Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 33
H vernig er snyrtirútínan þín? „Á sunnudagskvöldum geri ég mig klára fyrir vikuna. Þá lita ég og plokka á mér augabrúnirnar og set djúpnæringu í hárið. Núna nota ég Intensive Mask frá Label.m. Brúnkukrem á annaðhvort andlit eða andlit og líkama. Svo set ég á mig góðan maska, núna síðast not- aði ég Infuse Fast-andlitsmaskann frá Wrinkles Schminkles en hann dregur úr hrukkum, jafnar húðlit og hjálpar til við að laga skemmdir í húð. Með svona góðum grunnundirbúningi eru morgnarnir út vikuna auðveldari og þá þarf svo miklu minni fyrirhöfn til að mæta fersk í daginn,“ segir Kristín Tinna. Hvað gerirðu til að hugsa sem best um húðina? „Vera dugleg að þrífa hana og bera gott krem sem við- heldur raka. Ég ber reglulega á andlitið Cera Repair frá Biotherm og Glow Serum frá Wrinkles Schminkles á morgnana sem virkar vel sem grunnur undir farða. Ég djúphreinsa húðina á um það vil tveggja vikna fresti með ávaxtasýruklút.“ Hvert er besta bjútíráð sem þú hefur fengið? „Að þvo hendurnar með tannkremi til að losna við brúnkukremsmislit í lófum.“ Hvaða snyrtivöru gætir þú ekki verið án? „Maskara. Augnhárin mín eru það ljós og fíngerð að ég get ekki verið án maskara. Í augnablikinu nota ég Sensa- tional Sky High frá Maybelline.“ Finnur þú fyrir því að húðin sé að eldast og hvað ger- irðu í því? „Já, undanfarin ár hef ég séð hraðar breytingar á húð- inni. Sérstaklega á enninu og á bringunni. Ég kynntist hrukkuplástrum sem ég sef með. Þeir koma í veg fyrir svefnhrukkur en auka á sama tíma blóðflæði, raka og kollagenframleiðslu þannig að þegar ég tek plástrana af mér á morgn- ana eru grunnar línur farnar. Inn á milli sef ég einnig með örnálaplástra frá sama merki þegar ég vil herja betur á dýpri hrukkur. Hjá mér eru „reiðihrukk- urnar“ verstar en ég sé strax mun eftir fyrstu notkun.“ Hvernig farðar þú þig dagsdaglega? „Yfir sumartímann farða ég mig mun minna því ég vil sýna freknurnar og vera fersk. Ég er með gerviaugnhár á efri augnhárunum þannig að ég nota maskara á þau neðri; tvískipta hyljarann frá Estée Lauder sem ég ber í kringum nasirnar og í augnkrók og svo örlítið sólarpúður yfir. Mér hefur reynst Bronze to Paradise frá L’Oréal best fyrir létt sólar-look, svo Balm Dezert sem er blanda af „bronzer“ og kinnalit sem ég set á kinnbeinin fyrir ljóma. Fyrir meira look elska ég Double Wear-farðann frá Estée Lauder. Ég hef notað hann í fimm ár og kaupi alltaf aftur. Ég þarf ekki að nota hyljara með því hann sér um það, svo tollir hann á húðinni allan daginn. Ég er með rósroða og ör eftir bólur í andliti þannig að það er sjaldgæft fyrir mig að finna farða sem hylur jafn vel.“ Þvær hendurnar með tannkremi Kristín Tinna Aradóttir framkvæmdastjóri Wrinkles Schminkles nýtir sunnudagana vel. Þá djúpnærir hún á sér hárið, plokkar augabrúnir og ber á sig brúnkukrem. Þess á milli sefur hún með plástra sem slétta úr hrukkum. Marta María Winkel Jónasdóttir | mm@mbl.is Kristín Tinna sefur með plástur í andlitinu. Kristín Tinna Aradóttir hugsar vel um útlitið. