Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 39
FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022 MORGUNBLAÐIÐ 39
BIOEFFECT verslun Hafnartorgi 19 | Valdir útsölustaðir | bioeffect.is
Þ
að er mjög gaman að vera komin í skóla aftur og er ég á haus
þessa dagana, þar sem önnin klárast um miðjan mánuðinn og
nokkur skólaverkefni eru enn ókláruð. Ég hef verið að vinna úr
nokkrum ljósmyndaverkefnum sem ég á eftir að skila af mér,“
segir hún þegar blaðamaður spyr hvað sé að frétta af henni núna.
Kristín Ásta ákvað að fara í nám, þar sem hana langaði að breyta til í lífinu
og bæta við sig skapandi námi.
„Þá lá þetta beint við. Ég hef alltaf haft gaman af því að taka myndir. Ég
hef eins alltaf haft miklar skoðanir á ljósmyndum og horfi oft á nánasta um-
hverfi út frá því hvernig það rammast inn. Upphaflega ætlaði ég bara að taka
eitt ár en þau plön fóru fljótt út um gluggann þegar ég byrjaði í náminu.
Það er ótrúlega gaman að fara í nám á fimmtugsaldrinum þegar maður er
loksins búinn að finna sína hillu í lífinu.“
Aðstoðaði fyrirsætur erlendis
Kristín Ásta hefur nánast allt sitt líf unnið með ljósmyndir.
„Ég var fyrsti starfsmaður sem var ráðinn inn hjá Eskimo, fyrir utan eig-
endur. Við erum að tala um tíma faxtækja og vefsíður voru það nýjasta og
heitasta af nálinni.
Það var ótrúlega skemmtilegur tími. Ég hélt meðal annars utan um stelpur
sem unnu sem fyrirsætur erlendis sem flestar eru orðnar mæður í dag.
Ég kynntist þeim mjög vel og foreldrum þeirra og eiga þær alltaf stað í
hjarta mínu. Ég ferðaðist mjög víða sjálf á þessum tíma og bjó í París um ára-
bil við að aðstoða rússneskar fyrirsætur með
atvinnuleyfi og að fóta sig í Evrópu,“ segir hún.
Kristín Ásta á þrjár dætur sem fæddar eru
árið 2001, 2006 og 2010. Hún er með BA-próf í
íslensku og vann með skólanum við að velja (e.
cast) fólk í auglýsingar.
„Ég vann á auglýsingastofu í tæp 10 ár sem
var mjög skemmtilegur tími þar sem engir
tveir dagar voru eins.
Svo skellti ég mér í ljósmyndanámið, sem er
ein besta ákvörðun sem ég hef nokkru sinni
tekið.“
Það er búið að vera mikið að gera í skólanum
hjá Kristín Ástu í vetur, svo mikið að hún hefur
varla tekið eftir kórónuveirufaraldrinum.
„Hvorki veðrið né kórónuveirutölurnar, þá
hvort smitin séu á uppleið eða niðurleið, hefur
haft áhrif á mig.“
Ljósmyndir eru samskiptamiðill
Kristín Ásta er ákaflega vinsæl og kannski
ekki að undra þar sem hún stígur vanalega ölduna með þeim sem standa
henni næst.
„Í sumar ætla ég að leysa vinkonu mína af sem á verslun. Svo þarf ég að
hugsa um hvað ég ætla að taka fyrir í lokaverkefninu sem er á næstu önn en
ég útskrifast eftir tveggja og hálfs árs nám um áramótin.“
Ástæðan fyrir því að Kristín Ásta er svo hrifin af ljósmyndum sem raun
ber vitni er sú að þær eru svo fjölþættar.
„Sem dæmi eru þær samskiptamiðill sem notaður er af okkur flestum dag-
lega. Ljósmyndir eru rannsóknarmiðill, skráningartæki, tungumál sem flest-
ir geta túlkað og síðast en ekki síst listmiðill.“
Elskar framandi lönd
Þegar maður forvitnast um lífsgildi Kristínar Ástu rís mikil raunhyggju-
manneskja upp í henni og hún svarar snögg upp á lagið: „Það er ástæða fyrir
því að þessi spurning fær oft klisjuleg svör. Maður er ábyggilega aldrei nógu
oft minntur á klisjurnar!
Lífið hefur samt kennt mér að meta hversdagsleikann, en tvær nánar mér
hafa fallið frá langt fyrir aldur fram á rúmu ári. Svo það er mikilvægt að
minna sig stöðugt á að reyna að hafa hversdagsleikann skemmtilegan, ekki
fresta öllu sem mann langar að gera þangað til seinna og vera þakklátur fyrir
það sem maður hefur.“
Hún veit fátt skemmtilegra en að ferðast út fyrir landsteinana og fara á
staði sem ekki eru í alfaraleið.
„Eins og til Nepals eða Síberíu. Eftirminnilegustu ferðirnar hafa ekkert að
gera með fín hótel eða mikinn lúxus. Ég er hrædd um að mér endist ekki æv-
in til að fara á alla þá staði sem mig langar til að heimsækja, en langar mjög
mikið að fara til Japans! Ég elska París en þangað fór ég fyrst með pabba
mínum fjórtán ára að aldri og nú síðast með skólafélögum síðastliðinn októ-
ber en skólinn skipuleggur ferð árlega á ljósmyndahátíðina Paris Photo.“
Fannst nærandi að sofa í bílnum
Kristín Ásta kann að gera vel við sig og taka tíma frá í dagsskipulaginu til
að hlaða batteríin.
„Það þarf ekki að vera flókið. Ég elska að liggja í heitu baði. Ég fæ flestar
hugmyndir að verkefnum þegar ég fer í göngutúr með Nínu, hundinn minn,
eða er ein að keyra. Við Nína fórum í smá bílferðalag austur á land í lok síð-
asta sumars þegar ég myndaði hampakra á þremur stöðum á landinu fyrir
landslagsáfanga í skólanum og sváfum í bílnum. Það fannst mér mjög nær-
andi. Svo er algjör núvitund að vera ein í myrkraherberginu að stækka upp
af filmu!“
Það verður spennandi að fylgjast með Kristínu Ástu fylgja draumum sín-
um og vonandi gefur viðtalið fleirum hugrekkið til að stökkva út fyrir boxið.
„Það er aldrei of seint að breyta til og láta bara vaða. Hvað er það versta
sem gæti gerst?“
„Lífið hefur kennt mér að
meta hversdagsleikann“
Kristín Ásta Kristinsdóttir ákvað að láta drauma sína rætast, setjast á skólabekk aftur og læra ljósmyndun
hjá Ljósmyndaskólanum. Hún hefur varla tekið eftir veðrinu né kórónuveirunni, svo gaman hefur verið hjá henni.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Ljósmynd/Kristín Ásta
Kristín Ásta starfaði
lengi á fyrirsætuskrif-
stofu og fylgdi ís-
lenskum fyrirsætum
eftir á erlendri
grundu. Hún vann
einnig á auglýs-
ingastofu lengi.
Kristín Ásta hefur unnið með ljós-
myndir lengi. Hún ákvað nú á
miðjum aldri að setjast á skólabekk
og læra að taka ljósmyndir sjálf.
Ljósmynd segir
meira en mörg orð.
Ljósmyndir segja sögu á
myndrænan hátt sem getur
hitt fólk í hjartastað.
Hún elskar einfalt líf
og kann að meta
hversdagsleikann.