju þessar konur lenda.“
Hvernig skipuleggur þú þig yfir dag-
inn?
„Ég lifi algjörlega eftir dagbókinni í póst-
forritinu. Ég er töluverð „listakona“ en það eru
ófáir listarnir sem eru settir saman til þess að
halda utan um verkefnin. Við rekstur nýsköp-
unarfyrirtækis er mjög mikilvægt að halda
skörpun fókus á það sem mestu máli skiptir á
hverjum tíma og leiðast ekki inn í minna mik-
ilvæg verkefni.“
Hvernig leikur þú þér í lífinu?
„Við fjölskyldan erum almennt mjög góð í að
leika okkur saman. Við eigum það til dæmis til
að kanna hvort við getum kreist upp úr okkur
hláturinn þar til við byrjum raunverulega að
hlæja. Þetta er eins konar hláturgjörningur
sem endar yfirleitt í risastóru hláturkasti
allra viðstaddra.“
Hvað reynir þú að forðast í lífinu?
„Ég forðast óheiðarleika í sam-
skiptum og viðskiptum enda finnst
mér mjög mikilvægt að geta treyst
fólkinu sem ég umgengst og vil að
sama skapi vera traustsins verð. Auk
þess reyni ég að forðast það að fara í
Rush og ég veit að ég er ekki ein um
það.“
Hvert er sérkennilegasta verkefni
sem þú hefur tekið þátt í?
„Við maðurinn minn lékum eitt sinn í
kanadískum ættfræðiþætti og það var
allt skrítið við þá upplifun. Við lékum
par sem var á leiðinni í hnapphelduna
og var aðð skoða Hallgrímskirkju
gaumgæfilega fyrir stóra daginn.
Ég er ofsalega fegin að maðurinn
minn sló það út af borðinu að hann kæmi ríðandi
á hvítum hesti í kirkjuna.“
Ljósmynd/Colourbox
Linda borðar
vanalega
Cheerios í
morgunmat.
Hún er hrifin
af fötunum
frá Andreu
by Andrea.
Ljósmynd/Colourbox
Linda veit fátt betra
en að stunda útivist.
Bókin Samningatækni eft-
ir Aðalstein Leifsson er á
náttbrðinu hennar Lindu.
Linda Fanney
Valgeirsdóttir
„Ég lifi algjörlega eftir
dagbókinni í póstforritinu“
Ljósmynd/Ásta Kristjánsdóttir
Það skrítnasta sem Linda Fanney Valgeirsdóttir, framkvæmdastýra nýsköpunarfyrirtækisins
Alor, hefur gert er að leika í kanadískum ættfræðiþætti. Hún er mjög fegin því að maðurinn hennar
setti heilbrigð mörk í því verkefni og neitaði að koma ríðandi á hvítum hesti inn í Hallgrímskirkju.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022
Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Winkel Jónasdóttir Blaðamenn Elínrós Líndal elinros@mbl.is Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is,
Lilja Ósk Sigurðardóttir snyrtipenninn@gmail.com, Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is Auglýsingar Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Forsíðumyndina
tók Kári Sverriss.
A
ldamótatískan er komin aftur í öllu sínu veldi. Útvíðar
gallabuxur, þunnir silkikjólar með spagettíhlýrum og
glitrandi toppar sjást í verslunum heimsins. Auk þess
tókust endurlífgunartilraunir á djammtoppnum svo vel
að hann er orðinn móðins á ný. Húðlitar sokkabuxur,
há stígvél og flíkur sem sýna beran maga þykja fer-
lega fínar.
Það góða við endurkomu aldamótatískunnar er að í dag mega
allir klæðast öllu án þess að vakúmpakka líffærum inn í húðlitar
aðhaldssokkabuxur. Holdið má sjást enda eru fyrirmyndirnar allt
aðrar í dag en þær voru um aldamótin. Þá vildu ungu konurnar
vera jafn svangar og Jennifer Aniston og Kate Moss.
Stóru fréttirnar í þessu öllu saman er líklega að skvísur nú-
tímans eru komnar með sama útlit og mæður þeirra reyndu að
leika eftir forðum daga. Önnur kynslóð af Pamelu Anderson hefur
litið dagsins ljós og segja sérfræðingar að sería um ár hennar með
rokkaranum Tommy Lee kalli á þessar vinsældir.
Stelpur sem voru litlar, bústnar, dökkhærðar og með sam-
vaxnar augabrúnir áttu erfitt uppdráttar á Pamelu Anderson-
tímabilinu. Allir sólbrúnir djammþyrstir Kenar landsins voru í leit
að sinni eigin Pamelu og stóð sú leit yfirleitt yfir á skemmtistöð-
um borgarinnar.
Ein af þessum litlu dökkhærðu með samvöxnu augabrúnirnar
vann á bar. Það var auðvitað miklu gáfulegra að vinna sér inn
peninga á djamminu en að puðra þeim út í loftið með kaupum á
fimm í fötu. Það sem hún vissi hins vegar ekki er að þessi vinna á
barnum átti eftir að hafa mótandi hugmyndir um ákveðna tegund
af körlum.
Sólbrúnu Kenarnir sem voru fastagestir á barnum tóku yfirleitt
þristinn. Þeir voru kannski rólegir á fimmtudögum en það var að-
eins meira fjör á þeim á föstudögum og á laugardögum varð allt
vitlaust hjá þeim. Þegar klukkan var korter í þrjú fóru þeir að
ókyrrast og stuttu seinna voru þeir komnir með sína eigin Pamelu
upp á arminn. Pamelu í stuttu pilsi, húðlitum sokkabuxum og
háum stígvélum (með stór brjóst). Daginn eftir fóru þeir sama
hringinn nema fundu nýja Pamelu í aðeins meira glansandi húðlit-
um sokkabuxum og kannski með aðeins stærri brjóst. Svona gekk
þetta allar helgar, allan ársins hring.
Þessi litla dökkhærða sem vann á barnum lærði snemma að það
væri betra að vera í heilum bol og pilsi á vaktinni – ekki
skyrtu. Þegar ölvunarstigið jókst urðu hendur
Kenanna stjórnlausar og þeir fóru að troða
þeim inn á einkastaði annars fólks. Þessi litla
dökkhærða hélt bara að þetta væri eðlilegt
því allir sáu þetta en enginn sagði neitt. Væri
kannski bara fylgifiskur þess að vinna á bar.
Það sem þessi litla dökkhærða lærði var
að það getur verið gáfulegra að sleppa því
að finna sér lífsförunaut að nóttu til og
helst ekki á bar. Hún lærði líka að
það eru ekki allir karlar heimsins
eins og Kenarnir á barnum.
Mennirnir á barnum
og Pamela Anderson
Marta María
Winkel Jónasdóttir