Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
Hæ Við erummeðSWING
gleraugu og þau eruÆÐI
Kosta bara9.900 kr.
K
ristín Þórsdóttir, eigandi og stofnandi Eld-
móðs fræðsluseturs, er ACC-vottaður mark-
þjálfi. Megináhersla hennar í eigin fyrirtæki
er kynlífsmarkþjálfun, hún starfar einnig sem
markþjálfi hjá Krafti, stuðningsfélagi fyrir
ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstand-
endur þess.
Kristín gefur ráð til að gera gott kynlíf betra. Að tengj-
ast kynverunni sem býr í hverjum og einum og aðstoðar
með vandamál sem geta komið upp á kynferðissviðinu,
sem er nokkuð sem getur hitt alla á lífsleiðinni að hennar
sögn.
„Það er mest að gera hjá mér í kynlífsmarkþjálfun
núna, en ég tek á móti einstaklingum og pörum í kynlífs-
markþjálfun í Lífsgæðasetri St. Jó í Hafnarfirði. Ég er
einnig að undirbúa námskeið sem ég hef haldið áður,
„Kveiktu á þér, fyrir þig“, sem ég mun
halda hjá vinkonu minni Láru Rún-
arsdóttur, eiganda Móa stúdíós. Það
er námskeið fyrir konur á öllum aldri
þar sem við förum yfir spurningar á
borð við: Ertu tengd þér sem kyn-
veru? Ertu sátt með kynlífið sem þú
stundar með þér og öðrum? Þorir þú
að segja hvað þig langar að upplifa í
kynlífi og að setja mörk?
Parakvöldin í Móum hafa verið
mjög vinsæl þar sem pör koma saman
og fá ýmsan fróðleik tengdan nánd, samböndum, skyn-
færum og trausti, ásamt því að ég leiði pörin inn í léttar
æfingar til að dýpka nánd og traust þeirra á milli.“
Að tala um kynlíf án fordóma
Markþjálfun er aðferðafræði sem byggist á samtölum
sem miða að því að laða það besta fram hjá hverjum og
einum.
„Fólki gefst kostur á að auka yfirsýn og bæta árangur
bæði í einkalífi sem og í starfi. Kynlífsmarkþjálfun bygg-
ist á sömu fræðum og hefðbundin markþjálfun en snýst
einnig um að skapa traust og öruggt rými þar sem fólk
getur talað um allt sem viðkemur kynlífi sínu. Þar með
talið fantasíur, óöryggi, vandamál og ótta án þess að þurfa
að upplifa skömm. Kynlífsmarkþjálfi hjálpar fólki að bæta
kynlífið, nánd og sambönd og sigrast á ýmsum hindr-
unum. Einnig er alltaf hægt að fara yfir það hvernig má
gera gott kynlíf betra.
Kynlífsmarkþjálfun nær yfir mörg svið og þar má með-
al annars nefna sjálfsfróun, snertingu, samskipti, nánd,
hlutverkaleiki, klám, sambönd, líkamsímynd, af-
brýðisemi, fantasíur, opin hjónabönd, sving, BDSM, kyn-
ferðisofbeldi, fullnægingar, kynhvöt, kynhneigð, kynlífs-
leikföng, frammistöðukvíða, sambandskvíða, of brátt
sáðlát, sársauka við samfarir og margt fleira.“
Hvernig lýsir þú skjólstæðingum þínum?
„Skjólstæðingar mínir eru á öllum aldri, alveg frá ung-
lingum upp í fólk yfir sjötugt. Af öllum kynjum og kyn-
hneigð. Það eru allir velkomnir.“
Konur gefa sér oft ekki tíma í kynlíf
Hvað eru konur aðallega að fást við núna?
„Það er mjög misjafnt hvað konur eru að fást við núna
en það sem ber mest á hjá mínum skjólstæðingum er að
konur eru búnar að týna sjálfum sér sem kynverum. Öll
áhersla hefur verið á að koma börnunum á legg, sinna
vinnu eða námi og fjölskyldunni en svo gleyma þær sér og
löngunum sínum, sem er eðlilegt. Þá er gott að fara yfir
nokkur atriði og varpa fram spurningum um hvort þær
stundi sjálfsfróun. Hvort þær séu ánægðar með kynlífið
sem þær stunda. Með sér og öðrum. Hvað þeim þykir
gott. Hvort þær þori að biðja um það sem þær vilja og
hvað þær vilja prófa. Hvernig þeim líður með sig.“
Kristín segir konur oft burðast með skömm sem hafi
mikil áhrif á kynlíf þeirra.
„Þær eru með líkamsskömm og mismunandi kynlöng-
un.“
Hversu miklu máli skiptir heilbrigt kynlíf að þínu mati?
