Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 8
A
uk þess að vera mikil tískudrottn-
ing elskar Elma að elda og dansa, sama hvort
það sé á Beyoncé-dansnámskeiði í Kramhús-
inu, skemmtistöðum bæjarins eða í
eldhúsinu heima hjá sér. Smart-
land fékk að kíkja í fataskáp
Elmu.
Hvernig myndir þú lýsa
fatastílnum þínum?
„Litríkur og glitrandi. Ég klæðist
alls konar mismunandi litum, mynstr-
um og vil helst vera öll glitrandi af
skarti eða pallíettum. Mér finnst ólýs-
anlega gaman að tjá mig í gegnum
fatnað. Þegar ég byrjaði að vinna
heima í Covid reyndi ég ávallt að klæða
mig í eitthvað skemmtilegt svo ég myndi
nú ekki tapa gleðinni. Það mætti því segja
að þegar allir byrjuðu að púsla í Covid púsl-
aði ég bara saman outfittum í staðinn.“
Hvernig föt klæða þig best?
„Ég myndi segja bara flest allt nema vínrautt. Mér
hefur alltaf þótt það skipta mestu máli að líða vel í því sem þú
klæðist og þá ertu fabjúlös, sama í hverju þú ert. Það fylgir því
líka svo mikið sjálfstraust þegar þú klæðir þig eins og þér finnst
flottast.“
Fyrir hverju fellur þú oftast?
„Jökkum og skóm, það eru klárlega bæði mínir styrkleikar
og mínir veikleikar, þar sem ég á mjög erfitt með að labba í
burtu frá fallegu skópari eða guðdómlegum kápum og jökkum.“
Hvernig klæðir þú þig dagsdaglega?
„Það er voðalega misjafnt. Mér þykir mjög sniðugt að vera
með eitthvað tvennt eða þrennt í stíl, eins og svipaða eða sömu
litasamsetningu á tösku og skóm. Ég er líka alltaf með skart-
gripi og þá helst marga eyrnalokka og hringi á nánast öllum tíu
fingrunum. Ég myndi segja að mín helsta áskorun sé að reyna
að vera pæja í íslensku veðurfari, þar fæ ég oft aðstoð frá litrík-
um treflum og peysum.“
Hvernig klæðir þú þig þegar þú ert að fara eitthvað fínt?
„Þá dreg ég oftast fram pallíetturnar og ýkta flotta eyrna-
lokka.“
Hvað er að finna í fataskápnum þínum?
„Alla regnbogans liti og ég myndi segja mikið af
grúví 70’s mynstruðum skyrtum.“
Verstu fatakaupin?
„Óþægilegir skór. Ég mun aldrei vera sammála
staðhæfingunni „beauty is pain“. Það er alltaf jafn
erfitt að horfa upp á fallegu skóna sem þú keyptir í
ölæði og veist vel að þú endist aðeins í þeim í 10
mínútur.“
Bestu fatakaupin?
„Kápurnar mínar úr Gyllta kettinum enda alveg
gullfallegar. Ég kaupi mjög mikið second-hand og ég
fer sjaldnast út úr Gyllta kettinum tómhent.“
Eru einhver tískuslys í fataskápnum þínum?
„Ég er dugleg að gefa og selja af mér spjarirnar svo þau
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Markaðsfulltrúinn Elma Dís Árna-
dóttir segir það vera áskorun að vera
pæja í íslensku veðurfari. Hún lætur
þó engan bilbug á sér finna og klæðir
sig upp í litríkar og glitrandi flíkur
sama hvernig veðrið er.
Áskorun
að vera
pæja í
íslensku
veðri
Elma Dís Árnadóttir er 26 ára tískuunnandi
sem elskar að klæða sig upp og vill helst vera
með hring á hverjum fingri öllum stundum.
Elma, sem er markaðsfulltrúi hjá Sky Lagoon,
tjáir sig í gegnum fatnað og þegar hún þurfti
að vinna heima í faraldrinum byrjaði hún að
klæða sig upp ´til að tapa ekki gleðinni.
Sonja Sif Þórólfsdóttir | sonja@mbl.is
Jakkinn er úr Gyllta
kettinum, skyrtan Hertez,
buxurnar úr Aritzia og
hælarnir frá Public Desire.
Skórnir eru frá
38 Þrepum.
5 SJÁ SÍÐU 10
Elma fellur oft fyrir
fallegum hælaskóm.
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022