Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 27
1Þægileg sólarvörn á hverjum degi Þó þú gerir ekkert annað en að hefja notkun á sólarvörn daglega, þá ertu að gera húðinni mikinn greiða. Sól- argeislarnir skaða húðina gífurlega, or- saka framkomu ótímabærra öldr- unarmerkja og geta stuðlað að húðkrabbameini. Mikilvægt er að finna formúlu sem er þægileg á húð- inni og býr að lágmarki yfir SPF 30. Í dag koma sólarvarnir í hinum ýmsu formum svo ekki ætti að vera vanda- mál að finna þá formúlu sem þér finnst þægilegust – ekki gleyma að bera vörnina á þig reglu- lega yfir daginn. 2Léttara krem Þegar hitastigið hækkar og rakinn í andrúmloftinu eykst, þá kjósa margir að skipta yfir í léttari andlitskrem. Þó form- úlan sé léttari getur hún veitt gíf- urlegan raka og þú finnur fyrir auknum þægindum í húðinni. Próf- aðu Clinique Moisture Surge-rakagelið, en það inniheldur til dæmis lífgerjað aloe vera og hefur sefandi áhrif á húðina. Að auki geturðu geymt kremið í ísskápnum og borið það kalt á húðina sem rakamaska – frábær formúla eftir dag í sól- inni. 3 Hugaðu að augnsvæði og vörum Húðin í kringum augu okkar og á vör- unum er þynnri en á öðrum stöðum og því við- kvæmari fyrir sólargeislum. Sömuleiðis geta langar sumarnætur sést á augnsvæðinu morg- uninn eftir og því óvitlaust að vera með öfluga formúlu sem hefur alhliða húðbætandi áhrif, líkt og hið nýja Double Serum Eye frá Clarins. Þetta kremkennda gel gerir augnsvæðið sléttara, þéttara og bjartara ásýndum með 13 mismunandi plöntukjörnum. Til að verja varirnar er auðvelt að verða sér úti um varasalva með sólarvörn, en til dæmis framleiðir Vichy slíka varasalva. 4Léttur farði Við viljum flest virka fersk og útitekin á sumrin, svo tilvalið er að skipta yfir í léttari farða eða einfaldlega litaða sólarvörn eða litað dagkrem í hlýrra veðurfari. Þannig færðu náttúrulegra útlit þar sem húðin er betr- umbætt en ekki hulin. Prófaðu Futurist Hydra Rescue SPF 45 frá Estée Lauder en þessi farði býr yfir öflugum húðbætandi inni- haldsefnum, veitir húðinni fallegan ljóma og þekjan er miðlungs. Ef þú vilt minni þekju geturðu einfald- lega blandað honum saman við rakakremið þitt og skapað þannig litað dagkrem eftir þínu höfði. 5 Bættu C- vítamíni í húðumhirðuna Andoxunarefni á borð við C-vítamín eru góð allan ársins hring en sérstaklega á sumrin, þar sem þau hlutleysa sindurefni. Berðu C-vítamín- serum á húðina á morgnana, á undan sólarvörn, en þannig veit- irðu húðinni enn meiri vörn. Prófaðu C-vítamínserumið frá Pestle & Mortar, en það inni- heldur þrjár gerðir af C- vítamíni auk náttúrulegra inni- haldsefna sem gera húðina sjáanlega þéttari og bjartari ásýndum. 6 Sólkysst án skaða Það er algjör óþarfi að eyðileggja heil- brigði húðarinnar til að fá smá lit þegar frá- bærar sjálfsbrúnkuformúlur eru á mark- aðnum. Hyaluronic Self-Tan Spray frá Marc Inbane er til dæmis sérlega þægilegt í notk- un, veitir sólkysst útlit og hægt er að spreyja því yfir farða ef þú vilt aðeins hressa upp á ásýndina samstundis. Luxe Tan Tonic Glow Drops frá St. Tropez er einnig mjög hentug formúla en þetta eru brúnku- dropar sem þú blandar út í rakakremið þitt eða serum. Að auki hefur formúlan húðbætandi áhrif þar sem hún er rík af C- og E-vítamíni, hýalúrónsýru og níasínamíði. 7. Skrúbbaðu líkamann Húðumhirða snýst ekki eingöngu um andlitið heldur er sumarið sannarlega tíminn til að hugsa um allan líkamann. Sama hversu miklu líkamskremi þú nuddar á þig, þá þarftu að skrúbba dauðar húðfrumur af líkamanum til að fá fallegri húðáferð og aukinn ljóma. Þurrburstun er góð eða þú getur notað klass- ískan líkamsskrúbb sem nærir húðina í leiðinni, einu sinni til tvisvar í viku. Núna fást skrúbbarnir frá Frank Body loksins á Íslandi svo tilvalið er að prófa þá, en hægt er að fá þá í útgáfum sem innihalda ljóma og gera húðina sérlega fallega. 8Endurhugsaðu virk innihaldsefni Í dag nota margir virk innihaldsefni á borð við sýrur og retínól reglulega. Þessi efni gera húðina við- kvæmari fyrir sólargeislum, svo bæði er gífurlega mikilvægt að nota sólarvörn samhliða slíkri virkni og einnig er gott að nota þessi efni að kvöldi til eða sjaldnar. STOFNAÐ 1953 Ertu með allt á hreinu? Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • Sími: 553 1380 Dr. Dennis Gross Lightweight Wrinkle Defence SPF 30, 9.510 kr. Estée Lauder Futurist Hydra Rescue SPF 45, 9.799 kr. Clinique Moisture Surge 100H Auto- Replen- ishing Hydrator, 6.999 kr. Clarins Double Serum Eye, 8.990 kr. Pestle & Mort- ar Vitamin C 2 Phase Serum, 15.990 kr. Frank Body Peppermint Body Scrub, 3.490 kr. Marc Inbane Hyaluronic Self-Tan Spray, 8.162 kr. St. Tropez Luxe Tan Tonic Glow Drops, 7.699 kr. FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022 MORGUNBLAÐIÐ 27

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.