Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 30
AFP 1 Allt það besta frá aldamót- unum Jennifer og Ben eru trúlofuð, Britney er frjáls og já, við erum komin aftur að aldamótunum og þeim glæstu árum rétt fyrir þau og á eftir. Margir fagna þeirri staðreynd að við séum farin 20 ár aftur í tímann og hafa þegar dregið fram netaboli og rifnar gallabuxur. Við drögum þó linuna við bláa sanseraða augnskugga og ofplokkaðar auga- brúnir. Brúnu og náttúrulegu litatónar 10. ára- tugarins, í anda Cindy Crawford, eru alltaf fal- legir og tilvalið að tileinka sér þá þegar kemur að þessu trendi. 2 Djarfir litir Líkt og í fatatískunni eru bjartir og djarfir litir einnig áberandi í förð- unartísku sumarsins. Litadýrðin nær til allra staða andlitsins, hvort sem um ræðir augu, varir eða kinnar. Slíkir litir lífga sann- arlega upp á andlitið og jafnvel sálartetrið um leið. 3 Varaolíur Það er fátt kynþokkafyllra en gljá- miklar og olíubornar varir en eitt það vinsælasta í dag eru varaolíur. Á sam- félagsmiðlum hafa varaolíur Clarins og Dior verið þær eftirsóttustu til að hafa í snyrtivesk- inu en nýverið uppfærði Clarins varaolíur sínar og hafa þær sjaldan verið girnilegri. 4 Tilfinningaríkur augnlínufarði Sama hvernig þér líður, þá get- urðu eflaust tjáð það með ein- hverskonar formi af augnlínufarða. Það er allt leyfilegt; öll form og allir litir. Fyrir þau ykkar sem vilja fara eftir beinum línum í líf- inu, þá er til dæmis hægt að halda í klassíska lögun en nota litaðan augnlínufarða eða setja augn- skugga í skemmtilegum lit yfir svartan augnlínufarða. 5 Glitur og glimmer Glitur og glimmer verður áberandi í sumar, en bæði er það vinsælt á augnlok og sömuleiðis sem skraut í hárið eða á aðra staði andlitsins og líkamans. Snyrtivörumerki á borð við MAC, NYX og Shiseido eru með skemmtilegt úr- val af slíkum snyrtivörum, fyrir ykkur sem ætlið að taka sumarið með trompi. 6 Kinnalitur Ólíkt árunum hér áður fyrr, þá er minna um sólarpúður þetta sumarið og aukin áhersla á kinnalit. Bæði eru náttúrulegir kinnalitir og ferskjulitaðir kinnalitir að koma sterkir inn, til að fá aukna hlýju andlitið, en einnig má sjá bjarta og skærbleika kinnaliti í talsverðri notkun um þessar mundir. Ferskleikinn er allsráðandi. 7 „Grunge“ Fyrir ykkur sem ekki voruð á hressa vagninum um aldamótin, þá er „grunge“- fílingurinn kominn aftur líka. Augn- línufarði, dökkar varir og dökkur klæðnaður hefur verið áberandi undanfarið og verður líklegast áfram fram í næsta vetur. Tilvalið er að setja Nirvana aftur á fóninn og finna hvernig tónlistin leiðir þig áfram. 8 Áberandi varir Eftir að hafa falið varirnar í tvö ár er stundin loksins runnin upp, þar sem þær fá að njóta sín á ný. Hvort sem þú vilt dökk- rauðar varir, bjartar varir eða bleikar varir, þá skaltu njóta þess að baða varirnar í varalit og aldrei taka honum sem sjálfsögðum hlut aftur. Bjartur varalitur er einnig eitt besta vopnið í snyrtiveskinu til að hressa upp á andlitið á auga- bragði. Heitustu förðun- artrendin í sumar Áður fyrr voru það tískuhúsin sem leiddu förðunartrendin á hverju tímabili. Nú hafa samfélagsmiðlar þó aukið vægi og stundum óljóst hvort tískustraumarnir byrji á sýningarpöllunum eða samfélagsmiðlunum. Eitt er þó víst, við erum komin aftur að aldamótunum. Lilja Ósk Sigurðardóttir | snyrtipenninn@gmail.com NYX Metallic Glitter Paillettes (Goldstone), 1.595 kr. Shiseido POP PowderGel Eye Shadow, 3.780 kr. Smashbox Always On Liquid Lipstick (Role Model), 4.699 kr. AFP Estée Lauder Little Black Liner, 6.190 kr. Augu Doju Cat voru eins og listaverk á Met Gala. Takið eftir svörtu línunni í kringum augnkrókinn og gula augnskugganum sem var settur inn í. MAC Pro Longwear Paint Pot (Black Mirror), 5.390 kr. Clarins Lip Comfort Oil, 4.999 kr. Bare Minerals BarePro Longwear Lipstick (Cherry), 4.999 kr. Shiseido Aura Dew (01 Lunar), 4.370 kr. Bobbi Brown Luxe Defining Lipstick (First Edition), 7.690 kr. Cara Delevingne skar sig úr á Met Gala á dögunum. 30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022 Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC Hæ Við erummeðSWING gleraugu og þau eruÆÐI Kosta bara9.900 kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.