Morgunblaðið - 20.05.2022, Page 8

Morgunblaðið - 20.05.2022, Page 8
A uk þess að vera mikil tískudrottn- ing elskar Elma að elda og dansa, sama hvort það sé á Beyoncé-dansnámskeiði í Kramhús- inu, skemmtistöðum bæjarins eða í eldhúsinu heima hjá sér. Smart- land fékk að kíkja í fataskáp Elmu. Hvernig myndir þú lýsa fatastílnum þínum? „Litríkur og glitrandi. Ég klæðist alls konar mismunandi litum, mynstr- um og vil helst vera öll glitrandi af skarti eða pallíettum. Mér finnst ólýs- anlega gaman að tjá mig í gegnum fatnað. Þegar ég byrjaði að vinna heima í Covid reyndi ég ávallt að klæða mig í eitthvað skemmtilegt svo ég myndi nú ekki tapa gleðinni. Það mætti því segja að þegar allir byrjuðu að púsla í Covid púsl- aði ég bara saman outfittum í staðinn.“ Hvernig föt klæða þig best? „Ég myndi segja bara flest allt nema vínrautt. Mér hefur alltaf þótt það skipta mestu máli að líða vel í því sem þú klæðist og þá ertu fabjúlös, sama í hverju þú ert. Það fylgir því líka svo mikið sjálfstraust þegar þú klæðir þig eins og þér finnst flottast.“ Fyrir hverju fellur þú oftast? „Jökkum og skóm, það eru klárlega bæði mínir styrkleikar og mínir veikleikar, þar sem ég á mjög erfitt með að labba í burtu frá fallegu skópari eða guðdómlegum kápum og jökkum.“ Hvernig klæðir þú þig dagsdaglega? „Það er voðalega misjafnt. Mér þykir mjög sniðugt að vera með eitthvað tvennt eða þrennt í stíl, eins og svipaða eða sömu litasamsetningu á tösku og skóm. Ég er líka alltaf með skart- gripi og þá helst marga eyrnalokka og hringi á nánast öllum tíu fingrunum. Ég myndi segja að mín helsta áskorun sé að reyna að vera pæja í íslensku veðurfari, þar fæ ég oft aðstoð frá litrík- um treflum og peysum.“ Hvernig klæðir þú þig þegar þú ert að fara eitthvað fínt? „Þá dreg ég oftast fram pallíetturnar og ýkta flotta eyrna- lokka.“ Hvað er að finna í fataskápnum þínum? „Alla regnbogans liti og ég myndi segja mikið af grúví 70’s mynstruðum skyrtum.“ Verstu fatakaupin? „Óþægilegir skór. Ég mun aldrei vera sammála staðhæfingunni „beauty is pain“. Það er alltaf jafn erfitt að horfa upp á fallegu skóna sem þú keyptir í ölæði og veist vel að þú endist aðeins í þeim í 10 mínútur.“ Bestu fatakaupin? „Kápurnar mínar úr Gyllta kettinum enda alveg gullfallegar. Ég kaupi mjög mikið second-hand og ég fer sjaldnast út úr Gyllta kettinum tómhent.“ Eru einhver tískuslys í fataskápnum þínum? „Ég er dugleg að gefa og selja af mér spjarirnar svo þau Morgunblaðið/Árni Sæberg Markaðsfulltrúinn Elma Dís Árna- dóttir segir það vera áskorun að vera pæja í íslensku veðurfari. Hún lætur þó engan bilbug á sér finna og klæðir sig upp í litríkar og glitrandi flíkur sama hvernig veðrið er. Áskorun að vera pæja í íslensku veðri Elma Dís Árnadóttir er 26 ára tískuunnandi sem elskar að klæða sig upp og vill helst vera með hring á hverjum fingri öllum stundum. Elma, sem er markaðsfulltrúi hjá Sky Lagoon, tjáir sig í gegnum fatnað og þegar hún þurfti að vinna heima í faraldrinum byrjaði hún að klæða sig upp ´til að tapa ekki gleðinni. Sonja Sif Þórólfsdóttir | sonja@mbl.is Jakkinn er úr Gyllta kettinum, skyrtan Hertez, buxurnar úr Aritzia og hælarnir frá Public Desire. Skórnir eru frá 38 Þrepum. 5 SJÁ SÍÐU 10 Elma fellur oft fyrir fallegum hælaskóm. 8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.