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fórst þú í aðgerðina á þinn kostnað? „Heilsan var orðin það slæm að ég setti það ekki fyrir mig. Ég dreifði bara afborgununum, ég hafði ekkert val. Ég veit að það eru margar sem safna sér fyrir þessu en aðgerðin kostar hátt í milljón,“ segir Jónbjörg, sem lét bæði fjarlægja púða og örvefina í heilu lagi utan um púðana. Útlitið er bara kápa Jónbjörg er ekki mótfallin því að fólk fari í fegrunaraðgerðir en hvetur fólk til þess að vera upplýst áður en það tekur stórar ákvarðanir á borð við þá sem hún tók. „Mér finnst mega gefa konum betri upplýsingar um aðgerðina. Ég held að margar myndu sleppa því í dag, vitandi af skaðseminni. Ég hefði ekki farið í aðgerðina 2015 ef ég hefði vitað allt þetta, ef umræðan hefði verið orðin svona mikil. Læknirinn lét mig ekki fá upplýsingar, ég fékk ekki að vita neitt um innihaldsefni púðanna, ég fékk engan bækling, ekki neitt. Ég kom bara inn þarna með lélegt sjálfsmat. Ég vildi bara ekki vera með brjóst sem löfðu niður á nafla og mér leið illa þannig. „Já, við skellum í þig sílikonpúðum,“ sagði læknirinn. Ég vissi ekki neitt. Ég vil að konur viti af hætt- unni,“ segir Jónbjörg. Henni var ekki bent á að tala við sál- fræðing eða annan fagaðila áð- ur en henni var skellt á skurð- arborðið. „Útlit mitt er bara kápa. Það hefur ekkert að gera með hver ég er, það skilgreinir mig ekki. Ég hef verið mjó á þessu tíma- bili og ég hef verið feit á þessu tímabili og ég hef verið þarna á milli. Andlega heilsan varð ekk- ert betri þótt ég væri mjó,“ seg- ir Jónbjörg þegar hún er spurð hvað hún myndi segja við yngri út- gáfuna af sjálfri sér. „Fræðstu meira um hvað þú ætlar að setja í líkama þinn. Ekki fara í vanlíðan og taka ákvörðun um að setja aðskotahlut í líkamann sem getur gjörsamlega rænt þig lífinu, þeir gera það í svo mörgum tilfellum. Ég veit um svo margar sem hafa orðið jafnveikar og ég eða jafnvel veikari,“ segir Jónbjörg. Í dag er Jónbjörg full sjálfstrausts og það stendur ekki á svörum þegar blaðamaður spyr hana út í brjóstin sem hún er með í dag. „Mér gæti ekki verið meira sama. Maðurinn minn á stóran þátt í því. Ég hafði áhyggjur af því að hann yrði ekki ánægður með mig. Hann er hann svo mikill klettur og er mjög hvetjandi. Hann sagði: „Ég vil bara hafa þig,““ segir Jónbjörg ánægð með manninn sinn. Hún horfir horfir björtum augum til framtíðar. Hún vonast til þess að klára grunnnámskeið í björgunarsveit sem hún þurfti að hætta á þegar heilsunni hrakaði á sínum tíma. Hún segist lifa fyrir að hjálpa öðrum og gefa af sér og stefnir á að gera það einn daginn í björgunarsveit. „Útlit mitt er bara kápa. Það hefur ekk- ert að gera með hver ég er, það skilgreinir mig ekki. Ég hef verið mjó á þessu tímabili og ég hef verið feit á þessu tímabili og ég hef verið þarna á milli.“ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022 MORGUNBLAÐIÐ 33 Grandagarði 13 Glæsibæ, 5.hæð eyesland.is Mikið úrval af vönduðum sólgleraugum í Eyesland. Skoðaðu úrvalið á eyesland.is Hágæða sólgleraugu Grandagarði 13 Glæsibæ, 5.hæð eyesland.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.