„Heilbrigt kynlíf er mjög vítt hugtak. Eitthvað sem
gæti verið heilbrigt kynlíf fyrir þér getur virkað „trigger-
andi“ fyrir aðra og öfugt. Það sem skiptir mestu máli er
að þekkja líkama sinn. Vita hvað maður vill og vill ekki.
Þora að eiga samskipti og segja hvað maður vill, ef við er-
um að fara að stunda kynlíf með öðrum aðila eða aðilum.“
Kristín trúir að samskipti, virðing og traust séu grunn-
urinn að góðu kynlífi.
„Ef traust er fyrir hendi er mögulega auðveldara að
segja hvað maður vill og ef virðing er það líka eru meiri
líkur á að þú þorir að segja hvað þig langar til að gera og
sért ekki í ótta yfir því að viðkomandi geri lítið úr löng-
unum þínum.“
Hvað er óheilbrigt kynlíf að þínu besta viti?
„Þegar fólk virðir ekki hvort annað, þegar ítrekað er
verið að suða um eitthvað sem þú veist að viðkomandi er
ekki til í. Þegar ekki er hlustað, gert lítið úr og ef við erum
komin út í það að virða ekki mörk hvort annars þá getur
það hreinlega orðið ofbeldi.“
Þora ekki að móðga makann með því að biðja um eitt-
hvað nýtt
Hún segir fólk vera að kljást við ýmislegt varðandi kyn-
líf og sambönd almennt.
„Sem dæmi er mjög algengt að fólk sem er í sambandi
gefi sér ekki tíma fyrir kynlíf. Það verður oft neðst á for-
gangslistanum því það er svo margt að gera í hversdags-
leikanum.
Einnig geta komið upp vandamál þegar börnin eru orð-
in meira sjálfbjarga og allur fókusinn ekki lengur á þeim,
þá sitja kannski tveir einstaklingar sem hafa allt í einu
meiri tíma hvor fyrir annan og vita ekki hvað þá langar
lengur. Þurfa jafnvel að kynnast upp á nýtt. Það getur
verið krefjandi, en er alls ekki óyfirstíganlegt. Einnig er
mikið um menn, á öllum aldri, sem glíma við fram-
mistöðukvíða. Og fólk yfirhöfuð með lélega sjálfsmynd er
kannski að miða sig alltof mikið við aðra í kringum sig og
fólk sem það fylgir á samfélagsmiðlum. Einnig finnst mér
mikið um að konur upplifi mikla skömm gagnvart kynlífi.
Þá förum við oft yfir söguna og skoðum hvaðan það kem-
ur og vinnum með það.“
„Karlmenn eru með mikla kynhvöt“ er hugmynd sem
finna má djúpt í rótum samfélagsins að mati Kristínar.
„Og konur eiga að vera með minni kynhvöt, svo þegar
konur eru með mikla kynhvöt upplifa þær oft og tíðum
skömm yfir því. Eins eru til karlar með litla kynhvöt og þá
upplifa þeir það sem óeðlilegt.
Við erum í raun eins misjöfn og við erum mörg, óháð
kyni og aldri.“
Rannsóknir sýna að gagnvart kynlífi verður fólk oft
feimið og ekki mjög opinskátt með sín mál. „Fólk er oftast
óttaslegið um að falla ekki inn í „normið“, hugtak sem ég
væri til í að henda í burtu. Hvað er þetta norm? Margir
eru hræddir við að biðja um það sem þeir vilja vegna ótta
um skömm og höfnun. Margir vilja líka ekki særa hinn að-
ilann og halda þá að með því að stinga upp á einhverju
nýju sé verið að setja út á allt sem hefur verið gert hingað
til. Sem er ekki rétt. Það er fullkomlega eðlilegt að vilja
prófa nýja hluti; alveg eins og bragðlaukar okkar þróast
og breytast með aldrinum gera kynlanganir okkar það
líka. Værir þú til í að borða sama matinn alltaf? Eða lang-
ar þig í einhverja tilbreytingu. Það eru mörg skemmtileg
„Skjólstæð-
ingar mínir
eru á öllum
aldri“
Það þrá flestir ást og nánd og gott kynlíf
virðist aldrei skemma fyrir fólki nema síður sé.
Þessu er Kristín Þórsdóttir kynlífsmarkþjálfi
sammála, en til hennar leitar fólk á öllum aldri sem
vill upplifa kynlíf sem er þess virði að stunda það.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Konur gefa sér oft ekki tíma í kynlíf, því það er svo margt
að gera í hversdagslífinu. Kynlíf, ást og nánd er mikilvægt
fyrir alla að upplifa og konur hafa sínar langanir rétt eins
og aðrir að mati Kristínar. Stundum þarf bara aðeins að
fara ofan í sögu þeirra ef eitthvað er stopp.
„Ef við erum ást-
fangin upp fyrir
haus og endalaust
að dást að maka
okkar hefur það að
sjálfsögðu góð
áhrif á samband
okkar og kynlíf.“