Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 20
sólgleraugum, áberandi fylgihlutum og mikil-
fenglegum kjólum. „Sometimes, bigger is bet-
ter“,“ segir Lovísa.
Uppáhaldsverslunin á Íslandi?
„Ég versla mest í Zöru hér heima. Ég var
að vinna þar þegar ég var yngri svo búðin
er alltaf í miklu uppáhaldi hjá mér.“
En í útlöndum?
„Saks Fifth Avenue, Macy’s, Nor-
dstrom og Ralph Lauren.“
Verslar þú mikið á netinu?
„Einstaka sinnum, en mér finnst
skemmtilegra að fara í búðir og finna
hvernig mér líður í fötunum.“
Hvað finnst þér setja punktinn
yfir i-ið þegar þú gerir þig til?
„Ég elska fallega fylgihluti.
Mynstraður silkiklútur í fal-
legum lit um hálsinn gerir ein-
falt dress meira elegant. Lykt
er einnig mikilvæg. Hún er
eitthvað sem þú skilur eftir
þig þegar þú hefur verið í ná-
vist fólks og er ákveðinn
punktur í minningu fólks af
þér. Mín uppáhaldslykt er So-
leil Blanc frá Tom Ford. Svo líður
mér best með nokkuð einfalda förðun
og mjúka liði í hárinu.“
Bestu kaup sem þú hefur gert?
„Alma monogram BB-taskan mín frá Louis
Vuitton. Hún var fyrsta hönnunartaskan mín
og ég hef notað hana mjög mikið. Tímalaus
klassík.“
Mesta tískuslysið þitt?
„Úff. Þegar ég var í grunnskóla var
mikið sport að setja sokkana yfir buxna-
skálmarnar. Það var hræðilegt.“
Hvaðan sækir þú innblástur?
„Mínar tískufyrirmyndir eru Kate
Middleton, Jackie Kennedy og Sarah
Jessica Parker. Einnig fylgist ég mikið
með tískupöllunum og þau tískuhús
sem slá oftast í gegn að mínu mati
eru Chanel, Christian Dior, Fendi,
Oscar de la Renta og Tom Ford.
Annars elska ég að fylgjast með
mannlífinu í stórborgum. New
York er uppáhaldsborgin mín en
það heillar mig mikið hvað mann-
lífið þar er fjölbreytt og skrúðugt og allir fá að vera eins og
þeir vilja. Það veitir mér innblástur.“
Hvað er í uppáhaldi í fataskápnum þínum?
„Fallegu rauðu Jimmy Choo-hælaskórnir mínir sem
Ágúst, kærasti minn, gaf mér í jólagjöf síðustu jól. Hann
þreytist aldrei á að hitta í mark hjá mér og það er enginn
sem þekkir mig betur en hann. Ég hef hann nær alltaf með
í ráðum þegar ég vel mér föt því hann er svo æðislega
hreinskilinn.“
Ef peningar væru ekki vandamál, hvað myndir þú kaupa
þér?
„Hermès Kelly- og Birkin-tösku, Chanel classic-tösku,
Chanel tweed-dragtir, kjóla frá Oscar de la Renta, skart-
gripi frá Tiffany & Co., Harry Winston, Van Cleef & Arples
og Louboutin’s í öllum regnbogans litum.“
Hvað er nauðsynlegt að eiga í fataskápnum sínum þessa
stundina?
„Góða kápu hér á Íslandi og gott par af gallabuxum í
bláum eða ljósum lit, ég er hrifin af gallabuxum í beinu
sniði þessa stundina. Ég mæli með fallegum klútum, hvort
sem maður kýs að binda þá um hálsinn, hárið eða tösku.
Áberandi litir eru líka inn núna og svo er alltaf gott að eiga
góða strigaskó.“
Hvað er á óskalistanum?
„Hermès Oran-sandalar, stór aviator-sólgleraugu og fleiri
litríkar flíkur.“
Jakkinn er frá Ralph Lauren en
klúturinn er frá Hawes & Curtis.
Kærasti Lovísu valdi klútinn og
keypti hann þegar þau voru í
London síðasta sumar.
„Ég elska fallega
fylgihluti. Mynstr-
aður silkiklútur í fal-
legum lit um hálsinn
gerir einfalt dress
meira elegant. Lykt
er einnig mikilvæg.“
Bleiku og rauðu
hælarnir eru frá Jimmy
Choo. Bleiku ballerínu-
skórnir eru frá Salva-
tore Ferragamo
Pleðurbuxurnar eru úr
Zöru. Beltið er frá Louis
Vuitton en Lovísa féll
fyrir því þegar hún var í
fjölskyldufríi í Flórída fyrir
nokkrum árum vegna
þess að það er hægt að
snúa því á báða vegu.
Það er rautt öðru megin
og í klassíska Louis
Vuitton monogram
mynstrinu hinum megin.
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646